Dagblaðið Vísir - DV - 21.05.1987, Blaðsíða 20
20
FIMMTUDAGUR 21. MAÍ 1987.
FIMMTUDAGUR 21. MAÍ 1987.
21
Iþróttir
Iþróttir
IFK Gautaborg
UEFA-meistari
- eftir 1-1 jafntefli gegn Dundee United
• Leikmenn IFK Gautaborg, Stig
Fredriksson, til vinstri, og markvörð-
urinn Thomas Wernersson, hampa
UEFA-bikarnum eftir leikinn gegn
Dundee United í gærkvöldi. Sigurgleði
Svíanna ieynir sér ekki eins og gefur
að skilja. Símamynd Reuter
Islenska badmintonfólkið
komst í stórkempuflokkinn
- vann allt glæsta sigra á heimsmeistaramótinu í badminton í Peking
Eins og fram kom í blaðinu fyrir
skemmstu héldu fjórir íslenskir keppn-
ismenn yfir fjöll og skóga til að glíma
í badminton í höfuðborg kínverska
alþýðulýðveldisins, Peking.
Okkar menn stóðu sig allir vonum
framar enda vakti framganga þein-a
umtalsverða athygli. Ljóst er að litla
ísland er að hasla sér völl á þessum
vettvangi sem öðrum.
O Eina stúlkan í förinni, Þórdís
Edwald, komst ekki skemmra en í 32
kvenna úrslit og er það ágætt afrek.
Lagði hún bandaríska stúlku, Lindu
French, að velli í fyrstu umferð, 11-0,
5-11 og 11-7. Síðan beið Þórdís lægri
hlut fyrir Susi Suanti frá Indónesíu,
5-11 og 2-11. Sú kona er nafhtoguð í
badmintonheiminum og er því engin
læging að bíða ósigur í rimmu við
hana.
• Piltarnir þrír, þeir Þorsteinn Páll
Hængsson, Guðmundur Adolfsson og
Broddi Kristjáasson, komust allir í
stórkempuflokk badmintonspilara.
Unnu þeir fyrstu tvær viðureignir sín-
ar og veittu slíkir sigrar þeim rétt til
að mæta stórstjömum heimsins í
íþróttinni.
„Ég er sæmilega sáttur við minn
hlut,“ sagði Broddi í spjalli við DV i
gær. „Ég hefði þó kosið betri úrslit í
síðari viðureignum minum. Meiðsl
settu þá strik í reikninginn.“
• Broddi Kristjánsson lék vel í Pek-
ing.
• Broddi lék við Sovétmanninn Ser-
gei Sevriukov í fyrstu umferð og
sigraði í tvísýnum leik, 5-15, 15-5 og
15-8. Þá glímdi Broddi við Jose Ittur-
iaga frá Perú til þess eins að hafa
15-5 og 17-15.
stórkemþuhópnum spilaði hann
síðan við ofjarl sinn, thailenska snill-
inginn Sompol Kukasemkij. Tapaði
Broddi eftir drengilega keppni, 1-15
og 6-15.
• Þorsteinn Páll Hængsson vann í
fyrstu þá Guy Chadwick frá Banda-
ríkjunum, 15-5, 15-7, og Ný-Sjálend-
inginn Jakob van Selm, 15-9 og 15-12.
Þá lék hann við Jan Erik Antonsson
frá Svíþjóð í stjömuflokknum og tap-
aði, 5-15 og 7-15.
• Guðmundur Adolfsson mætti
Chan Sui Kwong frá Hong Kong í
fyrstu umferð. Vann Guðmundur í
baráttuleik, 15-7, 5-15 og 15-8. Þá
glímdi Guðmundur við German Valdes
frá Perú og var sá garpur lagður að
velli án teljandi vandræða, 15-8 og
15-4.
Þá var Guðmundur kominn í hóp
þeirra bestu og mætti þá japönskum
ref, Hiroki Eto. Sá reyndist ekki lamb
að leika sér við, enda beið Guðmundur
lægri hlut, 5-15 og 7-15.
Tviliða-og tvenndarkeppni
Þórdís Edwald keppti með stúlku frá
Perú í tvíliðaleiknum, Xinema Bellido.
Komust þær þegar í aðra umferð án
þess að slá svo mikið sem vindhögg.
• Þórdís Edwald
bestu i Kina.
komst í höp 32
Andstæðingamir gáfu nefnilega leik-
inn.
í annarri umferð töpuðu þær hins-
vegar fyrir Lindu Cloutier og Doris
Piché, stúlkum frá Kanada, 12—15 og
5-15.
• Broddi og Þorsteinn töpuðu með
sama lagi sínum fyrsta leik í tvíliða-
keppni, 5-15 og 9-15. Mættu þeir
spilurum frá Kóreu, Deuk Iæe og Sang
Lee.
• Guðmundur lék með Perúmann-
inum Christian Schroeder og Jéllu þeir
einnig úr keppni vegna ósigurs í fyrstu
rimmunni. Töpuðu þeir fyrir Indónes-
um, Eddy Hortano og Susanto
Hadibowo, 2-15 og 5-15.
í raun er svipaða sögu að segja af
tvenndarleik en þar urðu íslensku
keppendumir úr leik þegar í fyrstu
umferð.
• Þórdís lék með Brodda og töpuðu
þau fyrir Hong Kong-búum, Chan Chi
Choi og Cham Lim Chee, 7-15 og 4-15.
Guðmundur Adolfsson lék með Jiang
Ping He frá Mexíkó og biðu þau lægri
hlut fyrir Niðurlendingum, Pierre
Pelupessy og Eline Coene, 6-15 og
4-15,
-JÖG
KERTAÞRÆÐIR
LeiAari úr stálblondu. Sterkur og þolir
að leggjast f kröppum beygjum. Við-
nám aðains 1/10 af viðnimi kolþriða.
Margfökl neistagnAi.
Kápa sem deyfir truflandi rafbylgjur.
í passandi settum.
„Við reyndum allt hvað við gátum
til að vinna sigur en Gautaborgarliðið
reyndist okkur erfið hindrun. Við er-'
um búnir að leika 66 leiki á keppnis-
tímabilinu og það segir sig alveg sjálft
að leikmennimir eru að fram komnir.
Svíamir em að bytja sitt keppnistíma-
bil svo ég get ekki annað sagt en ég
sé virkilega vonsvikinn," sagði Cim
McLean, framkvæmdastjóri Dundee
United, eftir 1-1 jafntefli gegn IFK
Gautaborg í Dundee í Skotlandi í
gærkvöldi. Þessi úrslit nægðu IFK
Gautaborg til sigurs í UEFA keppn-
inni því liðið sigraði í fyrri leik liðanna
í Gautaborg og vann því samanlagt
2-1. Þetta er í annað skiptið sem félag-
ið hreppir UEFA-bikarinn, síðast árið
1982.
Gautaborg náði forystu á 23. mínútu
þegar Lennart Nilson skoraði gott
mark. Á 60. mínútu jafnaði John Clark
fyrir Dundee með góðu skoti, stöng
og inn. Gautaborg var betri aðilinn í
leiknum, gaf ekkert eftir og átti sigur
í keppninni fyllilega skilin. Þetta var
25. leikurinn í röð hjá Gautaborg án
taps í UEFA-keppninni. -JKS
Forföll hjá KR
og Þór í kvöld
- Báðir markmenn KR eru meiddir
• lan Redford, sóknarleikmaður Dundee United, sést hér berjast um knöttinn
við varnarmann IFK Gautaborg, Peter Larsson, í gærkvöldi.
Símamynd Reuter
Tekst Þór að leggja meist-
arana briðia árið í róð? ! «©> skiaMamafl
™ ™ I Viggó Viggósson varð sigurvegari í keppninni
* _ um Ampcnn ctkinlHinn VtiH finlfkli'íhhi RpvkinvíWnr
• Michael Andersson, leikmaður IFK Gautaborg,
lendir hér á vellinum eftir mikla flugferð í gær-
kvöldi. Það var ekkert gefið eftir í úrslitaleiknum
eins og þessi mynd ber með sér.
Símamynd Reuter
KR-ingar, sem leika gegn KA í kvöld
í 1. deild Islandsmótsins í knattspymu,
verða án þriggja sterkra leikmanna.
Loftur Ólafsson og markverðirnir Stef-
án Amarsson og Stefán Jóhannsson
em allir meiddir og geta ekki leikið
með KR í kvöld.
Stefán Amarsson, sem átti að leika
í marki KR í kvöld, meiddist nýverið
á hné en ekki em meiðsli hans talin
alvarleg. Meiðsli nafna hans Jóhanns-
sonar em hins vegar alvarlegri og
hann mun ekki verða tilbúinn í slag-
inn fyrr en í næsta mánuði. Sævar
Bjamason mun leika í marki KR á
Akureyri í kvöld. Loftur Ólafsson er
slæmur í læri en hann ætti að ná sér
fljótlega.
• Þórsarar, sem mæta Fram í Laug-
ardal, geta ekki frekar en KR-ingar
mætt með sitt sterkasta lið í kvöld.
Hjá þeim er Siguróli Kristjánsson
meiddur en ætti að geta leikið næsta
leik með Þórsliðinu. Þá er bakvörður-
inn Sigbjöm Viðarsson í leikbanni frá
því í fyrra og verður því fjarri góðu
gamni.
-SK
- fimm leikir fyrstu umferðar 1. deildar Islandsmótsins í knattspymu í kvöld
Það hefur vart farið fram hjá nokkr-
um lifandi manni að keppni í 1. deild
íslandsmótsins í knattspymu hefst í
kvöld. Varla er ofeögum sagt að
knattspymuunnendur hafa ekki í
langan tíma beðið með jafnmikilli
óþreyju eftir að íslandsmótið hæfist
enda er allt útlit fyrir eitt mest
spennandi Islandsmót í 1. deild í
langan tíma, svo ekki sé talað um
nýhafha keppni í 2. deild.
Þór gegn meisturunum þriðja
árið í röð
• Eins og áður sagði eru fimm
leikir á dagskrá í 1. deild í kvöld,
heil umferð. íslandsmeistarar Fram
hefja titilvömina í Laugardal en þá
koma Þórsarar frá Akureyri í heim-
sókn. Þetta er í þriðja skipti sem
Þórsarar dragast gegn íslandsmeist-
urum frá árinu áður. Árið 1985
sigruðu þeir þáverandi meistara,
Akranes, 2-0, og í fyrra komu Þórs-
arar mjög á óvart er þeir sigruðu
íslandsmeistara Vals í fyrstu umferð,
2-1. Þórsarar hafa því möguleika á
að leggja Islandsmeistara að velli í
kvöld, þriðja árið í röð.
Nýliöarnir gegn Keflavík
Völsungur frá Húsavík leikur í
kvöld sinn fyrsta leik í 1. deild í sögu
félagsins, gegn Keflavík á Húsavík.
Fróðlegt verður að sjá hvemig nýlið-
amir spjara sig í sumar og víst er
að Keflvíkingar eiga ekki auðveldan
leik fýrfr höndum í kvöld.
Valsmenn i Garðinn
Valsmenn, sem að allra mati eru
sigurstranglegastir í deildinni í sum-
ar, leika f kvöld gegn Víði frá Garði
og fer leikurinn fram syðra. Víðis-
menn em með mikið baráttulið og
verða erfiðir heim að sækja í sumar.
Valsmenn byrjuðu frekar illa í mót-
inu í fyrra og ætla sér örugglega
betri byrjun nú.
Skorar Pétur á Akureyri?
Pétur Pétursson og félagar hans í
KR fljúga norður til Akureyrar í dag
og leika gegn KA í kvöld. KR-ingar
em óneitanlega mun sigurstrang-
legri en enginn skyldi afskrifa
sprækt lið KA-manna undir stjóm
Harðar Helgasonar.
Skagamenn byrja í Krikanum
Bikarmeistarar Ákraness og ný-
kiýndir sigurvegarar í litlu bikar-
keppninni og meistarakeppni KSl,
hefja þátttöku sína í Islandsmótinu
í ár með leik f kvöld gegn FH í
Hafnarfirði. Skagamenn verða að
teljast sigurstranglegri en erfitt er
þó að spá fyrir um úrslit. Allir leik-
imir í kvöld hefjast klukkan átta.
Okkar menn um land allt
DV verður með hörkulið á leikjum
sumarsins úti á landi. Gylfi Krist-
jánsson skrifar um leiki íslandsmóts-
ins á Akureyri, Magnús Gíslason sér
um Suðumesin, Jóhannes Sigur-
jónsson, ritstjóri Víkurblaðsins,
verður okkar maður á Húsavík og
Sigurgeir Sveinsson verður réttur
maður á réttum stað á Akranesi.
Þjálfari og leikmaður mánað-
arins hjá DV
DV mun í sumar velja þjálfara og
leikmann mánaðarins og fá þeir sem
verða útnefndir vegleg verðlaun.
Vonumst við til að lesendur blaðsins
eigi eftir að taka þessari nýbreytni
vel. -SK
Viggó Viggósson varð sigurvegari í keppninni
um Ameson skjöldinn hjá Golfklúbbi Reykjavíkur
sem lauk nýverið. Ragnar Guðmundsson varð ann-
ar og Magnús Ólafsson þriðji.
• I flaggakeppninni hjá GR, sem fram fór á dög-
unum, sigraði Einar L. Þórisson á 20. teigi. Grímur
Valdimarsson varð annar og Óskar Sæmundsson
þriðji.
• Ingvar Ólason vann maímótið án forgjafar hjá
GR, 15 ára og yngri, á 85 höggum. Þórir Ö. Þóris-
son varð sigurvegari með forgjöf á 69 höggum.
-SK
Magnús áfram hjá Stabæk i
vörður, gat lítið leikið með liðinu í I
I
I
I Magnús lngi Stefánsson, mark-
I vörður í handknattleik, hefur skrifað
" undir nýjan samning við norska
| handknattleiksliðið Stabæk og mun
leika með þvf á næsta keppnistíma-
bili'.
Magnús, sem er mjög snjall mark-
I
fyrra vegna anna í námi og liðið féll I
í 2. deild. Forráðamenn liðsins vildu *
ekki fyrir nokkra muni sjá af Magn- |
úsi og þratt fyrir að hann væri með _
mörg tilboð fcá öðrum liðum skrifaði |
hann undir hjá Stabæk. -SK |
Ajax í Úrslit | Ekkert stöðvar Lakers!
Ajax, Amsterdam, tryggði sér í gær rétt f úrslit
hollensku bikarkeppninnar í knattspymu. Sigraði
þá Groningen, 3-0, en liðin höfðu áður gert jafh-
tefli í undanúrslitum. Ajax leikur til úrslita við
Den Haag, - þekktasta lið höfuðborgar Hollands.
Ajax sigraði í síðustu viku í úrslitum Evrópu-'
keppni bikarhafa og bæði hollensku liðin, Ajax og
Den Haag, leika í Evrópukeppninni næsta keppnis-
tímabil, hver svo sem úrslit verða f leik liðanna í
úrslitum hollenska bikarsins 3. júní. -hsím
Ekkert lát er á mikilli velgengni
Los Angeles Lakers í bandaríska
körfuboltanum. Lakers er þessadag-
ana að leika gegn Seattle Super-
sonics í úrslitum á vesturströndinni
og hefur Lakers unnið báða leikina
sem búnir eru en liðið þarf að vinna
fjóra leiki til að komast í úrslitin.
Úrslitin í sfðari leik liðanna. 112 104 ■
fyrir Lakers. I
• Á austurströndinni leika Bost- I
on Celtics og Detroit Pistons til *
úrslita. Þar er einum leik lokið og |
lauk honum með sigri Boston,
104-91. Það virðist því allt stefha í |
úrslitaleiki á milli Lakers og Bostor^j
HÁBER G ”
SKEIFUNNI 5A, SIMI: 91 I-8 47 88
Fríkirkjusöfnuðurinn
í Reykjavík
Aðalfundur safnaðarins
verður haldinn sunnudaginn 24. maí nk. að lokinni
messu sem hefst kl. 14.00.
j
Venjuleg aðalfundarstörf.
Safnaðarstjórnin.
AÐALFUNDUR FR: DEILDAR 23
verður haldinn í húsi Slysavarnafélagsins að Hjalla-
hrauni 9, Hafnarfirði, fimmtudaginn 21. maí og hefst
kl. 20.00.
Félagar fjölmennið
Stjórn FR: deildar 23.
Gabriel
HÖGGDEYFAR
NÝ
STÓRSENDING!
7
SÖMU HAGSTÆÐU VERÐIN.
SKEIFUNNI 5A, SÍMI: 91-8 47 88
Tahamata
til Belgíu
Einn besti leikmaður hollenska
landsliðsins í knattspvrnu. Simon Ta-
hamata, mun leika í Belgíu næsta
keppnistímabil. Feyenoord seldi hann
i gær til Beerschot og nam kaupverðið
sex milljónum íslenskra króna. Ta-
hamata, sem hefur leikið landsleiki
gegn íslandi, er 31 árs. Hann hefur
leikið með Feyenoord síðustu tvö árin
en lék áður með Ajax. Amsterdam og
Standard Liege. -hsím
Toppliðin í
undanúrslit
Toppliðin í frönsku knattspymunni,
Bordeaux og Marseille, eru komin í
undanúrslit frönsku bikarkeppninnar
ásamt Reims og Ales. Nú í vikunni
tapaði Bordeaux, 2-1, fyrir Lille á úti-
velli en vann samanlagt, 4-3, í báðum
leikjunum. Marseille gerði jafhtefli,
0-0, á heimavelli við Lens en sigraði,
1-0, í Lens. Reims sló Laval út eftir
vítaspymukeppni og Ales sigraði
Strasbourg samanlagt, 2-1. -hsím
BLAÐBunÐAR-
FÓLK
VANTAR í EFTIRTALIN HVERFI
Selvogsgrunn
Sporðagrunn
#****#*****#****##*#**#####
Safamýri
Ármúla 1-15
***************************
Sæviðarsund
Skipasund 1-25
***#*#**#******###*********
Sólheima 25—út
***************************
Hávallagötu 18— út
Sólvallagötu 12—út
*##***#**#*###******#*##*#*
Mánabraut, Kópav.
Sunnubraut, Kópav.
Þingholtsbraut, Kópav.
***************************
Furugrund 1-54, Kópav.
Birkigrund, Kópav.
Grenigrund, Kópav.
***************************
Skólagerði, Kópav.
***************************
AFGREIÐSLA
Þverholti 11 - Sími 27022