Dagblaðið Vísir - DV - 21.05.1987, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 21.05.1987, Blaðsíða 32
32 Tíðarandi „Þetta er ákjósanlegt veður til fuglaskoðunarferða," segir Árni Waag þegar við leggjum af stað frá Umferðarmiðstöðinni. Það er rign- ingarsuddi en ekki kalt í veðri. Fremur fáir eru með í förinni að ' þessu sinni sem kemur til af veðrinu en fólk áttar sig ekki á hvernig skil- yrði þarf til velheppnaðrar fugla- skoðunar. Sólin vefstfyrir „Það er ekki gott að skoða fugla í mikilli birtu,“ heldur Árni áfram. „Mikil og sterk sól er óþægileg þegar maður lendir í því að ganga á móti henni, þá sést ekki liturinn á fuglunum. Og svo syngja fuglarnir meira þegar rakt er í veðri.“ Hins vegar er það óheppni að stór- straumsflóð er því best er að skoða fuglana í fjöru þegar háfjara er. Á fjöru tæmist til dæmis Kópavogurinn og þá er þar mikið fuglalíf. Þar sem nú er flóð eru fjörufuglarnir í hvíld- arstöðu, sofa gjarnan og snyrta sig. Þegar komið er að Bessastöðum er gósenland fuglaskoðarans fyrir aug- um enda staðurinn ríkastur fuglateg- unda á íslandi að Mývatni einu undanskildu. Á túninu er breiða ið- andi fugla sem greinilega eru að búa sig undir nóttina - það glitrar á fjaðr- ir hvert sem litið er. Þetta er eins og síldartorfa í kasti. Margæsir í eldsneytisleit „Margæsirnar sem þið sjáið hérna eru á leið frá írlandi þar sem þær hafa vetrarsetu. Hérna á Álftanesi hvílast margæsirnar og fita sig upp fyrir langflugið yfir Grænlandsjökul Þær eru vinalegar aligæsir forsetans og með eindæmum fordómalausar gagnvart ókunnugum. Svo mjög reyndar að dæmi eru til þess efnis að hrein- ræktuð aligæs lendi í afdrifaríku ástarsambandi við aðvífandi heiðargæs. Afkvæmin vappa svo um túnin á Bessastöðum innan um aðrar fuglategundir. Utivist: Matarboðið er þegið með mikilli hrifningu. Enginn hafði áður bragð- að egg af þessari tegund sem reynast með afbrigðum bragðgóð. Þrír út- lendingar eru í hópnum og eiga ekki orð til þess að lýsa hrifningu sinni. Jane Taylor spilar hér með Sinfóníu- hljómsveitinni og er þarna á ferð með foreldrum sínum, Elizabeth og John Taylor. „Ég hef áhuga á fuglaskoðun og hef talsvert skoðað fugla með föður mínum,“ segir Jane. „Hettumáfsegg hef ég hins vegar aldrei borðað en pabbi bragðaði svartbaksegg í stríðinu.'1 Varla er síðasti eggjabitinn ljúf- lega runninn niður þegar húsfreyjan ríður í hlað. Þarna er komin Júlía Björnsson á gæðingnum Yl. Þegar Júlía er spurð um ættir Yls kemur í ljós að hann er kominn undan Gló- blesa og Brönu - en hinir erlendu gestir hlæja dátt þegar þeim er sagt að þarna sé allt að því um íslenskan prins að ræða. Náttúruskoðun númer eitt Tveir fulltrúar Utivistar eru með í förinni að þessu sinni. Kristján Bald- ursson - sem er starfsmaður Utivist- ar - segist ekki hafa neinn sérstakan áhuga á fuglaskoðun. Það er fyrst og fremst náttúruskoðun sem hann sækist eftir. „Ég byrjaði fyrir um það bil tólf árum á ferðalögum með félaginu og síðan æxlaðist þetta þannig að ég tók síðan við þessu. Það er ekki bara útivistin sem veitir ánægjuna heldur tengist þetta líka sögunni, örnefnum og öðru slíku. Og fólk kemur til þess • að kynnast nýjum leiðum og nýjum stöðum. Þetta er hreyfing og útivist - og sumir fá það út úr þessu að kynnast öðru fólki.“ Þegar minnst er á dagskrá Útivist- ar kemur í ljós að þar er af nógu að taka. „ Við förum á Álftanesið tvisvar á ári en ferðaprógramm okkar er mjög vítt og fjölbreytilegt. Stundum förum en þar verpa þær árlega,“ segir farar- stjórinn og bendir á gæsatorfuna. Giskað er á að fjöldinn nái yfir annað hundraðið og þar sem gæsirn- ar sitja makindalega önnum kafnar við eldsneytisöflunina búa þær í frið- sömu samfélagi við aligæsir, heiðar- gæsir og grágæsir. Tjaldurinn er svo á staðnum líka og virðist hálftaminn þar sem hann bjástrar í túninu og það er greinilegt að aliendurnar fylgja sama hegðunarmynstri. Niðri í fjörunni fyrirfinnast rauð- brystingar, háerlur, æður og máfar - svo eitthvað sé talið - að ekki sé minnst á kríuna. Hún er mesti ferða- garpur heimsins, fer alla leið frá Suðurheimskautslandinu og norður að Grænlandi. Hluta ferðarinnar sjá þessir garpar aldrei land og halda sig bara við réttu loftstraumana. Bastarður á Bessastaðatún- inu „Bíðið við! Þetta er ekki grágæs heldur einhver bastarður," segir Ámi nú við einn úr hópnum sem taldi sig vera að skoða grágæsapar. „Grágæsin er formóðir taminna gæsa - eins og stokköndin er formóð- ir alianda. Þess vegna geta grágæs og aligæs ekki einungis átt saman afkvæmi heldur verða þau stundum frjó að auki.“ Parið, sem svo mikla athygli vek- ur, lætur ekki raska ró sinni og bastarðurinn í sambandinu hefur greinilega orðið sér úti um hrein- ræktaðan mótaðila að þessu sinni. Þau synda rólega um alveg uppi við fjöruborðið - alsæl með lífið og til- veruna. Næst liggur leiðin heim að Stekk en þar hafa Útivistarmenn fengið leyfi til þess að ganga um til skoðun- ar á fuglalífinu. Alls kyns tæki og tól hafa verið notuð til þess að skoða fuglana úr talsverðri fjarlægð þegar einn úr hópnum rekur augun í spjald sem fest er við spýtu sem reist er upp við stein í lóðinni. Matarboð Júlíu í Stekk „Útivist - hér eru soðin hettumáfs- egg. Gjörið svo vel.“ Skilaboðin eru skýr og undir stendur stór bakki með fjölda hettumáfseggja. „Vænghafið er...“ Fararstjorinn Árni Waag á fullri ferð í frásögn með þátttakendur í förinni sem áhugasama áheyrendur. við aftur á sömu staðina en finnum líka nýjar leiðir. Það eru óteljandi gönguleiðir sem hægt er að velja um því athafnasvæðið er allt Island. Helgarferðir og dagsferðir takmark- ast af tímanum en á sumrin er farið lengra - á Hornstrandir, Lónsöræfi og fleiri staði.“ Þeir Útivistarmenn þurfa ekki að kvíða þátttökuleysi í ferðunum og stundum komast færri að en vilja. Aðalllega íslendingar „Það eru fyrst og fremst Islending- ar sem taka þátt í þessum ferðum því þær eru ekki markvisst auglýstar erlendis. En tíu prósent eru þó alltaf erlendir gestir. Tilgangurinn með starfsemi Útivistar er fyrst og fremst að kynna íslendingum náttúru eigin lands og hvetja til frekari ferða og skoðunar. Og það hefur tekist - tæp- lega sex þúsund tóku þátt í þessu í Útivistarmennirnir Árni Waag og Kristján Baldursson litast um eftir ein- hverju merkilegu skoðunarefni á túninu á Stekk. Þarna var reyndar litið langt yfir skammt því fyrir framan nefið á okkur var boðið til veislu - soðin hettumáfsegg að hætti húsfreyjunnar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.