Dagblaðið Vísir - DV - 26.05.1987, Blaðsíða 9
ÞRIÐJUDAGUR 26. MAl 1987.
9
Utlönd
Kona úr hópi mótmælenda steytir hnefann aö óeirðasveitum lögreglunnar í
Manila þar sem beitt var táragasi og háþrýstislöngum gegn andstæðingum
stjómarinnnar í gær.
Simamynd Reuter
Aquino neitar
aðsegjaafsér
Corazon Aquino, forseti Filippseyja,
neitaði í gær alfarið að verða við kröf-
um andstæðinga sinna um að hún
segði af sér embætti. „Ég er kona en
ég er tilbúin að berjast við þá,“ sagði
Aquino í gær og bætti við að það segði
sér enginn fyrir verkum.
Aquino átti í gær fund með Joseph
Estrada, fyrrum kvikmyndaleikara,
sem nú hefur snúið sér að stjóm-
málum, en hann er einn af andstæð-
ingum hennar og var í framboði til
öldungadeildar þingsins í kosningun-
um fyrir skömmu. Estrada vildi á
fúndinum leitast við að slaka á spennu
sem myndast hefur í landinu vegna
ásakana um að Aquino og hennar
menn hafi ástundað kosningasvindl í
stórum stíl.
Talningu atkvæða í kosningunum
er ekki að fullu lokið en svo virðist
sem Estrada verði annar af tveim
stjómarandstæðingum í öldungadeild
þings Filippseyja. Hinn virðist ætla
að verða fyrrum vamarmálaráðherra
í ríkisstjórn Aquino, Juan Ponce Enr-
ile.
Stjómarandstaðan hefur farið þess á
leit við hæstarétt landsins að kosning-
amar verði ógiltar vegna kosningas-
vindls. Aquino hefur fyrirskipað
rannsókn á ásökunum þessum.
Móðir eins sfúdentanna, sem fangelsaðir voru i gær vegna mótmælastarf-
semi, dregin á brott af óeinkennisklæddum lögreglumönnum.
Simamynd Reuter
Stjórnarskipti vegna
dauða stúdentsins
Ríkisstjóm Suður-Kóreu sagði í nótt
af sér og gekkst þannig við ábyrgð á
því að ungur háskólanemi var fyrir
nokkru pyntaður til dauða af lögregl-
unni i Seoul.
Lho Shin Yong, forsætisráðherra
S-Kóreu, lagði í morgun fram lausnar-
beiðni sína og ríkisstjómar sinnar og
kvaðst í henni taka siðferðilega og
stjómmálalega ábyrgð á því ástandi
sem skapast hefur vegna fregna af
dauða stúdentsins og yfirhylmingu
lögreglunnar með þeim sem myrtu
hann.
Chun Doo Hwan, forseti landsins.
lagði í gær fram lista yfir ráðherra í
nýrri stjórn. Af tuttugu og tveim ráð-
hermrn í þessari nýju stjórn eru
sautján af ráðherrum stjómarinnar
sem sagði af sér, aðeins skipt um fimm
ráðherra. Þeir sem skipt var um eru
forsætisráðherra, aðstoðarforsætis-
ráðherra, innanríkisráðherra, fjár-
málaráðherra og dómsmálaráðherra.
Hinn nýi forsætisráðherra heitir Lee
Han-key.
Snotra UFO
B&S motor .
Snotra
Steel 46 SB
Flymo XE30
VINNUR VERKIÐ
7 Flymo rafknúinn E 30
Ginge handsláttuvélar
Lipurtá BS 40 300
Lipurtá BS 40
500 m:
' Flymo E 38
Snotra 46
Flymo L 38
Snotra 46
Ginge valsasláttuvél m/driti
700 m!
Flymo L 47
Snotra m/grassafnara
Ginge þyrlusláttuvél m/drifi
1000 mJ
Westwood 6000 m! á klst.
SLATTUVELAR FYRIR
ALLAR STÆRÐIR GARÐA
Hjá okkur færðu allar
stærðir af sláttuvélum í úrvali.
Rafmagnsvélar og tvíaengis- eða
fjórgengisvélar. Allar bensínvélar
meS rafeindakveikju. Við
leiðbeinum þér við val á
sláttuvél, sem hentar þér og
þínum garði.
‘Euro- og Visakjör.
Engin útborgun,
greiðsla skiptist á fjóra
mánuði.
Vélorf Zenoah
Smiöjuvegur 30 E-gata Kóp.
Símar 77066 og 78600