Dagblaðið Vísir - DV - 26.05.1987, Blaðsíða 26
26
ÞRIÐJUDAGUR 26. MAÍ 1987.
Einar Hjörieifsson sáHræðingur:
„Veitti ekkert af klassískri tónlistarrás“
Vigdís Jósefsdóttir, Bárugötu 4,
Reykjavík, lést 23. maí í Landa-
kotsspítala.
Þórdís Einarsdóttir Strand, Stiga-
hlíð 22, lést 22. maí í Elli- og hjúk-
runarheimilinu Grund.
Friðberg Guðmundsson, Selvogs-
götu 19, Hafnarfirði, lést í Borgar-
spítalanum 22. mai sl. Utförin fer
fram frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði
föstudaginn 29. maí kl. 15.
Guðmundur Guðgeirsson hár-
skerameistari, Mosabarði 1, Hafnar-
firði, lést í Landakotsspítala að
kvöldi 24. maí.
Útför Helga Stefánssonar frá
Haganesi, Mývatnssveit, Háteigs-
vegi 11, fer fram frá Fossvogskirkju
miðvikudaginn 27. maí kl. 13.30.
Þórður Sturlaugsson, er látinn.
Sigríður Vilhjálmína Ólafsdóttir,
Jökulgrunni 1, við Hrafnistu, verður
jarðsungin frá Dómkirkjunni föstu-
daginn 29. maí kl. 10.30.
Þórarinn Jónsson, Gnoðarvogi 28.
verður jarðsunginn frá Kirkju óháða
safnaðarins miðvikudaginn 27. maí
kl. 13.30.
Leifur Jóhannesson frá Þingeyri
verður jarðsunginn frá Fossvogs-
kirkju miðvikudaginn 27. maí kl. 15.
Útför Sigurhergs E. Guðjónsson-
ar, Hátúni 12. fer fram frá Fossvogs-
kapellu í dag. þriðjudaginn 26. maí.
kl. 15.
Tilkyimingar
Sorgin rædd á Akureyri
Námsstefna um sorg og sorgarviðbrögð
verður haldin á fimmtudagskvöld (upp-
stigningardag) í Glerárkirkju á Akureyri
og hefst hún kl. 19. Páll Eiríksson geð-
læknir, sr. Sigfmnur Þorleifsson sjúkra-
hússprestur, Sigrún Proppé listmeðferðar-
fræðingur og Þóra Karlsdóttir
hjúkrunarfræðingur flytja erindi. Á eftir
verða pallborðsumræður þar sem fyrir-
spurnum verður svarað. Námsstefnan er
öllum opin og eru Norðlendingar hvattir
til að sækja hana. Námskeiðsgjald er 500
krónur og einnig verða seldar veitingar á
100 krónur á mann. Námsstefna lík þess-
ari var fyrir skömmu haldin í Reykjavík
og var hún mjög íjölmenn. I framhaldi
námsstefnunnar er í ráði að stofna hópa
þar sem fólk getur komið saman og skipst
á skoðunum og deilt reynslu sinni með
öðrum.
Námskeið í slátrun
svína og nautgripa
Námskeið í slátrun hafa verið haldin
reglulega nokkur undanfarin ár á vegum
búvörudeildar Sambandsins. Leiðbeinend-
ur hafa verið fengnir að utan, enda engir
faglærðir slátrarar hér á landi, en slátur-
hús mörg ný og allvel útbúin. Nú er
nýlokið námskeiði í slátrun svína og naut-
gripa. Námskeið þetta var tvískipt, þannig
að sá hluti þess er lýtur að slátrun svína
fór fram í nýju og fullkomnu sláturhúsi
Kristins Sveinssonar í Reykjavík, en naut-
gripaslátrunin í nýlegu stórgripaslátur-
húsi Kaupfélags Borgfirðinga í Borgar-
nesi. Þátttakendur voru 17 starfsmenn
Kaupfélaga víðsvegar að af landinu þar
sem mest er stórgripaslátrun auk starfs-
manna í sláturhúsi Kristins Sveinssonar.
Námskeiðið stóð yfir í íjóra daga og var
kennsla aðallega verkleg en einnig bók-
leg. Námskeiðið þótti takast mjög vel og
var almenn ánægja með árangurinn.
Hjálpartæki til að
velja lottótölur
Fyrirtækið S&B Ólafsson hefur hafið út-
gáfu og sett á markað hjálpartæki ætlað
til að auðvelda fólki að velja handhófstöl-
ur á lottóseðilinn. Hér er um að ræða
spilastokk með 32 spilum í og er hvert
spil merkt með einni tölu frá 1 upp í 32.
Þannig getur fólk nú dregið út sínar eigin
happatölur heima hjá sér og flýtt þannig
fyrir afgreiðslu við lottókassana. Lottó-
spilin eru framleidd hér á íslandi og er
frágangur allur hinn vandaðasti. Stærðin
á spilunum er heldur minni er á venjuleg-
um spilum eða 5x7 cm. Spilin eru innpökk-
uð í hentuga pappaöskju, þau eru
plasthúðuð og auðvelt að stokka. Lottó-
spilin koma til með að fást á öllum útsölu-
stöðum Lottósins, og síðar e.t.v. einnig í
bókabúðum, þau eru hentug, ódýr og auð-
veld í notkun.
Almanakshappdrætti Lands-
samtakanna Þroskahjálpar
Vinningurinn í maí kom á nr. 14539.
Þegar jarðskjálftinn reið yfir uni
hálftólfleytið voru fyrstu viðbrögðin
þau að labba út á svalir þar sem ég
vinn. Þegar ég kom inn aftur opnaði
ég útvarpið. Eftir á að hyggja eru
þetta einkennandi viðbrögð, maður
vill fá fréttimar strax og finnur að
útvarpið er sterkasti miðillinn við
þessar aðstæður.
Síðan hlustaði ég á þáttinn Þetta
var ekki í fréttum á Bylgjunni og
fannst þetta alveg stórgóð hugmynd
að taka hluti sem eru yfirleitt ekki
fréttnæmir. Ég kíkti aðeins á bama-
efhi sjónvarpsins með þriggja ára
syni mínum og fannst hálfbagalegt
að ekkert efhi var við hans hæfi.
Ég horfði á báða fréttatímana í
sjónvarpinu og fannst þeir taka mjög
svipað á jarðskjálftafréttinni. I gær-
Einar Hjörleifsson.
kvöldi var kynntur þáttur sem verð-
ur á dagskránni í kvöld um Nig-
aragua og hann hlakka ég til að sjá.
Ég hlustaði á þátt um kynþáttafor-
dóma á rás 1 og leist nokkuð vel á
hann. Mér finnst ég vera farinn að
hlusta meira á rás 1 en áður og veit
um fleiri sem svo er ástatt um. Ég
vel þá frekar efhi á rás 1 en nota
hinar síbyljustöðvamar meira sem
deyfilyf. Mér dettur í hug að hér
áður gátu fjölskyldumar setið yfir
leikritunum á fimmtudagskvöldum
en það virðist vera liðin tíð.
Mér finnst vanta klassíska tónlist
til að vega upp á móti léttu tónlist-
inni, ég hef gaman af hvomtveggja
en stemmningin er ólík. Það veitti
ekkert af því að fá eina tónlistarrás
með klassískri tónlist.
Andlát
I gærkvöldi
Súsanna M. Grímsdóttir lést 14.
maí sl. Hún fæddist í Reykjavík 6.
febrúar 1906, dóttir hjónanna Stef-
aníu Stefánsdóttur og Gríms Ólafs-
sonar. Eftirlifandi eiginmaður
Súsönnu er Sveinbjörn K. Árnason.
Þeim hjónum varð þriggja dætra
auðið. Útför Súsönnu veður gerð frá
Dómkirkjunni í dag kl. 13.30.
Sigurður Jónssonfrá Efra-Lóni
lést 15. maí sl. Hann fæddist að
Fagranesi á Langanesi þann 29. okt.
1911. Foreldrar hans voru hjónin Jón
Jónsson og Sigríður Sigurðardóttir.
Eftirlifandi eiginkona Sigurðar er
Guðrún Ólafsdóttir. Þeim hjónum
varð 5 dætra auðið. Útför Sigurðar
verður gerð frá Hallgrímskirkju í dag
kl. 15.
Sigurður Skúlason lést 16. maí sl.
Hann fæddist 2. febrúar 1903 í Skál-
holti í Biskupstungum. Foreldrar
hans voru hjónin Skúli Árnason og
Sigríður Sigurðardóttir. Að stúd-
entsnámi loknu lagði Sigurður stund
á íslensk fræði við Háskóla íslands
og lauk þaðan meistaranámi. Ævi-
starf Sigurðar varð kennsla. Mikið
liggur eftir hann í rituðu máli því
hann gaf út tímaritið Samtíðina og
skrifaði greinar um íslensk fræði
bæði í sitt tímarit og önnur. Eftirlif-
andi eiginkona hans er Þórdís
Daníelsdóttir. Útför Sigurðar verður
gerð frá Dómkirkjunni í dag kl. 15.
Helgi Hólm Halldórsson múrara-
meistari, frá ísafirði, Skipholti 47,
Reykjavík, lést í Landakotsspítala
föstudaginn 22. maí.
Kristín Halldórsdóttir, Böðvars-
götu 10, Borgarnesi, lést í Sjúkrahúsi
Akraness sunnudaginn 24. maí sl.
Óskar Guðmundsson frá Vestra-
Fíflholti, Hvolsvegi 27, Hvolsvelli,
andaðist í Sjúkrahúsi Suðurlands
laugardaginn 23. maí.
Eggert Klemensson, Skógtjörn,
Álftanesi, andaðist í Borgarspítalan-
um sunnudaginn 24. maí.
Nám í mannlegri tækni
Peter Kemp, lektor við Kaupmannahafn-
arháskóla, heldur opinberan fyrirlestur á
vegum verkfræðideildar og raunvísinda-
deildar háskólans þriðjudaginn 26. maí.
Fyrirlesturinn nefnist Nám í mannlegri
tækni, en fyrirhugað er að setja á laggim-
ar námsbraut í þeirri grein við Kaup-
mannahafnarháskóla. Peter Kemp er
þekktur danskur fræðimaður og heim-
spekingur. Hann hefur birt fjölda greina
og bóka. Fyrirlesturinn verður fluttur í
Odda, stofu 101, kl. 17.15 og verður á
dönsku.
Tóiúeikar
Hádegistónleikar
Hinir árlegu vortónleikar Tónlistarskól-
ans í Reykjavík verða haldnir miðviku-
daginn 27. maí kl. 12.30 í Gamla bíói.
Efnisskrá er mjög fjölbreytt. Aðgangur er
ókeypis.
Fundir
Hádegisverðarfundur SVESI
Miðvikudaginn 27. maí 1987 gangast sam-
tök um vernd eignarréttinda á sviði
iðnaðar (SVESI), fyrir hádegisverðarfundi
í Þingholti, Hótel Holti, og hefst hann kl.
12 stundvíslega. Gestur fundarins verður
Ulf K. Dahl, lögmaður frá Osló. Mun hann
í stuttu erindi fjalla um stofnanir þær á
Norðurlöndum sem veita uppfinninga-
mönnum þjónustu og samstarf þeirra. Þá
mun hann fjalla um samband uppfmninga-
manna sem starfa í þjónustu annarra og
atvinnuveitenda þeirra. Þess skal getið að
þessi góði gestur hefur verið lögfræðilegur
ráðgjafi uppfinningaskrifstofunnar sem
rekin er af hálfu norska ríkisins. Að auki
hefur hann í mörg ár verið fulltrúi Norð-
manna í „NOIS“ (Nordisk opfindelsenss-
tottende institusjoners samarbejdesorg-
an). Ástæða er til þess að vekja athygli
iðnrekenda og uppfinningamanna á öllum
sviðum á erindi þessu, en fundurinn er
öllum opinn. Vinsamlegast tilkynnið þátt-
töku í síma 681211.
Afmæli
60 ára afmæli á í dag, 26. maí, sr.
Páll Pálsson, sóknarprestur á Berg-
þórshvoli. Hann á að baki langan
kennara- og prestsferil og hefur
gegnt ýmsum öðrum trúnaðarstörf-
um. Kona hans er Edda Karlsdóttir
leikari. Þau eru að heiman.
60 ára afmæli á í dag, 26. maí, Anna
Clara Sigurðardóttir, Búðargerði
7, Reykjavík. Hún ætlar að taka á
móti gestum á heimili dóttur sinnar
og tengdasonar í Silungakvísl 7, Ár-
túnshverfi, eftir kl. 17.
Utskrift sérhæfðs
fiskvinnslufólks
Otskrift á sérhæfðu fiskvinnslufólki hjá
Hraðfi'ystistöð Þórshafnar hf. fór fram í
félagsheimilinu Þórsveri á sumardaginn
fyrsta. Við hátíðlega athöfn afhenti yfir-
verkstjóri H.Þ. hf, Einar Víglundsson, 63
starfsmönnum skírteini sín. Kennarar
námskeiðanna komu hvaðanæva af
landinu. Eftir afhendinguna var öllum
starfsmönnum Hraðfiystistöðvarinnar
boðið upp á snittur og kokkteil. Samkunda
þessi stóð yfir í rúma þrjá klukkutíma og
endaði með fjöldasöng við gítarundirspil.
Var það mál manna að vel hefði tekist
með útskriftina svo og námskeiðahaldið.
Hæstirétbir:
Þungir dómar
í fíkniefhamáli
Hæstiréttur hefiir dæmt þrjá inu“ svokallaða hjá borgarfógeta. Hinir sem dæmdir voru í Hæsta-
menn í eins og hálfs til þriggja ára Þyngsta dóminn, 3 ár og 50 þús- rétti eru Sigurður Haukur Engil-
fangelsi fyrir fikniefnabrot. Allir und króna sekt, hlaut Kristján bertsson, scm hlaut 2ja ára fangelsi
urðu þeir uppvísir að innflutningi Aðalsteinsson en hann var sá sem og 50 þúsund króna sekt, og Árni
á miklu magni af ávana- og fíkni- aðild átti að „bankabókamálinu“. Árnason er hlaut eins og hálfs árs
efnum í þeim tilgangi að dreifa Hann náði úr hinum stolnu banka- fangelsi og 50 þúsund króna sekt.
þeim hérlendis og einn af þremenn- bókum 1.265.000 krónum með -FRI
ingunum er þar að auki dæmdur notkun úttektarseðla með röngum
fyrir aðild sína að „bankabókamál- nafnritunum.