Dagblaðið Vísir - DV - 26.05.1987, Blaðsíða 32
62*25* 25
FRÉTTASKOTIÐ
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greið-
hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert frétta- ast 4.500 krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt.
skot, sem birtist eða er notað í DV, greiðast 1.500 Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn.
Ritstjörn - Auglýsingar - Áskrift - Dreifing: Sími 27022
Leitað
að konu
Mikil leit stendur nú yfir á Kjalar-
nesi að konu og taka nú um 70
björgunarsveitarmenn þátt í leitinni.
Konunnar var saknað síðdegis í
gærdag og var þá strax farið að svip-
ast um eftir henni. Bíll hennar fannst
síðan við Brautarholt og er leitin
nú á því svæði.
-FRI
Sæból á Skagaströnd brann:
Stökk log-
andi út
Húsið Sæból á Skagaströnd brann
í morgun. Eldurinn kom upp á sjötta
tímanum og varð húsið. sem er gam-
alt timburhús. fljótlega alelda. Einn
íbúi var í húsinu. ungur maður. og
tókst honum að stökkva út um
svefnherbergisglugga á suðurhlið
hússins. Loguðu fötin utan á honum
er hann kom út úr húsinu og brennd-
ist hann illa auk þess sem hann
skarst á glerbrotum í glugganum.
Var hann fluttur suður á slysadeild
Borgarspítalans með þyrlu LHG í
morgun.
Að sögn lögreglunnar á Skaga-
strönd brann allt sem brunnið gat í
húsinu og standa aðeins útveggimir
eftir. Allt tiltækt slökkvilið var kall-
að á staðinn og gekk greiðlega að
ráða niðurlögum eldsins. Eldsupptök
em ókunn.
-FRI
Eldur í rækju-
verksmiðju
Eldur kom upp í rækjuverksmiðj-
unni Bakki í Hnífsdal um kl. 1 í
nótt. Enginn var í verksmiðjunni er
eldurinn kom upp í kyndiklefa henn-
ar. Slökkviliðið kom strax á staðinn
og gekk greiðlega að slökkva eldinn.
Lítils háttar tjón varð af eldinum.
-FRI
mann borga skatt
af sólskininu.
LOKI
Næst lætur Þorsteinn
Hvalamálið
levstist í moréun
■ WfVHwl ■ I ð I wl flliil I
Hvalkjötið á leiðmni tii landsins
Hvalamálið svokallaða er leyst og
var kjötinu skipað út í leiguskip frá
Eimskipafélagi íslands í höfriinni í
Hamborg klukkan 7 að staðartíma
í morgun og er skipið nú á leið hing-
að til lands, samkvæmt upplýsingum
sem DV fékk hjá Matthíasi Á. Mat-
hiesen utanríkisráðherra í morgun.
Sagði Matthías að þessi lausn
hefði fengist að tilhlutan utanríkis-
ráðuneytisins og sendiráðsins í Bonn
með milligöngu v-þýska utanríkis-
ráðuneytisins. Kjötið er sent hingað
til lancb að kröfu Hvals hf. og kem-
ur hingað undir helgi og að sögn
utanríkisráðherra er níðurstaða
mólsins á þann veg sem óskað hafði
verið. Mál þetta reis svo sem kunn-
ugt er af nýjum lögum í V-Þýska-
landi sem banna flutning á afurðum
tiltekinna dýrategunda sem taldar
eru í útrýmingarhættu.
„Þetta var sú lausn sem fékkst eft-
ir að utanríkisráðuneytið hafði beitt
áhrifum í þessu máli,“ sagði Matthí-
as Á. Mathiesen utanríkisráðherra.
-ÓJ
DV-mynd Brynjar Gauti
Beðið í sólskininu
Það er ekki að sökum að spyrja,
þegar sólin skín á landsmenn þyrp-
ast þeir út undir bert loft til að njóta
veðurblíðunnar. Sama á við um fólk-
ið á þessari mynd sem þó er í þeirri
sérstæðu aðstöðu að það er að bíða
fjölgunar í fjölskyldunni og ætlar
greinilega að nýta síðustu mínútum-
ar.
M}mdin er tekin á svölum fæðing-
ardeildar Landspítalans og á henni
eru frá vinstri hjúkrunarkonumar
Guðrún Eggertsdóttir og Elísabet
Ólafsdóttir, þá Jóna Lilja Péturs-
dóttir og Sigurður Sigurðarson og
Sigurður Ingi Sveinbjömsson og
Katrín Guðjónsdóttir.
Veðrið á morgun:
Suð-
austan-
áttá
fandinu
Á fimmtudaginn verður suðaust-
anátt á landinu og kaldi eða
stinningskaldi við suðurströndina
en hægari annars staðar. Hiti
verður á bilinu 3-14 stig.
Stjómarmyndunaiviðræður:
Ekkert bendir
til að
slitni upp úr
Sjálfstæðisflokkur, Alþýðuflokkur
og Kvennalisti munu eftir morgundag-
inn meta hvort ástæða sé til að halda
viðræðum þeirra um myndun ríkis-
stjómar áfram. Ekkert hefur enn
komið fram sem bendir til að þeim
verði slitið.
Reiknivinna og önnur upplýsinga-
söfnun stendur nú yfir. í dag og á
morgun skýrist hvað kröfur kosta.
Viðræðumar hafa fram að þessu
fyrst og fremst snúist um hækkun lág-
launa, þar á meðal hækkun elli- og
örorkulífeyris. Lítið er farið að taka á
öðrum málum.
Utanríkismál hafa aðeins lauslega
verið rædd. 1 þeim málum krefst
Kvennalistinn þess að hemaðarfram-
kvæmdir verði stöðvaðar og að Island
gerist aðili að kröíúnni um kjamorku-
vopnalaus Norðurlönd. Kvennalisti
heldur hvorki fram kröfu um úrsögn
úr NATO eða brottför hersins.
-KMU
Kísiliðjan til
saksóknara
Jón G. Haulssan, DV, Akureyri
Lögreglan á Húsavík hefur nú tekið
skýrslur af verkstjóra, forstjóra og jár-
niðnaðarmönnum Kísiliðjunnar í
Mývatnssveit. Sem kunnugt er kærðu
jámiðnaðarmennimir verksmiðjuna
til lögreglunnar á Húsavík, og segja
þeir að verksmiðjan noti ófaglærða
menn í störf faglærðra.
Að sögn Halldórs Kristinssonar
sýslumanns verður málið sent til ríkis-
saksóknara á næstunni, sem ákveður
hvað gert verður i málinu.
Reynir Sigurðsson, trúnaðarmaður
jámiðnaðarmannanna, sagði við DV
í gær, að ástandið væri óbreytt, en
hann vonaðist til að sættir tækjust.
Jámiðnaðarmenn Kísiliðjunnar eru
tíu og vinna einvörðungu að viðhaldi
á verksmiðjunni. Þeir gengu út allir
sem einn á fimmtudagssmorguninn en
mættu aftur til vinnu sólarhi-ing síðar.
„Málið snýst um það að ófaglærðir
menn em að vinna verk faglærðra, þar
sem verksmiðjan hefur fengið verka-
menn til að sinna viðhaldi þegar
verksmiðjan er ekki starfrækt,"
Casablanca:
Vínbann í viku
Skemmtistaðurinn Casablanca var
„þurr“ síðustu helgi þar sem hann
hafði verið settur í vínveitingabann frá
fimmtudagskvöldi fram á miðvikudag-
inn 28. maí nk.
Ástæður bannsins em þær að er vín-
veitingaeftirlitið kom á staðinn sl.
miðvikudagskvöld, á skólaball hjá
M.H., fundu þeir að hjá einum þjón-
anna var vodka á þrýstikút í stað
gosdrykkjar eins og átti að vera og
viðurkenndi þjónninn að hafa ætlað
að selja nemunum áfengið en ballið
átti að vera vínlaust.
Að sögn Signýjar Sen, fulltrúa lög-
reglustjóra, er litið alvarlegum augum
á brot af þessu tagi og voru fram-
kvæmdastjóri og eigandi staðarins
kallaðir íýrir daginn eftir og þeim til-
kynnt um bannið. Ekki varð sannað
hvort viðkomandi þjónn hafði selt eitt-
hvað af vodkanu áður en vínveitinga-
eftirlitið kom á staðinn.
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
í
i
í
i
-FRI A