Dagblaðið Vísir - DV - 22.06.1987, Side 10
28
MÁNUDAGUR 22. JÚNl 1987.
íþróttir
i
Erling hreins-
aði borðið
hjá Herði
Harðarfélagar i Mosfellssveit og
nágrenni héldu gæðingakeppni og
kappreiðar í síðustu viku. Dómar á
gæðingum í A-flokki, B-flokki,
bamakeppni og unglingakeppni fóru
íram á fimmtudeginum en kappreið-
ar, úrslit gæðingakeppna og verð-
launaafhendingar á laugardeginum.
Harðarfélagar eiga tvo góða keppn-
isvelli við Varmárbakka og svo
gamla völlinn á Amarhamri. Allir
em þessir vellir vel úr garði gerðir
frá náttúmnnar hendi fyrir áhorf-
endur sem fjölmenntu í góða veðr-
inu.
Mikið er af góðum hestum í Herði
enda vom einkunnir háar. í B-flokki
vom einkunnir bæði háar og jafriar.
Munur á efsta hesti, Ægi, með 8,38,
og Snillingi, sem fékk fimmtu hæstu
einkunn, 8,24, var einungis 0,14. I
A-flokki var meiri mismunur á Þrym,
sem fékk hæstu einkunn, 8,49, og
Hvin sem fékk fimmtu hæstu ein-
kunn, 8,06. Þar var munurinn 0,43.
Dómarar vom þeir Sigurbjöm
Bárðarson, Þormar Andrésson,
Guðni Jónsson, Viðar Halldórsson,
Benedikt Garðarsson og Hallur
Jónsson. Þeim var borgað fyrir dóm-
störf og er það í fyrsta skipti sem
slíkt er gert og stefhumarkandi fyrir
dómstörf framtíðarinnar. Sigur-
bjöm, Þormar og Guðni dæmdu
A-flokk og B-flokk og vom mjög
sammála í úrslitaröðun, alveg sam-
mála um röðun í B-flokki og
sammála um 3., 4. og 5. sæti í A-
flokki en skiptar skoðanir voru um
1. og 2. sætið. Úrslit vom þessi:
Gæðingakeppnin
í A-flokki stóð efstur Þrymur, sem
Erling Sigurðsson á og sat, og fékk
8,49 í einkunn sem reyndar var
hæsta einkunn gæðings hjá Herði
að þessu sinni. Næstur kom Lord,
Jóhanns Oddssonar, sem Trausti Þór
Guðmundsson sýndi, og fékk 8,38 í
einkunn. Freyja, sem Birgir Hólm á
og sýndi, fékk 8,10 í einkunn og
þriðja sætið. I B flokki stóð efstur
Ægir, Hreins Ólafssonar sem Garðar
Hreinsson sýndi. Fékk hann 8,38 í
einkunn. I öðm sæti var Faxi sem
Jón H. Ásbjömsson á og sýndi. Fékk
hann 8,311 einkunn. Snillingur, Pét-
urs Jökuls Hákonarsonar, var í
þriðja sæti með 8,24 í einkunn, en
Trausti Þór Guðmundsson sýndi
hann. í unglingakeppninni stóð efst-
ur Hákon Pétursson með Limbó og
8,15 í einkunn, Hulda Þórðardóttir
var önnur með Leist og 7,93 í ein-
DV
• Garðar Hreinsson og Ægir stóðu efstir í B-flokkskeppninni. DV-mynd ej.
kunn og Ólöf Kristjánsdóttir þriðja
með Eldingu og 7,94 í einkunn. 1
bamaflokki sigraði Theodóra Mat-
hiesen með Baldur og fékk 8,05 í
einkunn. Guðmundur Jóhannesson
var annar með Grámann og 7,83 í
einkunn.Alfreð Mounier var þriðji
með Garp og fékk 7,93 í einkunn. í
keppni unghrossa í tamningu stóð
efstur Darri sem Haraldur Sigvalda-
son á og sýndi. Leistur, sem Gísli
Ellertsson á en Steinn Gíslason
sýndi, var annar og Torfi, sem
Hreinn Ólafsson á en Ragnar Ólafs-
son sýndi, var þriðji. Hákon Péturs-
son var kosinn snyrtilegasti knapi
mótsins og Lord var kosinn glæsileg-
asti hestur mótsins og glæsilegasti
gæðingurinn.
Kappreiðar
Hvinur þeirra Steindórs Steindórs-
sonar og Erlings Sigurðssonar, sem
Erling sat, sigraði á 16,4 sek. í 150
metra skeiðinu. Röst, sem Þorgeir
Guðlaugsson sat, var önnur á 17,5
sek. og Jörð, sem Jón M. Jónsson á
og sat, þriðja á 18,2 sek. Vani sigr-
aði í 250 metra skeiðinu. Erling
Sigurðsson á hann og sat á 26,1 sek.
Þrymur, sem Erling á einnig og sat,
var annar á 26,7 sek. og Stóri-Jarp-
ur, sem Guðmundur Jónsson á og
sat, þriðji á 31,5 sek. Erling á því tvö
gull og eitt silfur í skeiðkeppnunum
ásamt gulli í A-flokkinum. í 300
metra brokkinu stóð sig best Skuggi,
sem Reynir Ö. Pálmason á og sat, á
43.5 sek. Douglas, sem Jón Jónsson
á og sat, var annar á 62,6 sek. Nest-
or, Hjördísar Bjartmars, sigraði í 350
metra stökki á 27,4 sek. Knapi var
Sveinn Hauksson. Léttir, sem Ragn-
ar Ólafsson á og sat, var annar á
27.5 sek. og Spóna, sem Ámi Anders-
en á en Sigurður N. Birgisson sat,
var þriðja á 28,0 sek.
-EJ.
• Frá fjórðungsmótinu á Melgerðismelum árið 1983.
Tólf afkvæmadæmd kyn-
bótahross á fjórðungsmóti
Fjórðungsmót norðlenskra hesta-
manna verður haldið í þessari viku
á Melgerðismelum í Eyjafirði. Mótið
hefst fimmtudaginn 25. júní klukkan
9 og verða dæmdar kynbótahryssur,
B-flokks gæðingamir og gæðingar
bama og unglinga þann daginn.
Daginn eftir, fóstudaginn 26. júní,
verða dæmdir stóðhestar, hryssur
með afkvæmum og A-flokks gæðing-
ar.
Einnig verður þá kynning á öllum
gæðingum og sýning söluhrossa.
Kappreiðar em fyrstar á dagskrá á
laugardeginum og hefjast klukkan
9.30. Því næst verða fimm ræktun-
arbú kynnt og úrslit í bama- og
unglingaflokki fara fram. Kynbóta-
hross verða einnig kynnt og dómum
lýst. Víðavangshlaup fer fram á
laugardeginum. Á síðasta degi móts-
ins, sunnudeginum, hefst dagskráin
klukkan 10 með úrslitum í kappreið-
um og því næst verður hópreið og
helgistund. Einnig verða sýnd úrvals
kynbótahross og úrslit í A-flokki og
B-flokki fara fram.
Búist er við miklum fjölda hrossa
og manna. Eyfirðingar ættu að geta
haldið gott mót, til þess fengu þeir
næga æfingu fyrir fjórum árum er
fjórðungsmót var haldið á Melgerð-
ismelum. í gæðingakeppninni munu
taka þátt 74 hross, í gæðingakeppni
bama og unglinga 35 hross og í
kappreiðum 69 hross, þar af 42 í
skeiðkeppni. Búist er við mikilli
spennu í kringum kappreiðar því
peningaverðlaun em 180.000 krónur.
Veðbanki verður starfræktur og
munu veðmálin eflaust hleypa
spennu í áhorfendur. Flestöll sterk-
ustu keppnishross landsins munu
mæta.
Geysilegur fjöldi kynbótahrossa
verða sýndur og meðal annars fjórir
afkvæmasýndir stóðhestar, þeir Her-
var frá Sauðárkróki, Fáfnir frá
Fagranesi, Freyr frá Akureyri og
Fengur frá Bringu. Nokkrar hryssur
verða afkvæmasýndar og má nefna
þær Nös frá Stokkhólma og Snældu
frá Árgerði. Alls verða sýndir fjórir
stóðhestar með afkvæmum og ellefu
einir sér. Átta hryssur verða sýndar
með afkvæmum og fimmtíu einar.
Dansleikir verða flestöll kvöldin og
kvöldvaka á laugardagskvöldið.
Erling glimdi við dauðann -
hjálmurinn bjargaði Irfi hans
Hinn knái knapi, Erling Sigurðs-
son, hefur oft lent í kröppum dansi
á skeiðvellinum og ekki síður á
dómpöllum en fyrir rúmri viku kast-
aði fyrst tólfunum er hann lenti í
glimu við dauðann og sigraði auðvit-
að. Erling sigraði í skeiðkeppninni
á Hvin eftir mikla baráttu við Sigurð
Vigni Matthíasson, 10 ára, sem
keppti á Dagfara og lenti í 2. sæti.
En þegar Erling og Hvinur voru
komnir í gegnum markið hnaut
Hvinur með þeim afleiðingum að
hann endastakkst og Erling með.
Höfúðið á Ella lenti í sverðinum þar
sem fyrir var urð og grjót. Hann stóð
upp en steinlá síðan rotaður. Hann
raknaði brátt við og mætti hress í
keppnina hjá Herði nokkrum dögum
síðar og gekk vel. Erling telur ekki
nokkum vafa leika á því að hjálmur-
inn, sem hann hefur alltaf á höfðinu
i keppni, hafi bjargað lífi sínu. Já
það er ekki tryggt eftirá.
• Það uppgötvaðist á sveitakeppn-
ismótinu, sem haldið var í Víðidaln-
um fyrir rúmri viku, að deilitafla,
sem notuð er fyrir töltkeppnina, er
röng á tveimur stöðum. Reglan er
sú að deilt er með tölunni fjórum í
heildarútkomu hvers dómara. Þá
tölu sýna dómarar á spjöldum sínum.
En á deilitöflunni fyrir töltkeppnina
er útkoman 10,1 þegar deilt er með
fjórum í heildarútkomuna 41. Sú
útkoma er röng. Útkoman á að vera
10,25 en sú tala er hækkuð upp í
10,3. Það sama má segja um töluna
17 sem verður 4,2 í deilitöflunni en
á að vera 4,3 - man reyndar ekki
eftir að hafa séð þá tölu í íþrótta-
keppni. Þar sem stutt er síðan þessi
vitleysa uppgötvaðist hefur ekki ver-
ið kannað hvort vitleysur séu víðar
í deilitöflum eða hvort þessi tala,
10,1, hefur haft einhver áhrif á út-
komu á íþróttamótum. Þó liggur
ljóst fyrir að á sveitakeppnismótinu
fékk knapinn Örn Karlsson, sem
keppti fyrir Andvara, töluna 10,1 hjá
þremur dómurum. Sú tala hefði auð-
vitað átt að vera 10,3 og hefði það
hækkað hann upp.
• Mánudaginn 15. júní síðastliðinn
sagði ég frá því að félagar í íþrótta-
deild Harðar væru óánægðir með að
hafa ekki fengið að vera með í sveita-
keppninni i' Víðidalnum. Valdimar
Kristinsson, formaður íþróttadeildar
Harðar, vill koma því á framfæri að
hann viti ekki til þess að íþrótta-
deild Harðar hafi verið boðið form-
lega að vera með. Samtöl við
einstaklinga í íþróttadeildum þeirra
félaga sem stóðu að mótinu hafi bent
til þess að enginn væri mótfallinn
þátttöku Harðar, og flestir því vel-
viljaðir. Harðarfélögum hafi verið
bent á að sækja um skriflega og
gefið í skyn að sú umsókn væri ein-
ungis formsatriði. Annað hefði
komið á daginn.