Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.1987, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.1987, Blaðsíða 3
FIMMTUDAGUR 2. JÚLÍ 1987. 3 Fréttir Menntamála- og fjármálaráðherra samþykkja aukafjárveitingu: Islenska óperan fær 37 milljónir frá ríkinu Nýlega var undirritaður samningur milli menptamálaráðuneytisins, fjár- málaráðuneytisins og íslensku óper- unnar um umfangsmikinn íjárstuðn- ing og aukafjárveitingar til handa óperunni. I fyrsta lagi veitir ríkið aukafjárveit- ingu að upphæð 8 milljónir króna til greiðslu á ýmsum skuldum óperunnar við ríkissjóð. I öðru lagi fær Islenska óperan auka- fjárveitingu að upphæð 5 milljónir króna til greiðslu á ýmsum skuldum sem safnast hafa upp og vegna undir- búnings verkefna næsta starfsárs. I þriðja lagi skuldbindur ríkið sig til að greiða 8 milljónir króna á ári til óperunnar þar til samningurinn renn- ur út 1990. Samtals er því um að ræða 24 milljónir króna undir þessum lið og er sú upphæð ætluð til greiðslu á ýmsum fastakostnaði við rekstur óper- unnar. T.d. er fyrirhugað að ráða til óperunnar framkvæmdastjóra í fúllt Rétt um tvo kílómetra frá hafnarstæðinu er sótt grjót til að gera höfnina. Bergið er brotið niður og það síðan sett á vörubila er aka þvi í sjó fram. Hafnargerð við Brjánslæk Mikil samgöngubót „Þetta breytir miklu fyrir Vestfirði í heild. Þama sparast stórfé sem fer í snjómokstur, menn sleppa við slæman veg suður auk þess sem flutningasam- göngur verða daglegar. Þó að þetta stytti ekki ferðina nema um klukku- tíma verður þetta mikil samgöngubót og gerir fært hingað nánast allt árið,“ sagði Ágúst Ólafsson verkstjóri við hafnargerð við Brjánslæk. I sama streng tók Sigurður Viggósson, odd- viti á Patreksfirði, og sagði að ný ferja yrði gífurleg lyftistöng fyrir byggðar- lagið, með betri samgöngum kæmi aukinn ferðamannastraumui'. Stefht er að því að taka í notkun nýja Breiðafjarðarferju næsta sumar sem verður um tvo og hálfan tíma frá Stykkishólmi og í Brjánslæk en það tekur flóabátinn Baldur um fjóra tima í dag auk þess sem nýja ferjan verður stærri og getur því flutt fleira fólk og ökutæki. Til að nýja ferjan geti lagst að er verið að þrefalda stærð hafnar- innar og er stefnan sú að um 280 metra hafnargarður verði tilbúinn í október en næsta vor verði höfnin fullgerð. Um 10 manns frá Vinnuvélum h/f á Patreksfirði vinna við hafnargerðina að sögn Ágústs og sækja þeir gijót í hafnargarðinn um 2 kílómetra frá hafnarstæðinu sem síðan er ekið út i sjó. Áætlað er að framkvæmdin í heild sinni muni kosta imi 24 milljónir í allt að sögn verkstjórans. -JFJ Hafnargarðurinn var um 100 metrar þegar hafist var handa en verður tæplega þrisvar sinnum lengri þegar siðasta grjótinu hefur verið sturtað i hafnarstæð- ið við Brjánslæk. DV-myndir KAE starf. Loks er í samningnum ákvæði um að óperan hefli formlegar viðræður við Þjóðleikhúsið og Sinfóníuhljómsveit- ina um samstarf. Einnig er ákvæði um að hér eftir verði fjármögnun verkefna ávallt tiyggð fyrirfram. í heild felast í samningnum fjár- skuldbindingar af hendi ríkissjóðs að upphæð 37 milljónir króna. Islenska óperan hefur átt við mikinn fjárhagsvanda að stríða að undan- förnu. Ýmis verkefhi óperunnar hafa verið sýnd með miklu tapi og má þar benda á Aidu, nýjasta verkefni óper- unnar, sem aflaði aðeins þriðjungs þeirra tekna sem nauðsvnlegar voru í aðgangseyri. Garðar Cortes óperustjóri sagði i blaðaviðtali um síðustu helgi að auk þess sem þörf væri aðstoðar ríkisins vegna mikilla skulda þá teldi hann æskilegt að gera umfangsmiklar breyt- ingar á núverandi húsnæði óperunnar. Talið er að þessar breytingar muni kosta tæplega 150 milljónir króna. Samkvæmt upplýsingum Revnis Kristinssonar, aðstoðarmanns menntamálaráðherra. mun ekki vera fyrirhugað að ráðast í slíkar fram- kvæmdir að sinni af hálfu ríkisins heldur verða þessar 37 milljónir. sem nú hefur verið ákveðið að veita óper- unni með aukafjárveitingu. látnar duga. -ES 37 miiyóna aukafjárveiting til íslensku óperunnar: Fráleitt háttalag - segir Geir Gunnarsson, alþingismaður „Þetta er alveg fráleitt háttalag, án þess að ég sé að dæma um efhi málsins. Það er hins vegar Alþingis að ákveða svona fjárveitingar,11 sagði Geir Gunnarsaon, sem hefur setið í fjárveitinganefnd um árabil, þegar hann var spurður álite á auk- afjárveitingu menntamála- og fjár- málaráðherra til íslensku óperunnar. Þessi aukafjárveiting hefiir þótt orka tvimælis og hafa ýmsir bent á að hún geti varla fallið undir þau heimildarákvæði sem ráðherrar hafa til veitinga aukafiárveitinga. Fjár- véitingin hljóðar upp á samtals 37 milljónir króna og er hluti þeirrar upphæðar árvisst framlag til ópe- runnar næstu þtjú ár. „Það er ekki nokkur einasta ástaeða til að rjúka í þetta núna. Innheimtu skuldar óperunnar við ríkissjóð hefði hæglega mátt fresta til afgreiðalu fjárlaga í haust og frá- i\ wmmmm Geir Gunnarsson alþingismaður tel- ur það fráleitt háttalag að ráðherrar ákveði Ijárveitingar sem þessar til islensku óperunnar. leitt að skuldbinda ríkið mörg ár fram í tímann með aukafárveiting- um. Við erum sífellt að deila um margs- konar félagasamtök og þá er togast á um nokkrar krónur. óperan og sambærileg samtök hafa ávallt sótt um styrk til fjárveitinganefndar og fengið en því miður allt of lítið. Við höfum þó reynt að gæta innra sam- ræmis. En nú tekur ráðherra sig til og veitir Islensku óperunni þennan st>Tk með aukafjárveitingu. Menn spyrja sig hvað framkvæmdavaldið geti eiginlega leyft sér því hér er augljóslega um að ræða verkefni Alþingis. Og þessi vinnubrögð viðhafa ráð- herrar starfsstjómar sem ekki hefur einu sinni meirihluta Alþingis á bak \áð sig,“ sagði Geir Gunnarsson að lokum. -ES UHörin við Sambandsverksmidjurnar eftir vinnu i gær. Saumakonurnar jörðuðu skilti Skinnastofunnar á Akureyri. DV-mynd JGH Akureyri: Þær Jörðuðu Skinnastofuna Jón G. Hauksson, DV Akureyii; „Útför" var við Skinnastofu Sam- bandsins seinnipartinn í fyrradag þegar síðustu konumar gengu út en búið er að leggja niður Skinnastofu Sambandsins á Akureyri. Öllu starfs- fólki var sagt upp 1. apríl. Frá og með 1. júlí var því hætt að framleiða hina vinsælu mokkajakka á Akurevri. „Við erimi vondar út í vfimienn verksmiðjanna hér. Við höfúm ekki séð þá frá því okkur var sagt upp og þeir létu ekki svo lítið að kveðja okk- ur áður en við hættum, þó við séum búnar að vinna hér í mörg ár,“ sögðu saumakonurnar. Tólf af þeim sextán sem hættu í gær hafa enga vinnu fengið. „Það er engin vinna framundan, við blasir aðeins sumarfrí." Sambandið bauð konunum vinnu í öðrum deildum. „Við erum ekki orðnar það miklir bógar að við getum farið að þræla okkur út í sút- un," sögðu saumakonumar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.