Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.1987, Blaðsíða 40
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert frétta-
skot, sem birtist eða er notað í DV, greiðast 1.500
krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greið-
ast 4.500 krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt.
Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn.
Ritstjórn - Auglýsingar.- Áskrift - Dreifing: Simi 27022
FIMMTUDAGUFS 2. JÚLÍ 1987.
Steingrímur Hermannsson:
Ertraustíð
mikils virði
„Mér er þetta mikla traust mikils
virði og mér þykir vænt um það,“
sagði Steingrímur Hermannsson í
samtali við DV þegar hann var
spurður álits á niðurstöðu skoðana-
könnunar blaðsins sem leiddi í ljós
að hann nýtur mests fylgis í emb-
ætti forsætisráðherra.
„Ég tek þessa niðurstöðu þannig
að ég þyki hafa staðið mig sæmilega
í starfi í þessari ríkisstjóm. Hins
vegar gæti þessi niðurstaða samein-
að pólitíska andstæðinga mína í því
að lækka risið á svona manni,“ sagði
Steingrímur.
„En ég er þakklátur þeim sem sýna
mér þetta mikla traust."
-ój
Þorðu ekki
að senda DV
inn á fundinn
Starfsmenn í Stjómarráðinu við
Lækjartorg þorðu ekki að senda DV
inn á fund forystumanna flokkanna
eftir að blaðið kom út í hádeginu í
gær með frétt um að skoðanakönnun
blaðsins sýndi að meirihluti lands-
* manna vildi Steingrím Hermanns-
son sem forsætisráðherra.
Fréttamenn heyrðu starfsmenn
tala um að þeir óttuðust að vitn-
eskja um skoðanakönnun DV gæti
truflað viðræðumar sem væru á
lokastigi.
Heimildir DV herma að um hálf
klukkustund hafi liðið áður en að-
stoðarmaður forsætisráðherra,
Helga Jónsdóttir, komst í málið og
gaf fyrirskipun um að blaðið yrði
þegar sent inn á fundinn.
Forystumennimir vom hins vegar
um nóttina búnir að semja um að
Þorsteinn Pálsson yrði forsætisráð-
herra. Tveir fundarmanna hafa sagt
, . .. DV að Steingrímur hafi haft á orði
eftir að hann sá blaðið:
„Bara að ég hefði vitað þetta fyrr.
Þá hefði ég aldrei gefið forsætisráðu-
neytið eftir.“
-KMU
ÓVENJU LÁGT VERÐ
OPIÐ TIL KL. 16.00
Á LAUGARDÖGUM
LOKI
Ritskoðunin er með
sérkennilegum hætti
á þeim bænum!
Hjón kærð til Rannsóknarlögreglu:
Kynferðis-
misnotkun bama
í sumarbúðum?
Rannsóknarlögreglu ríkisins
hafa borist kærur á hjón í Hafnar-
firði vegna meintrar kynferðislegr-
ar misnotkunar á bömum. Forsaga
málsins er að sumarið 1985 ráku
hjónin sumardvalarheimili fyrir
böm. Þau sem kært hafa hjónin
telja að í sumarbúðunum hafi þau
misnotað bömin kynferðislega.
Eftir því sem næst verður komist
vom bömin sem um ræðir sex og
sjö ára gömul þegar þetta var.
Eftir að dvöl í sumarbúðunum
lauk hafa hjónin ávallt verið boðin
og búin til að gæta umræddra
bama ef foreldrarnir hafa þurft á
gæslu að halda. Samkvæmt heím-
ildum, sem DV hefur aflað sér,
komst málið upp með þeim hætti
að hjónin mynduðu börnin í vafa-
sömum stellingum. Starfsfólki
framköllunarf>TÍrtækisins, sem
annaðist framköllun filmunar, blö-
skraði svo myndefnið að það hafði
samstundis samband við lögreglu.
Viðkomandi bamaverndamefiid-
ir munu líklegast leggja ffam
kærur gegn hjónunum í dag hjá
Rannsóknarlögreglunni. Sam-
kvæmt þeim heimildum, sem DV
hefur, er grunur á að fleiri börn
hafi orðið fyrir hjónunum en þau
tvö sem nú hefúr verið kært vegna.
Aðili úr fjölskyldu annars bams-
ins hefur haft við DV ófagrar
lýsingar á atferli hjónanna gagn-
vart bömunum. Sagði sami aðili
að bamið hefði breyst mjög á þeim
tíma sem það hefur verið f sam-
bandi við hjónin og sagðist óttast
að það gæti átt erfitt með að jafna
sig eftir það sem á undan er gengið.
-sme
Sólþurrkaður saltfiskur þykir sælgæti mikið en það er orðið sjaldgæft að sjá saltfisk breiddan á reit og þurrk-
aðan samkvæmt gömlu aðferðinni. Hafnfirðingar hafa þó notað tækiðfærið i góöa veðrinu síðustu daga og
breitt saltfisk til þerris eins og þessi skemmtilega mynd úr norðurbænum í Hafnarfirði ber meö sér.
DV-mynd S
Veðrið á morgun:
Hlýnandi
iyrir norðan
og vestan
Á morgun lítur út fyrir austan-
og suðaustanátt á landinu. Dálítil
súld verður sunnan- og suðaustan-
lands en þúrrt á Norður- og
Vesturlandi. Hlýnandi veður fyrir
norðan og á Vestfjörðum.
Jón Sigurðsson:
Ekki samkomulag
um Steingrím
„Þú ættir að spyrja Framsóknar-
flokkinn um það og Steingrím
Hermannsson sjálfan. Okkur finnst
það verjandi," sagði Jón Sigurðsson
þegar hann var inntur eftir því hvort
verjandi væri að Steingrímur Her-
mannsson yrði ekki forsætisráð-
herra, í ljósi niðurstöðu skoðana-
könnunar DV í gær.
Jón sagði að hver flokkur hefði
sóst eftir forystu og allir talið það
geta reynst til vinsælda fallið. Sam-
komulag flokkanna hefði orðið um
annað en Steingrím.
-JFJ
Fólk vill halda því
sem það hefur
„Þessi útkoma kemur mér alls ekki
á óvart. Mér finnst eðlilegt að fólki
þyki vænt um það sem það hefur núna
og vilji halda því. Það þýðir þó varla
að ekki megi þreyta til,“ sagði Friðik
Sophusson, varaformaður Sjálfstæðis-
flokksins, aðspurður um niðurstöður
skoðanakönnunar DV þar sem iram
kom að mikill meirihluti þeirra sem
tóku afstöðu vildu Steingrím Her-
mannsson áfram í sæti forsætisráð-
herra.
„Það er einnig alveg ljóst að þetta
fylgi Steingríms er eingöngu bundið
við persónu hans en ekki við flokk-
inn,“ sagði Friðrik.
-BTH
Halldór Ásgrimsson:
Lögðum áherslu
á Steingrím
„Það liggur fyrir að Framsóknar-
flokkurinn hefur 13 menn á Alþingi
og við göngum til stjómarmyndunar
við tvo aðra flokka með þessa samn-
ingsstöðu. Framsóknarflokkurinn
lagði gífurlega áherslu á að Steingrím-
ur Hermannsson yrði forystumaður
ríkisstjómarinnar, um það hefur ekki
orðið samkomulag heldur samkomu-
lag um annað,“ sagði Halldór Ás-
grímsson, varaformaður Framsóknar-
flokksins, þegar DV innti hann álits á
niðurstöðum skoðanakönnunar blaðs-
ins sem birt var í gær.
Hafa hinir flokkamir þá hafnað vilja
þjóðarinnar?
„Ég vil ekki orða það þannig en
þetta liggur fyrir. Við verðum að starfa
á grundvelli viljans sem kom fram í
alþingiskosningunum. Sá vilji ræður
við myndun ríkisstjómar," sagði
Halldór.
-JFJ
Þorsteinn Pálsson:
Steingrímur staðið
sig ágætlega
„Ég hef ekkert nema gott um þetta
að segja,“ sagði Þorsteinn Pálsson
þegar hann var spurður álits á skoð-
anakönnun DV frá í gær um það
hver nyti mests fylgis í embætti for-
sætisráðherra.
„Steingrímur hefur staðið sig
ágætlega sem forsætisráðherra og
við höfum átt gott samstarf. Sjálf-
stæðismenn buðust til þess að
annaðhvort Steingrímur eða Jón
Baldvin yrðu forsætisráðherrar í
nýrri ríkisstjórn en það varð ekki
samkomulag um það þeirra á milli
hvor það yrði. Ég hef ekki meira um
þetta að segja,“ sagði Þorsteinn.
-ój
y'