Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.1987, Blaðsíða 36

Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.1987, Blaðsíða 36
FIMMTUDAGUR 2. JÚLÍ 1987. Sviðsljós Ólyginn Marlon Brando varð yfir sig ánægður um dag- inn þegar hann sat að snæð- ingi á veitingahúsi á Tahiti. Hann varð þess var að ung stúlka á næsta borði starði á hann eins og naut á nývirki og endaði það með því að þetta gláp fór að fara í fínu taugarnar á kappanum. Hann tók sig því til, rauk upp, gekk að stúlkunni og spurði hvern fjandann þetta ætti að þýða. í Ijós kom að stúlkan hafði ekki hugmynd um hver Brando raunverulega var og kannaðist ekki einu sinni við nafnið. Brando varð svo hissa á þessu að hann bauð stúlk- unni og kærasta hennar út að borða og hélt þeim veislu allt kvöldið. Charlton Heston vekur undrun kunningja sinna þessa dagana. Hann er nefni- lega hættur að ganga í sokkum, er þess í stað ber- fættur í öllum skóm sem hann notar. Mörgum þykir þetta ekki sérlega viðeigandi þar sem Heston er farinn að reskj- ast. Einhver skaut því að honum að þessir dyntir í hon- um minntu einna helst á leikarann og Miami Vice sjón- varpsstjörnuna Don Johnson sem gengur einnig ætíð sokkalaus. Þá mun Heston hafa roðnað og viðurkennt að Miami Vice væru líka uppá- haldssjónvarpsþættirnir hans. Ekki vildi hann þó meina að þangað mætti rekja ástæðuna fyrir sokkaleysinu. Liza Minnelli situr nú sveitt við að skrifa handrit að þriggja klukku- stunda löngum sjónvarps- þætti. Þátturinn á að fjalla um hana sjálfa og bitra reynslu hennar af eiturlyfjaneyslu og áfengissýki. Einnig um hvern- ig hún læknaðist af vímuefna- nautninni í meðferð á Betty-Ford heimilinu. Liza sjálf mun leika aðalhlutverkið í myndinni. •V Hannes Hlifar með viðurkenningarvottinn frá ríkisstjórninni sem á að tákna kóng og drottningu. Með Hannesi eru Sigurjón Antonsson, fósturfaðir hans, Sesselja Friðriksdóttir, móðir Hannesar, og afinn, Friðrik Jónsson. Hannes Hlífar heiðraður Fjöldi manns, sem tengdur er skákíþróttinni, var í hófinu og fagnaði með heimsmeistaranum. Á myndinni má m.a. þekkja Baldur Möller, Helga Ólafsson, Lárus Jó- hannesson, Hilmar Thors og Friðrik Ólafsson. Sverrir Hermannsson menntamálaráðherra heiðraði Hannes í ræðu og afhenti honum síðan viðurkenningar- vottinn frá rikisstjórninni. Hér sést Sverrir spjalla við Þráin Guðmundsson, forseta Skáksambands íslands, og Einar S. Einarsson, fyrrverandi forseta Skáksambandsins. Ríkisstjórnin heiðraði nýlega hinn unga skákmann, Hannes Hlífar Stef- ánsson, heimsmeistara unglinga í skák, fyrir frækileg afrek á þessu sviði og titilinn sem hann hlaut á heimsmeistaramóti sveina í Inns- bruck þann 23. maí sl. Hófið var haldið í Borgartúni 6 og var fjöldi boðsgesta mættur, flestir á einhvern hátt tengdir skákíþróttinni. Fyrir hönd ríkisstjórnarinnar af- henti Sverrir Hermannsson mennta- málaráðherra Hannesi viðurkenn- ingarvott og var það minjagripur gerður af Jens Guðjónssyni gullsmið. Er gripurinn tákn fyrir taflmennina kóng og drottningu. Búið er að velja hamingjusamasta hund ársins í Ameríku en þessi ár- vissa keppni er stórviðburður í lífi margra amerískra hundaeigenda. Hundarnir, sem taka þátt í þessari keppni, verða sannarlega að bera það utan á sér hve hamingjusamir þeir eru því eins og við er að búast er Hrói höttur, af Yorkshire terrier kyni, hlaut önnur verðlaun og bókstaflega veltist um af hlátri yfir þvi. ekki hægt að fá þeirra álit á málinu. Á meðfylgjandi myndum eru síðan Það eru því aðeins þeir allra bros- sigurvegararnirogallireigaþeirþað hýrustu sem eiga vinningsvon. sameiginlegt að vera sérlega bros- Þessi dach-hundur heitir reyndar Hamingjusamur (Happy) og gerði sig ánægðan með þriðju verðlaun eins og sést á honum. mildir. Þess vegna voru þeir líka valdir. Poodlehundurinn Rodney James Gallagher hlaut fyrstu verðlaun. Honum likar hundalifið einstaklega vel og er alltaf í góðu skapi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.