Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.1987, Blaðsíða 16
16
FIMMTUDAGUR 2. JÚLÍ 1987.
Spumingin
Ertu fylgjandi banni á
notkun fjórhjóla?
Áslaug Konráðsdóttir: Já, það ætti
að banna þau - alveg.
Birgir Guðmundsson: Algjörlega -
nema á vissum afmörkuðum blettum.
Snorri Einarsson: Já, á friðuðu land-
svæði. Það á bara að hafa afmarkaða
velli undir þetta.
Herdís Sveinsdóttir: Já - alls staðar
nema á sérstökum brautum fyrir þau.
Fríða Haraldsdóttir: Mér finnst alveg
hræðilegt að sjá hvernig þau hafa
farið með landið - var í fjallgöngu á
Hellisheiði og þar voru ljót sár í jarð-
veginn eftir fjórhjól.
Hilmar Herbertsson: Á vissum svæð-
um allavega, en leyfa þau á öðrum -
til dæmis hjá bændum og þeim sem
á þurfa að halda. Ekki leyfa mönnum
að leika sér á þessu - nema á af-
mörkuðum svæðum.
Lesendur
Dagvistun í
ólestri
Einstæð móðir segir:
Það er undarlegt hversu illa geng-
ur að koma dagvistun bama í
sæmilegt horf - þannig að það henti
foreldrum og bömum allan ársins
hring. Engu er líkara en yfírvöld lfti
á þessa þjónustu sem hliðarúrræði
fyrir húsmæður sem annars sitja
heima í stoíú flesta daga.
Þannig er mál með vexti að ég er
einstæð móðir og á einn sjö ára
gamlan son. Að sjálfsögðu þarf ég
að vinna úti allan daginn - og meira
til - en launin duga ekki fyrir húsa-
leigu og nauðþurftum. Það skal
tekið fram að ég á ekki bíl þannig
að við brjótumst, mæðginin, í öllum
veðrum snemma morguns í vinnu
og á skóladagheimili.
En þá er ég komin að tilefhi þess
að yfir mig gekk í síðustu viku.
Skóladagheimilinu verður lokað í
tæpa tvo mánuði í sumar og ekki
virðist gert ráð fyrir að nokkurt at-
hvarf eigi að taka á móti þeim
bömum er þama hafa dvaliö. Ég fæ
að vísu mánuð í sumarleyfi en þá
eru þrjár vikur eftir og er allt útlit
fyrir að ég þurfi að taka mér launa-
laust leyfi ef mér finnst ekki að
drengurinn eigi að ganga eftirlits-
laus þann tíma. Launalaust leyfi er
fjárhag mínum ofviða og til frekari
áréttingar vil ég benda á að hlutir
eins og utanlandsferðir eða hús-
gagnakaup - svo eitthvað sé nefiit -
er nokkuð sem við tvö lesum um í
blöðum. Það er ekki inni í myndinni
hjá okkur.
Nú spyr ég: Hafa sjö ára böm eng-
an rétt? Eiga þau að sitja undir því
að bágborinn fjárhagur mæðranna
ásamt andvaraleyá yfirvalda dæmi
þau á götuna tímunum saman?
Þess skal að lokum getið að ég er
ekki með þessum orðum að kasta
rýrð á skóladagheimilið eða stjóm-
endur þess. Hins vegar fæ ég ekki
betur séð en heildarskipulag í gæslu
bama hafi farið fyrir ofan garð og
Hvar eiga sjö ára drengir að vera þegar skóladagheimilið er lokað i tvo
mánuði?
neðan í þessu þjóðfélagi. Teljum við
ódýrara fyrir það sama þjóðfélag að
taka síðar við bömunum og mæð-
rum þeirra á meðferðarheimih af
ýmsu tagi þegar líkamlegt og and-
legt þrek hefior verið brotið niður
og vandamálin hafa vaxið mönnum
yfir höfiið? Er ekki kominn tími til
að vakna af værum dvala? Og það
fremur fyrr en síðar.
Lausvið hártoppinn
Ánægður viðskiptavinur hringdi:
Mér var bent á að fara í Hárlínuna
því ég var með svo lítið hár - hvirfill-
inn var næstum alveg orðinn ber. Og
árangurinn var ótrúlega góður varð-
andi þetta hárvandamál sem ég hef
þurft að glíma við í þrjátíu ár - án
árangurs. Eftir tvö skipti fór hárið
strax að lagast. Nú er ég búin að fara
í ellefu skipti og get gengið án hár-
toppsins sem alltaf hefúr verið að
angra mig.
Árangurinn er að sjálfsögðu misjafn
en hjá mér er hann stórkostlegur. Ég
segi frá þessu í von að einhver hafi
gagn af meðferðinni á sama hátt og
ég sjálf hef fengið að reyna.
Sömuáskriftargjöld
úti á landi
H.Ó. hringdi:
Ég bý úti á landi og finnst ósann-
gjamt að við skulum þurfa að greiða
sömu áskriftargjöld af dagblöðunum
og þeir sem búa á höfuðborgarsvæð-
inu. Við fáum blöðin eftir dúk og disk.
í dag, sem er fimmtudagur, fengum við
þriðjudags- og miðvikudagsblöðin en
samt þurfum við að borga það sama.
Ef við tökum Dagblaðið sem dæmi,
sem ég er áskrifandi að, þá erum við
yfirleitt búin að sjá fréttimar í sjón-
varpi og heyra þær í útvarpi áður en
blaðið kemur. Við lesum þær ekki
eldgamlar þar líka. Nú vil ég skora á
aðra landsbyggðarmenn að láta í sér
heyra sem fyrst.
Lífeyrissjóða-
hneyksli
Sigrún Bergþórsdóttir skrifar:
Eg er sammmála Bergvini Odds-
syni í Vestmannaeyjum í sambandi
við lífeyrissjóðina eins og greiðslum
í þá er háttað.
Þetta er hneyksli hvemig teknir
em peningar af fólki og mönnum
talin trú um að þeir fái þá aftur í
ellinni. Ég man ekki betur en einn
þingmaðurinn segði frá dæmi um líf-
eyrissjóð þar sem kostnaðurinn við
að stjóma honum væri meiri en
greiðslumar sem sjóðfélagar fa.
Þessi sjóður er greinilega til fyrir
forstjóra sinn en ekki fyrir þá sem
borga í hann.
Nú, eða maðurinn sem fékk út-
reiknaðar greiðslur eftiríjögurraára
aðild og voru boðnar krónur 19,50
sem vom reyndar hækkaðar í 900
krónur - níu hundruð- eftir blaða-
skrif.
Lífeyrissjóði í þeirri mynd sem þeir
em nú á skilyrðislaust að leggja nið-
ur eins og Bergvin leggur tiL
Skylduspamaður hefúr áður verið
framkvæmdur og þá fékk hver sitt
eftir ákveðinn tíma.
Hvers vegna er það ekki hægt þeg-
ar um lífeyrissjóð er að ræða? Það
er forystu launþegasamtakanna til
skammar að standa að þeasari skatt-
lagningu á láglaunafólk á þennan
Hvereigisinn
lífeyrissjóð
Borgvin Oddsson, skipstjóri
á Glófaxa í Vestmannaeyjum.
segist í viðtali við Fréttir i
Eyjum vilja lcggja lifeyris-
sjóðina niðurog að lifeyrisið-
gjöldin verði lögð inn á
vcrðtryggða reikninga hjá
hverjumogeinum.
Það hafa heyrst vitluusuri
tillögur í lifcyrismálunum. cn
þessi myndi augljóslegn ein-
falda stórlega digran lið í
kcrfmu. Fólk aetti þú sinn sjóð.
hver fyrir sig. i sinum banka.
som það fengi siðan væntan-
lega að n ýta cftir fyrirfram
ák veðnu kerfi þegar þar að
kemur. Á meðan stæði sjóður-
Skrifað var um IHeyrissjóðina f
Sandkorni DV þann 25. júní siðast-
hátt. liðinn.
Sparkvöll á Grandann
Fimur skrifar:
Það vantar tilfinnanlega sparkvöll
af minni gerðinni á norðurhluta
Grandans. Það geta ekki allir krakk-
ar hverfisins lætt sér inn á KR-völl-
inn - enda er það óvinsælt af hinum
íúllvöxnu boltamönnum.
Með íjölda nýrra bygginga á þessu
svæði hefúr bömum og unglingum
fjölgað en lítið verið gert fyrir þau
hvað snertir aðstöðu til útivistar.
Eina opna svæðið, sem til umráða
var, er auða lóðin við Framnesveg
og Hringbraut sem nú hefúr verið
tekin undir skólabyggingu. Það er
engum til góðs að þessir aldurshópar
séu á hrakhólum með útileikina og
því brýnt að yfirvöld taki við sér sem
allra fyrst.
Hvaladráps-
áhugi ráða-
Margrét Hjálmtýsdóttir segir:
Mörgum finnst sem ráðamenn ís-
lands hafi leitt skömm yfir þjóð síns
með hvaladrápsáhuga. Flestir em ís-
lendingar dýra- og náttúmvemdar-
unnendur og ekki frábmgðnir öðrum
menningarþjóðum í þeim efiium. Því
fordæma þeir útrýmingu dýra. Einnig
er það vítavert að á sama tíma og
mikið neyðarástand ríkir hjá bændum
þjóðarinnar við að koma afúrðum búa
sinha í verð skuli vera hafinn áróður
fyrir sölu hvalkjöts og hvaladrápi.
íslendingar þurfa að fá hæfari menn
en þeir hafa til að stjóma þessum
málum.
Glæsilegt á
Hótel Ork
Regina Thorarensen skrifar:
Eg fór með syni mínum og tengda-
dóttur og þremur bömum á Hótel Örk
í Hveragerði um daginn. Þar var mat-
urinn frábær, sextán réttir, bæði kjöt
og fiskur, auk þess alls konar salöt.
Það er dásamlegt hvað kjötið var vel
soðið og hantérað á allan máta og
kokkamir kunna vel til sinna verka.
Þegar ég kom inn og sá þetta flotta
veisluborð varð mér hugsað til þess
hvort maturinn væri jafiigóður og
reyndist svo vera.
Mig langar að óska Helga Þór Jóns-
syni heilla með glæsilegt hótel í nútíð
og framtíð.
Gleraugun
töpuðust
íflutningunum
Lára Ólafsson hringdi:
Síðastliðinn laugardag - þann 27.
júní - töpuðust kvengleraugu í rauðu
hulstri. Sennilega hafa þau týnst á
Stekkjarhvammi, þar sem staðið var í
flutningum þangað, en einnig gætu
þau hafa tapast við Hellisgerði því þar
var komið við í bakaleiðinni. Finnandi
er vinsamlegast beðinn um að hringja
í síma 42930 eða láta vita að Stekkjar-
hvammi 74, en þar ekki ekki kominn
sími ennþá. Fundarlaunum er heitið.