Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.1987, Qupperneq 11

Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.1987, Qupperneq 11
FIMMTUDAGUR 2. JÚLÍ 1987. 11 Utlönd Joggingskór í ferðalagið fást í öllum helstu sportvöruverslunum. Fimm manns létust í slysinu. Hermenn leituðu í gær í braki vélarinnar að vísbendingum um það hvað olli slysinu. Simamynd Reuter C-130 flutningavél fórst við æfingar Fimm manns létu lífið í gær þegar C-130 flutningaflugvél frá bandaríska flughemum fórst við æfingar í Fort Bragg í Norður-Karólínafylki. Um þijú þúsund almennir borgarar fylgd- ust með æfingunni og horfðu á flutn- ingavélina hrapa og verða alelda nær samstundis. Flutningavélin var notuð við æfing- ar í að varpa skriðdrekum út í fall- hlífum sem settar em aftur úr vélinni á lágflugi og eiga þá að draga drekana með sér út á jörðina. Við þessa iðju skall vélin í jörðina, rann síðan út í skóglendi við flugbraut og varð nær samstundis alelda. Fjórir áhafnarmeð- limir og eirrn hermaður á jörðu niðri létust í slysinu, en þrír úr áhöfn vélar- innar sluppu með minniháttar meiðsli. .-r. Áá:l heildverslun, sími 68-76-85. Richard Branson (t.v.) og aðstoðarmaður hans, Per Lindstrand, biða eftir hagstæðu veðri til að leggja í ferð yfir Atlantshafið. Simamynd Reuter Loftbelgur til íslands? Inguim ÓlafedcárJDV, Bimiingiiam; Ekki er útilokað að sjást muni til risastórs loftbelgs frá íslandi að nokkr- um dögum liðnum. Breti nokkur að nafhi Richard Branson hefur ákveðið að verða fyrstur til að komast yfir Atlantshafið í loftbelg sem gengur fyr- ir heitu lofti. Hann hefur beðið í næstum tvær vikur i Maine í Banda- ríkjunum eftir hagstæðu veðri til að geta lagt upp í þessa fór ásamt aðstoð- armanni sínum. Branson er vel þekktur í Bretlandi fyrir velgengni sína í viðskiptalífinu. Hann er forstjóri hljómplötufyrirtæk- isins Virgin sem á skömmum tíma er orðið eitt það stærsta og arðbærasta í landinu. Branson byrjaði með lítið bílskúrsfyrirtæki sem seldi fólki hljómplötur í gengum póstkröfu. Virg- in hefur þegar skipað sér sess á meðal stærstu alþjólegu plötufyrirtækja og á auk þess þó nokkur dótturfyrirtæki, meðal annars flugfélagið Virgin. Branson sem enn er undir fertugu er mikill ævintýramaður og hefur unnið það sér til frægðar að sigla yfir Atl- antshafið í sérsmíðuðum hraðbát á mettíma. Branson mun ekki verða einn á ferð í háloftunum þvi frægasti loftbelgsfari Breta, Don Cameroon. hefru skorað hann á hólm og búast menn við harðri keppni. Cameron mun leggja af stað frá Nýfundnalandi þegar veður levfir. Þetta verður í fyrsta skipti sem til- raun er gerð til að komast vfir Atlantshafið í loftbelg sem gengur fyr- ir heitu lofti en áður hafa tveir helíiun- beglir komist yfir. Belgur Bransons er tæpir 60 metrar á hæð og sá stærsti sem gerður hefúr verið. Belgurinn nær allt að 27.000 feta hæð og er áætlað að ferðin taki 3-4 daga. Til að geta lent munu Branson og aðstoðarmaður hans sleppa loftbelgnum upp í háloftin og svífa til jarðar i fallhlífum. Branson sagði nýlega i sjónvarpsvið- tali að hann vonaðist til að geta lent í Bretlandi en hann yrði ánægður með að lenda hvar sem er í Evrópu. ísland kæmi vel til greina, sagði Branson. Þegar belgurinn nær hámarkshæð yfir miðju Atlantshafinu segja sérfræðing- ar hættu á að háloftavindar beri hann í átt að íslandi. ALLT NYIR BILAR mm FORD BRONCO IIXL Framhjóladrifinn, sparneytinn og hljóðlátur 4 manna smábill sem hentar vel til styttri ferða i og kringum Reykjavík. CHEVROLET MONZA Rúmgóður 5 manna jeppi sem býður upp á mikil þægindi fyrir ökumann og farþega jafnt i akstri innanbæjar svo og á ógreiðfærari vegum. LADA SPORT2121I4 Framhjóladrifinn 4-5 manna bíll sem hentar vel jafnt til lengri og styttri ferða. SVZUKl FOX SJ 410 Góður 4-5 manna bill sem býður upp á meiri þægindi og hentar vel til lengri ferða. Lipur 4 manna jeppi sem hentar vel i blönduðum akstri á þjóðvegum og ógreiðfærari vegum. Upur 4 manna jeppi með miklu farangursrými. Hentar einnig vel sem sendibill. ARNARFLUG BILALEIGA ARNARFLUGS HF. Flugstöð Leifs Eiríkssonar, Keflavik. Sími 92-50305. Reykjavíkurflugvelli, sími 91-29577.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.