Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.1987, Page 3
FÖSTUDAGUR 28. ÁGÚST 1987.
3
DÆMI UM ÆFINGAR
ÆFING 1
Þessi æfing er fyrir magavöðva og stuðlar
að mjóu mitti. Setjist á sætið á trimmtæk-
inu, leggið fæturna undir þverslána, hendur
spenntar aftur fyrir hnakka. Látið höfuðið
síga hægt að gólfi. Efri hluti líkamans er
reistur upp og teygður í átt að tám.
MIKILVÆGT: Æfingu þessa verður að
framkvæma með jöfnum hraða án rykkja.
Þeir sem eru eitthvað veikir í baki ættu að
tala við lækni áður en þessi æfing hefst.
ÆFING 2
Þessi æfing er fyrir handleggi og rassvöðva.
Leggist á hnén á sætið á trimmtækinu. Tak-
ið báðum höndum um vinklana, handleggir
halðir beinir og stífir allan tímann. Teygið
úr fótunum þannig að setan renni út á enda,
hnén dregin aftur að vinklunum.
ÆFING 3
Þessi æfing er til þess að þjálfa og móta
læravöðva, fætur og handleggi. Setjist á
sætið og takið báðum höndum um hand-
föngin á gormunum og dragið sætið að
vinklunum. Teygið úr fótunum og hallið
efri hluta líkamans aftur og togið í gor-
mana. Haldið gormunum strekktum allan
tímann og spennið og slakið á fótunum til
skiptis.
EXGIMN LÍKAAU ER GÓDL'R
AV VÖDVA t BRJÓSTI.
\IAGA OC, BAKHLLTA
KL LL'MACI. FITL KEPPIR. SLÖPP BfUÖST.
SI.APPl R R.KKIILLTI OS.FRY.
.Mlt þetta synir slappa voó\a\yti.
tiyrjadu stray að strkka ojj styrkja voð\ana þina
mrð þessari arangursriku og rðlilegu aiM'erð.
Slat>Pir v«d'ar
Uwwmv
Slappir voðvar /F.tðir \oð\ar
/erð á sýningu kr. 2.900,
Annars kr. 3.290,-
Pöntunarsími 91-651414
Símapantanir alla daga vikunnar kl. 9.00-22.00.
Póstverslunin Príma, box 63,222 Hafnarfirði.
S VISA S EUROCARD
Fréttir
Listasafn íslands:
Bera Ifldegur
forstöðumaður
Ekki hefur verið ákveðið hvenær
nýr forstöðumaður Listasafns ís-
lands verður settur í stöðuna,
samkvæmt upplýsingum sem DV
fékk í menntamálaráðuneytinu, en
fimm sóttu um þessa stöðu. Umsókn-
arfrestur rann út nýlega.
Þeir sem sóttu um eru: Aðalsteinn
Ingólfsson listfræðingur, Bera Nord-
al listfræðingur, Einar Hákonarson
myndlistarmaður, Ólafur Kvaran
listfræðingur og fimmti umsækjand-
inn óskaði nafnleyndar.
Innan tíðar verður nýr forstöðu-
maður settur til eins árs en ástæða
þess er sú að á næsta Alþingi mun
menntamálaráðherra flytja frum-
varp þar sem ævíráðning embættis-
manna verður afnumin en það er
gert í samræmi við starfssamning
ríkisstj órnarinnar.
Undanfarið hefur Bera Nordal
gengt stöðu forstöðumanns og sam-
kvæmt heimildum DV má reikna með
því að hún verði sett í stöðuna. -ój
Belgía:
Afmælisveisla
íslenska
hestsins
Knspn Bemburg, Belgíu:
Um helgina er tíu ár liðin síðan
stofnað var belgískt-íslenskt hesta-
mannafélag í Belgíu. Verður mikið um
að vera í tilefrii afmælisins sem fer
fram í Beggard Zandhoven. Um þijú
hundruð og fimmtíu íslenskir hestar
eru í Belgíu. Afinælisfagnaðurinn
hefst með hópreið en síðan verður
keppt í mismunandi greinum og á
laugardagskvöldið verður haldin mikil
grillveisla.
Á sunnudag heldur mótið áfram en
þá verður bömum gefinn kostur á að
bregða sér á bak á íslensku gæðingun-
um. Formaður félagsins, W. Dierckx,
sagði í stuttu spjalli að hann væri
margoft búinn að skrifa til íslands og
óska eftir fánum, myndum og bækling-
um til skreytingar og upplýsinga á
afinælinu en hann hefði ekki fengið
nein svör. „Bréfunum mínum hefur
aldrei verið svarað," sagði hann. Fé-
lagið leitaði loks til íslenska sendi-
ráðsins í Brussel en starfsmenn þar
lofuðu að gera sitt besta.
Áhugi á íslenska hestinum í Belgíu
er alltaf að aukast en Belgar kaupa
hann aðallega frá Þýskalandi og Holl-
andi, þar sem litlar upplýsingar fást
frá Islandi.
Kortsnoj
sigraði
Síðasta millisvæðamótinu í skák
af þremur fyrir komandi heimsmeist-
arakeppni lauk í Zagreb í Júgóslavíu
á mánudag. Þar komust áfram þrír
skákmenn sem taka munu þátt í
áskorendamótunum sem verða í upp-
hafi næsta árs.
Efstur á mótinu varð gamla kemp-
an Viktor Kortsnoj með 11 vinninga,
en hann keppir fyrir Sviss, í öðru til
þriðja sæti varð Bandaríkjamaður-
inn Seiravan með 10 vinninga og
deildi hann sætinu með Sovétmann-
inum Ehlvest. Þeir þrír komast því
áfram í áskorendakeppnina, en með-
al annarra tekur þátt í henni Jóhann
Hjartarson. -ój
10 ARA ABYRGÐ
ALSTIGAS
ALLAR GERÐIR
SÉRSMIÐUM
BRUNASTIGA O.FL.
Kaplahiauni 7, S 651960