Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.1987, Blaðsíða 9
FÖSTUDAGUR 28. ÁGÚST 1987.
9
UtLönd
Hert afstaða
námueigenda
Spennan vegna verkfallsins í Suður-
Afríku jókst í gær er báðir aðilar
sökuðu hvor annan um að hótanir og
risanámufélagið Anglo American
sagði í fyrsta skipti að tilgangur verk-
fallsins væri stjómmálalegur.
Eftir að nær þrjú hundruð þúsund
námuverkamenn höíhuðu boði námu-
eigenda og ákváðu að halda verkfall-
inu áfram gerði námufélagið alvöm
úr fjöldauppsögnunum. Tuttugu þús-
und námuverkamönnum við sjö gull-
og kolanámur var sagt upp störfúm
og tuttugu og tveimur þúsundum til
viðbótar var hótað uppsögnum ef þeir
snem ekki aftur til starfa í dag.
í gær efndu þrjú þúsund námuverka-
menn nálægt Jóhannesarborg til
setuverkfalls niðri í námunum eftir að
öryggisverðir höfðu beitt þá táragasi
og skotið að þeim gúmmíkúlum til að
neyða þá til að fara niður í námurn-
ar. Námufélagið neitar slíkum ásök-
unum og segir mennina hafa farið
sjálfviljuga niður. Þeim hafi hins veg-
ar verið sagt upp störfúm er þeir komu
upp á yfirborðið aftur.
Nokkur hundruð námuverkamanna í Suður-Afríku söfnuðust saman í kirkju i
gær til að ræða hvemig bregðast skyldi við hótunum um uppsagnir.
Ottast endurteknar
árásir á Persaflóa
Óttast er að nú kunni að koma til
endurtekinna árása á olíuflutninga-
skip á Persaflóa eftir að sendiherra
Iraks hjá Sameinuðu Þjóðunum lýsti
því yfir að ríkisstjóm hans mundi
ekki lengur bíða eftir jákvæðum við-
brögðum frá íran.
Iranir hafa engu sinnt ályktun ör-
yggisráðs Sameinuðu þjóðanna um
vopnahlé í styijöld írans og íraks
og er talið að orð sendiherra íraks
í gær þýði að stjóm landsins hyggist
taka upp að nýju hemaðaraðgerðir
sínar á flóanum en þær hafa legið
niðri síðan öryggisráðið sendi álykt-
unina frá sér.
Sendiherrann sagði í gær að á
meðan stórveldin byggðu upp hem-
aðarmátt sinn á flóanum notuðu
íranir það hlé sem orðið hefur á árás-
um á olíuflutningaskip til þess að
senda frá sér mjög aukið magn olíu.
Fé það sem fæst fyrir þessa flutninga
væri notað beint í stríðsreksturinn
gegn Irak. Sagði sendiherrann stjóm
sína orðna þreytta á þessum aðferð-
um írana.
Ismat Kittani, sendiherra íraks hjá Sameinuðu þjóðunum.
Simamynd Reuter
Að minnsta kosti tvö hundmð fiskimanna frá Bangladesh er saknað á
Bengalflóa eftir að mikill stormur gekk þar yfir í gær. Talið er að fiskimenn-
imir hafi allir farist í storminum og hafa þá óveður og fióð undanfarinna
daga koatað um átta hundruð mannslíf í Bangladesh.
Embættismenn skýrðu fréttamönnum frá því í gær að fjömtíu og tvö lfk
fiskimanna hefðu frindist rekin á land og áttatíu manns hefði verið bjarg-
að, eftir að rúmlega þijátíu togurum hvolfdi í storminum. Um þijú hundruð
og fimmtíu manns voru á skipunum.
Japanir skjóta eldflaug á lofl
Japönum tókst í gær að skjóta á
loft eldflaug, sem bar tilraunagervi-
hnött á sporbaug um jörðu, Eld-
flaugarskotinu var frestað frá því í
síðustu viku, vegna bilana í búnaði.
Talið er að tilraún þessi auki mjög
h'kur Japana til þess að eignast lilut:
að geimferðaviðskiptum framtíðar-
innar.
Þessi nýja eldflaug er að mestu
leiti japönsk framleiðsia. Fram til
þessa hafa Japanir þurft að treysta
nær eingöngu á eldflaugar sem sam-
settar voru úr bandarískum eld-
flaugahlutum.
Stjómkerfi flaugarinnar er alfarið
japanskt að hönnun og gerð.
Áætlað er að Japanir skjóti á lofit
átta gervihnöttum til viðbótar á
næstu þrem árum.
Meðal þess sem þeir ætla að koma á braut um jörðu eru veðurhnettirr,
fjarekiptahnettir og fleira.
Upphaflega var ætlunin að gervihnettinum yrði skotið á loft þann 20.
ágúst, en rétt fyrir flugtak greindu vísindamenn óeðlilega aukningu á þrýst-
ingi í eldsneytisgeymi eins af hreyflum eldfiaugarinnar.
Hundraða saknað í Bangladesh
Uppsagnir í Astralíu
Námafyrirtæki í Ástrah'u hófú í
gær að segja upp starfsfólki, vegna
lægðar í verði á framleiðsluvöru
þeirra og áströlsk verkalýðsfélög
hyggja á gagnráðstafanir um leið og
banni við verkalýðsdeilum verður
aflétt.
Að sögn námafyrirtækja verður
tólf hundruð verkamönnum sagt upp
á næstu dögum og mögulegt er að
fleiri missi atvinnuna innan
skamms.
Leiðtogar verkalýðsfélaga segjast búast við að þijú þúsund námamenn
verði atvinnulausir í lok þessa áre. Um eitt þúsund kolanámamenn hafa
mis8t atvinnuna það sem af er þessu ári. Taismaður stéttarfélags þeirra seg-
ir að búast megi við að á næsta einu og hálfu ári muni um átta þúsund
námaverkamenn missa atvinnuna.
Alls starfa um þijátíu þúsund námaverkamenn hjá fyrirtækjunum sem
um ræðir.
Þrjátíu fallnir í Pakistan
Fjölmennar sveitir úr stjómarher
Pakistan vom í gær fluttar til tveggja
borga í suðurhluta landsins, þar sem
um þijátíu manns hafa fallið í miklum
óeirðum undanfama tvo daga.
Tuttugu og fjórir hafa fallið í hafnar-
borginni Karachi, í átökum sem hófust
á miðvikudag. Átta hafa látið lífið í
borginni Hyderabad, skammt frá
Karachi, en óeirðimar bámst þangað
í gær.
Harðar deilur hafa staðið milli pash-
tuna, sem em úr norðvestanverðu
landinu, og Mohajira, sem fluttust til
Pakistan frá Indlandi 1947. Deilur
þessar hafa staðið í tuttugu ár og á
síðustu tíu mánuðum hafa þær kostað
yfir þijú hundmð og fimmtíu mannslíf.
Stjórnarhermenn voru i gær fluttir til tveggja borga í suðurhluta Pakistan, þar
sem þrjátíu manns hafa fallið i miklum óeirðum undanfarið.
HÖFUM LOKSINS FENGIÐ HINA GEYSIVINSÆLU
BARNASKÓ
Teg. 57418 Sl. 18-24 Jm , / 'S4 | ' ; T«fl. 57490 St 18-24 , . l| Teö- 574*5 _ .... . _ St 18-24 |
Kr. 2.206 Kr. 2.206 Kr. 1.912
FRÁ
romikaW
SENDUMí PÓSTKRÖFU
EURO
KRISPIT
Laugavegi 89 - sími 22453
Simamynd Reuter