Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.1987, Síða 12
12
FÖSTUDAGUR 28. ÁGÚST 1987.
Helgaimarkaður
Neytendur
BREKKU
VAL
matvöruverslun,
Hjallabrekku 2, Kópav., s. 43544.
OPIÐ
alla daga vikunnar til kl. 23.30.
raunVer
Alfaskeið 115 - Hafnarlirði - Sími 52624
OPIÐ
9.00-21.00 alla virka daga,
10.00-21.00 laugardaga og
sunnudaga.
NYI-GARÐUR
Leirubakka 36, s. 71290
OPIÐ kl. 9-16 LAUGARDAG
Kl. 10-14 sunnudag
Ódýrar pizzur. Egg aðeins kr. 139,- kg.
Glæsilegt fisk- og kjötborð.
ALLT FYRIR ÞIG OG ÞlNA
OPIÐ
kl. 10.00 - 16.00 laugard.
9.00 - 20.00 virka daga.
Kíeppsvegi 150 simi 84860
KJÖTMIÐSTOÐIH
Laugalæk 2, sími 686511.
OPIÐ
kl. 7.00-16.00 laugardaga
Veisla hjá grasnmetisætum:
Grænmeti á gjafverði
„Það hefur verið mikil hreyfmg á
grænmetinu og fólk hefur notfært sér
þetta lága verð,“ sagði Niels Mar-
teinsson hjá Sölufélagi Garðyrkju-
manna í samtali við DV. Núna eru
ýmsar tegundir grænmetis á hag-
stæðu verði fyrir neytendur.
„Uppskeran hefur verið alveg með
eindæmum góð og framboðið mikið
en er fljótt að dala þegar dimmir og
fer að rigna,“ sagði Niels.
Hann benti sérstaklega á að nú
væri til sérstaklega góður rabarbari,
sem kostar aðeins 35 kr. í heildsölu.
„Það eru ótrúlega margir sem ætla
sér að búa til eitthvað úr rabarbaran-
um en láta það bíða alltof lengi. Svo
kemur fólk með grátstafinn í kverk-
unum þegar búið er að frjósa en þá
er það orðið of seint. Rabarbarinn
er mjög viðkvæmur, þolir alls ekki
neitt frost, svona rétt eins og kartöfl-
urnar. Hins vegar er auðvelt að
frysta hann eftir að hann hefur verið
tekinn upp. Þá þolir hann vel
geymslu í frysti,“, sagði Niels.
Rabarbarinn sem nú er til hjá Sölu-
félaginu er af seinni uppskerunni en
að jafnaði eru rabarbarauppskerurn-
ar tvær á hverju sumri. Bestur er
rabarbarinn þegar hann er hæfilega
sprottinn.
Það getur verið fullt eins sniðugt
að geyma rabarbarann tilbúinn í
sultuna í fiystikistunni og sjóða að-
eins eftir hendinni í stað þess að
sjóða alla sultuna í einu.
Það er full ástæða til þess að hvetja
fólk til að athuga vel verðið þegar
það kaupir grænmeti og jafnvel að
ganga framhjá því sem er boðið á
óhóflega háu verði. Til þess að hægt
sé að átta sig á verðinu birtum við
hér heildsöluverð frá Sölufélagi
Garðyrkjumanna eins og það var
miðvikudaginn 26. ágúst. Neytendur
verða að gera ráð fyrir einhverri
álagningu, eins og t.d. 30%.
Blómkál, heildsöluverð 50 kr., með
30% álagn. 65 kr.
Hvítkál, heildsöluv. 25 kr„ með
álagn. 32,50 kr.
Brokkál, heilds.v. 100 kr„ með álagn.
130 kr.
Gulrætur, heildsöluv. 65 kr., með
álagn. 84,50.
Rófur, heildsöluv. 20 kr., með álagn.
26 kr.
Paprika gul, svört, hvít og orange,
heildsöluv. 400 kr„ með álagn.520 kr.
Rauð paprika, heildsöluv. 320 kr.,
með álagn. 416 kr.
Græn paprika, heildsöluv. 275 kr.,
með álagn. 357,50 kr.
Tómatar, heildsöluv. 150 kr., með
álagn. 195 kr.
Agúrkur, heildsöluv. I. flokkur 120
kr„ með álagningu 156 kr. og II.
flokkur kostar 80 kr. í heildsölu og
104 kr. með 30% álagningu
-A.BJ.
Þessar gulrætur voru á boðstólum
í þremur stórmörkuðum á mánu-
daginn. Þær bestu og jafnframt þær
ódýrustu fengust í Fjarðarkaupi
Hafnarfirði og kostuðu 81 kr. kg. Þær
í miðið fengust í Hagkaupi í Skeif-
unni og kostuðu 146 kr. og þær
dýrustu eru úr Miklagarði og ko-
stuðu 149 kr. Báðar dýrari tegund-
irnar voru mjög bragðgóðar en ekki
væri heppilegt að nota þær á veislu-
borð, þær voru bæði smáar og svo
kræklóttar auk þess að vera alltof
dýrar.
Niels Marteinsson, sölustjóri hjá Sölufélagi garðyrkjumanna.
Helgarmarkaður
VERSL. VÍNBERIÐ
Laugavegi 43 sími 12475
Opið kl. 9.00-13.00 laugardaga .
m\ferslunin«
Amanuaun
Arnarhrauni 21 sími 52999
Hafnarfirði.
OPIÐ
mánudaga-föstudaga 9-21
laugardaga 9-21
sunnudaga 10-21
ATH!
kjötborðið opið alla daga.
KJÖT OG FISKUR
Seljabraut 54 símar 74200 og 74201.
0PIÐ - 0PID - 0PIÐ
kl. 10.00-14.00 laugardaga.
sími 30420 sími 673673
Starmýri 2 Arkvörn 2, Artúnsholti
OPIÐ OPIÐ
kl. 9.00-14.00 kl. 9.00-16.00
laugardaga. laugardaga.