Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.1987, Page 14

Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.1987, Page 14
14 FÖSTUDAGUR 28. ÁGÚST 1987. Frjálst.óháð dagblað Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELlAS SNÆLAND JÖNSSON Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON Auglýsingastjórar: PÁLL STEFÁNSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar. blaðaafgreiðsla, áskrift, ÞVERHOLTI 11, SlMI 27022 Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: PRENTSMIÐJA FRjALSRAR FJÖLMIÐLUNAR HF., ÞVERHOLTI 11 Prentun: ÁRVAKUR HF. - Askriftarverð á mánuði 550 kr. Verð i lausasölu virka daga 55 kr. - Helgarblað 65 kr. Friðarspor Þýskalandskanslari hefur stigið mikilvægt skref í átt til afvopnunar. Hann hefur boðist til að taka niður og eyða öllum Pershing eldflaugum Þjóðverja ef stórveldin koma sér saman um að banna allar skamm- og meðal- drægar kjarnorkueldfiaugar. Hingað til hafa þessar þýsku flaugar verið þrándur í götu í afvopnunarviðræð- um stórveldanna og komið í veg fyrir að nokkuð hafi miðað í langan tíma. Þess vegna hefur yfirlýsing Kohl kanslara vakið mikla athygli og rutt úr vegi hindrun sem fram að þessu hefur verið talin óyfirstíganleg. Á leiðtogafundinum í Reykjavík á síðastliðnu ári náðist ekkert samkomulag í friðar- og afvopnunarmál- um. En þar voru engu að síður lagðar fram tillögur um stórtækan niðurskurð í vígbúnaði og þær tillögur hafa í rauninni verið sá grundvöllur sem allar umræður síð- an hafa byggst á. Þær þóttu marka tímamót og vöktu að nýju upp vonir um að árangur næðist í afvopnun risaveldanna beggja vegna Atlantshafsins. Vitað er að Reagan Bandaríkjaforseta er það kappsmál að ná ein- hvers konar samkomulagi við Sovétríkin áður en hann lætur af störfum seint á næsta ári. Sömuleiðis hefur Gorbatsjov verið opinskár og jákvæður varðandi af- vopnunartillögur sem eflaust á rætur sínar að rekja til breyttra viðhorfa í Sovétríkjunum. Vígbúnaðarkapp- hlaupið er að sliga efnahag Sovétríkjanna og Gorbatsjov hefur viljað bæta sambúðina við Vesturlönd og lina tökin á eigin þegnum. Allt hefur þetta hjálpast að við að gera eftirleiki Reykjavíkurfundarins uppörvandi og spennandi. En.ekki er allt sem sýnist í völundarhúsi alþjóða- stjórnmálanna. Þar tefla menn refskák, tala eins og véfréttir og hreyfa sig með hraða snigilsins. Afvopnun- arviðræðurnar hafa silast áfram og almenningur er löngu hættur að fylgjast með öllum skilyrðunum, fyrir- vörunum og forsendunum sem fram koma í viðræðunum við samningaborðið. Það merkilegasta sem gerðist eftir Reykjavíkurfundinn voru hin hörðu viðbrögð Vestur- Evrópuríkjanna sem höfðu uppi miklar efasemdir um þýðingu þess í þágu friðar að kjarnorkueldflaugarnar yrðu eyðilagðar. Evrópubúar töldu Reagan engan rétt hafa til að semja um afvopnun með því að fórna kjarn- orkueldflaugunum í álfunni. Sérstaklega stóðu Þjóð- verjar fast á sínu enda eru þeir skotmark og brennidepill í hverjum þeim átökum eða ófriði sem kann að brjótast út í þessum heimshluta. Kristilegir demókratar undir forystu Kohl gengu jafnvel til kosninga fyrr á þessu ári með þá yfirlýstu stefnu að gefa hvergi eftir í vörnum og vígbúnaði og unnu sigur í þeim kosningum. Meirihluti Þjóðverja studdi og styður þá afdráttarlausu stefnu. Þess vegna er yfirlýsing Kohl merkari fyrir þá sök að hann hefur gefið eftir. Ekki er þar með sagt að kanslarinn sé minni maður fyrir. Þvert á móti þarf mikið pólitískt þrek til að snúa nú við blaðinu og fallast á að eyða öllum Pershing eld- flaugunum í Þýskalandi. Kohl segir þetta framlag þýsku þjóðarinnar til friðar og afvopnunar og í ljósi sögunn- ar, stöðu Vestur-Þýskalands og öryggis- og varnarmála í Evrópu er yfirlýsing kanslarans öll hin merkilegasta. Með henni er loks raunhæfur möguleiki á að stórveldin geti samið um gagnkvæma afvopnun. Reykjavíkurfund- urinn fer að skila árangri. Eftir öll fögru orðin er vonandi komið að efndunum. Ellert B. Schram Hl upplýsingar fýrir Júlíus - hresst upp á minni nýkjörins þingmanns í kjallaragrein, sem Júlíus Sólnes, prófessor og nýkjörinn þingmaður Borgaraflokksins, skrifar fyrr i þess- um mánuði gefur hann í skyn að Borgaraflokkurinn hafi í stjómar- myndunarviðræðunum verið tilbú- inn til stjómarsamstarfs, „hvort sem væri undir forsæti Þorstejns Páls- sonar eða Jóns Baldvins". Jafhframt segir hann að foiysta og þingflokkur Sjálfstæðisflokksins hafi þagað þunnu hljóði yfir þessu tilboði og því raunverulega hafhað því. Þar sem hugsanlegt er að ein- hverjir leggi trúnað á að Borgara- flokkurinn hafi í raun viljað slíkt samstarf á þeim tíma, sem slíkt var mögulegt, er ástæða til að rifja upp eftirfarandi: 1. Þegar Þorsteinn Pálsson fékk umboð til stjómarmyndunar gekkst harrn fyrir könnunarvið- ræðum við foiystumenn stjóm- málaflokkanna. Á fundi með Albert Guðmundssyni og Júlíusi Sólnes staðfestu þeir að þing- flokkur Borgaraflokksins hefði samþykkt formlega að lýsa sig reiðubúinn til samstarfs við frá- farandi stjómarflokka undir forystu Steingríms Hermanns- sonar. Aðspurðir um annan kost tóku þeir því fálega og sögðust þurfa að bera slíkt undir þing- fokkinn og fá nýja formlega samþykkt. Ekkert benti til breyttrar af- stöðu 2. Þegar snurða hljóp á þráðinn milli núverandi stjómarflokka í stjómarmyndunarviðræðunum og þær sýndust geta farið út um þúfhr hittust Þorsteinn Pálsson og Albert Guðmundsson og ræddu stöðuna. Ekkert kom fram í því samtali sem benti til breyttrar afstöðu Borgaraflokks- ins. Þvert á móti ítrekaði Albert fyrri afstöðu sína. 3. Eftir að núverandi stjómar- flokkar tóku þá ákvörðun í kjölfar fyrrgreinds ágreinings að reyna til þrautar að ná sam- komulagi barst sá orðrómur til nokkurra þingmanna Sjálfstæð- isflokksins að Borgaraflokkur- inn gæti hugsað sér að breyta afstöðu sinni, enda hefði slíkt verið rætt á fundi helstu forystu- manna flokksins. Engin sam- þykkt var gerð á slíkum fundi né á þingflokksfundi Borgara- flokksins. Engin formleg tilmæli um viðræður bárust. Viðtalið við Albert Guð- mundsson 4. Nýlega birtist í Tímanum við- tal við Albert Guðmundsson, leiðtoga Borgaraflokksins. Þar segir orðrétt: „Albert furðaði sig á því að Steingrímur Hermannsson og Framsóknarflokkurinn skyldu yfirleitt hafa tekið þátt í myndun þessarar ríkisstjómar. Sjálfstæð- isflokkurinn hafi beðið afhroð í kosningunum, Alþýðuflokkur ekki fengið meira fylgi en flokk- urinn og Bandalag jafiiaðar- manna höfðu fengið samtals áður, en Steingrímur vann stór- an sigur og Framsóknarflokkur hélt sínu. „Framsóknarflokkurinn leggur sigur sinn í þennan stóra tap- pott. Það kann ekki góðri lukku að stýra,“ sagði Albert. „Og auk þess að sætta sig við að sitja í ríkisstjóm undir forystu manns, KjáUarinn Friðrik Sophusson, alþingismaður fyrir Sjálfstæðisflokkinn í Reykjavik Borgaraflokksins hafi viljað leggja „sinn sigur“ að veði með því að koma inn í þetta stjómar- samstarf í stað Framsóknar- flokksins? Nutu ekki stuðnings leiðtog- ans 5. Það kann að vera rétt að Júl- íus Sólnes og einhverjir aðrir forystumenn Borgaraflokksins hafi viljað stjómarsamstarf við Sjálfstæðisflokkinn og Alþýðu- flokkinn. Þeir reyndust hins vegar of svifaseinir og nutu ekki stuðnings leiðtogans. Að gefa annað í skyn nú virðist vera gert til að breiða yfir skýra afstöðu þingflokksins og reyna þannig að breyta staðreyndum málsins. Eftir stendur að Borgaraflokkur- inn er utan stjómar vegna þess „Á'sama tíma og Júlíus Sólnes heldur því fram að Borgaraflokkurinn hafi verið reiðubúinn til samstarfs við Alþýðuflokk og Sjálfstæðisflokk furðar leiðtoginn sig á Framsóknarflokknum að leggja sigur sinn í slíkan „tappott“.“ sem fær ekki stuðning nema 7% þjóðarinnar í sömu skoðana- könnun og Steingrímur er studdur af meira en 60%.““ Á sama tíma og Júlíus Sólnes heldur því fram að Borgara- flokkurinn hafi verið reiðubúinn til samstarfs við Alþýðuflokk og Sjálfstæðisflokk furðar leiðtog- inn sig á Framsóknarflokknum að leggja sigur sinn í slíkan „tap- pott“. Trúir því einhver að leiðtogi að þingmenn hans komu sér ekki saman um annað en að vera í vist hjá Steingrími Hermanns- sjmi. Enn stendur þó það tilboð, sem Júlíusi Sólnes og Albert var gefið á viðræðufundi við Þor- stein Pálsson og undirritaðan, að þingmenn Borgaraflokksins gangi í Sjálfstæðisflokkinn til að sameina í einum flokki þau öfl sem mega síst af öllu við að tvístrast. Friðrik Sophusson „Trúir þvi einhver að leiötogi Borgaraflokksins hafi viljað leggja „sinn sig- ur“ að veði með því að koma inn í þetta stjómarsamstarf í stað Framsókn- arflokksins."

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.