Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.1987, Side 32
FÖSTUDAGUR 28. ÁGÚST 1987.
44
#
Jarðarfarir
Einar Sveinsson, Melteigi 19, Kefla-
vík, verður jarðsettur frá Keflavík-
urkirkju laugardaginn 29. ágúst kl
11.00 f.h.
Gunnar Finnur Guðmundsson,
Klausturhólum, sem lést á gjör-
gæsludeild Landspítalans 18. ágúst,
verður jarðsunginn frá Stóruborgar-
kirkju laugardaginn 29. ágúst kl
14.00.
Ýmislegt
Nýtttímarit:
HÖNNUN
. Komið er út nýtt og vandað tímarit, Hönn-
* un: húsgögn og innréttingar. í þessu
tímariti er fjallað ítarlega um hönnun
húsgagna, innnréttinga og listmuna. Hug-
að er að nútímahræringum á þessu sviði,
skyggnst fram á veginn en einnig er nú-
tímahönnun skoðuð í ljósi listasögunnar.
Meðal efnis í þessu fyrsta tölublaði er
viðtal við hjónin og listafólkið Koggu og
Magnús, myndir úr betristofum í Reykja-
vík frá því um aldamótin, grein eftir
Kjartan Jónsson um norræna listhönnun
á Kjarvalsstöðum, grein eftir Trausta
Valsson um nýjar hugmyndir varðandi
eldhús, grein eftir Guðjón Pálsson um ís-
lenskan húsgagnaiðnað og kynning á
meistara plakatsins: Patrick Nagel.
Auk þess eru í blaðinu greinar um fag-
leg efni, t.d. um lýsingu og gefm ráð um
nýja halogenlýsingatækni.Blaðið er 84
síður og að mestu leyti litprentað. Það er
allt hið vandaðasta og kostar 195 krónur.
., Auglýsingar eru sérstaklega smekklegar,
aðgengilegar og flestar athyglisverðar fyr-
ir þá sem áhuga hafa á húsbúnaði og
innréttingum. Gert er ráð fyrir að blaðið
komi út fjórum sinnum á ári og verður
það hverju sinni helgað einhverju tilteknu
málefni. Ritstjóri og útgefandi tímaritsins
er Kjartan Jónsson innanhússarkitekt.
Aherslur og framtíðarhorfur í
tölvuvæðingu bandarískra
grunnskóla
Bandarískur fyrirlesari, Mary Elke, mun
halda fyrirlestur í Kennaraháskóla ís-
lands miðvikudaginn 26. ágúst 1987. Heiti
fyrirlestrarins er: Megináherslur í tölvu-
notkun í bandarískum skólum og framtíð-
arhorfur.
Mary Elke hefur skipulagt nám og kennt
við Stanford háskóla, um tölvur í skóla-
starfi, auk þess að gegna starfi ráðgjafa á
því sviði í San Fransisco.
Fyrirlesturinn hefst klukkan 15.00 og er
öllum opinn.
Tilkynning um skrifstofutíma
Hjallaprestakalls í Kópavogi
Séra Kristján Einar Þorvarðarson sóknar-
prestur mun hafa viðtalstíma í Kópavogs-
kirkju mánudaga og miðvikudaga kl. 17.30
19.00 og eftir nánara samkomulagi. Sími
41898, heimasími 40054.
Ferðalög
Helgarferðir Ferðafélagsins
28.-30. ágúst:
1) Óvissuferð.
Gist í húsum.
2) Nýidalur - Laugafell/nágrenni.
Gist í sæluhúsi Ferðafélagsins v/Nýjadal.
í ási norðvestur af Laugafelli eru laugarn-
ar sem það er kennt við. Þær eru um 40"
-50° C. Við laugarnar sjálfar eru vallendis-
brekkur með ýmsu túngresi þótt í um 700
m hæð sé.
3) Landmannalaugar - Eldgjá.
Gist í sæluhúsi Ferðafélagsins í Laugum.
Ekið til Eldgjár á laugardeginum, en á
sunnudag er gengið um á Laugasvæðinu.
4) Þórsmörk.
Gist í Skagafjörðsskála/Langadal. Göngu-
ferðir við allra hæfi. Ratleikurinn í
Tindfjallagili er afar vinsæll hjá gestum
Ferðafélagsins.
Brottfor í allar ferðirnar er kl. 20.00 föstu-
dag. Upplýsingar og farmiðasala á skrif-
stofunni, Oldugötu 3.
Sjúkrasamlag Reykjavíkur verður lokað frá
kl. 13.00 föstudaginn 28. ágúst vegna jarðar-
farar ÓLAFS JÓNSSONAR LÆKNIS.
Sjúkrasamlag Reykjavíkur
62 • 25 • 25
F R ÉTTAS KOTIÐ
krónur. Fyrir besta frétta-
skotið í hverri viku greiðast
4.500 krónur. Fullrar nafn-
leyndar er gætt. Við tökum
við fréttaskotum allan sólar-
hringinn.
Hafir þú ábendingu eða
vitneskju um frétt hringdu
þá í síma 62-25-25. Fyrir
hvert fréttaskot, sem birtist
eða er notað í DV, greiðast
1.500
STOLPI
vinsæfi tölvuhugbúnaðurinn
AUSTFIRÐINGAR
Kynning á hinum frábæra STÓLPA-
viðskiptahugbúnaði.
Staður: Hótel Valaskjálf.
Tími: Laugardagurinn 29. ágúst kl. 13-17.
Námskeið fyrir kaupendur verður haldið í september.
STÓLPI er tölvuhugbúnaður sem gerir flókna hluti
einfalda fyrir notandann.
ÖFLUGUR - ÓDÝR - STÆKKANLEGUR EFTIR ÞÖRF-
UM FYRIRTÆKISINS
STÓLPI var sérstaklega valinn af Landssambandi iðn-
aðarmanna og Félagi íslenska prentiðnaðarins.
ATH. Söluskattur 1. sept.
Vinsamlegast hafið samband við Ragnar Jóhannsson,
Miðási 11, Egilstöðum. Sími 97-11095, hs. 11514.
Sala, þjónusta
Markaðs- og söluráðgjöf,
Björn Viggósson,
Ármúla 38,108 Rvk,
sími 91-687466.
Hönnun hugbúnaðar
Kerfisþróun,
Kristján Gunnarsson,
Ármúla 38,108 Rvk,
sími 91-688055.
I gærkvöldi
Svanfríður Hagvaag húsmóðir:
Færri fjölmiðlar fyrir austan
í gærkvöldi sá ég ekkert í sjón-
varpi nema fréttir á Stöð 2. Þar sem
ég bý á Austfjörðum horfi ég ekki á
Stöð 2 að staðaldri og get því ekki
farið út í að bera saman. Svona við
fyrstu sýn virðast- vinnubrögð vera
öðruvísi en hjá Ríkissjónvarpi.
Eftir fréttimar fór ég á sýninguna
Veröldin ’87 í Laugardalshöll. Sýn-
ingin var fín og var Bylgjan með bás
þaðan sem útvarpað var beint leik-
þætti með Eddu Björgvinsdóttur og
fleirum. Þetta virtist vera einhvérs
konar gamanþáttur.
Ég heyrði aðeins í Stjömunni í gær
þar sem ég kom í hús en hana hafði
ég aldrei heyrt áður. Þar var í gangi
Svanfríður Hagvaag.
símatími. Ég hlustaði svo aðeins á
útvarp í gærkvöldi, svona undir mið-
nættið, held að það hafi verið rás 2.
Ég hlusta annars mikið á útvarp,
aðallega gömlu gufuna. Mér finnst
það ágætt og nenni ekki að skipta
yfir jafnvel þótt dagskráin eigi það
til að vera langdregin. Hvað sjón-
varp varðar þá er ég utan af landi
og sé því bara eina stöð. Þar er mik-
ið af góðum þáttum, eins og t.d.
þátturinn um ríki ísbjamarins.
Einnig horfi ég talsvert á framhalds-
þætti. Annars horfi ég bara þegar
mig langar en slekk annars. Það er
enginn vandi að velja þegar dagskrá-
in er orðin þetta löng.
Spákmælið
Betra er að hafa elskað og misst en að hafa aldrei elskað.
A. Munch
Dagsferðir Ferðafélagsins:
Sunnudagur 30. ágúst:
1) kl. 08 - Þórsmörk - dagsferð.
Verð kr. 1.000.
2) kl. 09 - Kóranes á Mýrum (strandstað-
ur Porqu’a pas).
Ekið í Straumfjörð. Staðkunnugir farar-
stjórar. Verð kr. 1.000.
3) kl. 13 - Eyrarfjall í Kjós (415 m).
Verð kr. 600.
Brottför frá Umferðarmiðstöðinni, austan-
megin. Farmiðar við bíl. Frítt fyrir börn í
fylgd fullorðinna.
Útivistarferðir
Simar: 14606 og 23732.
Helgarferðir 28.-30. ágúst.
1. Þórsmörk.
Góð gisting í Útivistarskálunum, Básum.
Gönguferðir við allra hæfi.
2. Eidgjá - Langisjór - Sveinstindur.
Gist í húsi sunnan Eldgjár. Á laugardegin-
um er farið að Langasjó og gengið verður
á Sveinstind. Komið við í Laugum á
sunnudegi. Frábær óbyggðaferð. Uppl. og
farm. og skrifstofunni, Grófinni 1.
Sunnudagur 30. ágúst.
Kl. 8.00 Þórsmörk.
Dagsferð. Verð kr. 1.000.
Kl. 10.30 Línuvegurinn - Skjaldbreiður.
Ekinn Línuvegurinn norður fyrir fjallið
og gengið á það. Ekið heim um Hlöðu-
velli. Verð kr. 1.000.
Kl. 13.00 Botnsdalur.
Berjatínsla og ganga. Gengið að Glym,
hæsta fossi landsins. Verð kr. 600.
Ath. frítt fyrir börn í fylgd fullorðinna. 1
dagsferðir þarf ekki að panta. Brottför er
frá BSÍ, bensínsölu.
Var dreginn vélarvana til hafnar
Bjarfugl RE 55 fékk net i skrúfuna þar sem hann var aö draga netin úti á Faxaflóa og var þar með vélarvana. Mari RE 79
var þarna nærstaddur, kom taug i milli og dró Bjargfugl til Hafnar. Myndin var tekin þegar bátarnir komu inn á Reykja-
víkurhöfn. -S.dór - DV-mynd S.
Slysavamaskóli sjomanna:
Vilja fá Vélskólann og
Stýrimannaskólann inn
- unnið að því að fá samþykki menntamálaráðuneytisins
Forráðamenn Slysavamafélags Is-
lands eru að vinna að því að inn á
námskrá nemenda Stýrimannaskól-
ans og Vélskólans verði sett
námskeið í björgunar og slysavöm-
um hjá Slysavamaskóla sjómanna
sem rekinn hefiir verið um borð í
Sæbjörgu fyrir starfandi sjómenn
undangengin misseri.
„Við viljum að hver nemdandi í
þessum skólum fari í gegnum nám-
skeiðin. Samkvæmt lögum Alþjóða
siglingamálastofhunarinnar þurfa
menn að hafa prófskírteini frá slík-
um björgunar- og slysavamaskóla
til þess að teljast fullgildir yfirmenn
um allan heim. Við munum því leita
eftir því við nýjan menntamálaráð-
herra að þetta verði sett inn á
námskrá í sjómannaskólunum og fé
fáist á fjárlögum til að standa straum
af kostnaði," sagði Hannes Hafstein,
framkvæmdastjóri Slysavamafé-
lagsins, í samtali við DV.
Hannes sagði að í fyrravetur hefðu
nemendur Stýrimannaskólans farið
í gegnum svona námskeið en nem-
endur Vélskólans hefðu orðið
útundan. Hann sagði að skólastjórar
Stýrimannaskólans og Vélskólans
væm þessu hlynntir og því hlyti
þetta að koma fyrr eða síðar.
Það sem starfandi sjómönnum er
kennt á námskeiðunum er hjálp og
flutningur slasaðra að bjarga sjálf-
um sér og öðrum úr sjávarháska,
eldvamir og reykköfun.
-S.dór