Dagblaðið Vísir - DV - 04.09.1987, Page 5
i-
FÖSTUDAGUR 4. SEPTEMBER 1987.
27
verðlaun, þar á meðal menningarverðlaun DV.
5taðir, Gallerí Svart á hvítu:
'orgils á tvenn-
vígstöðvum
inginn rekur þar áfram eftir vindi og
ýmist bjargast hann eða ferst eftir því
sem heildarmyndin krefst. í innri
heiminum er ég sköpunin og velti
heimssögulegum atburðum, þar geta
persónuleg atriði sem virðast smá í
ytri veröldinni orðið aðalatriði."
Helgi lauk námi frá Myndlista- og
handíðaskóla íslands 1976. Þá lá leið
hans til Hollands þar sem hann nam
í þrjú ár í viðbót. Hann hefur verið
búsettur í Reykjavík síðan. Hann hef-
ur hlotið margs konar viðurkenningar,
þar á meðal menningarverðlaun DV,
og tekið þátt í samsýningum og haldið
fjölda einkasýninga. Fyrstu einkasýn-
ingu sína hélt hann í Output í Reykja-
vík árið 1975 og hefur haldið
einkasýningar víða um heim.
Sýning Helga Þorgils í Gallerí Svart
á hvítu er opin alla daga nema mánu-
daga frá 14.00 til 18.00 og stendur til
20. september en þá lýkur einnig sýn-
ingu hans á Kjarvalsstöðum.
Norræna húsið:
Gullsmíðasýning
danskra listamanna
Gullsmiðirnir Henrik Blondal
Bengtsson og Ulrik Jungersen
opna sýningu á laugardag í Nor-
ræna húsinu og stendur hún til
fjórða október. Að sögn hefur það
verið draumur þeirra beggja um
árabil að setja upp sýningu á Is-
landi og eru þeir því hæstánægðir
með að draumur þeirra er að ræt-
ast nú.
Henrik Blandal er fæddur 1960
og lauk námi sínu sem útlærður
gullsmiður hjá Ole Lynggaard í
Kaupmannahöfn. Hann er meðeig-
andi í gullsmíðaverkstæði sem
nefnist Okker Otte og hefur haldið
margar sýningar á síðustu tveimur
árum vitt og breitt um Evrópu.
Ulrik útskrifaðist frá gullsmið-
unum Helgu og Bent Exner árið
1981 og hefur síðan dvalið í Þýska-
landi, Danmörku og Svíþjóð þar
sem hann hefur unnið og sýnt list
sína. Hann hefur haldið einar fimm
einkasýningar.
Þeir hafa báðir helgað sig stærri
munum og listaverkum úr góð-
málmum.
Brjóstnál eftir Ulrik Jungersen úr silfri og 24 karata gulli verður meðal
annarra hluta til sýnis í Norræna húsinu fram í október.
„Dreams that money can bay“:
Klippimyndir Kristjáns
í Gallerí Hallgerði
Um þessar mundir stendur yfir í
Gallerí Hallgerði við Bókhlöðustig
sýning á verkum Kristjáns Kristj-
ánssonar myndlistarmanns sem ber
yfirskriftina „Dreams that mone'y
can buy“. Efni myndanna er sótt í
heim draums og veruleika. Hug-
myndum safnar hann saman og
finnur út myndir sem gefa þessum
hugsunum tákn, klippir þær og
skeytir saman. Úr verður mynd þar
sem raunveruleikinn og fantasían
birtast eins og þau koma Kristjáni
fyrir sjónir.
Hann segist fæddur á sólardegi á
Patreksfirði, í vantsbera, árið 1950
og nam bæði hér á landi og í Stokk-
hólmi.
Þessi sýning er sjötta einkasýn-
ing Kristjáns og stendur hún til 13.
september. Sýningin er opin frá
14.00 til 18.00 sýningardagana.
Upplýsingar og farmiðasala á skrifstofu
FÍ, Óldugötu 3. Brottför í ferðimar er kl.
20.00 föstudag.
Ferðafélag íslands.
Útivistarferðir
Helgarferðir 4.-6. september.
1. Kl. 20.00 Þórsmörk - Goðaland. Góð
gisting í Útivistarskálunum, Básum.
Gönguferðir við allra hæfi. Fararstjóri:
Bjarki Harðarson.
2. Kl. 20.00 Haustferð á Kjöl. Gist í
skála á miðjum Kili. Göngu- og skoðunar-
ferð um Þjófadali, Hveravelli og Kerling-
arfjöll. Slóðir Fjalla-Eyvindar. Farið á
grasafjall.
Upplýsingar og farmiðar á skrif-
stofunni, Grófinni 1, símar: 14606 og
23732.
Sjáumst, Utivist.
Útivistarferðir
Sunnudagur 6. september
Kl. 8.00 Þórsmörk, dagsferð. Stansað
í 3-4 klst. í Mörkinni. Verð kr. 1.000,-
Kl. 10.30 Klóarvegur - Villingavatn.
Gengin gamla þjóðleiðin frá Hveragerði í
Grafning. Verð kr. 700,-
Kl. 13.00 Grafningur - Hagavík. Berja-
ferð og létt ganga um fjölbreytt land,
sunnan Þingvallavatns. Verð kr. 600,-
Frítt fyrir börn í fylgd með fullorðnum í
ferðirnar. Brottför er frá BSÍ, bensínsölu.
Sjáumst, Útivist.
Dagsferðir sunnudaginn 6.
sept.:
1) kl. 09 - Svartagil - Hvalvatn -
Botnsdalur.
Fyrst er ekið að Svartagili í Þingvalla-
sveit og síðan gengið þaðan meðfram
Botnssúlum, Hvalvatni og í Botnsdal.
Verð kr. 800,00.
2) kl. 13 - Glymur í Botnsá (198 m)
Ekið að Stóra-Botni í Botnsdal, síðan
gengið upp með Botnsá að Glym, sem er
hæsti foss landsins. Verð kr. 600,00.
Brottför frá Umferðarmiðstöðinni, aust-
anmegin. Farmiðar við bíl. Frítt fyrir börn
í fylgd fullorðinna.
Til athugunar: Dagsferðir í Þórsmörk
verða sunnudaginn 13. sept. og sunnu-
daginn 20. sept. Verð kr. 1.000. Dvalið
um 3 'h klst. í Þórsmörk og famar göngu-
ferðir.
Feðafélag Islands
Sýningar
Árbæjarsafn
Meðal nýjunga á safninu er sýning á göml-
um slökkviliðsbílum og sýning frá fom-
leifagrefti í Reykjavík og Reykjavíkurlík-
önum. Opið alla daga nema mánudaga kl.
10-18.
Ásgrímssafn,
Bergstaðastræti 74
Sumarsýning safnsins er opin alla daga
nema laugardaga kl. 13.30-16.
Ásmundarsafn
við Sigtún
Um þessar mundir stendur yfir sýningin
Abstraktlist Ásmundar Sveinssonar. Þar
gefur að líta 26 höggmyndir og 10 vatns-
litamyndir og teikningar. Þá er einnig til
sýnis videomynd sem fjallar um konuna í
list Ásmundar Sveinssonar. Þá eru til sölu
bækur, kort, litskyggnur. videomyndir og
afsteypur af verkum listamannsins. Safnið
er opið daglega yfir sumarið kl. 10-16.
Ásmundarsalur v/Sigtún
Ragna Sigrúnardóttir sýnir málverk í Ás-
mundarsal. Á sýningunni eru 20 verk, olíu-
og vatnslitamyndir. Myndefnið er alit sótt
í kvikmyndir. Sýningin er opin frá kl.
14-22 um helgar og kl. 16-22 virka daga.
Henni lýkur 23. ágúst.
FÍM-salurinn,
Garðastræti 6.
Samband íslenskra myndlistarmanna hef-
ur opnað myndlistarsýningu sem haldin
er í FÍM salnum og stendur til 27 sept.
n.k. Meðal þeirra sem verk eiga á sýning-
unnio eru; Hringur Jóhannesson, Ragn-
heiðm- Jónsdóttir, Borghildur Óskarsdótt-
ir, Ágúst Petersen, Ása Ólafsdóttir, Jón
Reykdal, Jóhanna Bogadóttir, Guttormur
Jónsson, Björg Guttormsdóttir og Guð-
bergur Auðunsson.
Gallerí Borg,
Pósthússtræti 9
í Gallerí Borg sýna Gestur Þorgrímsson
og Sigrún Guðjónsdóttir. Rúna sýnir leir-
myndir og teikningar, sem unnar eru á
tveimur síðustu árum, en Gestur sýnir af-
rakstur þess að höggva í stein og er elsta
verk hans frá 1949. Sýningin er opin virka
daga kl. 10 til 18 og frá 14 til 18 um helg-
ar. Henni lýkur 15 september.
Gallerí Grjót,
Skólavörðustíg
Samsýning í tilefni 4 ára starfsafmælis
gallerísins stendur yfir. Á sýningunni eru
skúlptúrar, málverk og grafík. Þeir sem
að sýningunni standa eru Jónína Guðna-
dóttir, Magnús Tómasson, Ófeigur Bjöms-
son. Ragnheiður Jónsdóttir, Steinunn
Þórarinsdóttir, Þorbjörg Höskuldsdóttir
og Örn Þorsteinsson. Sýningin er opin
virka daga frá kl. 12-18.
Gallerí List,
Skipholti 50,
nýr sýningarsalur og listmunaverslun.
Sýnd eru verk eftir 14 íslenska listamenn,
málverk, keramik, postulín, grafík, vefn-
aður, skúlptúr og glerlist. Einnig eru þar
til sölu erlendir listmunir. Opið virka daga
kl. 10-18 og laugardaga kl. 10-12.
Gallerí Svartá hvítu
við Óðinstorg
Helgi Þorgils Friðjónsson sýnir grafík- og
vatnslitamyndir. Sýningin er opin alla
daga nema mánudaga frá kl. 14 til 18 og
stendur til 20 september.
Gallerí 119
v/JL húsið
Þar eru til sýnis plaköt og verk eftir
þekkta listamenn. Opnunartími er mánu-
daga til föstudaga kl. 12-19, laugardaga
kl. 12-18 og sunnudaga kl. 14-18.
Galleri Hallgerður
Kristján Kristjánsson sýnir í Gallerí Hall-
gerði, Bókhlöðustíg 2, klippimyndir og ber
sýningin yfirskriftina „Dreams that mon-
ey can buy,‘‘. Sýningin sem er sölusýning
er opin 2 til 6, og henni lýkur 13 september.
Galleri íslensk list,
Vesturgötu 17
Þar stendur yfir samsýning Listmálarafé-
lagsins. Þar eru sýnd verk 14 þekktra
listamanna. Þetta er sölusýning. Sýningin
er opin mánudaga til föstudaga kl. 9-17
og lýkur henni 20. september.
Gallerí Langbrók, Textíll,
Bókhlöðustíg 2,
textílgallerí. Til sýnis vefnaður, tauþn'kk.
myndverk, módelfatnaður og fleiri list-
munir. Opið þriðjudaga til föstudaga kl.
12-18 og laugardaga kl. 11-14.
Langbrók,
Bókhlöðustig 2,
Textílgalleríið. sýnir vefnað, tauþrykk,
myndverk, módelfatnað og fleiri listmuni.
Opið er þriðjudaga til fóstudaga kl. 12 til
18 og laugardaga kl. 11 til 14
Kjarvalsstaðir
við Miklatún
Sýning Seotemhópsins er í vestursal
Kjarvalsstaða og stendur hún til 19. sept-
ember. Einnig verður opnuð á laugardag
kl. 14 sýning á olíumálverkum Helga
Þorgils Friðjónssonar og stendur hún til
20. september.
Listasafn ASÍ,
Grensásvegi
Listasafn ASl og Verkamannafélagið
Dagsbrún standa að samsýningu fjögurra
frístundalistamanna í Dagsbrún sem hald-
in verður í salarkynnum Listasafns ASÍ
dagana 29. ágúst til 13. september. Þeir
listamenn sem þátt taka í sýningunni eru:
Birgir Nurmann Jónsson, Eggert Magnús-
son, Jón Haraldsson og Pétur Hraunfjörð.
Sýningin er opin virka daga frá 16.00 til
20.00 en um helgar kl. 14.00 til 22.00.
Listasafn Einars Jónssonar
við Njarðargötu
er opið aila daga nema mánudaga frá kl.
13.30-16. Höggmyndagarðurinn er opinn
daglega frá kl. 10-17.
Listasafn Háskóia íslands
í Odda, nýja hugvísindahúsinu, er opið
daglega kl. 13,30-17. Þar eru til sýnis 90
verk í eigu safnsins, aðallega eftir yngri
listamenn þjóðarinnar. Aðgangur að safn-
inu er ókeypis.