Dagblaðið Vísir - DV - 04.09.1987, Síða 8
FÖSTUDAGUR 4. SEPTEMBER 1987.
Umtalsverðar breytingar eru á
DV-listanum í þessari viku þótt
Soul Man hafi hreiðrað um sig á
tindinum. Stórvirkið, A Room with
a View, stekkur inn með stórum
látum og stöðvast vart fyrr en
nærri toppnum.
Þá eru Andaborð og Target nýjar
á lista og til alls líklegar með svip-
uðu lagi og Útsýnisstofan.
I Bretlandi víkja Veruleg vand-
ræði í Litlu-Kína fyrir kvikmynd-
inni Critters. Þar sækja sum verk
á brattann en önnur dala. Líklegar
til afreka eru Soul Man, Ruthless
People og F/X Murder by Illusion.
Eiga þær lengstu stökkin á bresk-
um lista í þessari viku.
DV-LISTINN
MYNDIR
1 (1) Soul Man
2 (3) Nafn rósarinnar
3 (4) Marine Issue
4 (2) Back to School
5 (5) Heartburn
6 (-) A Room with a View
7 (6) Pirates
8 (7) F/X Murder by lllusion
9 (-) Andaborð
10 (-) Target
[ BRETLAND
1 (2) Critters
2(1) Big Trouble in Little
China
3 (3) Aliens
4 (8) F/X Murder by lllusion
5(7) Purpuraliturinn
6(10) Ruthless People
7 (5) Mona Lisa
8 (11) Soul Man
9(4) Wanted Dead or Alive
10(9) Pirates
Lífid lætur undan
NEVER GIVE AN INCH
Útgelandi: Laugarásbíó
Leikstjóri: Paul Newman
Handrit: John Gray, byggt á skáldverki
Ken Kessey, Sometimes a Grate Notion
Tónlist: Henry Mancini
Framleiðendur: Universal
Aöalhlutverk: Paul Newman, Lee
Remick, Henry Fonda og Micheal
Sarrazin
Uppruni: Bandarisk, 1971
Sýningartimi: 108 mínútur
Óheimil börnum yngri en 12 ára
„Ekkert gefið eftir" er um margt
sérstæð mynd þar sem karlmennsk-
unni er sunginn óður, þó að vissu
marki.
í frásagnarmiðju eru Stamper-
feðgar, safn hörkutóla sem bogna
hvergi þótt baráttan sé hatrömm.
Þeir Feðgar etja kappi fyrir mál-
stað sem er af vafasamara tagi,
sinna skógarhöggi á meðan sam-
sveitungar hvíla axir í baráttu fyrir
vænlegri kjörum.
Að vonum fylgir hin minnsta
lukka iðju feðganna. Höggmenn
farast, missa limi eða verða undir
fargi. í kjölfarið hlaupast síðan
konur undan merkjum.
Glíma verkfallsbrjóta við hina er
þó gjarnan lítil þótt spennan þar á
milli magnist talsvert er á líður.
í lokin mætast síðan bitjárnin er
lifandi Stamper-bræður fara um
kyrrt fljót og siglir talsvert magn
af timbri í kjölfarið. Sem tákn um
dýrkeyptan sigur er armur föðurins Ekki er ofsagt að Henry Fonda
reistur á stöng og á honum „fingur- hafi senuna af öðrum. Fer þar gam-
signal" nokkurt sem ég nenni ekki all jaxl sem „aldrei gaf eftir“
að nefna. frammi fyrir augum tökuvélanna.
Leikur í myndinni er jafnan -JÖG
ágætur þótt hvergi gæti tilþrifa.
Allt fyrir fánann
Lifandi goðsögn
DEATH BEFORE DISHONOR
Útgefandi: Videóval
Framleiöandi: Lawrence Kubik
Leikstjóri: Terry Leonard
Aðalhlutverk: Fred Dryer, Brian Keith, Joanna
Pacula
Bönnuð yngri en 16 ára
Eins og nafn myndarinnar gefur til kynna
svífast persónurnar einskis. Hér er enda um
að ræða átök milli araba og Israelsmanna.
Banaríkjamenn blanda sér í málið um stund.
Myndin spinnst út frá sendiför Charles
nokkurs Halloran til Jemal. Með honum í
för er harðsnúin sveit hermanna með Jos-
hep Burns í broddi fylkingar. Hryðjuverka-
menn ræna Halloran og Burns tekur að sér
að ná honum úr höndum þeirra. Og hann
myndi frekar deyja en snúa til baka tóm-
hentur.
Þetta er vissulega átakamynd sem
kannski sést best á rýru handriti þar sem
bardagasenur eru fyrirferðamestar. Hörku-
tólið Burns elskar fánann stjörnum prýdd-
an. Hann vill helst skjóta alla óvini
Bandaríkjanna af færi. Þannig er plottið
eins útreiknanlegt og hugsast getur. Það
eina sem vefst fyrir áhorfendum er hvað
hinum annars friðelskandi frelsishetjum úr
vestrinu tekst að koma mörgum villutrúar-
mönnum fyrir kattarnef.
Á hinn bóginn er nokkuð í bardagaatriði
myndarinnar spunnið. Þetta er hasar fyrir
þá sem sætta sig við næstum stanslausa
skothríð í nítíu mínútur án nokkurra efa-
semda um ástæður fyrir vígunum. Burns
hefur að minnst kosti sitt á hreinu. „Af
hverju er verið að skjóta þessa menn,“ miss-
ir einhver út úr sér. Og Burns svarar að
bragði: „Af því bara. Þetta eru óvinir."
Útrætt mál.
irk
Ökuleikni
WRAITH
Útgefandi: Videóval
Framleiðandi:John Kemeny
Leikstjórn og handrit: Mike Marvin
Aðalhlutverk: Charlie Sheen, Nick Cassavetes,
Randy Quaid
Bönnuö yngri en 16 ára
í Wraith ríða unglingsstjörnur um héruð
á glæstum köggum. Charlie Sheen leikur
pilt sem kemur úr öðrum heimi til að hefna
sín á harðskeyttu gengi sem varð honum
að bana. Hann ekur um á svörtum vígaleg-
um sportbíl og hefur það yfirnáttúrulega á
sínu valdi. Hlutverk Sheen hér er heldur
léttvægt, miðað við það sem hann sýndi í
Platoon. Vofunni tekst að taka gengið í
bakaríið og senda þá líka yfir móðuna
miklu. Mikið er um kappakstra, það hvín í
beygjum en allan tímann er útséð um hver
vinnur.
Út frá afþreyingarsjónarmiði er Wraith í
meðallagi. Randy Quaid hjálpar mikið upp
á sakirnar í hlutverki lögreglustjórans sem
reynir að skakka ökuleikina. Sóðaleg smá-
borgarlögga sem spilar sig stóran og kemst
upp með það. Lítið fer fyrir stjörnuleik hjá
unglingunum. Pilti að nafni Nick Cassavet-
es bregður fyrir. Freistandi að álykta að
hann sé sonur hins umdeilda John Cassa-
vetes. Það lyftir þó myndinni ekki upp á
hærra plan, nema síður sé.
FROM NOON TILL THREE
Útgefandi: Tefli
Leikstjóri: Frank D. Gilroy
Handrit: Frank D. Gilroy, byggt á skáldverki hans.
Framleiöandi: Frankovich og Self
Tónlist: Elmer Bernstein
Aðalhlutverk: Charles Bronson og Jlll Ireland.
Uppruni: Bandarisk, 1975
Sýningartími: 95 minútur
Óheimil börnum yngri en 12 ára
Ekki er risið hátt á kvikmyndinni Frá
hádegi fram að kaffi en þar sinnir Charles
Bronson hlutverki kempunnar. Eins og í
ófáum vestrum snýst flest um aura og ekki
á að troða pyngjuna að hætti daglauna-
mannsins. Bankaránið er miðlægt en þar
bregst okkar mönnum bogalistin. Allir
lengja hálsinn í snörunni nema Bronson
sem sængar í þess stað hjá ekkju nokkurri
allfjarri gálganum.
í kjölfar rekkjuláta slær Bronson síðan
hælum við þjó sér og er eltur sem rakki um
gróðurvana sveitir þar vestra. Eins og
kappa er háttur kemst hann undan með
klækjum en sakarlítill skottulæknir er veg-
inn í hans stað.
Sorg ekkjunnar reynist taumlaus er hún
„lítur“ ástmann sinn blóðugan. Til að bæta
fyrir ófarirnar gerir hún friðilinn að goð-
sögn - kunngerir ástir þeirra í skáldverki.
Eins og þráðurinn segir til um er verkið
hreinn farsi. Þó var þeim sem þetta ritar
sjaldnast hlátur í hug, hvað þá að sá færi
fram á varirnar.
Leikur er lengst af fullýktur og tilþrifalít-
ill. Bronson kann sin fjögur svipbrigði og
beitir þeim óspart. Rödd hans er með sama
lagi flöt og hrynjandinn sjaldnast í sam-
hengi við það sem gerist á leiksviðinu.
Vestrar eru oft hin besta skemmtan en
nefnd kvikmynd heyrir til öðrum hópi.
-JÖG
© ©
Leikrit Hryllingsmynd Fullorðinsmynd Visinda- skáldsaga
$ © 9 ®
Tónlist Gamanmynd _ -gm- _ Hasarmynd Fjölskyldumynd
© © O
íþróttir Barnamynd Astarsaga Annað