Dagblaðið Vísir - DV - 19.09.1987, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 19.09.1987, Blaðsíða 14
14 LAUGARDAGUR 19. SEPTEMBER 1987. Átt þú spariskírteini ríkissjóðs, sem eru innleysanleg núna ? íhugaðu stöðuna vel því nú hafa vextirnir hækkaÖ og eru allt að 8,5% umfram verÖtryggingu Það eru einkum tvær ástæður fyrir því að spariskírteini ríkissjóðs eru ein öruggasta og arðbærasta sparnaðarleiðin sem völ er á í dag. í fyrsta lagi hafa vextir af spariskírteinum ríkissjóðs hækkað og eru nú allt að 8,5% umfram verðtryggingu. Með því að fjárfesta í spariskírteinum ríkissjóðs getur þú tryggt þér háa raunávöxtun í langan tíma — hvernig sem árar. Þú lekur enga áhæðtu eg öryggid er þín megin í öðru lagi er ekki hægt að hugsa sér örugg- ara og traustara sparnaðarform en spariskír- teini ríkissjóðs. Þeim fylgir engin áhætta og ríkissjóður tryggir þér að vextirnir lækka ekki meðan á lánstímanum stendur. Ertu enn í vnfn? Þú getur valið um spariskírteini sem greið- ast í einu lagi eftir 2 ár með 8,5% raunvöxtum á ári, eða spariskírteini sem greiðast í einu lagi eftir 4 ár með 8,0% raunvöxtum á ári. Einnig áttu kost á hefðbundnum spariskírteinum með 6 ára binditíma og 7,2% raunvöxtum á ári, en sem hægt er að láta standa í allt að 10 ár. Þann- ig getur þú rúmlega tvöfaldað höfuðstólinn á tíu árum. Fjárfesting sem laðar að Þegar þú ávaxtar sparifé þitt skaltu hafa í huga, að spariskírteini ríjkissjóðs eru tekju- og eignaskattsfrjáls á sama hátt og sparifé í bönkum og bera auk þess ekkert stimpil- gjald. Þau eru innlent lánsfé og draga því úr erlendri skuldasöfnun og stuðla þannig að bættum hag þjóðarinnar. Af öllu þessu er ljóst, að spariskírteini ríkis- sjóðs eru ein vænlegasta leiðin í dag til ávöxt- unar á sparifé þínu. Spariskírteini ríkissjóðs færðu í Seðlabanka íslands og hjá löggiltum verðbréfasölum, sem eru m.a. viðskiptabankarnir, ýnisir sparisjóðir, pósthús um land allt og aðrir verðbréfamiðlarar. RÍKISSJÓÐUR ÍSLANDS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.