Dagblaðið Vísir - DV - 19.09.1987, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 19.09.1987, Blaðsíða 5
LAUGARDAGUR 19. SEPTEMBER 1987. 5 Fréttir Hótelskipið Orion Hótelskipið kostar sítt: Orion dýrara en Loftleiðir Gisting í norska hótelskipinu Orion, sem kom til Reykjavíkur vegna sjávar- útvegssýningarinnar er dýrari en á bestu hótelum í Reykjavík. Hótelskipið Orion hefur verið við Snæfellsnes í sumar vegna töku mynd- arinnar Nonni og Manni en vegna sjávarútvegssýningarinnar, sem hefst 19. september, var það tekið á leigu og verður það í Reykjavíkurhöfn með- an á sýningunni stendur. Orion er gamalt skip og var kaf- bátaleitarskip á stríðsárunum en því var breytt í hótelskip fyrir nokkrum árum. Skipið tekur milli fimmtíu og sextíu manns í káetur. Það er ekki mikill íburður um borð en sæmilega rúmt um íbúana. Gisting um borð í Orion mun kosta 3.800 krónur nóttin en til saman- burðar má geta þess að nóttin í eins manns herbergi á Hótel Loftleiðum kostar 3.500 krónur en gestir á sjávar- útvegssýningunni koma flestir í gegnum ferðaskrifstofur og fá því hót- elherbergin á lægra verði. -ATA HAUSTLAUKAR ÓTRÚLEGT ÚRVAL GOTT VERÐ V Unnar og Sigurbjörg. Kartöflur teknar upp í snjó settist að fyrir alvöru og kæmi í veg fyrir frekari „björgunaraðgerðir". „Það er svo kalt að maður er að reyna að þrauka klukkutíma og klukkutíma í einu,“ sagði Sigurbjörg og það voru greinilega engar ýkjur að kuldinn nísti hendumar. „Já, það er góð uppskera," sagði Sig- urbjörg og við vonum bara að þeim í Hvammshlíðinni hafi tekist að ná öll- um kartöflunum í hús undan snjónum. Gyifi Kristjánssan, DV, Akureyri; „Mér er alveg voðalega kalt,“ sagði Sigurbjörg Kristjánsdóttir þegar við rákumst á hana og Unnar Elíasson, son hennar, þar sem þau voru að taka upp kartöflur í fyrsta snjó vetrarins á Akureyri. Þau búa í Hvammshlíðinni og hafa smákartöflugarð bak við húsið. Eitt- hvað hafði dregist að taka upp og nú þurfti fljótar hendur áður en snjórinn Poka Pési falur Reykvíkingum og nágrönnum gefst tækifæri í dag til að leggja Lionessu- klúbbnum Eir lið í fjársöfnun þeirra til styrktar líknarmálum. Seldir verða plastsekkir, þ.e. heimilispokapakkn- ingar og sorppokar á sanngjömu verði. Plastsekkimir eru seldir undir nafninu „Poka Pési“. Sölustaðir em eftirtaldir: Við Kaup-. stað i Mjódd, við Hólagarð, við Kjötmiðstöðina, við Blómaval og Nýjabæ á Seltjamamesi. Allur ágóðinn rennur til líknarmála en meginágóða fjáröflunarverkefna klúbbsins hefur frá byrjun verið varið til baráttunnar gegn eiturlyfjum. -sme 2 traustir IVIISSAIM PATROL 3,3 díesel - 7 manna jeppi IMISSAN PICK-UP 2,3 díesel Eigum þessa traustu Nissan bíla til á lager. Bílasýning laugardag og sunnudag kl. 14-17. iH ,ú ■*■ V M 1957-1987 % 30 £ ára J/ Verið velkomin - Ailtaf heitt á könnunni Slll INGVAR HELGASON HF. III Sýningarsalurinn/Rauðagerði, simi 33560.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.