Dagblaðið Vísir - DV - 19.09.1987, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 19.09.1987, Blaðsíða 13
LAUGARDAGUR 19. SEPTEMBER 1987. 13 Veitingahús Jónas Kristjánsson skrifar um veitingahús: myntuís var einnig góður. Kaffi var nokkuð þunnt og ekki mjög heitt, borið fram með konfektmolum á kvöldin. Vínlisti Sjávarsíðunnar er hvers- dagslegur, fyrir utan sérvín staðar- ins, Comas Coteau á 1560 krónur og Comas Pied de Coteau á 1320 krónur, dæmigerð Rhonardalsvín, sem eru lengi að þroskast og minntu á Chateauneuf-du-Pape. Árgangurinn 1982 var of ungur til notkunar á miðju ári 1986. Onnur frambærileg vín eru ekki mörg, Chateau Cléray, Gewurztraminer, Riesling Hugel, Chateau Barthez de Luze og Chateau Fontareche. Vín hússins í glasatali eru fremur vond. Sjávarsíðan er glæsilegur veit- ingastaður með nýtízkulegum húsbúnaði, speglaveggjum, stein- flísum, flóknum tjöldum og bak- háum hægindastólum. Á borðum er Rosenthal-vara, gulbrúnir dúk- ar, kerti á kvöldin og tauþurrkur bæði á kvöldi og í hádegi. Nokkuð hljóðbært er í salnum. „Hvað finnst herranum?“ Þjónustan er skóluð og ágæt, ef menn sætta sig við að vera ávarp- aðir í þriðju persónu: „Hvað vill herrann, hvað finnst herranum, má bjóða herranum?" Gmnnt virð- ist vera á kvenhatri eða að minnsta kosti dónaskap, því að borð, sem pantað var í nafni konu, reyndist vera versta borð hússins að súlu- baki, en salurinn var þó hálftómur allt kvöldið og nóg laust af góðum borðum af sömu stærð. Miðjuverð súpu, fiskréttar og kaffis af seðli dagsins í hádeginu er afar hagstætt, 720 krónur. Þriggja rétta kvöldverður með kaffi, en án víns, kostar 2.007 krón- ur, sem er ekki fjarri hinu dýrasta, er þekkist hér á landi. Jónas Kristjánsson Það sem eftir stendur af trúnaði staðarins við nýfrönsku línuna felst í að hampa fiskréttum, sem em fleiri en kjötréttir; að forðast notkun frystrar eða niðursoðinnar vöru; að gæta oftast, en ekki allt- af, hófs í eldunartíma; að forðast upphitun og óhóflega forvinnu; og að virða eðlisbragð hráefnanna, sem notuð em. Þetta er allt saman ágætt og virðingarvert, en gerir veitingastaðinn samt tæpast ný- franskari en ýmsa aðra í Reykja- vik, sem ekki flagga slíku heiti. Reykþurrkaður nautavöðvi var skemmtileg tilbreyting sem forrétt- ur, bragðgóður, en nokkuð seigur, borinn fram með soðnum eplum og grænmeti í skreytingu, svo og ágætri eplasósu. Fiskikæfa var afar góð, bragðsterk, borin fram með paprikubitum og sterkri fennel- sósu, sem hæfði vel. Andakæfa var góð, borin fram með rauðri papriku og lauk, sem var skemmtilega rauð- ur af völdum vínsósu. Humarsúpa reyndist vera mild rjómasúpa með stórum humarbit- um og einum heilum humarhala, afar góð súpa. Fiskisúpa var hveiti- súpa með réttu silungsbragði, ólík mörgum öðrum svokölluðum fiski- súpum, sem hampa annaðhvort humarskeljabragði eða saffran- bragði, full af rneyrum rækjum. Staðlað grænmeti misgott Með forréttum og súpum voru bornar fram tvenns konar brauð- kollur, stundum aldraðar, svo og smjör í sérstökum smjörskálum. Með aðalréttum var borið fram soðið grænmeti, sem stundum var léttsoðið og rúmlega miðlungi í annan tíma, en yfirleitt staðlað að mestu. Hádegisseðill Fiskisúpa 720 Smjörsteikt heilagfiski með humarsósu 780 Ristaður lax með sveppum og sítrónusósu 720 Gufusoðin lúða með rósinpipar 590 Pönnusteiktur karfi með hrísgrjónum og karrí Kaffi Fasti matseðillinn 490 Saffran-humarsúpa 480 Matarmikil fiskisúpa 390 Villisveppasúpa ' 480 Grænmetissalat 590 Reyktur lax með kavíar 790 Glóðarsteiktir humarhalar í steinseljusmjöri 490 Fiskipaté með fennel-sósu 540 Grænmetisbaka með piparrótarsósu 590 Andapaté með rauðvínssoðnum lauk 590 Reykþurrkaður nautavöðvi með sherrysoðnum eplum 1180 Skeldýragratín 790 Ristaður regnbogasilungur með estragon-sósu 820 Steiktur smokkfiskur með hvítlauk og olífum 740 Gufusoðin smálúða með humarsósu 840 Lúðu-piparsteik með blönduðum pipar 790 Smjörsteikt rauðspretta með sniglasmjöri 1180 Buff-tartar 1390 Koníakslegnar nautalundir með villisveppum 1080 Gráðostfyllt lambasneið með vínberjasósu 960 Kjúklingabringa jurtafyllt með hvítvínssósu 980 Villibráð dagsins: Lundi með rauðberjasósu 440 Islenzkir ostar 450 Súkkulaðihjúpaðir ávextir með appelsínurjóma 420 Karamellurönd með ristuðum hnetum 390 Heimalagaður piparmyntuís með súkkulaðisósu Sami gamli seðillinn Sjávarsíðan er ekki aðeins falleg, heldur einnig ágæt matstofa, sem matreiðslulega séð er í hinum hefð- bupdna og dýra hótelstíl landsins og þarf ekki að fyrirverða sig fyrir það. En ekki er hægt að skilja, hvers vegna staðurinn er kynntur sem fulltrúi hinnar nýju, frönsku línu í matargerðarlist, því að það er hann engan veginn. Hinn rangi fáni, sem veifað er við Sjávarsíð- una, veldur vonbrigðum þeim, er betur vita, og varpar skugga á ann- ars frambærilegt veitingahús. Nýfrönsk veitingahús skipta dag- lega um matseðil. Sjávarsíðan hefur hins vegar lengi notað mat- seðil, sem er orðrétt eins frá degi til dags. Á kvöldin felst eina til- breytingin í einum fiski dagsins, en í hádeginu er þó hægt að velja milli fjögurra fiskrétta dagsins. í síðustu skiptin, sem ég hef sótt staðinn heim, hefur fiskur dagsins ýmist verið lax eða karfi. Hvorugt er í fullkomnu samræmi við reglur nýfranska eldhússins um fersk hrá- efni dagsins. Þessar tegundir má oftast fá ferskar og gætu þær því þess vegna verið á fastaseðli. Til- boð dagsins á fremur að felast í fiski, sem er ekki oftast, heldur aðeins stundum á boðstólum, eftir árstíðum eða aflabrögðum, til dæmis rauðsþrettu, sólkola, sjó- birtingi eða blálöngu. Mér sýnist ekki heldur, að Sjáv- arsíðan hafi sérstöðu í lítilli notkun fitu í matreiðslu, né í engri notkun brúnaðar fitu. Ekki forðast staðarmenn heldur að nota mjöl til að þykkja súpur og sósur. í þessum efnum taka þeir lítið mark á ný- franska eldhúsinu. Mér sýnist ekki heldur, að þeir taki þátt í áhuga nýfrönsku línunnar á fersku græn- meti, lítt eða ekki soðnu. Fiskréttir í fvrirrúmi Gufusoðin smálúða var afar heit og góð, borin fram með bragð- daufri, en vel gerðri humarsósu. Smjörsteikt rauðspretta var nokk- uð góð, borin fram með sæsniglum úr dós. Glóðarsteiktir humarhalar voru ofeldaðir, sem fer illa svo dýr- um rétti. Steiktur smokkfiskur var hversdagslegur, borinn fram með hvítlauk og olífum. Villibráð dagsins var eitt sinnið lítillega ofeldaður svartfugl og í annað skiptið létteldaður, meyr og Kokkahúfur eru fyrir matreiðslu og blóm fyrir umhverfi og þjónustu, en krónupeningarnir tákna verðlagið. góður lundi með góðri, þunnri rauðberjasósu. Gráðostfyllt lamba- sneið var ofelduð og grá, borin fram með vínberjasósu. Karamellurönd með ristuðum og heitum hnetum, kiwi og þeyttum rjóma, var mjög góð. Súkkulaði- hjúpaðir ávextir voru góðir, en nokkuð mikið húðaðir. Pipar- Leikfimi Nú er að hefjast nýtt námskeið í hinum einstæðu þrek- og leikfimitímum hjá Rósu Ólafsdóttur íþróttakennara á vegum fimleika- deildar Ármanns í Breiðagerðisskóla. Þeir sem hafa hug á að bæta líkamlegt ástand sitt hafi sam- band í síma 46301 eftir kl. 19. Útboð Ólafsvíkurvegur, Vegamót - Hofsstaðir Vegagerð rikisins óskar eftir tilboðum í ofan- greint verk. Lengd vegarkafla 2,5 km, fylling og burðarlag 41.000 m3. Verki skal lokið 25. júlí 1988. Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerð ríkisins í Borgarnesi og Reykjavík (aðalgjaldkera) frá J og með 22. þ.m. Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14.00 þann 5. október 1987. Vegamálastjóri Laus staða Staða safnvarðar í Listasafni íslands er laus til umsókn- ar. Umsækjendur skulu hafa lokið háskólaprófi í listasögu. Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins. Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og starfs- reynslu skulu hafa borist menntamálaráðuneytinu fyrir 15. október næstkomandi. Menntamálaráðuneytið, 17. september 1987. ^RARIKskrifsjofu- RAFMAGNSVEITUR RÍKISINS IVIAtJUn Rafmagnsveitur ríkins auglýsa laust til umsóknar starf skrifstofumanns. Starfið felst að mestu leyti í sendiferðum auk al- mennra skrifstofustarfa. Bílprófs krafist. Laun eru samkvæmt kjarasamningum BSRB og ríkisins. Upplýsingar um starfið eru veittar hjá deildarstjóra starfsmannahalds. Rafmagnsveitur ríkisins, Laugavegi 118, 105 Reykjavík Nauðungaruppboð Að kröfu innheimtumanns ríkissjóðs, ýmissa lögmanna og fl. verða eftirtald- ir lausafjármunir og bifreiðar boðin upp og seld á opinberu nauðungaruppboði sem fram fer mánudaginn 28. sept. næstkomandi og hefst kl. 14 við lög- reglustöðina á Selfossi. Bifreiðarnan X-170 X-1404 X-2222 X-2691 X-3126 X-3530 X-4124 X-4323 X-4641 X-5132 X-6094 X-7285 R-35701 L-1419 X-258 X-412 X-413 X-1408 X-1486 X-1489 X-2290 X-2351 X-2352 X-2719 X-2720 X-2780 X-3143 X-3248 X-3273 X-3559 X-3610 X-3715 X-4126 X-4196 X-4231 X-4345 X-4382 X-4434 X-4680 X-4711 X-4745 X-5163 X-5373 X-5386 X-6336 X-6408 X-6555 X-7594 R-11623 R-22012 R-38584 R-49479 R-51597 Y-12362 P-879 P-1354 X-648 X-1051 X-1103 X-2057 X-2086 X-2147 X-2353 X-2436 X-2529 X-2846 X-2943 X-3055 X-3294 X-3334 X-3396 X-3836 X-3932 X-4011 X-4241 X-4249 X-4276 X-4492 X-4524 X-4531 X-4787 X-4914 X-4939 X-5407 X-5668 X-5973 X-6582 X-6745 X-6971 R-26836 R-27673 R-33013 R-58528 R-61157 R-61580 P-2148 Ö-6298 Dráttarvélarnar: Xd-2173, Xd-3836. Tengivagnarnir: Xt-80, Xt-35 Vélhjólin: X-7010, R-73934. Ennfremur 30 sjónvarpstaeki, 10 myndbandstæki, ýmis heimilistæki, hús- gögn, myndavél, hljómflutningstæki, magnarar, plötuspilarar, hátalarar, reiknivél, bókhaldsvél, ritsafn eftir Halldór Kiljan Laxness, bassagítar, veð- skuldabréf, 70 myndbönd, sportbátur og utanborðmótor, 5 bátar með utanborðsmótor og BMW bifreið, óskráð. Uppboðshaldarinn i Ámessýslu og á Selfossi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.