Dagblaðið Vísir - DV - 19.09.1987, Síða 13
LAUGARDAGUR 19. SEPTEMBER 1987.
13
Veitingahús
Jónas Kristjánsson skrifar um veitingahús:
myntuís var einnig góður. Kaffi var
nokkuð þunnt og ekki mjög heitt,
borið fram með konfektmolum á
kvöldin.
Vínlisti Sjávarsíðunnar er hvers-
dagslegur, fyrir utan sérvín staðar-
ins, Comas Coteau á 1560 krónur
og Comas Pied de Coteau á 1320
krónur, dæmigerð Rhonardalsvín,
sem eru lengi að þroskast og
minntu á Chateauneuf-du-Pape.
Árgangurinn 1982 var of ungur til
notkunar á miðju ári 1986. Onnur
frambærileg vín eru ekki mörg,
Chateau Cléray, Gewurztraminer,
Riesling Hugel, Chateau Barthez
de Luze og Chateau Fontareche.
Vín hússins í glasatali eru fremur
vond.
Sjávarsíðan er glæsilegur veit-
ingastaður með nýtízkulegum
húsbúnaði, speglaveggjum, stein-
flísum, flóknum tjöldum og bak-
háum hægindastólum. Á borðum
er Rosenthal-vara, gulbrúnir dúk-
ar, kerti á kvöldin og tauþurrkur
bæði á kvöldi og í hádegi. Nokkuð
hljóðbært er í salnum.
„Hvað finnst herranum?“
Þjónustan er skóluð og ágæt, ef
menn sætta sig við að vera ávarp-
aðir í þriðju persónu: „Hvað vill
herrann, hvað finnst herranum,
má bjóða herranum?" Gmnnt virð-
ist vera á kvenhatri eða að minnsta
kosti dónaskap, því að borð, sem
pantað var í nafni konu, reyndist
vera versta borð hússins að súlu-
baki, en salurinn var þó hálftómur
allt kvöldið og nóg laust af góðum
borðum af sömu stærð.
Miðjuverð súpu, fiskréttar og
kaffis af seðli dagsins í hádeginu
er afar hagstætt, 720 krónur.
Þriggja rétta kvöldverður með
kaffi, en án víns, kostar 2.007 krón-
ur, sem er ekki fjarri hinu dýrasta,
er þekkist hér á landi.
Jónas Kristjánsson
Það sem eftir stendur af trúnaði
staðarins við nýfrönsku línuna
felst í að hampa fiskréttum, sem
em fleiri en kjötréttir; að forðast
notkun frystrar eða niðursoðinnar
vöru; að gæta oftast, en ekki allt-
af, hófs í eldunartíma; að forðast
upphitun og óhóflega forvinnu; og
að virða eðlisbragð hráefnanna,
sem notuð em. Þetta er allt saman
ágætt og virðingarvert, en gerir
veitingastaðinn samt tæpast ný-
franskari en ýmsa aðra í Reykja-
vik, sem ekki flagga slíku heiti.
Reykþurrkaður nautavöðvi var
skemmtileg tilbreyting sem forrétt-
ur, bragðgóður, en nokkuð seigur,
borinn fram með soðnum eplum og
grænmeti í skreytingu, svo og
ágætri eplasósu. Fiskikæfa var afar
góð, bragðsterk, borin fram með
paprikubitum og sterkri fennel-
sósu, sem hæfði vel. Andakæfa var
góð, borin fram með rauðri papriku
og lauk, sem var skemmtilega rauð-
ur af völdum vínsósu.
Humarsúpa reyndist vera mild
rjómasúpa með stórum humarbit-
um og einum heilum humarhala,
afar góð súpa. Fiskisúpa var hveiti-
súpa með réttu silungsbragði, ólík
mörgum öðrum svokölluðum fiski-
súpum, sem hampa annaðhvort
humarskeljabragði eða saffran-
bragði, full af rneyrum rækjum.
Staðlað grænmeti misgott
Með forréttum og súpum voru
bornar fram tvenns konar brauð-
kollur, stundum aldraðar, svo og
smjör í sérstökum smjörskálum.
Með aðalréttum var borið fram
soðið grænmeti, sem stundum var
léttsoðið og rúmlega miðlungi í
annan tíma, en yfirleitt staðlað að
mestu.
Hádegisseðill
Fiskisúpa
720 Smjörsteikt heilagfiski með humarsósu
780 Ristaður lax með sveppum og sítrónusósu
720 Gufusoðin lúða með rósinpipar
590 Pönnusteiktur karfi með hrísgrjónum og karrí
Kaffi
Fasti matseðillinn
490 Saffran-humarsúpa
480 Matarmikil fiskisúpa
390 Villisveppasúpa '
480 Grænmetissalat
590 Reyktur lax með kavíar
790 Glóðarsteiktir humarhalar í steinseljusmjöri
490 Fiskipaté með fennel-sósu
540 Grænmetisbaka með piparrótarsósu
590 Andapaté með rauðvínssoðnum lauk
590 Reykþurrkaður nautavöðvi með sherrysoðnum eplum
1180 Skeldýragratín
790 Ristaður regnbogasilungur með estragon-sósu
820 Steiktur smokkfiskur með hvítlauk og olífum
740 Gufusoðin smálúða með humarsósu
840 Lúðu-piparsteik með blönduðum pipar
790 Smjörsteikt rauðspretta með sniglasmjöri
1180 Buff-tartar
1390 Koníakslegnar nautalundir með villisveppum
1080 Gráðostfyllt lambasneið með vínberjasósu
960 Kjúklingabringa jurtafyllt með hvítvínssósu
980 Villibráð dagsins: Lundi með rauðberjasósu
440 Islenzkir ostar
450 Súkkulaðihjúpaðir ávextir með appelsínurjóma
420 Karamellurönd með ristuðum hnetum
390 Heimalagaður piparmyntuís með súkkulaðisósu
Sami gamli seðillinn
Sjávarsíðan er ekki aðeins falleg,
heldur einnig ágæt matstofa, sem
matreiðslulega séð er í hinum hefð-
bupdna og dýra hótelstíl landsins
og þarf ekki að fyrirverða sig fyrir
það. En ekki er hægt að skilja,
hvers vegna staðurinn er kynntur
sem fulltrúi hinnar nýju, frönsku
línu í matargerðarlist, því að það
er hann engan veginn. Hinn rangi
fáni, sem veifað er við Sjávarsíð-
una, veldur vonbrigðum þeim, er
betur vita, og varpar skugga á ann-
ars frambærilegt veitingahús.
Nýfrönsk veitingahús skipta dag-
lega um matseðil. Sjávarsíðan
hefur hins vegar lengi notað mat-
seðil, sem er orðrétt eins frá degi
til dags. Á kvöldin felst eina til-
breytingin í einum fiski dagsins,
en í hádeginu er þó hægt að velja
milli fjögurra fiskrétta dagsins.
í síðustu skiptin, sem ég hef sótt
staðinn heim, hefur fiskur dagsins
ýmist verið lax eða karfi. Hvorugt
er í fullkomnu samræmi við reglur
nýfranska eldhússins um fersk hrá-
efni dagsins. Þessar tegundir má
oftast fá ferskar og gætu þær því
þess vegna verið á fastaseðli. Til-
boð dagsins á fremur að felast í
fiski, sem er ekki oftast, heldur
aðeins stundum á boðstólum, eftir
árstíðum eða aflabrögðum, til
dæmis rauðsþrettu, sólkola, sjó-
birtingi eða blálöngu.
Mér sýnist ekki heldur, að Sjáv-
arsíðan hafi sérstöðu í lítilli
notkun fitu í matreiðslu, né í engri
notkun brúnaðar fitu. Ekki forðast
staðarmenn heldur að nota mjöl til
að þykkja súpur og sósur. í þessum
efnum taka þeir lítið mark á ný-
franska eldhúsinu. Mér sýnist ekki
heldur, að þeir taki þátt í áhuga
nýfrönsku línunnar á fersku græn-
meti, lítt eða ekki soðnu.
Fiskréttir í fvrirrúmi
Gufusoðin smálúða var afar heit
og góð, borin fram með bragð-
daufri, en vel gerðri humarsósu.
Smjörsteikt rauðspretta var nokk-
uð góð, borin fram með sæsniglum
úr dós. Glóðarsteiktir humarhalar
voru ofeldaðir, sem fer illa svo dýr-
um rétti. Steiktur smokkfiskur var
hversdagslegur, borinn fram með
hvítlauk og olífum.
Villibráð dagsins var eitt sinnið
lítillega ofeldaður svartfugl og í
annað skiptið létteldaður, meyr og
Kokkahúfur eru fyrir matreiðslu og
blóm fyrir umhverfi og þjónustu, en
krónupeningarnir tákna verðlagið.
góður lundi með góðri, þunnri
rauðberjasósu. Gráðostfyllt lamba-
sneið var ofelduð og grá, borin fram
með vínberjasósu.
Karamellurönd með ristuðum og
heitum hnetum, kiwi og þeyttum
rjóma, var mjög góð. Súkkulaði-
hjúpaðir ávextir voru góðir, en
nokkuð mikið húðaðir. Pipar-
Leikfimi
Nú er að hefjast nýtt
námskeið í hinum
einstæðu þrek- og
leikfimitímum hjá
Rósu Ólafsdóttur
íþróttakennara á
vegum fimleika-
deildar Ármanns í
Breiðagerðisskóla.
Þeir sem hafa hug á
að bæta líkamlegt
ástand sitt hafi sam-
band í síma 46301
eftir kl. 19.
Útboð
Ólafsvíkurvegur,
Vegamót - Hofsstaðir
Vegagerð rikisins óskar eftir tilboðum í ofan-
greint verk. Lengd vegarkafla 2,5 km, fylling og
burðarlag 41.000 m3.
Verki skal lokið 25. júlí 1988.
Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerð ríkisins
í Borgarnesi og Reykjavík (aðalgjaldkera) frá J
og með 22. þ.m. Skila skal tilboðum á sömu
stöðum fyrir kl. 14.00 þann 5. október 1987.
Vegamálastjóri
Laus staða
Staða safnvarðar í Listasafni íslands er laus til umsókn-
ar. Umsækjendur skulu hafa lokið háskólaprófi í
listasögu.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og starfs-
reynslu skulu hafa borist menntamálaráðuneytinu fyrir
15. október næstkomandi.
Menntamálaráðuneytið, 17. september 1987.
^RARIKskrifsjofu-
RAFMAGNSVEITUR RÍKISINS IVIAtJUn
Rafmagnsveitur ríkins auglýsa laust til umsóknar starf
skrifstofumanns.
Starfið felst að mestu leyti í sendiferðum auk al-
mennra skrifstofustarfa. Bílprófs krafist. Laun eru
samkvæmt kjarasamningum BSRB og ríkisins.
Upplýsingar um starfið eru veittar hjá deildarstjóra
starfsmannahalds.
Rafmagnsveitur ríkisins,
Laugavegi 118,
105 Reykjavík
Nauðungaruppboð
Að kröfu innheimtumanns ríkissjóðs, ýmissa lögmanna og fl. verða eftirtald-
ir lausafjármunir og bifreiðar boðin upp og seld á opinberu nauðungaruppboði
sem fram fer mánudaginn 28. sept. næstkomandi og hefst kl. 14 við lög-
reglustöðina á Selfossi. Bifreiðarnan
X-170
X-1404
X-2222
X-2691
X-3126
X-3530
X-4124
X-4323
X-4641
X-5132
X-6094
X-7285
R-35701
L-1419
X-258 X-412 X-413
X-1408 X-1486 X-1489
X-2290 X-2351 X-2352
X-2719 X-2720 X-2780
X-3143 X-3248 X-3273
X-3559 X-3610 X-3715
X-4126 X-4196 X-4231
X-4345 X-4382 X-4434
X-4680 X-4711 X-4745
X-5163 X-5373 X-5386
X-6336 X-6408 X-6555
X-7594 R-11623 R-22012
R-38584 R-49479 R-51597
Y-12362 P-879 P-1354
X-648 X-1051 X-1103
X-2057 X-2086 X-2147
X-2353 X-2436 X-2529
X-2846 X-2943 X-3055
X-3294 X-3334 X-3396
X-3836 X-3932 X-4011
X-4241 X-4249 X-4276
X-4492 X-4524 X-4531
X-4787 X-4914 X-4939
X-5407 X-5668 X-5973
X-6582 X-6745 X-6971
R-26836 R-27673 R-33013
R-58528 R-61157 R-61580
P-2148 Ö-6298
Dráttarvélarnar:
Xd-2173, Xd-3836.
Tengivagnarnir: Xt-80, Xt-35
Vélhjólin: X-7010, R-73934.
Ennfremur 30 sjónvarpstaeki, 10 myndbandstæki, ýmis heimilistæki, hús-
gögn, myndavél, hljómflutningstæki, magnarar, plötuspilarar, hátalarar,
reiknivél, bókhaldsvél, ritsafn eftir Halldór Kiljan Laxness, bassagítar, veð-
skuldabréf, 70 myndbönd, sportbátur og utanborðmótor, 5 bátar með
utanborðsmótor og BMW bifreið, óskráð.
Uppboðshaldarinn i Ámessýslu og á Selfossi.