Dagblaðið Vísir - DV - 19.09.1987, Blaðsíða 21

Dagblaðið Vísir - DV - 19.09.1987, Blaðsíða 21
GOTT FÓLK / SiA LAUGARDAGUR 19. SEPTEMBER 1987. 21 2. Keflavík Jóm og Ari eru forsljórar, sem starfs síns vegna |>urfa að ferðast mikið. Mánudagsmorgun eiga [>eir mikilvæga ferð fyrir liöndum með viðkomu í Gautaborg, Kaupinannahöfn, Frankfurt og Osló. Fyrir lilviljun liggur leið |>eirra til sömu ákvörðunarstaða. 1 Gautaborg SOsló í Osló gistir Jón á SAS Scandinavia Hotei |>ar sem hann nýtur m.a. véiritunar- og telexþjónustu til að ganga frá sínum málum. Fimmtudaginn sinnir hann erindi sínu í Osló og síðdegis heldur hann heim til íslands ánægður eftir stulta og velheppnaða ferð. Ari kemur til Osló á föstudagskvöldi og getur |>ví ekki sinnt erindi sínu fyrr en daginn eftir. Seint á laugardegi fer hann lil Gautaborgar að skila bílaleigubílnum og ná flugi til Islands á bláa rexpexinum. En |>ar sem ekki er hægt að fljúga á rexpexinum frá Gautaborg á sunnudögum kemst Ari ekki heim fyrr en daginn eftir og þarf því að gista tvær aukanætur í Gautaborg. Ari er því 8 daga í feröinni, eða fjórum dögum lengur en Jón að ferðast sömu vegalengd. Eftir að liafa setið fund í Gautaborg flýgur Jón með SAS til Kaupmannahafnar. Jón ferðast með SAS því hann veit að þjónusta SAS flugfélagsins er sú besta sem völ er á fyrir hans líka. Fyrir venjulegt fargjald flýgur hann á Euro Class og nýtur afbragðs þjónustu. Honum er tryggt sæti að eigin ósk I* i. sérhluta vélarinnar þar sem sætin eru stór og þægileg og rými er mikið. Pá er Jóni boðið upp á girnilegar máltíðir og valin vín. Ari skipuleggur sína ferð sjálfur og kaupir bláan rexpex til Gautaborgar. Paðan ætlar hann að aka í bílaleigubíl til annarra ákvörðunarstaða. í góðri trú heldur Ari að hann sé að spara sér fé. Hann gistir í Gautaborg fyrstu nóttina og eftir að hafa lokið erindi sínu þar ekur hann til Kaupmannahafnar. 1 Kaupmannahöfn SAS útvegar Jóni far í eðalvagni frá Kastrup á SAS Royal Hotel þar sem hann gistir um nóttina. Morguninn eftir fer hann út á Kastrup til fundar við viðskiptavin sinn sem á leið um völlinn. Þeir hittast í Scanorama þjónustustöðunni sem eingöngu er fyrir SAS farþega. Þar er boðið upp á veitingar og aðgang að skrifstofu, fundar- herbergi, síma, telefax o.ll. Eftir stuttan og árangursríkan fund flýgur Jón til Frankfurt. Ari lendir í biðröð í ferjuna til Danmerkur og kemur því ekki til Kaupmannahafnar fyrr en síðla dags. Fyrir vikið missir hann af mikilvægum fundi. Hann gistir eina nótt í Kaupmannahöfn og morguninn eftir ekur hann til Frankfurt á ráðstefnu. í Frankfurt fer Jón á vörusýningu og nær hagstæðum samningum fyrir fyrirtæki sitt. Um nóttina gistir hann á hinu stórglæsilega SAS hóteli, Steigenberger Hotel Frankfurter Hof. Eftir velheppnaða dvöl í Frankfurt flýgur Jón með SAS til Osló. Ferð Ara til Frankfurt tekur lengri tíma en hann áætlar og hann kemur of seint á ráðstefnuna. Ari er slæptur eftir langa keyrslu og er því einn dag í viðbót í Frankfurt. Morguninn eftir heldur hann áleiðis til Osló. Enn einu sinni fer mestur tími Ara í þreytandi ferðir milli staða í stöðugu kapphlaupi við tímann. Ferðasaga fýrir þá sem vilja spara sér fyrirhöfn og reka erindi sitt á skömmum tíma. Góð skipulagning þeirra hjá SAS gerði það að verkum að ferð Jóns tók einungis fjóra daga. Fyrir ílugið greiddi hann 49.550 kr.* og allan tímann naut hann frábærrar þjónustu, sem gerði ferðina eins þægilega og hugsast getur. Flugið til og frá Gautaborg kostaði Ara 18.470 kr., bílaleigubíllinn í viku 19.250 kr. (með bensíni) og aukanætur á hóteli vegna tafa 16.000 kr., eða alls 53.720 kr. A þá eftir að reikna vinnutapið sem Ari varð fyrir á þessari löngú ferð. * innifalið er 2,5‘/o míluálag. Laugavegi 3 101 Reykjavík Símar 21199 og 22299 Það getur borgað sig að vera farþegi með SAS á Euro Class eins og þessi ferðasaga ber vitni um. Þjónusta SAS tekur mið af þeim, sem vilja stuttar og þægilegar viðskiptaferðir. Leitaðu upplýsinga um þjónustu SAS hjá ferðaskrifstofunni þinni eða hjá SAS skrifstofunni. Ef þú þarft að ferðast mikið starfs þíns vegna.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.