Dagblaðið Vísir - DV - 19.09.1987, Blaðsíða 32
32
LAUGARDAGUR 19. SEPTEMBER 1987.
Messur
Guðsþjónustur í Reykjavíkurpróf-
astsdæmi sunnudag 20. sept. 1987.
Árbæjarkirkja. Messa kl. 11. Sr. Guð-
mundur Örn Ragnarsson farprestur
annast guðsþjónustuna. Organleik-
ari Jón Mýrdal. Sr. Guðmundur
Þorsteinsson.
Áskirkja. Guðsþjónusta kl. 11. Sr.
Grímur Grímsson messar. Sóknar-
prestur.
Fyrirtæki
óskast!
Þarft þú að selja fyrir-
tæki?
Láttu okkur vita.
Fjársterkir kaupendur
eru tilbúnir en réttu
fyrirtækin vantar.
Varsla
Fyrirtækjasala, bókhalds-
þjónusta
Skipholti 5, símar 21277 og
622212
Breiðholtsprestakall. Guðsþjónusta í
Breiðholtsskóla kl. 11. Organisti
Daníel Jónasson. Sr. Gísli Jónasson.
Bústaðakirkja. Guðsþjónusta kl. 11.
Organleikari Jónas Þórir. Sr. Ólafur
Skúlasor.. Haustferð aldraðra verður
farin miðvikudag 23. sept. nk. og
verður lagt af stað frá kirkjunni kl.
14.
Dómkirkjan. Messa kl. 11. Drengja-
kór frá Grimsby syngur við messuna
ásamt Dómkórnum. Organleikari
Marteinn Hunger Friðriksson. Leik-
ið verður á orgel kirkjunnar í 20
mín. fyrir messuna. Sr. Hjalti Guð-
mundsson.
Elliheimilið Grund. Guðsþjónusta kl.
14. Sr. Stefán Snævarr prédikar. Fé-
lag fyrrv. sóknarpresta.
Fella- og Hólakirkja. Guðsþjónusta
kl. 14. Dómprófastur sr. Ólafur
Skúlason setur sr. Guðmund Karl
Ágústsson inn í embætti sóknar-
prests í Hólabrekkuprestakalli.
Organisti Guðný Margrét Magnús-
dóttir. Sr. Hreinn Hjartarson.
Fríkirkjan í Reykjavík. Barnamessa
kl. 11. Guðspjallið í myndum. Barna-
sálmar og smábamasöngvar. Af-
mælisbörn boðin sérstaklega
velkomin. Framhaldssaga. Við
píanóið Pavel Smid. Sr. Gunnar
Björnsson.
Grensáskirkja. Messa kl. 11. Altaris-
ganga. Organisti Árni Arinbjarnar-
son. Sr. Halldór S. Gröndal.
Hallgrímskirkja. Messa kl. 11. Sr.
Karl Sigurbjörnsson. Þriðjudagur:
Fyrirbænaguðsþjónusta kl. 10.30.
Beðið fyrir sjúkum.
I gærkvöldi varð mjög harður árekstur á gatnamótum Lönguhlíðar og Miklubrautar þar sem báðar bifreiðirnar
eru taldar ónýtar. Ökumenn beggja bílanna slösuðust við áreksturinn og voru fluttir á slysavarðstofu.
DV-mynd GVA
Hið íslenska
skylmingafélag
auglýsir:
Byrjendanámskeið í
ólympískum
skylmingum
með léttu lagsverði. Nám-
skeiðið er 2x100 minútur á
viku í 10 vikur. Upplýsingar
og skráning í íþróttahúsi Aust-
urbæjarskóla.
Mán. 21.9. kl. 21.20-23.00,
fimmtud. 24.9. kl. 20.30-22.10
eða í síma 26855 milli kl. 20
og 22 dagana 20., 22. og 23.
sept.
Einstakt
tækifæri
FJORHJOL
á gamla verðinu,
Polaris Cyclone,
hvit - létt - hraðskreið,
geysiskemmtileg ferðahjól.
POLARIS
umboðið
Sölumaður Hafsteinn Valsson
Skeifunni 9 - Reykjavik.
Simar 31615 og 31815.
Landspítalinn. Messa kl. 10. Sr.
Ragnar Fjalar Lárusson.
Háteigskirkja. Messa kl. 11. Sr. Arn-
grímur Jónsson.
Kópavogskirkja. Guðsþjónusta kl.
11. Sr. Árni Pálsson.
Langholtskirkja. Kirkja Guðbrands
biskups. Hátíðarguðsþjónusta í til-
efni vígsluafmælis kirkjunnar sem
var 16. sept. sl. og hefst hún kl. 14.
(Ath. vel breyttan messutíma.)
Drengjakór aðalkirkjunnar í Grims-
by syngur ásamt Kór Langholts-
kirkju. Prestur sr. Sigurður Haukur
Guðjónsson. Organisti Jón Stefáns-
son. I upphafi guðsþjónustunnar
ílytur form. sóknarnefndar, Ingimar
Einarsson, ávarp. Kl. 15.00 verður
svo fjáröflunarkaffi kvenfélags
kirkjunnar. Við væntum fjölmennis,
að fólk gleðjist yfir þessari einstæðu
kirkju sinni og að dagurinn verði
okkur öllum til gleði og sóma. Sókn-
amefndin.
Laugarneskirkja. Guðsþjónusta kl.
11. Altarisganga. Sóknarprestur.
Neskirkja. Messa kl. 11. Orgel- og
kórstjórn Reynir Jónasson. Guð-
mundur Óskar Ólafsson. Miðviku-
dagur: Fyrirbænamessa kl. 18.20.
Guðmundur Óskar Ólafsson.
Seljasókn. Guðsþjónusta í Öldusels-
skóla kl. 11. Sr. Gylfi Jónsson.
Seltjarnarneskirkja. Guðsþjónusta
kl. 11. Organisti Sighvatur Jónasson.
Prestur sr. Solveig Lára Guðmunds-
dóttir.
OLLUM
ALDRI
VANTARí
EFTIRTALIN
HVERFI
AFGREIÐSLA
Þverholti 11, sími 27022
Reykjávík
Meistaravelli
Laugarnesveg 77 - út
Sörlaskjól
Nesveg 21 - út
Kirkjuteig
Otrateig
Ránargötu
Bárugötu
#**#**#***#****###*#*#
Síðumúla
Suðurlandsbraut
14-16
Skólavörðustig
Óðinsgötu
Bjarnarstíg
Fríkirkjan í Hafnarfirði. Barnasam-
koma kl. 11. Guðsþjónusta kl. 14. Að
lokinni guðsþjónustu verður fundur
með væntanlegum fermingarbörnum
og fjölskyldum þeirra. Einar Eyjólfs-
son.
Eyrarbakkakirkja. Messa kl. 14.
Sóknarpestur.
Tillcyiiningar
Náttúruskoðunarferð
um Suðurnes
Á morgun, sunnudaginn 20. september,
stendur Náttúruverndarfélag Suðvestur-
lands fyrir ökuferð til kynningar á náttúru
Suðumesja. Farið verður frá Norræna
húsinu í Reykjavík kl. 9, frá Náttúrugripa-
safninu, Hverfisgötu 116 (gegnt Lögreglu-
stöðinni), kl. 9.10, frá Sjóminjasafni
fslands í Hafnarfirði kl. 9.20 og frá barna-
skólanum í Vogum kl. 10. Áætlað er að
koma aftur til Reykjavíkur um kl. 19.
Stansað verður á nokkrum stöðum til nátt-
úruskoðunar, að öðru leyti fer fræðslan
fram í bílnum. 1 þessari ferð gefst áhuga-
fólki einstakt tækifæri til að njóta góðrar
fræðslu um jarðfræði og lífriki Suður-
nesja. Eldstöðvar verða skoðaðar, farið
verður í fjöru, hugað verður að hvernig
gróðurinn býr sig undir veturinn og litið
verður eftir fuglum, svo eitthvað sé nefnt.
Leiðsögumenn verða Haukur Jóhannes-
son jarðfræðingur, Eyþór Einarsson
grasafræðingur og Erling Ólafsson dýra-
fræðingur. Sunnudaginn 11. október mun
Náttúruverndarfélag Suðvesturlands fara
mannvistarminja- og söguferð á sömu
slóðir og sunnudaginn 18. október verður
aftur farin ferð þar sem fjallað verður um
ýmis náttúruverndar- og umhverfismál á
Suðumesjum. Lagt verður af stað í báðar
ferðirnar kl. 9 frá Norræna húsinu.
Afmælishátíð Náttúrulækn-
ingafélags íslands
á heilsuhælinu í Hveragerði
Náttúmlækningafélag íslands heldur upp
á 50 ára afinæli sitt með hátíðardagskrá á
Heilsuhælinu í Hveragerði sunnudaginn
20. september nk. Eftir að hátíðadag-
skránni lýkur gefst áhugamönnum kostur
á að kynnast starfsemi Heilsuhælisins og
Náttúrulækningafélaganna frá kl. 16-18.
Upplýsingamiðstöð ferða-
mála á Islandi
Ingólfsstræti 5, sími 623045. Veittar eru
upplýsingar um ferðaþjónustu á íslandi.
Opið daglega kl. 8-20.
Ferðalög
Aldraðir í Bústaðasókn
Hin árlega haustferð aldraðra í Bústaða-
sókn verðurfarin miðvikudag 23. sept. nk.
Lagt verður af stað frá Bústaðakirkju kl.
14.
Fundir
Tapað - Fundið
Gullúr tapaðist
Seiko gullúr tapaðist þann 16. sept. sl. á
leiðinni frá Sölvhólsgötu 7 að Borgartúni
7. Finnandi vinsamlegast hafi samband í
síma 13731. Fundarlaun.
Tónleikar
Tónleikar UMN í Skálholti
Lokatónleikar tónlistarhátíðar ungs fólks
á Norðurlöndum verða í Skálholtskirkju
í dag, laugardag 19. sept., kl. 17. Þar munu
gestir hátíðarinnar, þeir Robert Aitken
flautuleikari og tónskáld frá Kanada og
György Geiger trompetleikari frá Ung-
verjalandi, koma fram. Robert Aitken
flytur verk eftir Lou Harrison, Heinz
Holliger, Þorkel Sigurbjömsson og sjálfan
sig. György Geiger og strengjasveit undir
stjórn Mark Reedman flytja konsert nr. 3
fyrir trompet og strengi eftir László
Dubrovay, ungverskt tónskáld sem er
einnig gestur hátíðarinnar. Tónlistarfólk
er eindregið hvatt til að mæta.
Gildran á Akranesi
Hljómsveitin Gildran heldur tónleika í
Bíóhöllinni á Akranesi í dag, 19. septemb-
er, og hefjast þeir kl. 21. Mun hljómsveitin
kynna efni af plötu sinni, sem kom út í
vor, ásamt öðru.
Myndlist
Stofnun félags ungra borgara
í dag, 19. september, er fyrirhugað að
stofna félag ungra borgara í Reykjavík.
Fundurinn verður haldinn í veitingahús-
inu Glæsjbæ og hefst kl. 14.30. Á fundinum
verða lög félagsins afgreidd og félaginu
kosin stjóm, jafnframt því sem alþingis-
mennimir Albert Guðmundsson, Guð-
mundur Ágústsson og Júlíus Sólnes flytja
ávörp. Þetta er fyrsta félag ungra borgara
sem stofnað er á landinu og verða á næstu
vikum og mánuðum stofnuð sams konar
félög um land allt. Ungir borgarar •'
Reykjavík á aldrinum 16-32 ára em eiu-
dregið hvattir til að mæta og taka þátt í
uppbyggingu félagsins og þá um leið Boi
araflokksins.
Myndlistarsýning
Jakob Jónsson sýnir olíumálverk í Ás-
mundarsal við Freyjugötu frá 19. sept. til
4. okt. Hann hóf myndlistarnám í Kaup-
mannahöfn 1965 við Ny Carlsberg Glypto-
tek og að því loknu stundaði hann nám
við Listaháskólann hjá próf. S. Hjort Ni-
elsen en þar lauk hann nárni árið 1971.
Hann hefur haldið þrjár einkasýningar: í
Bogasalnum 1976 og I listasafni ASI 1981
og 1984. Á sýningunni eru 27 verk. Sýning-
in er opin virka daga kl. 16-22 og um
helgar kl. 14-22.
Samband íslenskra
myndlistarmanna,
SÍM, minnir á myndlistarsýningu sína í
Garðastræti 6 en opið er aha u„g. frá kl.
14-19. Á sýning þe lar eru inyndverk
sem myndlistar nn hafa gefið til sam-
taka sinna ti. að ?tvrkja stöðu SfM.
Myndverkin se.'e: t öll á góðu verði.
Margir af okkar . nyndlistarmönnum
eiga verk á s;1 g . .li, þau eru m.a.
Hringur Jóhanne^s n Ragnheiður Jóns-
dóttir, Borghildur Óskarsdóttir, Ágúst
Petersen, Ása Ólafsdóttir, Jón Reykdal,
Jóhanna Bogadóttir, Guttormur Jónsson,
Björg Þorsteinsdóttir, Guðbergur Bergs-
son, Sigrún Guðjónsdóttir, Sigrún Eldjám,
Kolbrún Kjarval, Daði Guðbjömsson,
Guoný Magnúsdóttir, Jón Axel Bjömsson,
Ama: Herbertsson, Örn Þorsteinsson,
Sigui. n Jóhannsson og margir fleiri.