Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.1987, Blaðsíða 3
MÁNUDAGUR 5. OKTÓBER 1987.
3
p v_____________________________________________Fréttir
Mikil ölvun í miðborginni á föstudagskvöldið:
Rúður brotnar í bu verslunum
Mikil ölvun var í miöborg Reykja-
víkur á föstudagskvöldið og aöfara-
nótt laugardags. Þar voru komnir
saman unglingar og krakkar svo
þúsundum skipti og aö sögn lögregl-
unnar var mikill fyrirgangur í
krökkunum og fengu margar rúður
í verslunum aö fjúka.
Alls var tilkynnt um tíu rúðubrot
í miöbænum, neöst á Laugavegi og á
Skólavörðustíg. Til þess aö bijóta
rúðurnar voru notaðar flöskur,
steinar og önnur barefli auk þess sem
sumir notuðu fæturna og spörkuðu
inn rúðum.
Að sögn lögreglunnar var óvenju-
mikið fjölmenni í miðbænum, enda
gott veður, en krakkarhir virtust
vera yngri en oft áður, stór hluti
þeirra 13-15 ára. -ATA
Alvariegt umferðarslys í Kópavogi:
Hálsbrotín og lömuð
Alvarlegt umferðarslys varð á
Smiðjuvegi í Kópavogi aðfaranótt
sunnudagsins. Tveir bílar rákust sam-
an á töluverðum hraða og kona, sem
var farþegi í öðrum bílnum, hálsbrotn-
aði og hlaut fleiri alvarleg meiðsl.
Það var rétt fyrir klukkan fimm á
sunnudagsmorgun að fólksbíU ók eftir
Smiðjuvegi D og beint í veg fyrir litinn
sendiferðabíl. Sendiferðabíliinn valt
og kona, sem var farþegi í honum,
slasaðist alvarlega en aðrir sluppu við
meiðsli.
Konan var flutt á slysadeild og þar
kom í ljós að hún var hálsbrotin og
sködduð á hrygg og sem stendur löm-
uð á fótum og höndum.
Bílamir eru báðir mikið skemmdir.
-ATA
Brotist inn í úraverslun:
Stolið fýrir50-60 þúsund
Brotist var inn í úrsmíðavinnustofu
Axels Eiríkssonar í Bankastræti 12
aðfaranótt laugardagsins. Rúða var
brotin í versluninni og aiiir munir ar-
lægðir úr glugganum. Verðmæti
þýfisins er talið vera 50-60 þúsund
krónur.
Tilkynnt var um þjófnaðinn um
þijúieytið aðfaranótt laugardagsins.
Sagt var að rúða hefði verið brotin í
versluninni og við fyrstu sýn virtist
eingöngu vera um rúðubrot að ræða.
Við nánari athugun kom svo í ljós að
sýningarmunum hafði verið stolið úr
glugganum, aðaiiega úrum. Þjófurinn
hafði gengið svo faglega til verks að
þeir sem komu fyrstir á vettvang
héldu að gluggjnn hefði átt að vera
tómur. Er hið sanna upplýstist var
málið fengið í hendur Rannsóknarlög-
reglunni sem hefur það til meðferðar.
Þjófurinn er enn ófundinn og málið
óupplýst.
-ATA
Afgreiðsla og birgðastöð
OPNAR
í HÁDEGINU
sinpraAstálhf
BORGARTÚNI31, SiMAR 27222 & 21684
Meö nýjum árgerðum eykst
úrvalið at’hinum glæsilegu
Chevrolet Monza bílum,
og margar skemmtilegar
endurbætur
og nýjungar koma fram.
MONZA S/R
Nýr rennilegur og krattmiki11
5-gíra sportbíláLr
Hagstæðustu bílakaupin 1988eru í Chevrolet Monza.
Verð frá 492.000.
FYRSTU SENDINGAR VÆNTANLEGAR FLJÓTLEGA.
BILVANGUR SF
HÖFÐABAKKA 9 SÍMI 687BOO
:YÝ; :'TiJ:áðj'rráý-kálöú'h'áð i !•. •' Ój