Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.1987, Blaðsíða 15
MÁNUDAGUR 5. OKTÓBER 1987.
15
Lesendur
„Við hér á Suðurnesjum höfum átt
þann draum að fá varanlegt slitlag
á malaraxlirnar sem hafa reynst
aðalslysavaldurinn gegnum tíðina".
Reykjanesbrautin:
Nauðsyn á
takmörkunum á
þungaflutningum
Suðurnesjamaður hringdi:
Við Suðumesjabúar erum famir að
hafa verulegar áhyggjur af Reykjanes-
brautinni sem var byggð af Aðalverk-
tökum árið 1965 og hafði Guðmundur
Einarsson verkfr. yfirumsjón með
framkvæmdum.
Þá var áætlað að yfirlagið myndi
duga í 10 ár. Núna hins vegar, árið
1987, er Reykjanesbrautin, sú er byggð
var árið 1965, ekki einu sinni á vegaá-
ætlun!
Kafli Reykjanesbrautar, nýi kaflinn
svonefndi, er hins vegar á vegaáætlun
og þar var boðin út framkvæmd á
varanlegu slitlagi á braut sem opnuð
var í fyrra!
Við hér á Suðumesjum höfiim átt
þann draum að fá varanlegt shtlag á
malaraxlimar sem hafa reynst aðal
slysavaldurinn gegnum tíðina.
Við urðum mörg furðu lostin að
heyra viðtal við deildarverkfræðing
Vegagerðarinnar fyrir skömmu þar
sem hann fullyrti að ekkert ætti að
gera fyrir Reykjanesbrautina, sem þó
var byggð árið 1965.
Alla áherslu skal leggja á "nýju
brautina" en sú gamla vanrækt áfram
eins og raunin hefur verið sl. 20 ár.
Nú er gamla brautin komin niður í
hraun, t.d. og ekki síst vegna umferðar
þungaflutningabifreiða ásamt öðrum
umferðarþunga.
Þungaflutninga til og frá Suðumesj-
um verður að endurskipuleggja og
raunar ættu þeir að eiga sér stað sjó-
leiðis eins og málum er háttað á
Reykjanesbrautinni.
Tvær akbrautir, eins og Guðmundur
Einarsson vildi hafa, er skilyrði fyrir
því að þessi þjóðvegur geti talist boð-
legur fyrir þá umferö sem er á
Reykjanesbrautinni. Og það þótt ekki
væri nema til að uppfylla skilyrði al-
þjóðlegs staðals fyrir aöalbraut sem
m.a. liggur til og frá eina millilanda-
og alþjóðaflugvellinum í landinu.
Þetta mál ættu þingmenn okkar að
taka til umhugsunar - eða þá lögregl-
an, sem þekkir vandræðin og slysa-
hættuna, sem þama er. Krafa okkar
Suðumesjamanna er að tekið verði á
þessu máli hið allra fyrsta.
FERÐATOSKUR
EKTA LEÐUR
• Ekta leðursaumur
• Vel unnið
• Klassísk tískuvara
• Nuggat brúnar
• Glæsilegar og varan
legar
• Léttar, fyrirferðarlitl
ar en mjög rúmgóðar
Rúmgóð ferðataska, tvískipt, rennilás
allan hringinn. Stærð: ca 57x42x12 cm
Helgarferðataska með framhólfi m/
rennilás. Stærð: ca 47x28,5x12 cm
Axlartaska með hliðarhólfi. Stærð: ca
28x32x17 cm
Þarfaþing (snyrtitaska) fyrir persónu
lega hluti. Stærð: ca 24x16,5x10,5 cm
Símapantanir alla daga vikunnar kl. 9.00-22.00.
Póstverslunin Príma, box 63,222 Hafnarfirði.
S VISA S EUROCARD
17% me/rar bil á milli sœta
Við höfum fœkkað sæfum, fil þœginda fyrir farþega okkar.