Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.1987, Blaðsíða 29
MÁNUDAGUR 5. OKTÓBER 1987.
41
Ólyginn
sagði...
Woody Alien og Mia Farrow með Dillon litla, yngsta barn þeirra.
____________Sviðsljós
Allen verður pabbi
Nú fer að líða að því aö Mia Farrow
verði léttari en hún og Woody Allen
eru að eignast sitt fyrsta barn saman
og er þaö jafnframt fyrsta bam AU-
ens. Farrow átti 8 börn áður en hún
hitti Allen en þar af voru fimm þeirra ‘
ættleidd. Að sögn Miu vildi Allen
lengi vel ekki eignast böm, hefur
honum líklega þótt hávaðinn nægi-
legur í átta bömum. Henni tókst þó
að telja honum hughvarf og nú verð-
ur hann pabbi á 51. ári.
Þó að Woody sé ekkert afskaplega
hrifin af bleiustandi og öðra því sem
gerist í kringum kornaböm er hann
vist orðinn æði spenntur. Mia hefur
sagt að hann sé barngóður en þegar
honum ofhjóði barnastandið þá flýi
hann oftast til tengdamömmu
sinnar, þar njóti hann friðhelgi.
W HJÓLATJAKKAR
dönsk gæðavara, gott verð
Stgr. verð með söluskatti
F/1500 kgtjakk kr. 16.781.
ISELCO SF.
Skeifunni 11d, simi 686466.
Catherine
Deneuve
hefur að sögn kunnugra tekið
að sér að lækna ástarsorg
Johns Travolta sem enn syrg-
ir sína heittelskuðu Díönu
Hyland sem dó fyrir tíu árum.
Hyland var 18 árum eldri en
Travolta en Deneuve er 14
árum eldri en danskóngurinn
Travolta sem virðist kunna vel
við svona aldursmun.
John James
og félagar hans í Dynasty,
þeir John Forsythe og Gor-
don Thomas urðu heldur
betur hissa þegar þeir komu
aftur til starfa eftir sumarfrí.
Enginn af búningum félag-
anna passaði á þá! Eftir mikla
rannsókn kom í Ijós að hið
Ijúfa líf sumarfrísins hafði tek-
ið sinn toll því að þeir höfðu
fitnað meira en góðu hófi
gegnir. Voru þeir allir settir á
strangan megrunarkúr og
einnig í stífa líkamsrækt.
John McEnroe
hefur opnað veitingastað
ásamt sinni heittelskuðu Tat-
um O'Neal en þau eru nýbúin
að eignast sitt annað barn.
Með þessu fylgja þau skötu-
hjú fordæmi Dudleys Moore
og Lizu Minnelli sem hafa
hafið veitingarekstur. Það er
tennisfélagi McEnroe, llie
Nastase, sem ætlar að reka
staðinn með þeim en hingað
til hafa þeir félagar verið
þekktastir fyrir að láta henda
sér út af veitingastöðum. Nú
bíða menn bara spenntir eftir
því hvort þeim verður hent
út af eiginn stað...
tölvupreiitarar
L$
TölvuprentararfráSTARstyðjaþig í starfi. Þeireru
áreiðanlegir, hraðvirkirog með úrval vandaðra leturgerða.
STAR prentarar tengjast öllum IBM PC tölvum og öðrum
sambærilegum.
Leitin þarf ekki að verða lengri. Hjá Skrifstofuvélum hf. eigum
við ekki aðeins rétta prentarann, heldur einnig góð ráð. Nú er
tíminn til að fullkomna tölvuumhverfið með góðum prentara.
- STAR ER STERKUR LEIKUR.
•y.
Verð frá kr. 25.500,-
- og við bjóðum þér góð kjör.
SKRIFSTOFUVÉLAR H.F.
Hverfisgötu 33, sími: 62-37-37
Akureyri: Tölvutæki - Bókval
Kaupvangsstræti 4, sími: 26100