Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.1987, Blaðsíða 14
14
MÁNUDAGUR 5. OKTÓBER 1987.
Spumingin
Ætlarðu í vetrarfri?
Sæmundur Einar Valgarðsson: Ég
veit ekki, hef ekki ákveðið það end-
anlega hvort ég fer.
Margrét Blöndal: Búin að fara í sum-
arfrí, fer ekkert í vetur.
Stefán Friðbjarnarson: Nei, ég er að
koma frá útlöndum og fer ekki í vetr-
arfrí.
Kristján Davíðsson: Já, ég fer nefni-
lega ekki í sumarfrí, en í vetrarfrí,
fer ég þá stundum til Tenerife. í
fyrravetur fór ég hins vegar til
Chicago.
Guðmundur Magnússon: Fer ekki í
vetrarfrí en fer í nóvember í við-
skiptaferð til Sviþjóðar. Það er þó
ekki vetrarfrí.
-I
Magnús Lárusson: Nei, ég fer ekki í
vetrarfrí - tók heldur ekkert sum-
arfrí.
Lesendur
Bréfritara finnst að Olis eigi að ríða á vaðið með notkun greiðslukorta.
Greiðslukort:
Nú er lagf
Olís
S. Bjamason skrifar:
Hvemig sem reynt er að veija við-
skiptahætti þá sem tíðkast hjá olíufé-
lögunum varðandi það að taka ekki
við greiðslu með kreditkortum, þá
kemst það með engu móti inn í koliinn
á hinum almenna borgara að hann
eigi að sætta sig við það ástand.
Og þótt samstaöa hafi verið milli
olíufélaganna um að láta nú ekki und-
an þrábeiðni viðskiptavinanna, þá
hefur sú samstaða verið eins konar
þvingunaraðgerð sem fyrirtækin þijú
hafa ekki öll sætt sig jafh vel við.
Þannig hefur heyrst að Olís hafi vilj-
að rífa sig laust frá þessum þagnareið
og taka upp sölu bensíns gegn greiðslu
með kreditkortum. Þá hafi hin olíufé-
lögin tvö hótað Olís með efnahagsleg-
um gagnaðgeröum, ef félagið bryti
samkomulagið um aö neita greiöslu-
kortunum.
Hinir almennu viðskiptavinir bens-
ínstöðvanna myndu flykkjast til þess
olíufélags sem fyrst myndi taka upp
greiðslukortaviðskipti.
Og nú er lag hjá Olís að því er virðist.
Og kannski er meira en rétt lag fyrir
Olís einmitt nú þar sem maður heyrir
að hin olíufélögin tvö ætli nú að láta
sverfa til stáls gegn Olís með ýmsum
viðskiptaaðgerðum, eins og þeim sem
beitt er gegn félaginu á Keflavíkurflug-
velli í viðskiptastríöinu um sölu
eldsneytis til Flugleiða.
Ef svo er komið að Olís eigi tilveru-
rétt sinn að veija gagnvart yfirgangi
hinna olíufélaganna, þá liggur það
beinast fyrir að stíga nú skrefið til
fulls og leggja til lokaorrustu gegn
keppinautunum með því að bjóða við-
skiptamönnum upp á notkun greiðslu-
korta á bensínstöðvum sínum.
Með þeirri nýbreytni, sem auðvitað
yrði bylting í þjónustu bensínstöðva,
myndi Olís ekki aðeins afla sér
ómældrar viðskiptavildar, heldur fá
til sín obbann af af bensínsölu til bif-
reiðaeigenda.
Hver næsti leikur hinna olíufélag-
anna yrði er ekki gott að segja en vart
yrði þeim stætt á því að fylgja ekki í
kjölfarið.
En líklega eru fleiri Ijón á veginum
en olíufélögin. Bankamir eru lika í
ætt við einokunarstofnanir og vilja fá
dagsölu bensínstöðvanna til sín í
reiðufé samdægurs. En Olis á næsta
leik. Á því leikur enginn vafi.
Sterkur bjór er viðbót
, Þórólfur Beck hringdi: verða að virða helgustu stofnun þjóð-
Það er verkefiú valdamanna þjóðar- arinnar, - fyrsta þjóðþing þjóðar og
innar að hafa vit fyrir þegnunum. virða landslög og kerfi.
Sterkur bjór er hrein viðbót við Alþingi er: Sannleikurinn gerir okk-
drykkju landsmanna. Ráðamenn ur fijálsa.
Osmekkur Versl-
unarráðsins
J. Péturs skrifar:
Mér er til efs að nokkurs staðar sé
eins mikið um það og hér á landi aö
fólk, hvort sem um er að ræða einka-
aðila eða samtök manna, geti eða nýti
sér lýðræðið í botn með svipuðum
hætti.
Það er svo sem ágætt að sínu leyti.
Hins vegar finnst mér ganga út í öfgar
þegar menn eru í tíma og ótíma að
biðja um viðtal og sitja á biðstofúm
ráðherra okkar eða annarra forsvars-
manna, vegna ýmissa smámála, sem
snerta einkahagsmuni og eru oftast
vitaþýðingarlaus nema fyrir þann er
eftir leitar.
Styrkur til utanferðar vegna nám-
skeiðs, ráðstefnu, sýningar? Hvaða
tilgangi þjónar að veita fjármuni úr
ríkissjóði í þannig hluti?
Steininn tekur þó úr þegar heilu fé-
lagasamtökin eða fulltrúar þeirra
setjast að dyrum ráðherra til að
„leggja áherslu á“ eins og það er kall-
að, eitthvert gæluverkefnið - eða tíl
að biðja um undanþágu sem oftar er
nú erindið.
Það bar einmitt við nú á dögunum
að fulltrúi eins „ráðsins" átti bókaðan
tíma hjá fjármálaráðherra. Og hvert
var erindið? Jú, að afhenda hníf einn
mikinn sem átti að vera „tákn niður-
skurðar" hjá kerfinu.
Og einhvem veginn stóð svo á að
fréttamenn vora á staðnum svo að við
gátum fengið mynd af atburðinum
þegar ráðherra var afhentur hnifur-
inn.
Lengi hefur ekki heyrst um annan
eins ósmekk og þennan, er Verslunar-
ráð íslands sendi fiúltrúa sinn á fund
ráðherra með kutann og verður lengi
í minnum haft.
Þetta leiðir hugann að því hversu
lýðræðið hjá okkur er gengið út í öfgar
og getur leitt til athaftia sem ekkert
eiga skylt við almannaheill eða þjóð-
félagslegar umbætur. Uppákomur og
„show“ á borð við uppfærslu Verslun-
arráðsins er dæmigerður ósmekkur
og speglar ófullkomið eða öllu heldur
vanþroska lýðræði.
Pennavinir
Unnur skrifar: pr hpr nafn á hmolnim Nafh hans og heimilisfang
rnamú sem hefur mikinn áhuga á Powell
aö skrifast á viö íslendinga. Hann 1 Rose Hill,
er 63 ára og er í hjólastól eftír slag fyrir 14 árum. Hann safhar frimerk)- um og skrifar mjög skemmtileg bréf. Larkhall Bath, Avon BA 1 6S2, England.
Busavígsla er ettirminnilegasta frá fyrstu dögum menntaskólaáranna, seg-
ir Jóhanna.
Enn um busavígslur
Jóhanna hringdi:
Ég vil taka undir grein Helga í les-
endadálki DV hinn 28. sept. sl. þar sem
hann fjallar um busavígslur.
Ég er honum fyllilega sammála um
að busavígslur séu eitt það eftírminni-
legasta frá menntaskólaárunum.
Ég er sjálf í MS, sem hefur fengið
harða gagnrýni fyrir sínar busavígsl-
ur, og ég hafði mjög gaman af því að
vera „busuð“. Ég held að svo megi
segja um alla aðra er tóku þátt í þeirri
„busun“. !
Það er gaman að fá tilbreytingu einn
dag á fyrstu dögum skólaverunnar og
mér finnst að fólk ætti að spyija fyrst
áður en það rýkur í að gagnrýna það
sem það hefur ekki lent í sjálft
Hringið í síma 27022
milli kl. 13 og 15,
pAo clrrifí