Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.1987, Page 1
Xi/
Dansstaðir - Matsölustaðir - Leikhús - Sýningar - Kvikmyndahús - Myndbönd o. fl.
ABRACADABRA,
Laugavegi 116
Diskótek föstudags- og laugardagkvöld.
ÁRTÚN,
Vagnhöfða 11, sími 685090
Gömlu dansarnir á föstudagskvöld. Opið
kl. 21-3. Nýju og gömlu dansarnir laugar-
dagskvöld, opið kl. 22-3. Hljómsveitin
Danssporið ásamt söngkonunni Krist-
björgu Löve bæði kvöldin.
BROADWAY,
Álfabakka 8, Reykjavik, sími 77500
Sveitin milli sanda leikur fyrir dansi
föstudags- og laugardagskvöld. Stórsýn-
ingin „Allt vitlaust" á laugardagskvöld.
DUUS-HÚS,
Fischersundi, sími 14446
Diskótek á föstudags-, laugardags- og
sunnudagskvöldum. Opið frá 22 til 3. A
sunnudagskvöld verða jasstónleikar í
Heita pottinum.
EVRÓPA
v/Borgartún
Hljómsveit hússins, Saga Class, leikur
fyrir dansi föstudags- og laugardags-
kvöld. Húsið er opið frá kl. 22-3.
GLÆSIBÆR,
Álfheimum
Hljómsveit hússins leikur fyrir dansi
föstudags- og laugardagskvöld frá 22-3.
HOLLYWOOD,
Ármúla 5, Reykjavík
Tónlist 7. áratugarins verður á föstudags-
og laugardagskvöld með „Leitinni að
týndu kynslóðinni". Húsið opið 22-3.
HOLIDAYINN,
Sigtúni 38, Reykjavík
í hádeginu á sunnudag og eins um kvöld-
ið leikur söngkvartettinn Söngbandið létt
dægurlög í Lundi. 1 Háteigi skemmta Jón-
as Þórir og Hermann Ingi á sunnudags-
kvöld.
HÓTEL BORG,
Pósthússtræti 10, Reykjavík, sími 11440
Diskótek föstudags- og laugardagskvöld.
Gömlu dansarnir á sunnudagskvöld.
Hljómsveit Jóns Sigurðssonar leikur.
HÓTEL ESJA, SKÁLAFELL,
Suðurlandsbraut 2, Reykjavík, sími
82200
Dansleikir föstudags- og laugardags-
kvöld. Hljómsveitin Kaskó leikur. Tísku-
sýning öll fimmtudagskvöld.
HÓTELSAGA
v/Hagatorg, Reykjavík, sími 20221
. Hljómsveit Grétars örvarssonar leikur
fyrir dansi í Súlnasal Hótel Sögu föstu-
dags- og laugardagskvöld. Á laugardags-
kvöld verður tónlistarveisla ársins i
tilefni af tónlistardeginum.
Á Mímisbar leikur Stefán Jökulsson.
LENNON
v/Austurvöll, Reykjavík, sími 11630
Diskótek föstudags- og laugardagskvöld
MIAMI,
Skemmuvegi 34, Kópavogi, sími 74240
Diskótek föstudaga og laugardaga. Ald-
urstakmark 16 ár.
ÚTÓPÍA,
Suðurlandsbraut 26
Diskótek föstudags- og laugardagskvöld.
ÞÓRSCAFÉ,
Brautarholti 2, Reykjavik, simi 23333
Hljómsveit Stefáns P. leikur á efri hæð
hússins föstudags- og laugardagskvöld.
Lúdósextett og Stefán skemmta gestum
bæði kvöldin.
Sjallinn,
Akureyri
„Stjörnur Ingimars Eydal í 25 ár“ um
Fyrsti vetrardagur orðinn
íslenskur tónlistardaqur
Laugardaginn 24. október, sem
er. fyrsti vetrardagur, munu ýmis
samtök tónlistarmanna standa fyr-
ir íslenskum tónlistardegi. Stefnt
er að því að fyrsti vetrardagur
verði tileinkaður íslenskri tónlist á
hverju ári hér eftir. Á þessum ís-
lenska tónhstardegi mun margt
skemmtilegt gerast í tónlistarlíf-
inu, hvort sem um er að ræða
sígilda tóniist, popp eða rokk. í því
sambandi má fyrst nefna að flestar
útvarpsstöðvarnar munu aðeins
leika íslenska tónhst. Auk þess
mun dagskrá Stöðvar 2 taka mið
af tónlistardeginum og fjallað verð-
ur um hann.
íslenskar plötur verða seldar á
afsláttarverði í búðum.
Sinfóníuhljómsveit íslands lætur
ekki sitt eftir liggja á íslenskum
tónhstardegi. Kl. 12.30 á laugardag-
inn mun hljómsveitin halda
klukkustundarlanga tónleika fyrir
gesti og gangandi í Kringlunni.
Rokktónleikar verða í Reiðhöll-
inni í Víðidal. Þeir hefjast kl. 14.00
J J r
TÍ ) 1 J J . ~~
t) r r, i 1 f CJ r Ti r r \=r=n
V =*=f Y 1 1 r r=r=f=p t | ~ L#"1 1 1 1 1 | 1 1 r
^ La i- P . [> -n- m p ■ 1 t.. y* (/ •‘l A T|' | K i ••{ n
v ~ ^—1—1 * i' l4- J r ■ “ " 11
og munu standa eitthvað fram eftir
kvöldi. Þar munu margar stjörnur
troða upp. Meðal þeirra sem verða
á staðnum eru Valgeir Guðjónsson,
Bjartmar Guðlaugsson, Bjarni
Tryggvason, Hörðu1" Torfason,
Kvintett Rúnars Júlíussonar,
hljómsveitirnar EX og Tíbet tabú.
„Maraþon“söngur mun fara fram
í íslensku óperunni. Gamla bíó
mun verða opið hluta dagsins og
þar munu söngnemar koma fram
og syngja. Aögangur er ókeypis' og
fólk getur þvi kömið óháð því hvort
það vill hlusta í 10 mínútur eða
klukkutíma.
Tónlist mun líka óma á götum
úti í Reykjavík því ýmsar lúðra-
sveitir ætla að taka ’sig tU og
marsera um götur bæjarins.
Tveir tónlistarskólar í Reykjavík
verða opnir gestum á tónlistardag-
inn. Það eru Söngskólinn í Reykja-
vík, Hverfisgötu 45, og Tónmennta-
skóli Reykjavíkur, Lindargötu 51,
sem munu taka á móti gestum.
Þá verður Félagsheimili tónlist-
armanna opnað formlega þennan
dag og opið almenningi. Félags-
heimiUð er til húsa að Vitastíg 3, á
þriðju hæð. Öll félagasamtök tón-
listarmanna eiga b.Iut í félags-.
heimiUnu
Að lokum skal nefna kvöld-
skemmtun sem verður á Hótel
Sögu undir nafninu „Tónlistar-
veisla aldarinnar“. Þar verður
borinn fram kvöldverður auk þess
sem boðið er upp á skemmtiatriði
í tengslum við tónlistardaginn. Þar
ber hæst að Bjarni Arason mun
frumflytja popplag eftir Þorkel Sig-
urbjörnsson sem hingað til hefur
aðeins samiö sígilda tónlist. Lagið
samdi Þorkell við ljóð eftir Stein
Steinarr. Ýmsir aðrir tónlistar-
menn munu koma fram í Tónlistar-
veislu aldarinnar.
Dagur Sameinuðu þjóðanna:
Friðarbylgjan
nærtiiyands
Breski dúettinn Kukuyu.
Breski dúett-
innKukuyu
skemmír
í Þórscafé
Enskur dúett, sem kallar sig
Kukuyu, skemmtir í Þórscafé um
helgina. Dúettinn skipa þau Julie
Ann Sims frá Birmingham og Paul
David Heatly frá ShefField. Þau
hafa verið á hljómleikaferð um
Evrópu og er röðin nú komin að
íslandi. Dúettinn mun einnig
skemmta í Þórscafé að viku liðinni.
Dagur Sameinuðu þjóðanna er
næstkomandi laugardag. Þá ætla
ýmis friðarsamtök á Islandi að
minna á friðarhugsjón Sameinuðu
þjóðanna. Að beiðni þessara sam-
taka hefur kirkjuráð sent bréf til
allra prófasta þar sem mælst ér til
að kirkjuklukkum verði hringt í 5
mínútur kl. 12.00 á hádegi í hverju
prófastdæmi landsins. Þetta er lið-
ur í alþjóðlegri aðgerð, Friðarbylgj-
unni, sem hefst í Hírósíma og
Nagasakí og gengur í vesturátt yfir
hnöttinn og endar síðan þar sem
hún hófst.
Kl. 17.00 verður þagnarstund í 7
mínútur en slík þögn er á sama
tíma um allan heim. Þagnarstund-
in hefur verið haldin árlega víða
um heim frá árinu 1984 en þetta er
í fyrsta skipti sem ísland tekur
þátt í henni. Safnast verður saman
við Höfða kl. 16.45 og mun séra
Gunnar Kristjánsson, prestur að
Reynivöllum, ávarpa viðstadda.
Meðan á þögninni stendur munu
þátttakendur taka höndum saman
og mynda friðarmerkið framan við
Höfða. Allir sem þess eiga kost eru
hvattir til að koma en þeir sem
ekki geta komið því viö geta virt
þagnarstundina hvar sem þeir eru
staddir.
Þess má einnig geta að Lions-
menn hafa gefið bæjar- og sveitar-
stjórnum víða um land fána
Sameinuðu þjóðanna og verður
hann dreginn að húni á degi sam-
takanna.
Merki Sameinuðu þjóðanna.
Martin Daniel heldur fyrirlestur sinn
um kvikmyndagreiningu í Odda.
Pyrirlestur um
kvikmynda-
greúiinguíOdda
Martin Dániel, sem heldur um
þessar mundir námskeið í gerð
kvikmyndahandrita á vegum end-
urmenntunarnefndar Háskóla
íslands og Kvikmyndasjóðs ís-
lands, flytur á laugardag opinberan
fyrirlestur á vegum Félagsvísinda-
deildar Háskólans. Sýnd verður
hin sígilda mynd Johns Huston,
The African Queen. Martin mun
síðan greina myndina með tilliti til
uppbyggingar hennar, þ.e. hvernig
efnisþættir handritsins endur-
speglast í myndmáhnu.
Martin Daniel er Bandaríkjamað-
ur af tékkneskum uppruna sem
undanfarin ár hefur kennt gerð
kvikmyndahandrita við háskóla og
kvikmyndastofnanir bæði í Banda-
ríkjunum og Vestur-Evrópu.
Fyrirlesturinn er öllum opinn og
verður haldinn í stofu 101 í Odda,
húsi Félagsvísindastofnunar, kl.
14.00 til 17.00 á laugardaginn.