Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.1987, Qupperneq 3
FÖSTUDAGUR 23. OKTÓBER 1987.
21
Sjónvaip sunnudag kl. 18.00:
Stundinokkar
Fyrsta Stundin okkar á þessum vetri verður send út á sunnudaginn.
Þátturinn er hálítímalangur og er þar einungis sýnt innlent bamaefni
sem ætlað er yngstu börmmum. í fyrstu Stundinni eru m.a. þeir Hektor
og Lúlb kynntir. Farið verður í heimsókn til Gests sem býr í Bolungar-
vík og einnig verður farið í beijamó með tveimur kátum leikbrúðufélög-
um. Það eru þau Helga Steffensen og Andrés Guðmundsson sem eru
umsjónarmenn Stvmdarinnar okkar í vetur. Þátturinn er endursýndur á
fimmtudögum.
Andrés og Helga með félögum sinum.
Stöð 2 sunnudag
kl. 21.55:
Vísitölu-
fjölskyldan
Sem endranær kemur visitölu-
fjölskyldan á skjáinn á sunnudags-
kvöld. Efni þessa þáttar er á þá leið
að Steve og Marcy, sem eru ná-
grannar og kunningjar Bundy-
hjónanna, ákveða aö byggja
aukaherbergi við hús sitt. Þá kem-
ur upp ágreiningur um það hvemig
eigi að nýta herbergið og verður
Aðalpersónurnar í framhaldsþætt- áreiðanlega mikill handagangur í
inum um visitölufjölskylduna. öskjunni vegna þessa.
RÚV, rás 1, laugard. kl. 16.30:
Þrjár konur
Aðstandendur laugardagsleikrits Rikisútvarpsins. (Frá vinstri) Friðrik
Stefánsson, Þórunn Magnea Magnúsdóttir, Sigrún Edda Björnsdóttir,
Guðrún Gisladóttir og Árni Blandon.
Laugardagsleikrit Ríkisútvarpsins heitir Þrjár konur og er eftir bresku
skáldkonuna Sylvíu Plath. Leikritið segir frá þremur konum sem liggja
á fæðingardeild og bíða þess að verða léttari. Verkið lýsir á ljóðrænan
hátt tilfinningum þeirra gagnvart umhverfinu og því sem er að gerast í
lífi þeirra.
Konumar þijár leika þær Þórunn Magnea Magnúsdóttir, Guðrún Gísla-
dóttir og Sigrún Edda Björnsdóttir. Leikstjóri er Ami Blandon en hann
mun flytja formálsorð að leikritinu þar sem rakin er ævi höfundar og
lesin nokkur Ijóð eftir hana í þýðingu Hallbergs Hallmundarsonar. Tækni-
maður er Friðrik Stefánsson.
Guðbergur Bergsson rithöfundur.
Stöð 2 á sunnu-
dag kl. 22.50:
Guðbergur
Bergsson
í Nærmyndum
í þætti sínum Nærmyndum á
sunnudag ræðir Jón Óttar Ragn-
arsson við Guðberg Bergsson
rithöfund. Guðbergur hefur skrifað
margar vinsælar bækur, s.s. Tóm-
as Jónsson, metsölubók og Ástir
samlyndra hjóna. Hann vakti
mikla athygli á bókmenntahátíð-
inni sem hér var haldin vegna
skondinna og fremur harkalegra
ummæla sinna um hátíðina og
styrkti það þá skoðun sumra að
Guðbergur váeri skemmtilegasti
maður á íslandi.
Það er ótrúlegt að fyrir þúsundum
ára hafi óiðnvætt samfélag getað
reist mannvirki á borð við þessi.
Sjónvarp sunnu-
dag kl. 15.20:
Voru guðimir
geimfarar
- óvenjulegar kenningar
um uppruna mannsins
Erich von Dániken heitir maður
sem fæddist í Sviss árið 1935. Á sín-
um tíma setti hann fram nýstárleg-
ar kenningar um uppruna
mannsins sem byggjast á því að
mennirnir séu komnir af geim-
verum en ekki af öpum eins og
Charles Darwin hélt fram. í mynd-
inni er ferðast á milli heimsálfa og
reynt að færa sönnur á þessar
kenningar.
Erich von Dániken hefur skrifað
fjölda bóka þar sem kenningar
hans koma fram. Hann segir að
sumir forfeðra mannkynsins hafi
verið eins konar guðir þar sem
þeir hafi upphaílega komið af
himnum ofan og sýnt af sér ótrú-
lega hæfileika sem aðrir jarðarbú-
ar gátu ekki leikið eftir. Hann segir
þessar verur hafa verið gesti utan
úr geimnum sem komið hafi frá
samfélögum í órafjarlægð. Sam-
félögin voru miklu þróaðri en
jarðnesk samfélög og segir Erich
enga nema guðina hafa getað gert
mennina að þeim vitsmunaverum
sem þeir eru í dag. Máli sínu til
stuðnings bendir hann á fomminj-
ar um allan heim, s.s. í Indlandi,
Tíbet, Egyptalandi, Mexíkó og
Ástralíu.
Myndin er gerð af dr. Harald
Reinl og ferðaðist hann í eitt ár um
allan heim til að sýna fram á að
kenningar Erichs von Dániken
hefðu við rök að styðjast.
Stöð 2, laugardag, kl. 00.20:
Nýleg endurgerð
afHitchcockmynd
- Konan sem hvarf
Farþegarnir í hinni örlagaríku ferð.
Fyrri bíómynd Stöðvar 2 á laugardagskvöldið ber heitið Konan sem hvarf
og er nýleg endurgerð af samnefndri Hitchcockmynd. Sagan hefst í ágúst-
mánuði árið 1939 í smábæ í Bæjaralandi og er heimsstyrjöldin síðari
u.þ.b. að heíjast. Á bráutarstöðinni er hópur fólks að koma sér fyrir í
lest sem er á leið úr bænum. Meðal farþeganna eru ljósmyndari frá tíma-
ritinu Life, marggift bandarísk ljóska og fegurðardis, góðleg bresk
bamfóstra á miðjum aldri auk ýmissa ósköp venjulegra lestarfarþega.
Fljótlega eftir að lagt er af stað hverfur frk. Froy, bamfóstran, spor-
laust. Fegurðardísin bandaríska reynir að komast að því hvað orðið hefur
um konuna en fær mörg loðin og einkennileg svör.
Meðal leikara í myndinni em tvær leikkonur sem era tíðir gestir inni
á heimilum áhorfenda Stöðvar 2. Það era þær Angela Lansbury úr Morð-
gátu og Cybill Shepard úr Hasarleik.
Sjónvarp laugardag kl. 00.15:
Hundalíf
Paula Prentiss og Robert Foxworth leika skötuhjúin sem kynnast sem
samstarfsfélagar vió morðrannsókn en verða svo ástfangin.
Seinni laugardagsmynd sjónvarpsins er frá árinu 1980 og ber heitið
Hundalíf. Myndin segir frá lögreglumanni sem hefur starfað við morð-
rannsóknir í 20 ár og er orðinn mjög illa farinn vegna álags í starfinu.
Hann á við ýmiss konar vandamál að stríöa og hallar hann sér því held-
ur mikið að flöskunni. Það segir sína sögu um hvemig ástandið er að
síðasti samstarfsmaður hans framdi sjálfsmorð. En nýr vinnufélagi, sem
er kona, kemur í staðinn og breytir hún mörgu í lífi hins útbnmna lög-
reglumanns. Þau vinna vel saman en með tímanum skapast með þeim
vinátta. í miðri morðrannsókn vakna þau svo skyndilega upp við aö vera
orðin ástfangin og verða málin þá eilítið flókin.
Aðalhlutverk leika Robert Foxworth, Paula Prentiss, Harry Dean Stan-
ton og Barbara Babcock. Leikstjóri er Harold Becker.