Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.1987, Blaðsíða 6
28
FÖSTUDAGUR 23. OKTÓBER 1987.
Stjörnubíó
La Bamba
Ritchie Valen var ungur og efni-
legur söngvari þegar hann lést í
flugslysi 1958. Hann var aðeins
sautján ára. Saxnt hafði hann náð
á nokkrum mánuðum að eiga þrjú
vinsæl lög, meðal þeirra La Bamba,
lag sem er titill kvikmyndar um
ævi piltsins.
Fjallar myndin um stutta ævi
piltsins sem var af mexíkönsku
bergi brotinn.
Mynd þessi hefur vakið nokkra
athygli og hafa lög Ritchie Valen
öðlast líf í meöfórum hljómsveitar-
innar Los Lopos. í flugslysinu lést
einnig Buddy Holly sem var orðinn
eitt af skærustu goðum vestan hafs
og Big Bopper, fyrrverandi út-
varpsmaður er hafði gert eitt lag
vinsælt.
Aðalhlutverkið Valens leikur
Esai Morales, áður óþekktur leik-
ari. Leikstjóri og handritshöfundur
er Luis Valdes. La Bamba er ágæt-
is afþreying og þeir sem hafa
gaman af rokki eins og það var
spilað á síðari hluta sjötta áratug-
arins fá nóg af tónlist í La Bamba.
Nýtt leikrit eftir Guðmund Stemsson:
Brúdaimyndin
frumsýnd í Þjóðleikhúsinu
Brúðarmyndin, nýtt íslenskt
leikrit eftir Guðmund Steinsson,
verður frumsýnd á stóra sviði Þjóð-
leikhússins í kvöld, föstudags-
kvöld. Þetta er tíunda verk
höfundar sem sýnt er á fjölum ís-
lensks leikhúss. Það þykir jafnan
tíðindum sæta þegar Guðmundur
Steinsson lætur frá sér nýtt leikrit
en erlendis er hann er einn þekkt-
asti núlifandi leikritahöfundur
okkar íslendinga. Flestir þekkja
Stundarfrið, eitt þekktasta verk
hans, sem Þjóðleikhúsið frumsýndi
fyrir tæpum áratug. Stundarfriður
hefur verið þýddur yfir á tólf
tungumál og hefur veriö leikinn
víða um heim. Svo eitthvað sé nefnt
má geta þess að Þjóðleikhúsið
sýndi verkið í Danmörku, Finn-
landi og Svíþjóð og einnig í Júgó-
slavíu og Þýskalandi. Leikritið
hefur nú gengið í hálft ár í Varsjá
í Póllandi en m.a. hefur það verið
þýtt yfir á pólsku og frumsýningar
eru á döfinni í Bandaríkjunum og
París.
Sögusviðið
Sagan gerist inni á tiltölulega
venjulegu íslensku nútímaheimili.
Hins vegar telst óvenjuiegt að inni
á heimilinu er kvikmyndaleikstjóri
sem er að gera sjónvarpskvikmynd
um fjölskylduna. í upphafi leikrits-
ins eru hjónin að halda upp á 24
ára brúðkaupsafmæli sitt og allt
virðist leika í lyndi. Síðan fylgist
áhorfandinn með því hvaða áhrif
kvikmyndatakan hefur á heimilis-
lífið og samlíf hjónanna ásamt
þeim áhrifum sem kvikmyndaleik-
stjórinn verður sjálfur fyrir í starfi
sínu en abyrgö listamannsins er
einmitt kveikjan að verkinu hjá
Guðmundi.
Aðstandendur
sýningarinnar
Leikstjóri Brúðarmyndarinnar
er Stefán Baldursson, leikmyndar-
hönnuður Þórunn Sigríður Þor-
grímsdóttir, höfundur tónlistar
Gunnar Reynir Sveinsson og ljósa-
hönnuður Ásmundur Karlsson.
Þau stóðu einmitt öll að frumflutn-
ingi Stundarfriðar í Þjóðleikhúsinu
fyrir tæpum áratug.
Þau Kristbjörg Kjeld og Erlingur
Gíslason fara með hlutverk hjón-
Guðrún Gísladóttir í hlutverki kvikmyndaleikstjórans og Kristbjörg Kjeld
sem húsmóðirin á heimilinu.
anna sem eru miðdepill leiksins.
Herdís Þorvaldsdóttir og Róbert
Amfinnsson leika foreldra frúar-
innar. Guðný Ragnarsdóttir leikur
dótturina á heimilinu og nýútskrif-
aður leikari, Halidór Bjömsson,
leikur vin hennar. Guðrún Gísla-
dóttir leikur kvikmyndaleikstjór-
ann, Arnór Benónýsson aðstoðar-
mann hennar og Sigurður
Skúlason fer með hlutverk prests.
Frumsýningin verður í kvöld,
föstudag 23. október, kl. 20.00 en
næsta sýning verður á sunnudag.
KvikmyndaliLis - Kvikmyndahús
Kvikmyndahús
Bíóborgin
Nomimar frá Eastwick (The
Witches of Eastwick) er gaman-
mynd sem byggð er á þekktri og
meinfyndinni skáldsögu eftir John
Updike. Nomirnar eru þrjá konur
sem búa í smábænum Eastwick.
Þær kunna ofurlítið fyrir sér í
kukli og það nýta þær sér þegar
þær fara að þjást af karlmanns-
leysi. Jack Nicholson fer á kostum
í hlutverki þess sem nornimar
töfra til sín. Hlutverkið er eins og
sniðið fyrir hann og eiga þeir sem
hafa fylgst með honum auðvelt með
að þekkja í túlkun hans einstaka
persónur sem hann hefur áöur
túlkað meistaralega. Nornimar
leika þrjár þokkagyðjur, Cher, Sus-
an Sarandon og Michelle Pfeiffer.
Nomimar frá Eastwick er ágæt
skemmtun en skilur samt lítiö eftir.
Háskólabíó
Þá er hin einstaka lögga, Axel
Foley, aftur komin á kreik í Lögg-
unni í Beverly Hills II. Eins og í
fyrri myndinni gerast atburðimir
í hveríi ríkra í Los Angeles. Nú á
Axel Foley í höggi við alþjóðlegan
glæpaflokk og þrátt fyrir tilburði,
sem ekki em löggulegir, hefur hetj-
an okkar betur í viðureigmnni.
Meöleikarar Murphys eru þeir
sömu og í fyrri myndinni, að við-
bættri þokkadísinni Brigitte Niel-
sen, og sjálfur Eddie Murphy
svíkur engan sem á annað borð
hefur gaman af farsakenndum
gamanmyndum
Regnboginn
Nýjasta kvikmynd Woddys Ailen,
Á öldum ljósvakans (Radio Days),
hefur nú hafið göngu sína í Regn-
boganum. Myndin gerist á árdög-
um útvarpsins vestan hafs og segir
frá samskiptum venjulegs fólks við
útvarpsstjömumar. Þótt ekki þyki
Á öldum fjósvakans jafngóð og
Hanna og systur hennar er hér um
athyglisveröa mynd að ræða og
þeir sem hafa kynnst myndum
Woddys Allen vita að hann er van-
ur að koma mönnum á óvart. Af
ööram myndum í Regnboganum
er helst að nefna ævintýramynd-
imar Gullni drengurinn með Eddie
Murphy í aðalhlutverki og Super-
man IV þar sem Christopher Reeve
mætir aftur til leiks í hlutverki of-
urmennisins.
Bíóhöllin
Þá er vöðvafjallið Amold
Schwarzenegger mættur í öllu sínu
veldi í nýjustu mynd sinni, Rándýr-
inu (Predator). Söguþráðurinn er
ósköp venjulegur: Víkingasveit er
falið að bjarga nokkram mönnum
sem era í hættu í Suður-Ameríku.
Mest er að sjálfsögöu lagt upp úr
átakaatriðum og unnendur slíkra
mynda fá svo sannariega nokkuð
fyrir pening sinn. Bitastæðari
myndir eru franska myndin Bláa
Betty sem fjallar um unga stúlku
sem smátt og smátt hverfur í eigin
heim, Blátt flauel, þar sem sadisma
era gerð skil, og Ángel Heart, dul-
arfull og mögnuð sakamálamynd.
Laugarásbíó
Kvikmyndir Kens Russel hafa
ávallt verið umdeildar og svo er
einnig um nýjustu kvikmynd hans,
Særingar (Gothic), sem Laugarás-
bíó hefur tekið tú sýningar. Þar
etur hann saman þekktum persón-
um í mannkynssögunni, Byron,
Shelley og Mary Shelley. Myndin
gerist í veislu er Byron heldur og
að því er látið liggja að í þessari
veislu hafi Mary Shelley fengið
hugmyndina að frægustu söguper-
sónu sinni, Frankenstein. Þetta er
forvitnileg kvikmynd þótt ekki sé
meira sagt. Eins og viö er að búast
fer Ken Russel hamfóram með
kvikmyndavélina og era sumar
senur sérlega eftirminnilegar.-HK
Söfn - Söfn - Söfn - Söfn - Söfn - Söfn - Söfn - Söfn - Söfn - Söfn - Söfn - Söfn
Sýningar
Gallerí Borg,
Pósthússtræti 9
f Gallerí Borg, Austurstræti, hafa nú
verið hengd upp allmörg olíumálverk.
Flestar eru my ndirnar af minni gerðinni
og hanga þar undir samheitinu Hitt og
þetta og eru eftir ýmsa þekkta lista-
menn. Verkin eru öll til sölu og munu
hanga uppi fram i næstu viku. Opið er
irá kl. 10 á morgnana og eftir það á ai-
mennum opnunartíma verslana.
Gallerí Grjót,
Skólavörðustíg
Samsýning í tilefni 4 ára starfsafinælis
gallerísins stendur yfir. Á sýningunni eru
skúlptúrar, málverk og grafík. Þeir sem
að sýningunni standa eru Jónína Guðna-
dóttir, Magnús Tómasson, Ófeigur Bjöms-
son. Ragnheiður Jónsdóttir, Steinunn
Þórarinsdóttir, Þorbjörg Höskuldsdóttir
og örn Þorsteinsson. Sýningin er opin
virka daga frá kl. 12-18.
Gallerí Gangskör
Hanna Bjartmars Ámadóttir opnar á
morgun sýningu á verkum sínum í Gallerí
Gangskör. Sýningin verður opin daglega
kl. 12-18 og um helgar kl. 14-18.
Gallerí List,
Skipholti 50,
nýr sýningarsalur og listmunaverslun.
Sýning á handblásnu gleri frá Noregi,
Finnlandi og Bretlandi. Opið virka daga
kl. 10-18 og laugardaga kl. 10-12.
Gallerí íslensk list,
Vesturgötu 17
Síðasta sýningarhelgi á verkum Hafsteins
Austmann. Sýningin er opin í dag kl. 9-17
og um helgina kl. 14-18.
Gallerí Langbrók,
Bókhlöðustíg 2,
textílgallerí. Til sýnis vefnaður, tauþrykk,
myndverk, módelfatnaður og fleiri list-
munir. Opið þriðjudaga til föstudaga kl.
12-18 og laugardaga kl. 11-14.
Gallerí Svart á hvítu
v/Óðinstorg
Þar stendur yfir sýning ó verkum Georgs
Guðna. Þetta er önnur einkasýning Ge-
orgs Guðna. Á sýningunni eru verk unnin
á sl. tveimur árum, olíumálverk og teikn-
ingar. Sýningin stendur til 1. nóvember
og er opin alla daga nema mánudaga kl.
14-18.
Kjarvalsstaðir
við Miklatún
Um síðustu helgi opnaði Kristján Stein-
grímur sýningu í vestursal Kjarvalsstaða.
Á sýningunni em 40 verk, olíumálverk og
grafík, unnin á þremur sl. árum. Sýningin
stendur til 2. nóvember og er opin frá kl.
14-22 alla daga.
Listasafn Einars Jónssonar
við Njarðargötu
er opið alla laugardaga og sunnudaga kl.
13.30-16. Höggmyndagarðurinn er opinn
daglega frá kl. 11-17.
Listasafn Háskóla íslands
í Odda, nýja hugvísindahúsinu, er opið
daglega kl. 13.30-17. Þar em til sýnis 90
verk í eigu safhsins, aðallega eftir yngri
listamenn þjóðarinnar. Aðgangur að safn-
inu er ókeypis.
Myntsafn Seðlabanka og
Þjóðminjasafns,
Einholti 4
Opið á sunnudögum kl. 14-16.
Nýlistasafnið,
Vatnsstíg 3
Laugardaginn 24. október kl. 16 opnar Jón
Laxdal Halldórsson sýningu á pappírs-
myndum. Þetta er fyrsta einkasýning Jóns
í Reykjavík. Sýningin verður opin daglega
kl. 16-20 nema um helgar. Þá er opið kl.
14- 20. Sýningin stendur til 8. nóvember.
Norræna húsið
v/Hringbraut
Um helgina verður opnuð sýning á grafík-
verkum eftir Asger Jom.
Stofnun Árna Magnússonar
Handritasýning Áma Magnússonar er í
Árnagarði við Suðurgötu á þriðjudögum,
fimmtudögum og laugardögum kl. 14-16
til ágústloka.
Sjóminjasafn íslands,
Vesturgötu 8, Hafnarfirði
Opnunartími í vetur er laugardaga og
sunnudaga kl. 14-18. Skólafólk og hópar
geta pantað tima í síma 52502 alla daga
vikunnar.
Póst- og símaminjasafnið,
Austurgötu 11
Opið á sunnudögum og þriðjudögum kl.
15- 18. Aðgangur ókeypis.