Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.1987, Page 8
30
FÖSTUDAGUR 23. OKTÓBER 1987.
I Over The Top leikur Sylvester Stallone vörubílstjóra og heimsmeistara
í sjómanni.
Vörubflstjórim
Staflone
OVER THE TOP
Leikstjóri: Menehem Golan.
Aðalhlutverk: Sylvester Stallone, Robert
Loggia og David Menddenhall.
Útgefandi: Háskólabíó. - Sýnlngartimi:
91 mín.
Sylvester Stallone hefur gengiö
best í ofurmannahlutverkum á
borð við Rambo og Rocky. í Over
the Top kemst hann nokkuð ná-
lægt þessum persónum, þótt ekki
sé neitt vopnaglamur. I viðtölum
lét Stallone að því liggja að Over
the Top væri allt öðruvisi en síð-
ustu myndir hans, niðurstaða sem
erfitt er að koma auga á.
Því verður samt ekki neitað að
Over the Top hefði getað verið
öðruvísi en með að láta vörubíl-
stjórann Hawk verða heimsmeist-
ara í sjómanni erum við aftur
komnir með þá hetjudýrkun sem
einkennir hlutverk StaUones.
í byrjun kynnumst við Hawk á
gömlum vörubíl þar sem hann er
sækja son sinn sem hefur ekki séð
fóður sinn í mörg ár. Sonurinn er
í fyrstu ekki tUbúinn að taka föður
sinn í sátt en vegna tilmæla déyj-
andi móður fylgir Hawk honum tU
síns heima hjá afa drengsins er fyr-
irlítur Hawk.
Móðirin deyr og hefst mikU bar-
átta um forræði yfir drengnum.
Hawk, sem kann lítið annað en að
láta Hkamsburði ráða ferðinni,
endar í fangelsi og sleppur ekki
þaðan fyrr en hann er búinn að
undirrita að hann muni ekki gera
tilkaU til sonarins.
Leið hans liggur nú til Las Vegas
þar sem heimsmeistarakeppnin í
sjómanni fer fram. Sonurinn, sem
orðinn er hrifmn af fóður sínum,
eltir hann og afinn eltir barnabarn-
ið...
Hreint út sagt á það ekki við Syl-
vester Stallone að túlka mikinn
tilfmningahita. Framsögn hans á
texta hefur aldrei verið trúverðug-
ur og svo er ekki hér. Því verður
Over the Top blanda dramatískra
og líkamlegra átaka sem ekki geng-
ur upp. Skemmtanagildi myndar-
innar er sámt nokkurt og
aðdáendum sínum veldur Stallona
varla vonbrigðum.
HK.
Löggur á hlaupum
RUNNING SCARED
Útgefandi: JB myndbönd.
Leikstjóri: Peter Hyams. Handrit: Gary
Devore og Jimmy Houston. Aðalhlut-
verk: Gregory Hines og Billy Crystal.
Bandarisk 1986. 93 min. Bönnuð yngri
en 16 ára.
Amerískar löggumyndir lifa enn-
þá góðu lffi, það sannar þessi mynd
um þá kappa Danny og Ray. Þeir
eru fremur villtir þjónar réttvís-
innar í Chicago og þrátt fyrir ungan
aldur eigá þeir aðeins fjögur ár eft-
ir þar til þeir komast á eftirlaun.
Þá lenda þeir allt í einu í miklu
eiturlyíjamáli...
Götumyndir eru ávallt taldar góð
söluvara. Hér er teflt fram á sjónar-
sviðið tveimur frískum kjaftösk-
um, þeim Gregory Hines (White
Nights og Cotton Club) og Billy
Crystal (Löður). Samspil þeirra er
gert að miðpunkti myndarinnar og
þeir eru ágætlega skemmtilegir og
fá oft þokkalega brandara út úr
handritinu þótt klisjukenndir séu.
Samlíkingin við Eddy Murphy er
þó augljós. Þeir félagar eru ekki
mjög sannfærandi í hetjuhlutverki
en hröð átakaatriði eiga að bjarga
því. Sum eru ágæt, önnur ekki.
Eltingarleikurinn við aöalglæpon-
inn er þó alltof gloppóttur og
langdreginn. Spennan nær því ekki
tilskildu hámarki og myndin líður
út af í lokin.
-SMJ
Fonda á fyfliiii
THE MORNING AFTER
Útgefandi: JB myndbönd
Leikstjóri: Sidney Lumet. Framleiðandi:
Bruce Gilbert. Handrit: James Hicks.
Kvikmyndataka: Andrzej Bartkowiak.
Aðalhlutverk: Jane Fonda, Jeff Bridges
og Raul Julia.
Ðandarísk 1986. 105 mín.
Grúttimbruð vaknar Jane Fonda
upp með lík við hliðina á sér. Hún
veit ekki hvað hefur gerst en óttast
að hún hafi haldið á hnífnum þegar
maðurinn dó. Einhverjum virðist
vera í mun að skella skuldinni á
hana og enginn vill hjálpa nema
skrítin náungi (Jeff Bridges) sem
er ekki allur þar sem hann er séð-
ur. Það sama má segja um fyrrum
eiginmann hennar, Raul Juha.
Það er með ólíkindum hve langur
aðdragandi er í þessari drykkju-
mynd Jane Fonda. Því miður
reynist það líklega vera banabiti
myndarinnar enda plottið heldur
veikt þegar upp er staðið og varla
þess virði að bíða eftir þvi. Leikinn
er hins vegar ekki eins auðvelt að
afgreiða. Fonda er hér í sviðsljós-
inu og sópar vissulega að henni þó
að vel sé hægt að skilja þá sem
finnst nóg um hennar hlut í mynd-
inni. Það er eins og hún vilji koma
því á framfæri að hún geti leikið
drukkna kvensu út heila mynd.
Fonda verður hálfþreyttandi í ein-
hæfni sinni þó að því sé ekki hægt
að neita að persónuleika skortir
hana ekki. Bridges er hér til upp-
fyllingar og sama má segja um
Raul Julia.
Myndataka er fremur sljóvgandi
og gerir lítið til að skerpa myndina.
Sem sagt: ekki framtak hjá Lumet
og Co sem munað verður eftir.
-SMJ
Mísskfldar hetjur
THE A-TEAM - THE COURT MARTIAL
Leikstjórar: Tony Mordente, Les Sara-
don og Michael O’Herlihy.
Aðalhlutverk: George Peppard, Robert
Vaughn og Mr. T.
Útgefandi: Laugarásbíó - Sýningartimi:
131 mín.
The A Team er vinsæl sjón-
varpssería vestanhafs. Fjallar hún
um nokkra hermenn er féllu í ónáð
í Víetnamstríðinu og ævintýri
þeirra. The Court Martial er nokk-
uð löng kvikmynd og fjallar að
meginefni til um það þegar hópur-
inn er dreginn fyrir herrétt og
ákærður fyrir morð á yfirmanni
sínum í Víetnam.
Þrátt fyrir nokkuð spennandi
söguþráð eru stórar gloppur víðast
hvar og er lítill raunveruleiki að
baki handritsgerðinni.
Eins og með flestar sjónvarps-
myndir, er byggja á spennu, er
atburðarásin hröð en hér er lopinn
teygður of mikið, enda er myndin
á þriðja klukktíma. Samræmi er
lítið og rokið er úr einu í annað án
nokkurra skýringa.
Aðalhlutverkið er í höndum
George Pepperd sem á sjöunda ára-
tugnum þótti einhver efnilegasti
leikarinn í Hollywood en sukksamt
lífemi fór næstum með feril hans.
Hann fer létt með hlutverk foringj-
ans sem hefur ráð undir hverju
rffi. Aðrir leikarar eru lítt áber-
andi, að undanskildu vöðvafjallinu
Mr. T sem fer betur að láta vöðvana
tala fyrir sig en að opna munninn.
Sukksamur draugur
BLACKBEARD’S GHOST
Aðalhlutverk: Peter Ustinov, Dean Jon-
es og Suzanne Pleshette.
Útgefandi: Bergvik. - Sýningartími: 84
min.
Peter Ustinov á einstaklega auð-
velt með að fá fólk til að hlæja.
Hann þarf ekki annað en rétt að
hreyfa andlitsvöðvana til að bros
komi á áhorfendur. Og í ævintýra-
mynd á borð við Blackbeard’s
Ghost fer hann á kostum í hlut-
verki sjóræningja sem ekki hefur
fengið frið í gröf sinni og er vakinn
upp óvart af íþróttakennara nokkr-
um.
Aumingja íþróttakennaranum er
ekkert sérstaklega vel við þessa
sendingu að handan og sérstaklega
á hann erfitt með að skýra öðram
frá fyrirbærinu, því það er aðeins
hann sem sér sjóræningjann.
Sjóræninginn er drykkfelldur og
kvensamur og er ekki sáttur við
nútímann. Til að fá frið verður
hann að gera að minnsta kosti eitt
góðverk en það er hlutur sem hann
hefur aldrei gert áður...
Blackbeard’s Ghost er dæmigerð
gamanmynd frá Walt Disney og
sem slík er hún hin besta skemmt-
un og á Peter Ustinov nær allan
heiðurinn af skemmtuninni. Mynd
fyrir alla fjölskylduna.
HK
Mynd-
bönd
Umsjón:
Sigurður M.
Jónsson
Hilmar Karlsson
Stöðugleiki einkennir listann
öðru fremur nú og er það ekki
óeðlilegt miðað við þau miklu upp-
hlaup sem þar hafa verið að
undanfornu. Engar breytingar eru
á toppnum en tvær efstu myndirn-
ar skera sig dálítið úr. Stallone
skríður inn á listann með sjó-
mannsmynd sína. Það er greinilegt
að Stallone trekkir þótt umdeildur
sé._
Ýmsar forvitnilegar útgáfur eru
fram undan eins og vanalega. Eiga
sjálfsagt margir eftir að gleðjast
yfir endurútgáfu á James Bond
myndunum sem nú koma í sam-
stæðum pakka, alveg frá upphafi.
Einnig er forvitnileg útgáfa á
nokkrum myndum með Gary
Grant sem án efa kætir marga.
DV-LISTINN
1 (1) Krókódíla-Dundee
2 (2) Top Gun
3 (3) The Morning after
4 (5) Running Scared
5 (4) Big Trouble in Little
China
6 (6) Stand by Me
7 (9) Ruthless People
7 (3) The Mission
8 (-) Over the Top
9 (8) Legal Eagles
10 (-) Nothing in Common
★★