Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.1987, Page 6
28
FÖSTUDAGUR 27. NÓVEMBER 1987.
íslenska óperan:
Tvær óperur í burðarliðnum
- óperumar Don Giovanni og Búum til óperu frumfluttar eftir áramót
Æflngar eru hafnar á tveimur
óperum hjá íslensku óperunni. Það
eru óperurnar Don Giovanni eftir
Wolfgang Amadeus Mozart og
barnaóperan Búum til óperu eftir
Benjamin Britten.
Æfmgar á Don Giovanni standa
nú sem hæst. Hljómsveitarstjóri er
Anthony Hose en leikstjóri er Þór-
hilaur Þorleifsdóttir. Æfingastjór-
ar eru Catherine Williams og Peter
Locke. Una Collins sér um leik-
mynd og búninga.
Með helstu hlutverk fara Krist-
inn Sigmundsson, sem syngur
hlutverk sjálfs Giovannis, og Olöf
Kolbrún Harðardóttir, sem fer með
hlutverk Donnu Önnu. Með önnur
stór hlutverk fara Gunnar Guð-
björnsson, Bergþór Pálsson, Elín
Ósk Óskarsdóttir, Sigríður Grönd-
al og Viðar Gunnarsson. Auk
þeirra koma fram kór og hljóm-
sveit íslensku óperunnar.
Don Giovanni var fyrst sýnd í
ríkisóperunni í Prag áriö 1787. Hún
Frá uppfærslu Islensku óperunnar á Litla sótaranum eða Búum til óperu 1982.
er ein af vinsælustu og mest lofuðu
óperum fyrr og síðar enda er tón-
listin meistaraverk og gaman og
alvara í leiknum fléttast saman á
skemmtilegan hátt. Don Giovanni
verður frumsýnd í íslensku ópe-
runni 19. febrúar.
Þá er verið að undirbúa sýningar
á barnaóperunni Búum til óperu
eftir Benjamin Britten. Óperan hef-
ur einnig gengið undir nafninu Litli
sótarinn. Búum til óperu var sett
upp í íslensku óperunni 1982 og
hlaut þá mjög góðar viðtökur ungra
jafnt sem eldri áhorfenda.
Hljómsveitarstjóri sýningarinn-
ar verður Jón Stefánsson en leik-
stjóri Þórhildur Þorleifsdóttir. Með
helstu hlutverk fara Hrönn Haf-
liðadóttir, John Speight, Elísabet
Erlingsdóttir og Marta Halldórs-
dóttir. Auk þeirra tekur sýningar-
stjórinn, Guðný Helgadóttir, og 6
börn þátt í sýningunni.
Búum til óperu verður frumflutt
31. janúar.
Kvikmyndahús - Kvikmyndahús
Stjörnubió
Ritchie Valen var ungur og efni-
legur söngvari þegar hann lést í
flugslysi 1958. Hann var cðeins
sautján ára. Samt hafði honum tek-
ist á nokkrum mánuðum að eiga
þrjú vinsæl lög, meðal þeirra La
Bamba, lag sem er titill kvikmynd-
ar um ævi piltsins. Fjallar myndin
um stutta ævi hans en af mexí-
könsku bergi brotinn. Þá hefur
Stjörnubíó hafið sýningar á 84
Charing Cross Road sem fjallar um
samband rithöfundar og útgefanda,
samband sem fer að mestu fram
bréfleiðis. Það eru úrvalsleikaram-
ir Anne Bancroft og Anthony
Hopkins er leika aðalhlutverkin.
Bjóborgin
í aðalsal Bíóborgarinnar er nú
verið að sýna Gullstrætið (Streets
of Gold) með hinum ágæta leikara,
Klaus Maria Brandauer, í aðal-
hlutverki. Leikur hann innflytj-
enda sem flyst til Bandaríkjanna
og lífsbaráttu hans þar. Laganem-
inn (From the Hip) er um ungan
laganema, Robin Weathers, er tek-
ur að sér að verja Benoit sem
ákærður er fyrir morð. Þetta er
gamanmynd með alvarlegu ívafi
og gerist að nokkru leyti í réttar-
sal. Þá er óhætt að mæla með
Nomunum frá Eastwick (The Witc-
hes of Eastwick) þar sem Jack
Nicholson fer á kostum í hlutverki
sjálfs kölska sem þrjár ungar og
fallegar galdrakonur særa til sín.
Laugarásbíó
Furðusögur (Amazing Stories)
eru þrjár stuttar kvikmyndir sem
allar eiga þaö sameiginlegt að fjalla
um dularfulla atburði. Yfirumsjón
með myndum þessum hefur sjálfur
Steven Spielberg og leikstýrir hann
fyrsta hlutanum, Ferðinni. Annar
hlutinn nefnist Múmíufaðir og er
leikstýrður af William Dear. Þriðja
hlutanum, Höfði bekkjarins, leik-
stýrir Robert Zemckis sem á á baki
Aftur til framtíðar. Af öðrum
myndum Laugarásbíós er vert að
nefna Undir fargi laganna, eftir-
tektarverða mynd er sýnd var á
kvikmyndahátíð.
Bíóhöllin
Hin magnaða mynd Stanleys
Kubrick, Skothylkið (Full Metal
Jacket), fjallar um unga drengi sem
kallaðir eru í herinn þegar Víet-
namstríðið stóð yfir, þjálfun þeirra,
sem lýst er á eftirminnilegan hátt
í upphafsatriði, og svo reynslu
þeirra á vígvellinum sjálfum. í
heild er Skothylkið vel gerð drama-
tísk kvikmynd. í aöalsal Bíóhallar-
innar er sýnd í kapp við tímann
Háskólabíó
Hinir vammlausu
Hinir vammlausu (The Untouch-
ables) virðist ætla að fá jafngóðar
viðtökur hérlendis sem annars
staðar og eru flestir sammála um
að Brian de Palma hafi ekki gert
betri mynd.
Eins og flestum er kunnugt fjallar
myndin Hinir vammlausu um um
hóp lögreglumanna undir forystu
Elliot Nes. Þeir berjast gegn glæpa-
mönnum í Chicago á bannárunum
og þá sérstaklega við hinn alræmda
A1 Capone. Gerist myndin 1931.
Spillingin er mikil og ekki þá síst
innan lögreglunnar en hópur Elli-
ott Ness lætur ekki múta sér og
hefur sigur í lokin.
Elliot Ness er engin skáldsagna-
persóna. Hann var til en hfði ekki
alla þá frægð sem honum hlotnað-
ist - fyrst í bók um hann og síðar
í vinsælum sjónvarpsþáttum er
gerðir voru eftir bókinni og er nú
verið að sýna á Stöð 2.
Það er Kevin Kostner er leikur
Ness. Hann er ekki mjög þekktur
leikari en þó munu margir minnast
hans í vestranum Silverado. Með-
leikarar hans eru ekki af verri
endanum. Robert de Niro leikur
A1 Capone og Sean Connery leikur
Jimmy Malone, reyndan lögreglu-
mann er gerist lærifaðir Elliot
Ness. Það er óhætt að lofa þeim
góðri skemmtun er skreppa í Há-
skólabíó um helgina. -HK
Kvikmyndahús
(Hot Pursuit) sem er gamansöm
ævintýramynd. Fjallar hún um
nútímaunglinga og þá sérstaklega
einn sem er á leið til Karíbahafsins
strax og prófum lýkur. Af öðrum
myndum má nefna Blátt flauel
(Blue Velvet), umdeilda en sterka
kvikmynd er lætur engan ósnort-
inn og gamanmyndina Seinheppnir
sölumenn (Tin Man) sem svo sann-
arlega stendur undir heitinu
gamanmynd.
Regnboginn
Bandaríkjamenn eru iðnir við að
gera táningamyndir sem eiga að
gerast á sjöunda áratugnum fyrir
daga Víetnamstríðsins. Sú síðasta
í röðinni er í djörfum dansi (Dirty
Dancing) sem notið hefur tölu-
verðra vinsælda vestanhafs að
undanfómu. Efni myndarinnar er
í þynnra lagi en lífleg tónhst ásamt
dansinum lyftir myndinni nokkuð
upp. Þá er óhætt að benda á nýj-
ustu kvikmynd Woody Allen,
Útvarpsdaga (Radio Days), sem er
skemmtileg kvikmynd um árdaga
útvarpsins. Regnboginn hefur tek-
iö til sýningar Skytturnar sem
alltof fáir sáu fyrr á árinu og hvet
ég alla til að sjá mynd Friðriks
Þórs Friðrikssonar en hún hefur
vakið hrifningu þar sem hún hefur >
verið sýnd. -HK
Söfn - Söfn - Söfn - Söfn - Söfn - Söfn - Söfn - Söfn - Söfn - Söfn - Söfn - Söfn
Sýningar
Gallerí Langbrók,
Bókhlöðustíg 2,
textílgallerí. Opið þriðjudaga til föstudaga
kl. 12-18 og laugardaga kl. 11-14.
Kjarvalsstaðir
við Miklatún
Haukur Clausen byrjar með sýningu á
olíumálverkum, mest landslagsmyndum,
um helgina. Sýningin stendur til 13. des-
ember. Sýningin er í vestursal. Eggert
Magnússon byrjar einig með sýningu nú
um helgina. Stendur til 14. desember.
Listasafn Einars Jónssonar
við Njarðargötu
er opið alla laugardaga og sunnudaga kl.
13.30-16. Höggmyndagarðurinn er opinn
daglega frá kl. 11-17.
Listasafn Háskóla íslands
'í Odda, nýja hugvísindahúsinu, er opið
daglega kl. 13.30-17. Þar eru til sýnis 90
verk í eigu safnsins, aðallega eftir yngri
listamenn þjóðarinnar. Aðgangur að safn-
inu er ókeypis.
Mokka,
Skólavörðustíg
Gunnar I. Guðjónsson sýnir vatnslita-
myndir, málaðar í Svíþjóð. Mokka er opið
daglega kl. 9-23.30.
Myntsafn Seðlabanka og
Þjóðminjasafns,
Einholti 4
Opið á sunnudögum kl. 14-16.
Norræna húsið
v/Hringbraut
Nú stendur yfir sýning í Norræna húsinu
á 80 grafíkmyndum eftir 12 listamenn.
Sýningin er hingað komin á vegum „graf-
iska sállskapet" sem er félag grafíklista-
manna þar í landi og er það elsta hreina
grafíkfélag í heiminum. Sýningin verður
opin daglega kl. 14-19 fram til 15. desemb-
er.
Nýlistasafnið
v/Vatnsstíg
Grétar Reynisson og Þórunn S. Þorgríms-
dóttir sýna verk sín. Sýningin stendur til
29. nóvember.
Stofnun Árna Magnússonar
Handritasýning Árna Magnússonar er í
Árnagarði við Suðurgötu á þriðjudögum,
fimmtudögum og laugardögum kl. 14-16
Sjóminjasafn íslands,
Vesturgötu 8, Hafnarfirði
Opnunartími í vetur er laugardaga og
sunnudaga kl. 14 18. Skólafólk og hópar
geta pantað tíma í síma 52502 alla daga
vikunnar.
Póst- og símaminjasafnið,
Austurgötu 11
Opið. á sunnudögum og þriðjudögum kl.
15-18. Aðgangur ókeypis.
Sýning í Landsbókasafni ís-
lands
Landsbókasafn efnir til sýningar i minn-
ingu tveggja ald-i afmælis RasmusarRasks
og er þar lögö aðaláhersla á þann þátt
ævi hans o' verka er snýr að Islandi og
íslenskum fræðum. Sýningin verður opnuð
23. nóvember og mun standa til áramóta
á opnunartíma safnsins, mánudaga til
föstudaga kl. 9-19 og laugardaga kl. 9-12.
Listsýning frá Hvíta-Rússlandi
I húsakynnum MÍR, Vatnsstíg 10, stendur
nú yfir sýning á myndlist og listmunum
frá Sovétlýðveldinu Hvíta-Rússlandi. Á
sýningunni eru 73 grafíkmyndir, nær 200
munir úr tré og basti auk vefnaðar, 40
myndir eftir börn og um 100 bækur og
bæklingar. Sýningin er opin virka daga
kl. 17-18.30 og um helgar kl. 14-18. Að-
gangur er ókeypis.
Myndlistarsýning í
Mosfellsbæ
Nú stendur yfír í héraðsbókasafni Kjósar-
sýslu sýning á verkum Kristínar Magnús-
dóttur. Þetta er fyrsta einkasýning hennar
en hún hefur tekið þátt í samsýningum.
Bókasafnið er opið virka daga kl. 13 20
og stendur sýningin út nóvember.
Sýning i Gerðubergi
Sunnudaginn 15. nóv sl. opnaði Ásta Erl-
ingsdóttir grasalæknir sýningu á um 40
vatnslitamyndum. Flesta liti, sem Ásta
notar, hefur hún sjálf blandað úr íslensk-
um jurtum. Sýningin er opin kl. 13 22 frá
mánudegi til fimmtudags og frá kl. 13-18
frá föstudegi til sunnudags. Myndirnar á
sýningunni eru til sölu og er aðgangur að
henni ókeypis. Sýningin stendur til sunnu-
dags 6. desember.
Listkynning Alþýðubankans á
Akureyri
Menningarsamtök Norðlendinga og Al-
þýðubankinn hf. kynna að þessu sinni
listakonuna Soffíu Árnadóttur. Á list-
kynningunni eru 6 verk, 5 unnin með
blýanti og bleki á pappír og 1 dúkrista.
Sýningin stendur til 28. desember.