Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.1987, Qupperneq 2
2
MÁNUDAGUR 7. DESEMBER 1987.
Fréttir
Bretar komnir til íslands til viðræðna um orkukaup um sæstreng:
Orkufrekur iðnaður
hérlendis hentugri
- segir Friðrik Sophusson iðnaðarráðherra
Fulltrúar North Venture á Hótel Holti i gær. Þeir heita: George Pritchard,
Mike Heath og Graham Searle. DV-mynd GVA
„Það er án efa mun hentugra að nota
orkuna til orkufreks iðnaöar hér á
landi,“ sagði Friðrik Sophusson iðn-
aðarráðherra á Alþingi fyrir helgi er
hann svaraði i'yrirspurn Jóns Kristj-
ánssonar, þingmanns Framsóknar-
flokksins, um möguleika á orkusölu
til útlanda.
Þrír fulltrúar frá breska fyrirtæk-
inu North Venture komu til landsins
um helgina til viðræðna við íslenska
aðila um raforkuútflutning um sæ-
streng til Skotlands. Fyrsta fundinn
hófu þeir við fulltrúa Landsvirkjun-
ar klukkan 9 í morgun.
Bretarnir dvelja hér á landi til
fostudags. Þeir hitta iðnaðarráð-
herra á miðvikudag. Þeir munu
einnig ræöa við fulltrúa Orkustofn-
unar, Hafrannsóknarstofnunar og
Náttúruverndarráðs, að sögn Hall-
dórs Jónatanssonar, forstjóra
Landsvirkjunar.
Fariö verður með þá í nokkrar
skoöunarferð’ir, að Búrfellsvirkjun
og um Þjórsársvæðið, að Blöndu-
virkjun og Svartsengi.
„Full ástæða er til aö ræða við fyr-
irtækiö, þótt varla sé við því að búast
að niðurstaða fáist á næstunni. Um-
ræður í fjölmiðlum eru af hinu góða
og geta vakið athygli á orkulindum
landsins og möguleikum til að nýta
þær til gjaldeyrisöilunar,“ sagði
Friðrik Sophusson iðnaðarráðherra.
Hann kvaöst telja að íslensk raf-
orka tæki vart land á Bretlandi fyrr
en undir aldamót, jafnvel þótt ráða-
gerðum í þá átt gengi allt í haginn.
Ekkert hefði komið fram sem benti
til annars en að raforka frá íslandi
gæti oröið raunhæfur valkostur á
Bretlandi hvað orkuverð snerti, þótt
enn þyrfti margt að skoða betur.
Kostnaður við byggingu virkjana
með alls um 500 megavatta aflgetu
og lagningu sæstrengs til Skotlands
um Færeyjar væri áætlaður um 52
milljarðar króna. Hér væri því um
mjög kostnaðarsamar framkvæmdir
að ræða, sem krefðust flókinna
samninga. Þess væri ekki að vænta
að framkvæmdum lyki fyrr en í
fyrsta lagi fimm til tíu árum eftir að
endanleg ákvörðun yrði tekin í fram-
haldi af tímafrekum samningum og
nauðsynlegri fjáröflun erlendis.
-KMU
Átak gegn hávaða:
Uss-uss
Á sunnudag var stofnfundur
áhugamannafélags sem berst gegn
óþarfahávaða. Fundurinn fór fram á
Hótel Borg og hófst klukkan 14. Voru
þar samþykktar reglur félagsins.
Félagsskapurinn heitir Átak gegn
hávaða, og félagsmenn hyggjast beij-
ast gegn öllum óþarfa- og heilsuspill-
andi hávaða á almannafæri. Þá
hyggst félagið stuðla aö rétti manna
til að þurfa ekki að hlýða á útvarp
og hljómtæki á þeim stöðum þar sem
slíkt á ekki við.
Fundurinn á Borginni var vel sótt-
ur og mættu þar menn á öllum aldri
og úr öllum stigum þjóðfélagsins sem
eiga þetta sameiginlega baráttumál.
ÍS
Stofnfundur áhugamanna um Átak gegn hávaða fór fram I Gyllta salnum á Hótel Borg.
Paul Watson, leiðtogi Sea Shepard, sennilega til íslands í
Spellvirkjar
Ólafur Amaison, DV, Washingtan:
í samtali viö DV fyrir helgi viöur-
kenndi Paul Watson, leiötogi Sea
Shepherd samtakanna, að hafa
veriö persónulega ábyrgur fyrir
skemmdarverkunum sem framin
voru á eigum Hvals hf. í nóvember
á síðasta án. Blaðamaöur DV tók
viðtalið upp og er því þessi viður-
kenning til á spólu.
Watson sagði ennfremur í sam-
talinu að í athugun væri að
mennimir tveir, sem spellvirkin
frömdu, færu til íslands í kjölfar
heimsóknar sinnar og sættu
ábyrgð fyrir verk sín.
Watson sagðist sennilega verða
einn á ferð á Islandi í janúar og það
sem fyrir honum vekti væri að tala
opinberlega á íslandi um hvalveið-
ar fslendinga. Hann sagöist hafa
skrifað forseta íslands bréf og
kvaðst treysta því að forsetinn
kæmi því áfram til ríkisstjómar-
innar. „Nú er liðið ár og ég hef
ekki heyrt um neinar ákærur á
okkur frá íslandi og veit ekki til
þess aö beðiö liafi veriö um fram-
sal. Fyrir ári kallaöi íslenska
ríkisstjómin okkur samt hryðju-
verkamenn. Ég er með því aö koma
til íslands aö gefa íslensku ríkis-
sljóminni færi á að sækja mig 01
saka og tek þannig ábyrgð á okkar
verkum," sagði Paul Watson.
Blaöamaður spuröi hann þá
hvers vegna hann tæki ekki raeð
sér tvímenningina sem fröradu
spellvirkin. „Það er vegna þess að
þetta var á mína ábyrgö. Ég er
stjórnandinn,“ sagði Watson.
- Þú gafst skipun um þetta?
„Já.“
Watson sagði það ekki skipta
máli hvort hann yrði sóttur til saka
á íslandi Hann sagði hins vegar
að ef svo yrði ekki þá yrðu ómerk-
ar ásakanimar um hryöjuverk.
Watson sagöi ennfremur að ef hann
yröi handtekinn myndu samtökin
nota þaö til að auglýsa aö ísland
stæði í hvaladrápi.
Aðspurður sagði Watson að sam-
tökin hygöust halda áfram baráttu
sinni gegn hvalveiöum íslendinga
af fullum krafti en ekki væri von á
svipuðum aögerðum og í nóvember
á síðasta ári.
Aöspurður hvort hann liti enn á
Sea Shepherd samtökin sem eins
konar alþjóðalögreglu i hvalveiöi-
málum sagöi Watson samtökin
vera fulltrúa fyrir hvalina og hlut-
verk þeirra gagnvart skjólstæðing-
um sínum væri að þjóna þeim og
vemda þá.
Watson sagöi að skip Sea Shep-
herd samtakanna myndu ekki
verða á íslandsmiöum næsta sum-
ar. Búið væri að binda þau í
verkefni á Kyrrahafi.
Þegar Watson var spurður
hvemig hann myndi bregðast viö
ef einhver ósammála honum tæki
sig til og brenndi niður hús hans
sagðist hann ekki eiga hús. Hann
sagði að allar eignir sem til væru
í Norður-Ameríku í dag væra illa
fengnar vegna þess að iandinu
hefði í upphafi verið stolið af frum-
byggjum.
Watson sagði aöspurður að hann
hefði aldrei haft í hyggju aö kæra
íslensk stjómvöld fýrir meiöyrði
vegna ásakana þeirra um að Sea
Shepherd samtökin væru hryðju-
verkasamtök. Sagðist hann telja
sllka málshöföun út í hött
Paul Watson lagði mikla áhersiu
á að Sea Shepherd samtökin tækju
ávallt ábyrgð á verkum sínum og
sættu afleiðingum gjöröa sinna.
Sagði hann margoft að hann bæri
algjöra ábyrgö á verkum sinna
manna á íslandi i fyrra. Á einum
stað hijóðaöi samtaliö svo:
- Svo aö þú sendir þessa menn til
ísiands?
„Já.“
- Þú sást inn fjármögnun fyrir þá?
„Já.“
- Þú sagðir þeim nákvæmlega að
sökkva eins mörgum hvalbátum
eins og þeir gætu án þess aö meiða
neinn?
„Já.“
- Og að reyna svo að eyðileggja
hvalstöðina?
„Já.“
- Þú sagðir þetta allt sjálfúr?
„Já.“
Stjomarflokkar
að ná saman um
húsnasðismálin
„Samkomulag liggur i loftinu
meðal fulltrúa stjómarflokkanna
í nefndinni. Það er ekki langt í
land,“ sagði Jón Sæmundur Sig-
urjónsson alþingismaður, fulltrúi
Alþýðuflokksins í féiagsmáia-
nefnd neðri deildar Alþingis, um
húsnæðisfhnnvarpiö sem nefnd-
in fjallar um.
Ágreiningur stjómarflokkanna
um húsnæðisfrumvarpiö fór ekki
leynt þegar Jóhanna Sigurðar-
dóttir félagsmálaráðherra lagði
þaö fram á Alþingi skömmu eftir
að þing kom saman í haust. Full-
trúar Framsóknarflokks og Sjálf-
stæðisflokks gagnrýndu það
harðlega.
Félagsmálanefnd hefur að und-
anfómu hafl frumvarpið til
umfjöllunar. Auk margra
nefndafunda hafa fulltrúar
stjórnarflokkanna í nefndinni
margsinnis komið samantil sérs-
takra funda til aö reyna aö ná
samkomulagi.
Jón Sæmundur sagði aö góður
andi hefði ríkt með þeim á fundi
á fostudagskvöld. En vegna mik-
illa anna Alexanders Stefánsson-
ar, formanns nefndarinnar, í
flárveitinganefhd um heigina
hefði ekki reynst unnt að ljúka
málinu. -KMU
Útflutningsverslun:
Matthías and-
vígur flutningi
Matthías Bjarnason, fyrrverandi
viðskiptaráðherra, hefur opinber-
lega lýst sig andvígan því aö útflutn-
ingsverslun verði flutt úr viðskipta-
ráðuneyti yfir í utanríkisráðuneyti.
„Ég tel að þessi mál séu best komin
í viðskiptaráðuneytinu, enda hafa
flestir eða allir útflytjendur verið því
fylgjandi að þessi mál heyri undir
það ráðuneyti,“ segir Matthías í sérá-
hti við afgreiðslu stjómarfrumvarps
um máhð frá fjárhags- og viðskipta-
nefnd neðri deildar Alþingis.
Matthías vitnar í bréf sem allir
helstu útflytjendur sendu stjóm-
sýslunefnd árið 1983. { bréfinu lýstu
sex aðilar, Samband íslenskra sam-
vinnufélaga, Sölumiðstöð hraðfrysti-
húsanna, Landssamband íslenskra
útvegsmanna," Söluscimband ís-
lenskra fiskframleiðenda, Síldarút-
vegsnefnd og Samlag skreiðarfram-
leiöenda, því eindregna áhti sínu að
viðskiptaráðuneytið héldi útflutn-
ingsmálum.
Athygh vekur aö þrír af þeim fimm
þingmönnum, sem stóðu að meiri-
hlutaáliti um að frumvarpið yrði
samþykkt óbreytt, skrifa undir með
fyrirvara. Geir Haarde, Sjálfstæðis-
flokki, Kjartan Jóhannsson, Alþýðu-
flokki, og Kristín Hahdórsdóttir,
Kvennahsta, skrifa öll undir meiri-
hlutaáhtið með fyrirvara.
Steingrímur J. Sigfússon, Alþýðu-
bandalagi, leggur til að frumvarpinu
verði vísað frá. Veigalítil rök og aht
of miklir vankantar séu á þessari
breytingu, segir hann.
Aðeins tveir nefndarmenn sam-
þykkja frumvarpið fyrirvaralaust,
framsóknarmennimir Páh Péturs-
son og Finnur Ingólfsson.
-KMU
Ölvunogáflog
í miðbænum
Mikil ölvun var í miðbæ Reykja-
víkur um helgina. Aöfaranótt laug-
ardagsins fylgdu ölvuninni mikU
læti. Aflog urðu á tveimur stöðum í
miðbænum. Rúöur voru brotnar auk
fleiri óláta.
Aðfaranótt sunnudagsins var
margt fólk í miðbænum. Ólæti voru
öllu minni en nóttina áöur. „Það var
eldra fólk og meðfærUegra aðfara-
nótt sunnudagsins," eins og lögreglu-
maður orðaði það. .sme