Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.1987, Page 4

Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.1987, Page 4
4 MÁNUDAGUR 7. DESEMBER 1987. Fréttir Coldwater Seafood Corporation Jólatilboð leiddi til verðhruns á hörpudiski - „Þetta er hið versta mál fyrir íslendinga," segir Óttar Yngvason Coldwater Seafood Corporation, dótturfyrirtæki Sölumiöstöövar hraðfrystihúsanna í Bandaríkjun- um, sendi í október frá sér bréf þar sem fyrirtækið býöur sérstakt jóla- tilboð á hörpudiski á Bandaríkja- markaði. í bréfinu býður Coldwater 20.000 aðilum sem kaupa hörpudisk upp á 15% verðlækkun af næstu sendingu frá íslandi og ef keyptir eru 5 kassar eða meira er afslátturinn 25%. í Kjölfar þessa bréfs hefur verö á hörpudiski lækkað mun meira en þetta tilboð Coldwater hljóðar upp á. Verð á hörpudiski, þar sem eru 40 til 60 stykki í kílói, var 3,50 doll- arar þegar bréfiö var skrifað en er nú komiö niöur 12,60 til 2,80 dollar- ar og ofan á allt bætist að nánast ekkert selst af hörpudiski fyrir vestan. „Þetta er hið versta mál. Hvort þetta bréf Coldwaters er orsökin fyrir verðhruninu skal ég ekkert segja um en ég fullyrði að þaö var ekki til að bætá úr á hinum viö- kvæma hörpudiskmarkaði í Bandaríkjunum," sagði Óttar Yngvason hjá íslensku útílutning- smiðstöðinni en hún flytur út hörpudisk til Bandaríkjanna. Óttar sagði að ef þetta tilboð Cold- water hefði leitt til aukinnar sölu mætti ef til vill segja aö jólatilboðið hefði verið í lagi en sannleikurinn væri sá að litið sem ekkert heföi hreyfst af hörpudiski og eftir stæöi miklu lægra verð en áöur og að erfitt væri að selja. Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir náöist ekki 1 Magnús Gústafsson, forstjóra Coldwater, í gær. Hann sat á löngum fundi og enginn annar mátti svara til um þetta mál. -S.dór Þetta em íbúðalóðir Hagvirkis á Valhúsahæð Verktakafyrirtækið Hagvirki hf. kom á óvart í viðskiptaheiminum í siðustu viku þegar það keypti 18 lóð- ir á Valhúsahæð af Seltjarnarnesbæ fyrir yfir 20 milljónir króna. Hvert einbýlishús veröur frá 160 til 180 fer- metrar með bílskúr. Hagvirki hannar, byggir og fullgerir húsin að utan. Ennfremur gengur fyrirtækið frá lóðunum. Að sögn forstjóra Hag- virkis, Jóhanns G. Bergþórssonar, hafa margir sýnt áhuga á að kaupa hús á Valhúsahæð. -JGH Afstödumynd af Valhúsahæð. Eins og sjá má eru húsin átján á tveimur svæðum á Valhúsahæð. Gert er ráð fyr- ir sólskýlum og 'eikvelli á hæðinni. Pétur Másson, markaðsstjóri Coldwater: Þetta er mis- skilningur „Þetta er einhver misskilningur. Við íslendingar erum aðeins meö um 7 prósent af hörpudisksmark- aðnum í Bandaríkjunum þannig að tilboð frá Coldwater getur ekki ve- rið leiðandi í verðmynduninni á hörpudiski í Bandaríkjunum,“ seg- ir Pétur Másson, markaðsstjóri Coldwater Seafood Corporation. Pétur segir að salan á hörpudiski hjá Coldwater hafi verið stöðug, þó hann vildi að sjálfsögðu sjá meiri sölu af hörpudiski. „Tilboö okkar núna eru einungis til að ná fram aukinni sölu, ná til fleiri notenda, og reyna að fá fleiri til að borða hörpudisk.“ Að sögn Péturs hafa margir selj- endur á hörpudisksmarkaðnum kvartað að undanfórnu yfir aö verðið sé orðið ansi lágt, en tölur um verð í kringum 2,5 dollara pundið hafa heyrst. Pétur segir aö Coldwater nái hins vegar að selja á 3,10 dollurum upp i 3,5 dollara fyrir pundið. „Ég tel að aðalástæðan fyrir því að margir seljendur kvarti nú yfir lélegu verði sé sú hve margir eru aö flytja inn hörpudisk hingað á markaðinn í Bandaríkjurium. Framboðið hefur aukist mikið og berst nú miklu meira en áður af hörpudiski frá löndum eins og Perú, Panama, Noregi, Japan og Kína,“ segir Pétur. -JGH Steingrímur Njálsson: Losnar ekki í bráð Hæstiréttur hefur staöfest úrskurð Sakadóms Reykjavíkur að Stein- grími Njálssyni kynferðisafbrota- manni skuli gert að sæta gæsluvarð- haldi þar til Hæstiréttur hefur dæmt í máli hans, þó ékki lengur en til 26. febrúar. í Sakadómi Reykjavíkur var Stein- grímur dæmdur til tveggja og hálfs árs fangelsisvistar fyrir kynferðisaf- brot gegn ungum drengjum. Dómi Sakadóms hefur verið áfrýjað til Hæstaréttar. Steingrímur lauk afplánun eldri dóms 28. nóvember. Ríkissaksóknari krafðist þess að Steingrímur yrði í gæsluvarðhaldi þar til Hæstiréttur hefur dæmt í máli hans. -sme I dag mælir Dagfari______________ Öskuhaugastefnan blffur Eins og landsmenn hafa fylgst með að undaníornu hafa hvorki stjórn- arflokkarnir né hagsmunasamtök- in úti í bæ verið sammála um kvótafrumvarpið, sem endaði með því að menn voru svo ósammála að þeir ákváðu að vera sammála. Athyglisverö eru ummæli Kristj- áns Ragnarssonar hjá LÍÚ, sem hefur látið hafa það eftir sér á prenti að útvegsmenn hafi ákveðið að láta siglingaskattinn yfir sig ganga og samþykkja kvótafrum- varpið til að koma í veg fyrir að alþingi þyrfti sjálft aö taka ákvörð- un. Það er það versta sem Kristján getur hugsað sér að alþingismenn taki ákvarðanir um mál sem þeim koma ekki viö. Þessum háska verð- ur að afstýra, og þess vegna hafa útgerðarmenn ákveðið að ganga frá frumvarpinu fyrirfram í staö þess að alþingi sé að krukka í það. Enda sjá allir hvaða hættur fylgja því ef löggjafarvaldið fer að skipta sér af lagasetningu. Það er óðs manns æði. Til slíks má ekki koma. En ef kvótafrumvarpið er í höfn, þá er þrautin þyngri í landbúnað- armálum og fjárveitingum til þeirra. Jón Baldvin nennir ekki lengur að styrkja landbúnaðar- framleiðslu sem lendir á öskuhaug- unum. Eiður og Páll Pétursson mæla með smáskammtalækningu en Egill Jónsson úr Sjálfstæðis- flokknum tekur ekki í mál að eyðileggja fyrir bændum þau sjálf- sögðu réttindi að framleiða kinda- kjöt, hvort sem þaö selst eða ekki. Egill á Seljavöllum er líkur nafna sínum Skallagrímssyni og báðir eru rammir að afli, enda þorir þing- flokkur sjálfstæðismanna ekki annað en að fylgja Agli í þessu máli, því annars gæti hann lamið þá. Það á ekki að egna sterka menn til reiði. Öskuhaugastefnan hefur líka löngum verið ær og kýr Sjálf- stæðisflokksins og verður svo áfram meðan flokkurinn kýs sér formann sem á þingsæti sitt undir fylgi þeirra sem framleiða kinda- kjöt á haugana. Sláturfélag Suður- lands er ekki í kjördæminu fyrir ekki neitt. Það væri lítið gagn að sláturfélagi sem ekki mætti slátra. Og það er lítið gagn að slátruninni ef ekki má flytja kjötið á þann stað þar sem það er best geymt. Á ösku- haugunum. Aö lokum situr sjálfur Tand- búnaðarráðherra fast við sinn keip og er á móti öllum hinum, án þess að mönnum sé almennt ljóst hvaö hann vilji í staðinn. Jón er forvígis- maður öskuhaugastefnunnar og telur sjálfsagt að sér vegið ef hvik- að verður frá henni. Jón Helgason ku vera sauöþrár eins og sauðkindin og er aö því leyti gamaldags framsóknarmaður. Hann er ekki eins og Einar heitinn Ágústsson sem fór til Washington með bréfið um að herinn ætti að fara, sat svo aftur í næstu ríkis- stjóm og fór þá til Washington með annað bréf um það að herinn ætti að vera. Framsóknarmenn hafa alltaf skipt um lit og stefnu, eftir því hvaða ríkisstjóm þeir sitja í, nema Jón Helgason sem er haldinn þeirri þráhyggju að hafa sömu skoðun í þessari ríkisstjórn eins og þeirri síðustu. Sagt er aö Jón Baldvin hafi farið í óskaplega fýlu þegar hann frétti aö samstarfsflokkarnir ætluðu að svíkja samkomulag sem búið var aö gera. Jón Baldvin heldur að pól- itíkin gangi út á það að standa við samninga. Hann er greinilga ný- græðingur í ríkisstjórn, enda er það einn helsti kostur ríkisstjórna og ráðherra að svíkja hver annan. Vonandi er að Jón Baldvin læri fljótt að koma aftan aö samráð- herrum sínum svo hann verði málsmetandi í ríkisstjórninni. Allt fellur þetta í ljúfa löð eins og venjulega. Öskuhaugastefnurn- ar blífa þegar upp er staðið. Ráðherrar eða þingflokkar geta ekki leyft sér að höggva undirstöð- urnar undan undirstöðuatvinnu- vegunum. Dagfari hefur áður bent á að sam- starfiö í ríkisstjórninni gengur út á það að vera ósammála, enda er ósamkomulagið til þess að auka samheldnina og styrkja innviðina og undirstöðumar. Það er ekki út í bláinn, það sem Kristján Ragnars- son segir, að fyrir alla muni verði að forða þjóðinni frá því að alþingi og ríkisstjóm neyðist til að taka ákvarðanii1 um mál, sem það hefur ekki vit á. Ráðherrarnir gætu jafn- vel komið sér saman um eitthvað sem vit væri í. Þá fyrst færi aö kárna gamanið. Dagfari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.