Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.1987, Side 8

Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.1987, Side 8
8 MÁNUDAGUR 7. DESEMBER 1987. Utlönd Gyðingar mótmæla stefnu Sovétríkjanna Ólafar Amaison, DV, Washington: Washingtonborg er aö færast í leið- togafundarhorf. Lögreglan í borginni hefur um helgina verið aö gera sig klára í slaginn og í gærkvöldi var allt til reiöu til aö loka götum þeim sem Mikhail Gorbatsjov þarf aö fara um meðan á leiðtogafundinum stendur. Undanfarna daga hefur veriö straumur fólks til borgarinnar. í gærkvöldi höföu um sex þúsund blaðamenn sótt skilríki sín og í dag mun sú tala hækka. Blaöamenn eru þó ekki þeir einu sem vilja fylgjast með fundi þeirra Reagans og Gorbatsjovs. í gær höföu gyðingar í frammi mótmæli gegn stefnu Gorbatsjovs og Sovétstjórnar- innar í málum gyðinga og mannrétt- indamálum yfirleitt. Tóku tugir þúsunda þátt í mótmælunum. Meöal ræöumanna var hinn þekkti landflótta andófsmaöur, Scharan- sky, og Edward Koch, borgarstjóri New York-borgar. Koch sagöi meðal annars í ræöu sinni að nú yröu menn aö standa einhuga að baki Reagans forseta. Sagöi Koch aö Reagan heföi haft rétt fyrir sér þegar hann kallaði Sovétríkin „veldi hins illa“. Það var ekki einungis í Washington sem menn mótmæltu oki kommúnis- mans heldur einnig í Moskvu. Þar fóru hlutirnir ekki eins friðsamlega fram því óeinkennisklæddir lög- reglumenn gerðu aösúg að mótmæl- endum. Krafa mótmælenda í gær var sú aö það glasnost, sem Gorbatsjov hefur hampað svo mjög í orði, verði nú sett á borðið og verkin látin tala. Kristnir Sovétmenn létu einnig til sín taka í gær varðandi leiðtogafund- inn. í Bandaríkjunum eru fjölmargir söfnuöir fólks sem er af rússneskum ættum. í gær var beðið til guðs um að árangur af leiðtogafundinum Sovéski andófsmaðurinn Natan Scharansky kveikir á kyndlum í Washington er tugir þúsunda gyðinga mótmæltu mætti verða sem mestur, öllu mann- stefnu Sovétríkjanna í mannréttindamálum. Símamynd Reuter kyninu til blessunar. Skiptar skoðanir um fundinn Ólafur Amarson, DV, Washmgton: Að mörgu leyti er ekki hægt að líkja leiðtogafundinum í Washing- ton viö þann fund sem haldinn var í Reykjavik fyrir liðlega ári. Washington er mun stærri borg en Reykjavík og þar sem hér er aðsetur allra helstu stjómsýslu- stofnana Bandaríkjanna er fólk vant'því að mikið sé að gerasL Að sjálfsögðu setur heimsókn Mik- hails Gorbatsjov lit á tilverana en ekki þó þannig að menn gleymi öllu ööru. Mjög skiptar skoðanir era meðal almennra borgara í Washington um leiötogafúndinn oglíklegar niö- urstöður af honum. Sumir koma af fjöllum og flnnsLþaö aldeilis frétt að leiðtogi Sovétríkjanna ætli að heimsækja Reagan Bandaríkjafor- seta. Af þeim sem þegar hafa komist aö því að leiðtogafundur er á döflnni telja flestir að niðurstaða hans verði fremur ómerkileg. Fólk aðrir segja aö þaö sé góös viti aö leiötogar stórveldanna hittist, slikt, hljóti að leiöa til aukins skilnings og fegurri framtíöarsýnar fyrir fólkiö sem byggir þessa jörð. Þaö er athyglisvert að margir blökkúmenn, sem DV hefur rætt viö, taia um aö leiðtogafundurinn og sú umræða um mannréttinda- mál í Sovétríkjunum, sem boöuö hefur verið, sé eitt stórt samsæri. Þeim finnst það hræsni hjá Banda- ríkjastjórn að setja rétt gyöinga i Sovétrikjunum á oddinn meðan Bandaríkjastjórn hefur ekki feng- ist til að berjast fyrir réttindum blökkumanna i Suöur-Afríku. Gyöingar viröast hins vegar vera þakklátir fyrir þaö hve Ronald Re- agan hefur sýnt málstað þeirra mikinn stuðning. Binda þeir mikl- ar vonir við aö honum takist aö fá málum gyðinga í Sovétríkjunum þokað til betri vegar á þessum leiö- togafundi. Þó svo aö sumir komi af fjöllum þegar minnst er á leiðtogafund hefur hann ekki farið fram hjá þeim sem standa að undirbuningnum. Sérs- takt herbergi fyrir fréttamannafundi er til reiðu en þegar hafa mörg þúsund þeirra komið til Washington. Simamynd Reuter segir sem svo að Sovétmönnura Aðrir segja aö það sé hneisa hin hafi lítt veriö treystandi hingað til mesta að vera yfirleitt að ræða viö og því skipti ekki máli hvað skrifað Sovétmenn meöan þeir troöa verði undir, Sovétmenn muni mannréttindiundirfótumogmyröi hvort eö er bijóta samkomulagið. konur og börn í Afganistan. Enn Misjafnar móttökur Börn frá ýmsum löndum mynduðu á laugardaginn ásamt mörgum Was- hingtonbúum keðju milli Hvíta hússins og sovéska sendiráðsins. Þeim var vísað frá Hvita húsinu er þau komu þangað til að afhenda blóm en í sov- éska sendiráðinu var börnunum fagnað og þeim boðið inn. Símamynd Reuter I Hvíta húsinu var börnunum hins vegar meinaöur aðgangur og urðu þau að skilja blómin eftir við dyr þess. Blómunum, sem ætluð voru Reagan forseta, var.fleygt. Símamynd Reuter Þéttskip- uð dag- skrá Ólafur Amaison, DV, Washington: Áætlað er að Mikhail Gorbatsjov, leiðtogi Sovétríkjanna, stígi fæti sín- um á bandaríska grund í fyrsta skipti á Andrews herflugvellinum rétt fyrir utan Washingtonborg klukkan tutt- ugu mínútur yfir íjögur að staðar- tíma. Fundur hans og Reagans Banda- ríkjaforseta hefst þó ekki fyrr en á morgun. Klukkan tíu í fyrramálið munu forsetahjónin taka á móti Gor- batsjov og Raisu við Hvíta húsið. Klukkan hálfellefu munu leiðtog- arnir eiga fund saman og fimmtán mínútur fyrir tvö er áætlað að þeir skrifi undir samkomulag um fækkun meðaldrægra kjarnaflauga. Tíu mín- útur yfir tvö munu Reagan og Gorbatsjov ávarpa bandarísku og sovésku þjóðirnar úr hátíðarmatsal Hvíta hússins. Tuttugu mínútum síð- ar munu þeir hittast aftur og funda. Klukkan sjö annað kvöld munu for- setahjónin halda hátíðarkvöldverð til heiðurs Gorbatsjovhjónunum í Hvíta húsinu. Á miðvikudag er dagskráin sú að leiðtogarnir hittast klukkan hálfell- efu í Hvíta húsinu og funda fram eftir degi. Klukkan hálfátta á miðviku- dagskvöld halda svo Gorbatsjov- hjónin kvöldverðarboð í sovéska sendiráðinu til heiðurs forsetahjón- unum. Á fimmtudag munu þeir Reagan og Gorbatsjov enn hittast klukkan hálfellefu í Hvíta húsinu. Klukkan tólf á hádegi er fyrirhugað að þeir snæði hádegisverð saman. Klukkan tvö eftir hádegi verður síöan kveðju- athöfn í Hvíta húsinu. Á þeim fundum, sem haldnir verða eftir að skrifað hefur verið undir samkomulagið um meðaldrægar kjarnaflaugar á morgun, verður rætt um niðurskuröi á sviði langdrægra kjarnaflauga, mannréttindamál og vera sovésks herliðs í Afganistan svo eitthvað sé nefnt. Ef árangur næst í viðræðum um fækkun langdrægra eldflauga er hugsanlegt að Gor- batsjov framlengi heimsókn sína.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.