Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.1987, Side 15

Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.1987, Side 15
MÁNUDAGUR 7. DESEMBER 1987. 15 Opinber ferðamálastefna Ferðaþjónusta er mjög vaxandi at- vinnugrein hér á landi. Á síðasta ári komu rúmlega 113 þúsund er- lendir ferðamenn til landsins og hefur aukningin verið um 15% milii ára síðan 1980. Miðað við að þróunin verði svipuð fram til næstu aldamóta er gert ráð fyrir að erlendir ferðamenn verði þá orðnir um 400 þúsund á ári. Vaxandi gjaldeyristekjur Ljóst er að til þess að geta tekið við þessari gífurlegu aukningu ferðamanna þarf að verða mikil uppbygging á öllum sviðum ferða- þjónustunnar á allra næstu árum. Það er því oröið mjög brýnt að við íslendingar mótum okkar ferða- málastefnu og lítum á ferðaiðnað sem raunverulega atvinnugrein. Þess má geta að á þessu ári er gert ráð fyrir að 5% af vinnuafli í landinu séu bundin við ferðaþjón- ustu og að laun og tengd gjöld við ferðaþjónustu nemi 7-8% af heild- arlaunagreiðslum í landinu. Gjald- eyristekjur íslendinga af ferðamönnum hafa farið hraðvax- andi á undanfornum árum og námu á síðasta ári 4,6 milljörðum króna. Ætlum við að fylgjast með? Hin mikla aukning, sem orðið hefur á ferðalögum í heiminum eft- ir síðari heimsstyijöldina, hefur gert þaö að verkum að stjómvöld KjaUarinn Unnur Stefánsdóttir, varaþingmaður Framsóknar- flokksins á Suðurlandi hinna ýmsu landa hafa ekki komist hjá því að móta stefnu í ferðamál- um, ekki síst hjá þeim þjóðum sem hafa verulega atvinnu og gjald- eyristekjur af útlendum ferða- mönnum. Ef gera á alvöru úr því að nýta í stórum stíl möguleika íslands sem ferðamannalands og aðseturs fyrir alþjóðlegt ráðstefnuhald verður vart lengur undan því vikist að Alþingi móti skýrari stefnu í þess- um málaflokki. Opna þarf nýjar ferðaleiðir I ferðamálum þarf m.a. að marka stefnu varðandi stuðning hins op- inbera við fjárfestingar á sviði ferðamála og skipulag slíkra fjár- festinga, fræðslumál atvinnugrein- arinnar og kynningarmál. Einnig þarf að taka afstöðu til vemdunar viökvæmra landsvæða og annarra þátta er snerta umgengni um landið. Þá þarf að stuðla að æski- legri dreifmgu ferðamanna um landið með því að opna nýjar ferða- leiðir og nýta ýmislegt sem ferða- menn hafa almennt ekki aðgang að nú. Áherslu þarf að leggja á að lengja feröamannatímann og auka ráðstefnuhald og marka þarf starfssvið Ferðaþjónustu bænda. Eins og áður er að vikiö er reikn- að með mikilli fjölgun erlendra ferðamanna hér á landi næstu árin. Til þess að hægt sé að taka við þess- um aukna fjölda ferðamanna þarf að verða miídl uppbygging í ferða- þjónustu á öllum sviðum. Mikil breyting hefur orðið til batnaðar í þessum efnum undanfarin ár, eink- rnn á höfuðborgarsvæðinu. Langflestir ferðamenn eiga fyrstu og síöustu viðdvöl í Reykjavík og nágrenni og er þessi mikla upp- bygging þar því lykill að uppbygg- ingu sem verða þarf annars staðar á landinu. Til þess að koma í veg fyrir örtröð á fjölsóttustu ferðamannastöðun- um, svo sem í uppsveitum Ámes- sýslu og á Mývatnssvæðinu, þarf í auknu mæli að beina ferðamönn- um til annarra landsvæða sem sum hver hafa ekki minna aðdráttarafl en þau svæði sem nú eru fjölsótt- ust. Má þar nefna Borgarfjörð og Snæfellsnes, Breiðaljarðarsvæðið, Skaftafellssýslur, Vestmannaeyjar og Fljótsdalshérað. Stuðla þarf að uppbyggingu ferðaþjónustunnar á þessum svæðum og skapa með því skilyrði til bættrar nýtingar og lengingar á ferðamannatímanum. Meiri og betri menntun Einn af kostum ferðaþjónustu er hersu atvinnuskapandi hún er. Mikilvægt er að hugað sé að mennt- unarmálum þess fólks sem vinnur viö ferðaþjónustu. Þar má nefna nám í hótel- og veitingagreinum og menntun fólks sem annast mót- töku, leiðsögn og skipulag ferða- mála. Kanna þarf möguleika á að fjöl- brautaskólar landsins bjóði nemendum sínum nám í þessum greinum. Næsta haust mun Menntaskólinn í Kópavogi bjóða nemendum sínum nám í ýmsum greinum feröaiðnaðar og á Kirkju- bæjarklaustri er ráðgert að námsbraut í ferðaiðnaði verði tekin upp við framhaldsskólann þar næsta haust. Það hlýtur að vera mikilvægt fyrir atvinnugreinina að námsframboð og námsskipulag á þessu sviði verði samræmt fyrir landið sem fyrst. Þá þarf við mótum ferðamála- stefnu að taka afstöðu til vemdun- ar viðkvæmra landsvæða og annarra þátta er snerta umgengni um landið. Tekjustofn vantar í gÚdandi lögum um skipan ferða- mála er gert ráð fyrir að 10% gjaldi af vömsölu Fríhafnarinnar í Kefla- vík verði rástafað óskertu til ferðamála. Við þetta ákvæði lag- anna hefur ekki verið staðið. Ljóst er að gífurlegt fjármagn þarf til uppbyggingar feröaþjón- ustu á næstu ámm. Því þarf að leita nýrra leiða til þess aö tryggja fjár- magn, leiða sem full samstaöa getur orðið um og tryggt er aö verði staðið við. Unnur Stefánsdóttir „Gjaldeyristekjur íslendinga af ferða- mönnum hafa farið hraðvaxandi á undanförnum árum og námu á síðasta ári 4,6 milljörðum króna.“ Enn um einokun á freðfisksölu Föstudaginn 20. nóv. sl. varpaði ég fram þeirri spumingu í kjallara- grein í DV hverra hagsmunir það væm að einoka sölu freðfisks til Bandaríkjanna við örfá stór sölu- samtök. I því tilefni skrifaði Árni Benediktsson framkvæmdastjóri kjallaragrein í DV sl. fimmtudag, þar sem hann gerði athugasemdir við nokkra rökfærslupunkta mína. Einnig hefur talsmaður SH á Al- þingi ráðist að viðskiptaráðherra fyrir að ijúfa einokun stóru sölu- samtakanna á Bandaríkjamarkaði. í grein Áma koma fram athyglis- verð sjónarmið sem mig langar fyrst til að ræða nánar. Undarlegur skilningur á einokun Framkvæmdastjórinn heldur því fram að það sé misskilningur að Um sé að ræða einokun á sölu á freðfiski til Bandaríkjanna þar sem tvö minni fyrirtæki, auk SH og SÍS, hafi heimild til slíkrar sölu. Þetta er ákaflega undarlegur skilningur á hugtakinu einokun, a.m.k. frá sjónarhóli þeirra sem áhuga hafa á að selja freðfisk á Bandaríkjamark- að og ekki eru meðlimir fyrr- nefndra samtaka. Einokun er það kallað þegar öðrum er meinuð samkeppni við söluaðila með laga- boði. Skiptir þá varla máli hvort einokunin er bundin við einn eða fjóra aðila. Árni heldur því fram að smærri útflutningsfyrirtæki séu bundnari í samningum en þau stærri. Þetta er að sjálfsögðu hið mesta bull. Það er í sjálfu sér ekkert í eðli stærðar fyrirtækjanna sem gerir samninga smærri fyrirtækja bundnari en samninga stærri fyrirtækja. Að sjálfsögðu geta minni fýrirtæki, jafnt sem stærri, gert bindandi samninga og tengst viðskiptavin- um sínum sterkum böndum sem erfltt er að rifta hvað sem hag- kvæmni líður. Og sé sú hætta meiri hjá smáum fyrirtækjum en stórum bætir fjöldi þeirra það upp, þ.e.a.s. mörg smærri fyrirtæki hafa meiri KjaUariim Kristján E. Guðmundsson markaðsfræðingur sakir þess eru eflaust. hvati og hvatning þeirra sem aö framleiðsl- unni standa (firring). Minni einingar hafa sýnt sig að hafa gefið meiri framleiðni og þeim mun meiri sem reksturinn er nær beinum hagsmunum þeirra sem að framleiðslunni standa, þó svo að ýmis rekstarsjónarmið, s.s. minni stjómunárkostnaður/sölukostnað- ur pr einingu ættu að benda til hins gagnstæða. Samyrkjubú hafa t.d. sýnt sig að hafa minni framleiðni pr einstakling en bú einstaklinga. Árni segir í grein sinni að „sölu- samtök selji þær vörur sem fram- leiðendur, sem í þeim em, framleiða". Þetta er auðvitað hár- rétt, það er eðli sölusamtaka að selja vöru framleiðenda. Samspil hvorutveggja Nú gerir markaðsfræðin greinar „Mikilvægasta verkefnið í þróun og markaðssetningu á fiskafurðum okkar erlendis á næstu árum tel ég vera að komast inn á neyslumarkaðinn með fullunnar fiskafurðir sem framleiddar yrðu hér á landi. Við það myndi út- flutningsverðmæti fisksins a.m.k. tvöfaldast." sveigjanleika á markaði en fá stór þegar á heildina er litið. Samningar við ríki Austur-Evrópu eru sér- staks eðlis þar sem þar er ekki um fijálsan markað að ræða heldur einn stóran einokunaraðila, bæði á sviði sölu og innkaupa. Á hinn bóginn em margir fræði- menn á sviði stjórnunar og stjóm- mála um það sammála að það geti legið í eðli stærðar fyrirtækja eða stjórnunareininga hvort ýtmstu hagkvæmni sé beitt í rekstri. Or- mun á „framleiöslu- og söluvið- horfum“ annars vegar og „markað- sviðhorfum" hins vegar. Fyrra hugtakið má útskýra á þann veg að þar sé fyrst ráðist í framleiðslu vöra og síðan sé reynt að selja hana. Með síðara hugtak- inu er þessu öfugt farið. Þá er markaðurinn fyrst kannaður ítar- lega og síðan framleitt fyrir þær þarfir sem markaðskönnunin leið- ir í ljós. Að sjálfsögðu er ávallt um samspil hvomtveggja aö ræða. í flölþættu markaðssamfélagi samtímans er auðvitað ákaflega mikilvægt aö framleiðendur til- einki sér markaösviðhorf. Nú er auðvitað sannleikurinn sá að við- , horf íslenskra framleiðenda hefur á undanfomum áratugum ein- kennst um of af framleiðslu og markaðsviðhorfum og þó að þróun- ardeildir hafi verið til staðar hjá hinum stóm sölusamtökum, eins og Árni bendir á, hefur ekki borið mjög á nýjungum í framleiðslu fiskafurða, a.m.k. ekki hér innan- lands. í fyrmefndri grein sinni heldur Ami Benediktsson því fram að það séu fyrst og fremst hin stóru sölu- samtök --sem hafi fjárhagslegt bolmagn til að ráða við ný þróunar- verkefni sem taki tíma aö gefa af sér. Þetta er auðvitaö rétt svo langt sem það nær. Fræðimenn hafa á það bent að oft liggur vaxtarbrodd- ur nýjunga í vömþróun hjá smærri fyrirtækjum eða einstaklingum, eflaust vegna þess að hvatinn er þar meiri. Fjármagn til slíkrar þróunar á að sjálfsögðu aö veita úr opinber- um sjóðum allra landsmanna en binda það ekki við samtök fárra hagsmunahópa. Það væri hins vegar ákaflega fróðlegt aö fá uppgefið hversu miklu af veltu stóm sölusamtak- anna hefur verið varið til vöruþró- unar. HvaÖ er aö óttast? Eitt mikilvægasta verkefnið 1 þróun og markaðssetningu á fisk- afurðum okkar erlendis á næstu árum tel ég vera að komast inn á neyslumarkaðinn með ftillunnar fiskafurðir sem framleiddar yrðu hér á landi. Við það myndi útflutn- ingsverðmæti fisksins a.m.k. tvöfaldast. Nú er fyrirsjáanlegur samdráttur í fiskveiðum okkar íslendinga og því mikilvægt að gera sem mest úr fiskafurðum okkar áður en þær em sendar úr landi. Það er með öllu ástæðulaust fyrir okkur íslendinga að standa undir fullvinnslu fisk- afurða erlendis með hráefni, hvort sem það hráefni er ferskt eða freð- ið, þegar það fer úr landi. í því sambandi er rétt að benda á aö afurðir frystihúsa landsins em hráefni ,til frekari fullvinnslu er- lendis. Freðinn fiskur í raspi, sem verið hefur ein meginframleiðsla íslensku fiskréttaverksmiöjanna erlendis, hefur t.d. verið tollfijáls inn á eitt stærsta markaðssvæði okkar, Efnahagsbandalag Evrópu, frá árinu 1977. Meginforsenda þess að markaðs- færsla takist á neyslumarkaði er auðvitað sú að nýög náið samband sé á milli markaöarins og framleið- enda. Ég hef áður lýst þeirri skoðun minni að smærri markaðssetning- arsamtök séu betur til þess fallin að nýta ýmsa afkima þessa mark- aðar en stærri sölusamtök, þó vissulega geti þau gegnt þar mikil- vægu hlutverki. Mönnum er auðvitað fijálst aö mynda með sér sölusamtök ef þeir telja hag sínum best borgið með þeim hætti, en það er með öllu óvið- unandi að þessi samtök geri kröfu til einokunar á vissum mörkuðum erlendis, að öðrum sé þar meinuö sala. Miðað við markaðsaðstæður fyr- ir fiskafurðir í dag og í fyrirsjáan- legri framtíð er mér um megn að skilja hvað hin stóm sölusamtök okkar á Bandaríkjamarkaði hafa að óttast þótt nokkur smærri fyrir- tæki fái leyfi til að selja freðfisk við hliöina á þeim. Hafi þessi samtök á undanfóm- um áratugum eytt í það miklum tiármunum að festa sig í sessi á þessum markaöi með vörumerki sitt, eins og komið hefur fram hjá talsmönnum þeirra, ættu þau ekki að hafa mikið að óttast. Kristján E. Guðmundsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.