Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.1987, Page 20
20
MÁNUDAGUR 7. DESEMBER 1987.
Fréttir
Geislaspilarinn glæsilegi sem er vinningur nr. 1 í jólagetraun DV að þessu sinni. Spilarinn er með fjarstýringu og búinn fleiri tækninýjungum. Verðið er 45.660 krónur.
Jólagetraun DV hefst á morgun:
Sextán stórglæsilegir
vinningar eru í boði
heildaiverðmæti nemur 130.000 króna
Enn einu sinni efnir DV til spenn-
andi jólagetraunar fyrir lesendur
sína. Getraunin hefst í blaðinu á
morgun, þriðjudag, og birtist í tiu
næstu blöðum. Að þessu sinni
verður lesendum boðiö upp á að
slást í fór með jólasveininum þegar
hann þeytist milli borga með jóla-
gjafir. En greyið er orðinn hálf-
ruglaður á öllu tilstandinu, svo
hann á í erfiðleikum með að átta
sig á hvar hann er staddur hverju
sinni. Þaö kemur því í hlut lesenda
að hjálpa Sveinka í raunum hans
og merkja við rétt svar á seðlum
þeim sem birtast í næstu tíu blöð-
unum. Síðan eru seðlarnir klipptir
út og geymdir þar til allir tíu hlut-
amir hafa birst. Þá eru þeir settir
í umslag og sendir til DV, Þver-
holti 11, merktir „Jólagetraun."
Sérstaklega skal tekið fram, að
seðlana á ekki aö senda fyrr en
getrauninni er lokið.
Vinningarnir, sem nú eru í boði,
eru veglegir eins og endranær.
Fyrsti vinningur er geislaspilari
með fjarstýringu. Annar vinningur
er ferðageislaspilari. Sá þriðji er
fullkomið ferðaviötæki og vinning-
ar nr. 4-16 eru hin vinsælu leikföng
frá World of Wonders í Bandaríkj-
unum. Sem sagt sextán glæsilegir
vinningar aö heildarverðmæti ríf-
lega 130.000 krónur.
Geislaspilarinn er af gerðinni
Vinningur nr. 2 í jólagetraun DV er ferðageislaspilari. Hann lætur ekki mikið yfir sér en hljómgæðin eru
hreint ótrúleg. Verðið er 27.720 krónur.
Technics SLP-520. Hann er einn sá
fullkomnasti sem fæst hjá Japis og
kostar 45.660 krónur. Vinningur nr.
tvö, ferðageislaspilarinn, er af
gerðinni Sony D-30, Discman. Þótt
ekki fari mikið fyrir þessu tæki,
þá svíkja hljómgæðin engan. Verb-
ið er 27.720 krónur. Þriðji vinning-
og áður sagði
ferðaviðtæki af gerðinni Panasonic
RXFM-27. Þetta tæki er búið svo-
kölluðu „auto reverse", sem þýðir
aö með einum takka er hægt að
skipta um hlið á spólunni. Tækið
er einnig búið tónjafnara, inn-
byggðum hljóðnema og fleiri
kostum sem ekki verða tíundaðir
hér. Það kostar kr. 7.380 krónur.
Vinningar nr. 4-6 eru þeir félagar
Bangsi bestaskinn og Gormur vin-
ur hans. Þeir syngja og spjalla
saman á íslensku. Verð á hveijum
vinningi, þ.e. hveiju pari, eru kr.
8.800 í Radíóbúðinni. Vinningar nr.
7-10 eru hinar vinsælu geislabyss-
ur, Lazer Tag. Þær kosta kr. 2.980
stykkið.
Síðast en ekki síst eru svo vinn-
ingar nr. 11-16, sem eru dansandi
brúður. Þar er kominn hópur sem
allir kannast við, þau Svínka,
Kermit froskur, Andrés önd, Mikki
mús, Mína mús og Feitimúli.
Stykkið af þessum vinsælu brúðum
kostar 1980 krónur.
Eins og sjá má er fjöldi góðra
vinninga í boði í jólagetraun DV.
Og nú er bara að vera með frá upp-
hafi og passa vel upp á seðlana.
Þegar allir tíu hlutar getraunarinn-
ar hafa birst eru allir seðlamir
sendir í einu umslagi til DV, Þver-
holti 11, 105 Reykjavík, merkt:
„Jólagetraun."
unnn
eins
Vinningar nr. 4-6, þeir félagar Bangsi bestaskinn og Gormur vinur hans. Þeir spjalla sam-
an á íslensku, segja sögur og syngja. Hvert par kostar kr. 8.800.
Og hér eru svo samankomnir vinningar nr. 11-16, hópur sem flestir þekkja. Þarna eru á
ferðinni fröken Svínka, Kermit froskur, Mikki og Mína mýs, Andrés önd og Feitimúli. Þau
dansa i takt við hvaða lag sem er og sýna af sér alls konar kæti eins og þeim einum er lagið.
„Forréttindi að fá að kaupa áfengt öl“
„Samkvæmt reglugerð era það
komufarþegar til Islands sem fá aö
kaupa áfengt öl í fríhöfninni. Ef ætti
að breyta þessari reglugerð er það
fjármálaráöherra og Alþingis að gera
það,“ sagöi Þorgeir Þorsteinsson,
lögreglustjóri á Keflavíkurflugvelli,
þegar hann var að því spurður hvers
vegna farþegar sem koma um Flug-
stöð Leifs Eiríkssonar fengju ekki
pappíra þess efnis að þeir hefðu ver-
iö að koma til landsins og gætu síðan
framvísaö þeim í ölbruggunarverk-
smiðjum og keypt ölið þar, í stað
þess að vera að burðast meö þaö
langar leiðir.
„Það eru forréttindi að fá aö kaupa
áfengt öl og það má á sama hátt og
þú spyrð þessarar spumingar spyija:
Hvers vegna fær sjómaðurinn á
Bakkafirði, sem skilar miklum gjald-
eyri í þjóðarbúið, ekki að labba út í
kaupfélag og versla áfengt öl þar. En
reglugerðin hljóðar á þá leið að ein-
ungis sé leyfilegt að kaupa áfengan
bjór um leið og þú kemur inn í landið
og við breytum henni ekki, við fram-
fylgjum einungis reglugerðinni".
„Ég held að það hafl aldrei komiö
til umræðu að breyta þessari reglu-
gerð og ég á ekki von á aö svo verði
í náinni framtíð," sagði Sigurgeir
Jónsson, ráðuneytisstjóra í fjármála-
ráðuneytinu.
-J.Mar