Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.1987, Side 33
MÁNUDAGUR 7. DESEMBER 1987.
49 >
dv Smáauglýsingar - Sími 27022 Þverholti 11 dv
Fréttir
■ Bátar
Viksund fiskibátar.
5 tonna opnir. Þessir bátar eru af-
greiddir allt frá því að vera plastklárir
til þess að vera fullbúnir, innréttaðir
með vél.
9 tonna dekkaðir. Þessir bátar njóta
sívaxandi vinsælda meðal sjómanna
sakir óvenju mikils stöðugleika og
vandaðrar smíði.
15 tonna, upplagður snurvoðarbátur,
sannkallað flaggskip. Þessi bátur er í
nýrri endurbættri gerð og kemur á
markaðinn eftir breytingar á síðasta
ári. Þessi bátur er tilvalinn fyrir þá
sem þurfa'að endurnýja úr t.d. gömlum
11-13 tonna trébátum. Við aðstoðum
við allan pappírsfrágang varðandi
íjármögnun og innflutning, svo og öfl-
un tilboða í búnað og tæki. Ath.,
umsóknarfrestur um lán úr Fiskveiða-
sjóði er að renna út. Viksund-umboð-
ið. Ingimundur Magnússon,
Nýbýlavegi 22, sími 43021 og eftir kl.
17 641275.
Bátur til sölu, 5,5 tonna, smíðaður 74,
vél 73 hestafla GM, mikið endur-
byggður 86, nýupptekin vél, litamælir,
sjálfskipting og afdragari. Uppl. í síma
97-71351.
Seljum uppgerðar bátavélar og drif frá
Bretlandi í flestar gerðir báta. Eld-
frosthf., Hafnarstræti 16, sími 621980.
■ Vinnuvélar
\ > v * ”;:%v •• *'jáá
Grötuþjónusta Gylfa og Gunnars. Tök- um að okkur stærri og smærri verk. Vinum á kvöldin og um helgar. Sími 985-25586 og heimasími 22739.
■ BOar til sölu
Jls
Citroen „Charleston" Braggi til sölu,
árg. ’86, ekinn 33 þús. km, svartur og
rauður, mjög vel með farinn. Uppl. í
síma 23393 e. kl. 17.
Toyota ’85 til sölu, innfluttur ’86, upp-
hækkaður, dráttarkrókur, nýyfirfar-
inn, mjög góður bíll, tilbúinn í
vetrarslaginn. Uppl. í síma 78806.
Toyota pickup disil '81, nýinnfluttur, 5
gíra, vökvastýri, aflbremsur, gullfall-
egur og vel með farinn, aðeins 1
eigandi. Uppl. í síma 72530.
Mercury Marquis V6 ’85, sjálfskiptur,
rafm. upph. m.m. Algjör dekurbíll,
ekinn ca 24 þús. km. Uppl. í síma 83473
á kvöldin og í síma 985-21980. Halldór.
Peugeot 205 GTI ’87, 1,6 lítra, ekinn
11 þús., sóllúga, rafmagn, litað gler
o.m.fl. Uppl. í síma 623632 eftir kl. 16.
..mr-.
■ Ymisleqt
Smókingaleiga. Höfum til leigu allar
stærðir smókinga við öll tækifæri,
skyrta, lindi og slaufa fylgja. Efna-
laugin, Nóatúni 17, sími 16199.
Félagar í ferðaklúbbnum 4x4, munið
fundinn í kvöld að Hótel Loftleiðum
kl. 20. Fundarefni: jöklafyrirlestur og
önnur mál. Stjómin.
■ Þjónusta
Falleg gólf!
HREINGERNINQAÞJÓNUSTAN
SSr IMSaa
Slipum, lökkum, húðum, vinnum park-
et, viðargólf, kork, dúka, marmara,
flísagólf o.fl. Hreingerningar, kísil-
hreinsun, rykhreinsun, sóthreinsun,
teppahreinsun, húsgagnahreinsun.
Fullkomin tæki. Vönduð vinna. För-
um hvert á land sem er. Þorsteinn
Geirsson verktaki, sími 614207,
farsími 985-24610.
Urval
HITTIR
NAGLANN
Á HAUSINN
Nemendur úr frumgreinadeildum Tækniskólans fjölmenntu i fjarmálaraðu
neytið til að knýja á um lausn deilunnar. DV-mynd BC
Samkomulag náð-
ist við kennara
Tækniskólans
Kennarar Tækniskólans í frum-
greinadeild lögðu niður vinnu á
föstudagsmorgun vegna deilna við
Qármálaráðuneytið. Lausn fékkst í
þeirri deilu um helgina og hófst
kennsla með eðlilegum hætti í morg-
un.
Þann 27. október síðastliðinn
komst samstarfsnefnd tækniskóla-
kennara og fjármálaráðuneytis að
samkomulagi um nýtt mat á kennslu
þar sem meðal annars var tekið upp
siningamat kennslu og annarra
starfa. Síðan gerðist það í síöustu
viku að launadeild fjármálaráðu-
neytisins ákvað að setja 10 prósent
skerðingu á alla línuna, kennslu sem
ánnur störf frumgreinakennara við
deildina, vegna þess aö þeim þótti
greiðslur hafa orðið nokkru meiri en
ráð hafði verið fyrir gert þegar samn-
ingarnir voru gerðir.
Þar sem kennarar töldu að fjár-
málaráðuneytið hefði ekki staöið viö
gerða samninga fóru þeir í verkfall
klukkan 10 síðastliðinn fóstudags-
morgun. Nemendur úr frumgreina-
deild, sem lentu í þessum aðgeröum,
alls um 130 til 140 manns, fjölmenntu
í fjármálaráðuneytið vegna þess að
verkfall kom sér mjög illa fyrir þá.
Kennarar funduðu svo við fjármála-
ráðuneytið og samkomulag náðist
um hádegisbil á laugardag. Það er í
stuttu máli þannig aö 10 prósent
skerðingin mun gilda á mati kennsl-
unnar til vinnustunda, aðalpróf-
vinnuna, en fellur niður á annarri
vinnu utan kennslu svo sem endur-
tekningaprófvinnu. Stjórnunarstörf
ýmiss konar, sem margir kennarar
sinna, munu ekki falla undir skerð-
inguna. Þetta samkomulag gildir út
þetta skólaár en skerðingin mun falla
niður eftir það.
DV hafði samband við Ólaf Jón
Pétursson deildarstjóra og kvaðst
hann vera ánægður eftir atvikum
með samkomulagið. Hann sjálfur
hefði til dæmis orðið hart úti ef
skerðingin heföi náð fram að ganga
því að helmingur vinnu hans telst til
stjórnunarstarfa. Ef skerðingin hefði
náð fram aö ganga hefði hún náö til
27 kennara en sumir þeirra væru
stundakennarar við frumgreina-
deildina.
Ólafur sagði einnig að samkomulag
hefði tekist um að nemendum yrði
bættir upp þeir tímar sem féllu niður
vegna verkfallsins en það hefðu að-
eins verið nokkrir tímar á föstudeg-
inum eða frá klukkan 10 til loka
skóladagsins. Nemendur hefðu ekki
misst af neinum prófum eins og sagt
var í Morgunblaðinu á laugardaginn.
Teknir með amfetamín
í neytendaumbúðum
Lögreglan handtók þrjá menn með
amfetamín í kjallaríbúö í vesturbæ
aðfaranótt laugardagsins. Mennirnir
voru með sjö grömm af amfetamíni
pökkuðu í neytendaumbúðum.
Auk amfetamínsins voru mennirn-
ir með tuttugu og fimm þúsund
krónur í peningum sem lögreglan
lagði hald á.
Úr þessari sömu íbúð voru 14
manns fluttir í fangageymslur fyrir
skömmu. Þá fannst einnig fíkniefni
í íbúðinni.
-sme
Toyota Corolla Liftback XL, 5 dyra, nýr,
glæsilegur bíll, árg. ’88, til sölu vegna
sérstakra óstæðna, ekinn aðeins ca
400 km, með útvarpi. Ath. skuldabréf.
Verð 560 þús. Uppl. í síma 18769 milli
kl. 13 og 19.
Þrír góöir tyrir veturinn. Til sölu þrír
Mitsubishi L-300 4WD ’83, tveir eru
rauðir, einn beige. Ástand mismun-
andi gott, sanngjarnt verð og góðir
lánamöguleikar. Uppl. í síma 611210.
Honda CRX ’86 til sölu, litur rauður,
góður sportbíll. Uppl. í síma 689679.
Skátabúðin á allt sem vélsleða-
fólk þarf. Allt frá skóm upp (
hjálma: Kærkomnar jólagjafir
fyrir vélsleðaáhugafólk. Við hjá
Skátabúðinni aðstoðum við val
á réttum útbúuaði. Okkar ráð-
leggingar eru byggðar á
reynslu.
Skátabúðin — skarar framúr.
SKÁTABÚÐIN
Snorrabraut 60 sími 12045í