Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.1987, Blaðsíða 38

Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.1987, Blaðsíða 38
54 MÁNUDAGUR 7. DESEMBER 1987. Merming____________ dv Sannleikur flokksins r Þórarinn Þórarinsson. Þórarinn Þórarinsson: Sókn og sigrar, 3. bindi Framsóknarflokkurinn, Reykjavik 1987. Þórarinn Þórarinsson, fyrrver- andi ritstjóri Tímans, trúir því staðfastlega, að sannleikurinn hafi með einhveijum duiarfullum hætti ákveðið að taka sér allur bólfestu í einum stjórnmálaflokki og Fram- sóknarflokkurinn orðið fyrir valinu. Hann hefur í þremur bind- um sagt langa sögu um góðu mennina í Framsóknarflokknum, er ætíð settu almannaheill ofar sér- hagsmunum, en þurftu hins vegar að berjast við vondu mennina í hin- um flokkunum, sem höfðu ýmis annarleg sjónarmið. Og telur Þór- arinn, að „íhaldið" hafi þar verið sýnu verst, enda hefur hann jafnan verið í vinstri armi Framsóknar- flokksins. Ég hef hér ekki tóm til að gera efnislegar athugasemdir við söguskýringar hans, sem sum- ar eru furðulegar, og ætla því að láta nokkrar almennar hugleiðing- ar nægja. Ummæli Þórarins um Ólaf Thors og Bjarna Benediktsson Þórarinn segir, að Ólafur Thors hafi verið tækifærissinni og því lík- lega ekki hallur undir neina nútíma-frjálshyggju, en Bjarni hafl á hinn bóginn hlustað of mikið á efnahagsráðgjafa sína og betur átt að treysta brjóstvitinu. Ummæli Þórarins éru umhugsunarverð í ljósi þess, að Tíminn hélt alla tíð uppi látlausum áróðri um, að Ólaf- ur gengi erinda stóreignamanna og héldi fast við kreddukenningar kapítalismans. Eru árásir félags- hyggjublaða okkar daga á fijáls- hyggju ekki sömu ættar? Auðvitað var Olafur öðrum þræði tækifæris- sinni, en það verða allir góðir stjómmálamenn að vera. Ég er hins vegar ekki sömu skoðunar og Þórarinn og margir aðrir íslenskir stjómmálaskýrendur, að það hafi verið sérstakt afrek Ólafs, hversu stór Sjálfstæðisflokkurinn var undir stjóm hans. Það, sem þarf að skýra, er ekki, hversu stór Sjálf- stæðisflokkurinn var miðað við norræna íhaldsflokka, heldur hversu lítill hann var í samanburði við til dæmis Kristilega lýðræðis- flokkinn þýska og íhaldsflokkinn í Bretlandi. Hann hóf göngu sína árið 1929 með um 50% fylgi kjós- enda. En hvers vegna náði hann aldrei undirtökunum í stjómmál- unum? Ég hlýt líka að andmæla því, sem Þórarinn segir um oftrú Bjama Benediktssonar á hagfræðingum. Þeir Benjamín Eiríksson og Ólafur Bjömsson og síðar Jóhannes Nor- dal og Jónas Haralz unnu ómetan- legt verk með því að sannfæra hina fijálslyndari sfjórnmálamenn Bókmenntir Hannes H. Gissurarson landsins um að losa bæri um það haftafargan, sem hér hafði búið um sig. Þeir sýndu fram á það með glöggum rökum, að heppilegra væri að leyfa fijálsu markaðsverði að skammta gjaldeyri og fjármagn, vöm og þjónustu, heldur en að fela misvitrum stjómmálamönnum vald til þess. Hugsið ykkur, að á aðalhaftatímanum gátu menn ekki komist til útlanda nema gera sér- stakri nefnd ríkisins grein fyrir því, í hvaða erindum þeir væru að fara! Menn urðu þá að fá sérstök innflutningsleyfi til þess að geta flutt inn vöra, mæta eldsnemma á morgnana í biðstofur bankastjór- anna og þar fram eftir götunum. Framleiðslustefna og samdráttarstefna Þótt stjómmálahugmyndir Þór- arins Þórarinssonar séu fremur einfaldar í sniðum - það, sem Framsóknarflokkurinn gerir, er gott, en það, sem hinir flokkarnir gera, er vont, jafnvel þegar það er hið sama - má þar, hygg ég, greina ákveðna kenningu. Hún er, að í efnahagsmálum séu til tvær stefn- ur: framleiðslustefnan og sam- dráttarstefnan. Framleiðslustefn- an er, að ríkið hafi forgöngu um þjóðnýtar framkvæmdir og styðji atvinnulífið eftir megni, umfram allt með því að veita því ódýrt láns- fé. Samdráttarstefnan er hins vegar, að ríkið gæti aðhalds á öllum sviðum og skammti atvinnuvegun- um naumt. Þarf ekki að spyija að því, að Þórarinn er eindreginn fylg- ismaður framleiðslustefnunnar. Þessar nafngiftir em auðvitað vill- andi. Aðrir gætu með sama rétti talað um eyðslu- og aðhaldsstefnu eða afskipta- og viðskiptastefnu. Meginatriðið er þó, hvaða rök hníga að þessum ólíku stefnum og hvaða afleiðingar þær hafa haft. Mesti gallinn við framleiðslu- stefnu Þórarins er, að einstakling- amir úti í atvinnulífinu ráða yfir miklu meiri þekkingu og kunnáttu en embættismenn og stjómmála- menn inni í stofnunum ríkisins og era því miklu færari um að taka ákvarðanir, er varða framleiðslu og verslun. Þeir eiga líka miklu meira í húfi. Þaö kemur niöur á þeim sjálfum, ef tilraunir þeirra mistakast, og þeir njóta líka sjálfir góðra verka sinna. Einstaklingam- ir eiga þess vegna að gera það, sem þeir geta gert betur en ríkið, en það er að rækta garðana sína, bregðast við breytingum, prófa sig áfram. Ríkið á hins vegar að gera það, sem það getur gert betur en einstakling- amir, en það er að setja almennar leikreglur utan um starfsemi þeirra og framfylgja þeim. Það á með öðram orðum að sjá um, að girðingarnar í kringum garða ein- staklinganna séu í lagi. Og sú íhlutunarstefna, sem Þórarinn kallar framleiðslustefnu, hefur haft ákaflega slæmar afleiðingar hér á íslandi. Fjármagn hefur ekki fengið að streyma sjálfkrafa í hag- kvæmustu áttimar, því að stjóm- málamenn hafa beint því á þær brautír, þar sem veriö hefur at- kvæða von. Stjórnmálaflokkar ekki lengur farvegir breytinga Mér fannst óneitanlega, þegar ég las bók Þórarins, að ég væri að hlusta á rödd frá horfinni tíð. Þetta er ef til vill eðlilegt. Þórarinn tók allan sinn þroska út, þegar stjóm- málaflokkarnir skiptu miklu meira máli en þeir gera nú og höfðu miklu víðtækara vald. Þú varðst til skamms tíma að vera í einhveijum sljómmálaflokki, ef þú áttir að fá greinar birtar eftir þig í blööum, aögang að útvarpi eða sjónvarpi, lán úr bönkum og leyfi til að gera hitt og þetta frá nefndum og ráðum ríkisins. Nú hefur þetta allt breyst. Nú getur enginn flokkur haggað við þér, þótt þú rísir upp gegn hon- um. Úthlutunar- og refsivald flokkanna hefur að miklu leyti horfið, ekki síst vegna þeirra breyt- inga, sem orðiö hafa hér á fjölmiðl- un og peningamarkaði fyrir tilstilli frjálshyggjumanna. Kjördæma- skipun er líka orðin með þeim hætti, að smáflokkar geta nú vænst þess að fá menn kjöma í þéttbýli. Og síðast en ekki síst er íslenskur sósíalismi kominn að fótum fram, að því er virðist. Fijálslyndum mönnum stendur ekki lengur stuggur af honum, og þeir finna því ekki hjá sér knýjandi þörf til að sameinast gegn honum. Þessar miklu breytingar á ís- lenskum stjómmálum hafa fram að þessu einkum bitnað á Sjálf- stæðisflokknum, og sannast þar, hversu gráglettin örlögin eru. Sjálf- stæðisflokkurinn hefur að mestu leyti afsalað sér úthlutunar- og refsivaldi sínu jafnframt því sem sósíalisminn virðist ekki vera eins hættulegur og áöur. Þannig hefur hann misst glæpinn, ef svo má segja. Menn hafa margir kennt núverandi forystusveit hans um lítið gengi flokksins á síðustu árum, en ég hygg, að kóngur vifji sigla, en byr hljóti að ráða. Það á hins vegar ekki að koma neinum á óvart, að Framsóknarflokkurinn og Alþýðuflokkurinn era nú sterk- ir. Miðjuflokkar græða til skamms tíma á því, að úr átökum dregur. En þverbrestur kann að vera í Framsóknarflokknum, þegar til lengri tíma er litiö: hann verður að hverfa frá hefðbundinni land- búnaðarstefnu sinni, ef hann á að öðlast fylgi í þéttbýli, en ef hann gerir það, þá missir hann fylgi í strjálbýli. Til þess að halda við fylgi sínu veröur flokkurinn að beita úthlutunarvaldi, en ef hann heldur við úthlutunarvaldi, missir hann fylgi. Þess vegna er rödd Þórarins Þórarinssonar rödd frá liðinni tíö. HHG Bom um VMoIrt BRASIUA ^ CARLOS drengurimi af f’öiwmi xan fmw hriwili Ulí Böm sem þjást Carlos, drengurlnn af götunnl sem fann helmlli. Höfundur: Marcos Carpenter. Myndir: Ben Alex. Þýðandi: Jóhannes Tómasson. Útgefandi: Bókaútgáfan Salt '87. Bókaútgáfan Salt hefur sent frá sér tvær bækur í flokknum Börn um víða veröld. Bækumar era báð- ar þannig gerðar að Ijósmyndir skipa öndvegi, taka u.þ.b. % af rúmi blaðsíðnanna á móti '/< sem fer undir texta. Carlos segir frá litlum dreng í Sao Paulo í Brasilíu. Hann er munaöar- laus og selur blóm sér og frænda sínum til framfæris, mest af tekj- Bókmenntir Hildur Hermóðsdóttir unum fer þó í drykkju frændans. Drengurinn lendir í fangelsi vegna misskilnings en kynnist konu sem verður milligöngumaður um að finna handa honum fósturforeldra. Konan er trúboði að nafni Tia No- ema. Um hana segir höfundur innan á bókarkápu: „Tia Noema er ekki skáldsagnaper- sóna. Starf hennar er það sem greint er frá í bókinni. Hún er yfir- maður samtaka sem aðstoða for- eldralaus og yfirgefin böm í Sao Paulo. Þeir sem vilja styðja starf hennar geta sent framlög til: /.../“ Hér er settur fram tilgangur bók- arinnar sem er, svo sem jafnan áður hjá Salt, að minna á kristni- boðsstarfiö og hjálparstarfið úti í heimi, hér er þetta ákveðna starf í Sao Paulo. Texti bókarinnar ber nokkur merki tilgangsbókmennta. Upplýs- ingar era í fyrirrúmi fyrir listræn- um efnistökum. Myndir í fyrri hluta bókar, sem sýna hreinan og þriflegan dreng, era varla nægilega sannfærandi til að vekja samúð. Samt sem áður gefur bókin allgóða mynd af stöðu einstæðingsbama í Brasilíu. Bókin minnir okkur á að úti um allan heim er fullt af böm- um sem þjást. Þó að Carlos sé kominn í höfn í lok sögunnar eram við minnt á að það hefur aðeins fækkað um einn, nýr blómasölu- drengur er kominn á götuhorniö í hans stað. Því er þessi bók öllum holl lesning. Hún á bæði erindi í heimahús og til notkunar í skólum. Ljósmyndir bókarinnar segja mik- ið um lifnaðarhætti í Brasilíu og era prentaðar á góðan pappír. HH

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.