Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.1987, Blaðsíða 40

Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.1987, Blaðsíða 40
56 MÁNUDAGUR 7. DESEMBER 1987. Sviðsljós Ólyginn sagði... Angela Lansbury gamla vinalega piparkerlingin í þáttunum Morðsögu, er kona með mikið skap. Hún er á samningi hjá Universal kvik- myndafyrirtækinu og við upptökur um daginn pantaði hún sér kleinuhring og kaffi. Þegar hún var rukkuð um góð- gætið æsti hún sig upp og sagðist ekki mæta oftar við upptökur ef hún þyrfti að borga fyrir þetta smáræði. Framleið- endurnir urðu hræddir, og nú fá allir leikarar ókeypis kaffi og með því hjá Universal, þökk sé Angelu Lansbury. Díana prinsessa hefur þótt ala dreng- ina sína litlu upp í of miklu eftirlæti. Synir Díönu og Karls heita Harry og Willie, og sá síð- arnefndi þykir vera ansi frekur. Díana sendi orðsendingu með Wiliam litla í skólann um dag- inn þar sem hún óskaði eftir því að hann fengi að sleppa við leikfimitímana, þar sem hún væri hrædd um að aumingja litli strákurinn hennar gæti ofreynt sig! Agnetha Fáltskog hefur ekki haft sig mikið I frammi undanfarin tvö ár. Agn- etha reyndi talsvert fyrir sér með sólóferil í tónlistinni eftir að hljómsveitin AEBA hætti, en með heldur klénum árangri. Nú á að reyna á ný, og komin er út ný hljómplata, „I stand al- one", sem hún tók upp í samvinnu við Peter Cetera sem eitt sinn var söngvari í hljóm- sveitinni Chicago. Agnetha hefur breytt útliti sínu talsvert og vonast til að það hjálpi til við sölu nýju plötunnar. Hljómsveitarmaöurinn og leikarinn Sting má passa sig á aö umgangast Sting ræddi umhverfismál viö höföingjann og þá ógn sem indíánum stafar svona varasama menn. Hann er þama á tali viö indíánahöfðingjann Raoni af aðgerðum hvíta mannsins í Brasilíu. Þessi fyrrum söngvari úr hljómsveit- af Kayapoættflokki í regnskógum Brasilíu en söngvarinn frægi gerði hlé á inni Policeeráhljómleikafórumheiminntilstyrktar Amnestylntemational. tónleikafór sinni til að heimsækja þorp indíánaættflokksins. Hjá bókaforlaginu Þjóðsögu kom út bók um Kristínu Jónsdóttur myndlistarmann eftir Aðalstein Ingólfsson list- fræðing. Höfundurinn stendur hér brosmildur yfir Stefáni Thors arkitekt, sem er dóttursonur Kristínar, Guðrúnu Gunnarsdóttur veflistamanni og Kristinu Gunnarsdóttur, sem er dótturdóttir Kristínar. Hveijum m annfugl fegur Nú rétt fyrir jóhn kemur ávallt mikill kippur í bóka- og plötuútgáfu og boöa þá útgáfufyrirtækin iðulega til blaðamannafunda til þess að kynna verkin sem gefin eru út á þeirra vegum. Sýnt þykir að hverju útgáfufyrirtæki þykir sinn fugl fag- ur. Hér eru nokkrar svipmyndir frá kynningarfundum fyrirtækjanna. Aðstandendur samtaka um byggingu tónlistarhúss gáfu nýlega út plötu og ber hún heitið Söngur um draum. Frá vinstri talið eru Bergþór Pálsson söngvari, Haraldur Ólafsson lektor, Ármann Ár- mannsson forstjóri, sem er í forsvari fyrir samtök- in, Rut Magnússon söngkona, Gunnar S. Björnsson verktaki, Guðmundur Jónsson, arkitekt hússins, Helga Hauksdóttir tónlistarmaður og full- trúi Sinfóníuhljómsveitarinnar og Guðmundur Jónsson. Almenna bókafélagið kynnti bók Péturs H. Ár- mannssonar, Heimili og húsagerð. í fremri röðinni eru Guðrún Jónsdóttir arkitekt, höfundurinn, Pétur Ármannsson og Hörður Bjarnason, fyrrverandi húsameistari rikisins. í aftari röðinni eru Sigurður Valgeirsson, bókmenntafulltrúi AB, Ijósmyndar- arnir Ragnar Th. Sigurðsson og Kristján Magnús- son, Jóhannes Þórðarson arkitekt og Kristján Jóhannsson, framkvæmdastjóri AB. Annar flokkur ritsafns Sigurðar Nordal, sem ber heitið List og lífsskoðun, kom einnig út hjá AB og hér sjást á kynningarfundi frá vinstri: Kristján Jóhannsson og Sigurður Valgeirsson hjá AB, Kristján Karlsson skáld, Eiríkur Hreinn Finnboga- son bókmenntaráðgjafi, Jóhannes Nordal seðla- bankastjóri og Ólafur Pálmason. Ritið er í þremur bindum. DV-myndir GVA

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.