Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.1987, Síða 43

Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.1987, Síða 43
MÁNUDAGUR 7. DESEMBER 1987. 59 i> v Fólk í fréttum Steingrímur J. Sigfússon Steingrímur J. Sigfússon, for- maöur þingflokks Alþýðubanda- lagsins, hefur sagt í umræðum um þingsköp að öngþveiti blasi við í þingstörfum Alþingis. Steingrímur Jóhann er fæddur 4. ágúst 1955 á Gunnarsstöðum í Þistilfirði í Norð- ur-Þingeyjarsýslu og lauk B.Sc,- prófl í jarðfræði frá Háskóla Islands 1981. Hann vann jarðfræði- störf hjá Háskóla íslands og Hafrannsóknarstofnun 1980-1982 og var íþróttafréttamaður hjá Sjón- varpi 1982-1983. Steingrímur hefur veriö alþingismaður frá 1983 og hefur setið í miðstjórn Alþýðu- bandalagsins. Hann hefur setið í stjórn Ríkisspítalanna frá 1984 og verið fulltrúi í vest-norræna þing- mannasambandinu frá 1985. Stein- grímur hefur verið formaður þingflokks Alþýðubandalagsins frá 1987. Kona Steingríms er Bergný Marvinsdóttir, f. 4. desember 1956, læknir. Foreldrar Bergnýjar eru Marvin Frímannsson, bifvélavirki á Selfossi, og kona hans, Ingibjörg Helgadóttir. Sonur Steingríms og Bergnýjar er Sigfús, f. 29. nóvemb- er 1984. Systkini Steingríms eru: Kristín, f. 13. mars 1949, kennari á Akureyri, gift Ólafi H. Oddssyni, héraðslækni á Akureyri; Jóhann- es, f. 14. maí 1953, b. á Gunnarsstöð- um, giftur Berghildi Björgvinsdótt- ur; Árni, f. 21. júlí 1957, véltæknifræðingur í Noregi, giftur Ingibjörgu Jónsdóttur kennara; Ragnar Már, f. 20. október 1959, b. á Gunnarsstöðum, giftur Ástu Laufeyju Þórarinsdóttur, og Aðal- björg Þuríður, f. 18. júlí 1967, nemi í Verkmenntaskólanum á Akur- eyri. Foreldrar Steingríms eru Sigfús A. Jóhannsson, b. á Gunnarsstöð- um í Þistilfirði, og kona hans, Sigríður Jóhannesdóttir. Faðir Sigfúsar var Jóhann, b. í Hvammi í Þistilfirði, Jónsson, b. og skálds í Hávarsstöðum, Samsonarsonar. Móðir Sigfúsar var Kristín Sigfús- dóttir, b. í Hvammi, Vigfússonar, b. í Hvammi, Sigfússonar, b. í Hvammi, Jónssonar, bróður Katr- ínar, langömmu Gunnars Gunn- arssonar rithöfundar. Sigríður var dóttir Jóhannesar, b. á Gunnarsstöðum, bróður Si- gríðar, ömmu Bjöms Teitssonar, skólameistara á ísafirði. Bræður Jóhannesar voru Gunnar, skrif- stofustjóri hjá Búnaðarfélaginu og Davíð, faðir Aðalsteins, orðabóka- höfundar. Systir Jóhannesar var Ingiríður, amma Árna Harðarson- ar söngstjóra. Systir Jóhannesar var einnig Sigríður, móðir Bjarna ráðunautar, verkfræðinganna Guðmundar og Steingríms Ara- sona. Jóhannes var sonur Árna, b. á Gunnarsstöðum, Davíðssonar, b. á Heiði á Langanesi, Jónssonar. Móðir Árna var Þuríður, systir Jóns á Skútustöðum, langafa Þórs Vilhjálmssonar hæstaréttardóm- ara. Jón var einnig langafi Magnúsar Torfasonar hæstaréttar- dómara, Jónasar Jónssonar búnaðarmálastjóra og Hjálmars Ragnarssonar tónskálds. Þuríður var dóttir Árna, b. á Sveinsströnd í Mývatnssveit, bróður Kristjönu, móður Jóns Sigurðssonar, alþing- ismanns á Gautlöndum, forfóður Gautlandaættarinnar. Systir Þur- íðar var Guðrún, langamma Gísla Konráössonar, forstjóra á Akur- eyri, fóöur Axels, aðstoðarforstjóra SÍS. Árni var sonur Ara, b. á Skútu- stööum, Ólafssonar. Móðir Jó- hannesar var Arnbjörg Jóhannes- dóttir, systir Árna, fóður Ingimundar söngstjóra. Móðir Sig- ríðar var Aðalbjörg, systir Árna læknis á Vopnafiröi.og Guðmund- Steingrímur J. Sigfússon. ar kaupfélagsstjóra, afa Ármanns kaupsýslumanns og Halldórs Reynissonar, prests í Hruna. Guð- mundur er afi Kára Eiríkssonar listmálara. Aðalbjörg var dóttir Vilhjálms, b. á Ytri-Brekkum á Langanesi, Guðmundssonar og konu hans, Sigríðar Davíðsdóttur, systur Árna, b. á Gunnarsstöðum. Valgerður Sigurðardóttir og Benedikt Stefansson Valgerður Sigurðardóttir hús- móðir, til heimilis að Hafnarbraut 47, Höfn í Hornafirði, er sextug í dag, en maður hénnar, Benedikt Stefánsson, fv. b. og hreppstjóri að Hvalnesi i Lóni, verður sjötugur nk. fimmtudag. Valgerður fæddist að Höfn í Hornafirði og ólst þar upp í foreldrahúsum en foreldrar henn- ar fluttu til Hafnar í .Hornafirði 1920 og voru þá á meðal frum- byggja staðarins. Foreldrar Valgerðar voru Sigurð- ur Eymundsson frá Dilksnesi í Hornafirði, f. 1884, og kona hans, Agnes Moritzdóttir Steinsen frá Krossbæ í Hornafirði, f. 1896. Föð- urforeldrar Valgerðar voru Eymundur b. á Dilksnesi, Jónsson, og kona hans Halldóra Stefáns- dóttir. Móðurforeldrar Valgerðar voru Moritz Steinsen og Guðrún Benediktsdóttir. Valgerður var á Húsmæðraskól- anum í Hverageröi 1946-47 en 8.12. 1950 giftist hún Benedikt Stefáns- syni frá Hlíð í Lóni, syni Stefáns Jónssonar b., hreppstjóra, kennara og vegavinnuverkstjóra í Hlíð í Lóni, f. 1884, og konu hans Kristín- ar f. 1881, Jónsdóttur b. á Berunesi á Berufjarðarströnd, Stefánssonar. Foreldrar Stefáns voru Jón Bergs- son, b. á Bæ í Lóni, og kona hans, Rannveig Sigurðardóttir. Benedikt vann á búi foreldra sinna til 1951 en þau Valgerður bjuggu í tvö ár á Höfn áður en þau fluttu að Hvalnesi í Bæjarhreppi þar sem þau bjuggu í þrjátíu og sex ár. Benedikt var vitavörður frá 1954. Hann var bókavörður bóka- safns Bæjarhrepps, organisti í Stafafellskirkju um skeið, hrepp- stjóri frá 1961 og sýslunefndarmað- ur frá 1968. Benedikt hefur verið í Náttúruverndarnefnd Austur- Skaftafellssýslu, var löngum full- trúi á fundum Búnaðarsambands Austur-Skaftafellssýslu, fyrsti formaöur Karlakórsins Jökuls, safnaðarfulltrúi Stafafellssóknar og lengi formaður fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í Austur- Skaftafellssýslu. Valgerður og Benedikt eiga fimm börn: Stefán, verkamaður og sjó- maður á Siglufirði; Agnes Sigrún, húsmóðir á Hornafiröi; Sigurður, smiður á Höfn í Hornafirði; Bene- dikt, verkamaður á Siglufirði; og Kristín, verkakona á Höfn. Börn þeirra Valgerðar og Benedikts eru öll gift nema það yngsta en barna- börnin eru sjö. Guðbjartur Hólm Guðbjartsson Guðbjartur Hólm Guðbjartsson, bóndi að Króki á Kjalarnesi, er sjö- tíu ára í dag. Guðbjartur er fæddur í Reykjavík, sonur Guðrúnar Jóns- dóttur, sem ættuð var af Kjalar- nesi, og Guðbjarts Guðmundssonar sem ættaður var af Vestfjörðum. Guðbjartur ólst upp í Bákkakoti á Kjalarnesi og síðar að Króki í sömu sveit. Hann var alinn upp af Hólmfríði Oddsdóttur, ömmu sinni, og móðurbræðrum sínum, Guðbjarti Jónssyni og Gunnlaugi Jónssyni: Guðbjartur kvæntist ungur Ólaf- íu Jónsdóttur og eru börn þeirra: Gunnar; Guðjón og Ólafur. Ólafia dó 1953. Seinni kona Guðbjarts var Gunnleif Kristín Sveinsdóttir og eru börn þeirra Anna Margrét; Hólmfríður; Guðbjartur og Stein- unn. Gunnleif lést snemma árs 1973. Guðbjartur Hólm Guðbjartsson Guðmundur Bjarnason Guðmundur Bjarnason, Aspar- felli 2, Reykjavík, er sjötíu og fimm ára í dag. Guðmundur fæddist að Bæ í Steingrímsfirði og ólst upp hjá foreldrum sínum sem bjuggu tvö ár að Klúku í Bjarnarfirði og síðan að Drangsnesi en fluttu svo til ísa- fjarðar þegar Guðmundur var þrettán ára. Guðmundur var á Isafirði til fullorðinsára en flutti þá til Reykjavíkur þar sem hann stundaði almenna verkamanna- vinnu. Síðustu starfsárin var hann vaktmaður hjá Bifreiðastöð Steind- órs. Kona Guðmundar er Ingunn Gunnlaugsdóttir og eiga þau tvö börn. Guðmundur átti fjögur systkini sem upp komust en á nú tvær syst- ur á lífi. Þær eru Guðmundína og Sigríður, báðar búsettar í Reykja- vík.. Foreldrar Guðmundar: Bjarni b. og verkamaður Andrésson og kona hans, Jónína Ósk Guðmundsdóttir. Föðurforeldrar Guðmundar voru Andrés b. í Víkursveit Jónsson og kona hans, María Jakobsdóttir. Móðurforeldrar Guðmundar voru Guðmundur b. að Skarði í Bjarnar- firði Jónsson og kona hans, Þuríð- ur Halldórsdóttir. Tilmæli til afmælisbarna Blaðið hvetur afmælisbörn og aðstandendur þeirra til að senda því myndir og upplýsingar um frændgarð og starfssögu þeirra. Þessar upp- lýsingar þurfa að berast í síðasta lagi tveimur dögum fyrir afmælið. Munið að senda okkur myndir. AEmæli Arni Magnússon Árni Magnússon, fv. b. að Vatns- enda og síöar Flögu í Villingaholts- hreppi, nú til heimilis aö Starengi 11 á Selfossi, er sjötugur í dag. Árni fæddist að Flögu og ólst þar upp hjá foreldrum sínum. Hann var b. að Vatnsenda 1951-64 og á Flögu frá 1964-79. Árni var fjallkóngur Flóa- manna er hann bjó á Flögu. Hann brá búi 1979, flutti þá til Selfoss og hefur starfað á svínabúinu að Þórustöðum í Ölfusi síðan. Kona Árna er Sigrún Alda, f. 23.1. 1925, dóttir Sigurðar sjómanns Gunnarssonar og Guðbjargar Egg- ertsdóttur. Árni og Sigrún eiga þrjá syni: Kristinn, starfsmaður hjá Mjólkur- búi Flóamanna, f. 1964, unnusta hans er Jóna Guðmundsdóttir; Magnús Vignir, starfsmaður á svínabúinu á Þórustöðum, f. 1966, er sambýlismaður Ehnborgar Örnu Árnadóttur; og Hörður, starfsmaður á kjúklingabúinu á Þórustöðum, f. 1968. Fyrri kona Árna var Kristín, f. 24.7. 1910, d. 2.2. 1963, dóttir Guð- mundar b. á Seli í Holtum, Jóhann- essonar, og konu hans Sesselju Vigfúsdóttur. Þeim varð ekki barna auðið en ólu upp fimm börn frá fyrra hjónabandi Kristínar. Fyrri maður hennar var Ásmundur Guð- mundsson, b. á Vatnsenda. Árni átti níu systkini og einn fóst- urbróður, en tvö systkini hans eru látin. Systkini hans: Guðrún, sem dvelur á elliheimilinu Grund, gift Bjarna Ágústssyni, vélamanni í Reykjavík; Stefanía, húsmóðir á Eyrarbakka, gift Guðmanni Valdi- marssyni trésmið; Brynjólfur er látinn, en hann var verkamaður í Þorlákshöfn, giftur Ingibjörgu Árni Magnússon. Hjörleifsdóttur; Sigríður, sem var húsmóðir á Selfossi, er einnig látin, en hún var gift Gísla Guðjónssyni pípulagningamanni; Guðríður, húsmóðir á Selfoss}, er gift Jóni Hjartarsyni vörubílstjóra; Grímur er bifreiðarstjóri í Þorlákshöfn; Anna, húsmóðir í Garðabæ, er gift Árna Þórarinssyni trésmið; Unnur, húsmóðir í Kópavogi, er gift Hauki Hlíðberg, flugmanni og húsgagna- smið. Fósturbróðir Árna er Stefán Jónsson, verkamaður á Selfossi, giftur Svanlaugu Hánnesdóttur. Foreldrar Árna: Magnús b. að Flögu, Árnason, og kona hans, Vig- dís Stefánsdóttir. Faðir Magnúsar var Árni, b. á Hurðarbaki í Flóa, Pálsson, b. í Selalæk, Guðmunds- sonar, b. á Keldum, Brynjólfssonar, b. á Vestri-Kirkjubæ, Stefánssonar, b. í Árbæ, Bjarnasonar, b. og hreppstjóra á Víkingslæk, Hall- dórssonar, foríoður Víkingslækjar- ættarinnar. Vigdís er dóttir Stefáns, b. á Selalæk, Brynjólfsson- ar, b. á Kirkjubæ, Stefánssonar, b. á Eystri-Kirkjubæ, Brynjólfssonar, bróður Guðmundar á Keldum. 70 ára Guðrún S. Kristjánsdóttir sauma- kona, Austurbrún 2, Reykjavík, er sjötug í dag. Júlíus Jóhannesson, Jakobshúsi, Svalbarðsstrandarhreppi, er sjötugur í dag. Karítas Halldórsdóttir, Mararbraut 5, Húsavík, er sjötug í dag. 60 ára_______________________ Sigmundur Helgason, Arnartanga 18, Mosfellsbæ, er sextugur í dag. Finnbogi Bernódusson, Holtabrún 21, Bolungarvík, er fertugur í dag. Guðlaug Hjelm, Hrauntúni 30, Vest- mannaeyjum, er fertug í dag. Ólöf Erna Pétursdóttir, Frostafold 87, Reykjavík, er fertug í dag. Ólafur Bjarnason, Hverfisgötu 1, Siglufirði, er fertugur í dag. Brynjólfur Magnússon, Lynghaga 2, Reykjavík, er fertugur í dag. Gissur Sigurðsson, Þingholtsstræti 26, Reykjavík, er fertugur í dag. Ásgeir Halldórsson, Unufelli 23, Reykjavik, er fertugur í dag. Sérverslun 50 ára Hreinn Guðjónsson, Selá, Skefils- staðahreppi, er fimmtugur í dag. Bragi Bjarnason, Mánavegi 3, Selfossi, er fimmtugur í dag. Friðrikka Emilsdóttir, Hjallalundi 15A, Akureyri, er fimmtug í dag. 40 ára_______________________ Sigurður Bjarklind menntaskólakerm- ari, Norðurbyggð 7, Akureyri, er fertugur í dag. með blóm og skreytingar. Opit) til kl. 21 öll kvöld 0öBlóm wQskrcyungar Laugauegi 53, simi 20266 Sendum um Lmcl allt.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.