Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.1987, Qupperneq 2
30
MIÐVIKUDAGUR 23. DESEMBER 1987.
Johann Sebastian Bach.
Rás 1 jóladag kl. 8.25:
Jóla-
óratorían
eftir
Bach
A jóladagsmorgun verða fluttir á
rás 1 tveir fyrstu þættir Jólaórator-
íunnar eftir Johann Sebastian
Bach. Flytjendur eru Barbara
Shlick, sópran, Carolyn Watkin-
son, alt, Kurt Equiluz, tenór, og
Michel Brodard, bassi. Með þeim
leika og syngja kór og kammer-
sveitin í Lausanne. Stjórnandi er
Michel Corbos. íslenskur kynnir
er Knútur R. Magnússon.
Erró verður í Nærmyndum á jóla-
dag.
Stöð2jóladagkl. 19.50:
Erróí
nærmynd
Einn frægasti sonur þessarar
þjóðar á listasviöinu er án efa Guð-
mundur Guðmundsson, betur
þekktur sem Erró. Erró hefur notið
mikillar virðingar hér á landi sem
og erlendis fyrir verk sín. í Nær-
myndum á jóladag ræðir Jón Óttar
Ragnarsson viö Erró um líf hans
og list.
Sjónvarp sunnudag kl. 18.05:
Rauðhettuævintýri í Reykjavík
Lóa litla Rauðhetta heitir 20 mín-
útna löng, bráöskemmtileg sjón-
varpsmynd fyrir böm sem
sjónvarpið lét gera í ár. Myndin er
gerð eftir sögu Iðunnar Steinsdótt-
ur en leikstjóri er Þórhailur
Sigurösson.
Lóa er fimm ára, á góöa mömmu,
góðan pabba og frábæra ömmu.
Samt er hún ekki ánægð. Henni
finnst leiðinlegt að vera bara Lóa
og vera bara fimm ára. Hún vill
heita eitthvað annað óg vera eitt-
hvað annað. Til dæmis Mjallhvít
eða Öskubuska eða Litla Ljót eða.„.
Svona hefst sagan um Lóu og þegar
mamma hennar sendir hana einn
daginn til ömmu þá er Lóa auðvitað
orðin Rauðhetta í huganum.
Myndin var tekin í Reykjavík í
ágúst síðastliðið sumar. Linda
OKeeffe 6 ára leikur Lóu og má
segja að hún sé í hverju einasta
myndskeiöi myndarinnar. í öðrum
hlutverkum eru leikararnir Vil-
borg Halldórsdóttir, Siguröur
Skúlason, Herdís Þorvaldsdóttir og
Þórdís Arnljótsdóttir en sögumað-
ur er Edda Heiðrún Backman.
Myndataka var í höndum Ara
Kristinssonar og tónlistina samdi
Hróðmar Björnsson.
Sjónvarpiö mun endursyna
myndina á gamlársdag. Áætlað er
að sýna myndina um öll Norðurl-
önd á næsta ári. Það er ísfilm sem
framleiðir myndina fyrir sjónvarp-
ið.
ný íslensk sjónvarpsmynd
Lóu dreymir um að vera eitthvað annað en hún er. Þegar mamma hennar sendir hana einn daginn til ömmu
sinnar breytist hún í huganum í Rauðhettu.
Rás 2 sunnudag kl. 15.00:
Tónlistarkrossgátannr. 95
Lausnir sendist til Ríkisútvarpsins, rásar 2,
--------------- Efstaleiti 1,
150 Reykjavík,
merkt
Tónlistarkrossgátan.
Rás 1 annan í jólum kl. 14.50:
Hátíðarstund í Áskirkju
- jólatónleikar Kammersveitar Reykjavíkiir
Jólatónleikar Kammersveitar
Reykjavíkur í Áskirkju voru
haldnir 20. desember síðastliðinn
en þeim veröur útvarpað á rás 1 á
annan í jólum. Efnisskráin er með
sérstökum hátíðarblæ svo sem
vera ber og meö sveitinni koma
fram fimm einleikarar. Lárus
Sveinsson og Ásgeir H. Steingríms-
son leika einleik á trompeta í
konsert Vivaldis, Rúnar H. Vil-
bergsson er einleikari í fagottkon-
sert sem einnig er eftir Vivaldi,
Laufey Sigurðardóttir spilar fiölu-
konsert Tartinis og Amaldur
Amarsson leikur með sveitinni í
gítarkonsert M. Giulianis. Loks
leikur Kammersveitin Jólakonsert
í C-dúr eftir Manfredini. - Sann-
kölluð hátíðarstund með Kammer-
sveit Reykjavíkur í Áskirkju.
Sjónvaipjóladagkl. 16.30:
Gæfu-
skómir
- ævintýri H.C. Andersens
Gæfuskórnir er ný þýsk ævin-
týramynd sem gerð er eftir
samnefndri sögu H.C. Andersen. í
ævintýrinu segir frá skóm sem
hafa þá náttúm að uppfylla aUar
óskir hvers sem í þá fer. En þegar
allar óskir, bæði stórar og smáar,
eru uppfylltar getur margt óæski-
legt gerst. Þannig fer einmitt fyrir
þeim sem bregða sér í þessa kynj-
askó.
Ur ævintýri H.C. Andersens um
gæfuskóna.
Sjónvarp jóladag kl. 21.50:
í lofd glæðast
Ur þætti Sigrúnar Stefánsdóttur, Ljós í lofti glæðast.
í þætti Sigrúnar Stefánsdóttur,
Ljós í lofti glæðast, verður fjallað
,um ýmsar hliðar á jólunum. M.a.
verður flallað um þátt ljóssins í
jólahátíðinni og þau tímamót sem
jólin marka í skammdeginu. Jóli-
siðir ýmiss konar verða gerðir að
umtalsefni og flallað um tilurð jóla-
trésins í jólahaddinu, gamlar hefðir
í sambandi við jólamat og fleira.
Meöal þeirra sem koma fram í
þættinum eru féíagar úr Hamra-
hlíðarkórnum, skógarhöggsmenn
austan af landi, auk ýmissa þjóð-
kunnra manna og kvenna sem
heimsækja Sigrúnu í gestastofu.