Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.1987, Page 4
32
Kirkjugarðar
Frá Kirkjugörðum Reykjavík-
urprófastsdæmis
Eins og undanfarin ár munu starfs-
menn kirkjugarðanna aðstoða fólk
sem kemur til að huga að leiðum
ástvina sinna.
Á Þorláksmessu og aðfangadag
verða talstöðvarbílar dreifðir um
Fossvogsgarð og munu í samvinnu
við skrifstofuna leiðbeina fólki eftir
bestu getu. Skrifstofan er opin til kl.
16.00 á Þorláksmessu og til kl. 15.00
á aðfangadag.
í Gufunesgarði og Suðurgötugarði
verða einnig starfsmenn til aðstoðar
og sérstakar ferðir verða í Gufunesið
með strætisvögnum sem hér segir:
Á aðfangadag verða farnar tvær ferð-
ir.
Frá Lækjartorgi
kl. 10.30 og kl. 14.00
Frá Hlemmi
kl. 10.35 og kl. 14.04
Frá Grensásstöð
kl. 10.45 og kl. 14.15
Vagnamir bíða meöan farþegar fara
í garðinn.
Vinsamlegast athugið að það auð-
veldar mjög alla aðstoð ef gestir í
garðinn vita leiðisnúmer. Þeim sem
ekki vita það og eru ekki öruggir að
rata viljum við eindregið benda á að
hafa samband sem fyrst við skrifstof-
una, sími 18166, og fá uppgefið númer
þess leiðis sem vitjað skal og hafa það
á takteinum þegar í garðinn er kom-
ið. Þaö auðveldar mjög og flýtir fyrir
ailri afgreiðslu.
Tekinn verður upp einstefnuakst-
ur að Fossvogskirkjugaröi og mun
lögregla gefa leiðbeiningar og stjóma
umferð.
Háppdrætti
Jólahappdrætti Kiwanis-
klúbbsins Heklu.
Dregiö hefur verið í jólahappdrættí Kiw-
anisklúbbsins Heklu. Upp komu þessi
númer: 1. des. 1496, 2. des. 762, 3. des.
733, 4. des. 370, 5. des. 1332, 6. des. 919, 7.
des. 635, 8. des. 186, 9. de$. 1489, 10. des.
382,11. des. 141,12. des. 671,13. des. 1273,
14. des. 1491,15. des. 782,16. des. 1006,17.
des. 619,18. des. 1108,19. des. 901,20. des.
495,21. des. 462,22. des. 1272,23. des. 239,
24. des. 145.
Almanakshappdrætti Lands-
samtakanna Þroskahjálpar
Vinningur í desember kom á nr. 9525.
Aðrir vinningar á árinu eru nr. 4487,
10496, 21552, 841, 14539, 9277, 17539, 3374,
17299, 13641 og 18686.
Ferðalög
Útivistarferðir
Sunnudagsferð 27. des. kl. 13.
Ásfjall-Hvaleyri. Síðasta dagsferð árs-
ins. Létt og hressandi ganga í skammdeg-
inu. Verð 400 kr., frítt f. böm m.
fullorðnum. Brottför frá BSÍ, bensínsölu
(Kópavogshálsi og Sjóminjasafninu,
Hafnarfirði). Örfá sætí laus í áramóta-
ferðina í Þórsmörk 30. des. Uppl. á
skrifst., Grófmni 1, símar: 14606 og 23732.
Strandganga í landnámi Ingólfs hefst
sunnudaginn 3. jan. kl. 13 í Grófinni.
Gengið verður um ströndina frá Rvík að
Öifúsárósum í 22 ferðum. 2. ferð er tungl-
skinsganga kl. 20 þann 4. janúar. Sjá
nánar um þetta og fleiri nýjungar i
ferðaáætíun 1988 sem kemur út um ára-
rnótin.
Bensínstöðvar
Opnunartími bensínstöðva
Aðfangadagur opið kl. 7.30-15.
Jóladagur lokað.
Annar í jólum opið 9.30-11.30 og
13-15.
Gamlársdagur 7.30-15.
Nýársdagur lokað.
Bensínsjálfsalar eru víða og ætti því
engan að skorta eldsneyti um hátíð-
amar.
TiBgynningar
Neyðarvakt Tannlæknafélags
íslands
verður um jól og áramót. Upplýsingar
veittar í síma 18888.
Hjálparstöð fyrir börn og
unglinga
í vanda er í Rauðakrosshúsinu, 'rjamar-,
götu 35. Opið er þar allan sólarhringinn
yfir hátíðimar. Sími 622266.
MIÐVIKUDAGUR 23. DESEMBER 1987. MIÐVIKUDAGUR 23. DESEMBER 1987.
49
' WÓSTUf! LEO GWMRSSON EDOA HSORUIÍ 8ACKKAN JÖHANN SGiMAfSSON
Siim palsson * gwínar s«ari mm
** HRCffitlAfi WÖSfflWffiJÓWiSSON •c-'SwsMwmwa® t&mmm
■»***'XN OLAfSSON ** v'’:* HiMAR 000SS0N
Edda Heiðrún Backman og Sverrir Guðjónsson i hlutverkum Cosette
og Mariusar.
Þjóðleikhúsið:
Vesalingamir
- frumsýning annan í jólum
Þjóðleikhúsið frumsýnir annan í -
jólum söngleikinn Vesahngana
(Les Misérables) eftir samnefndri
skáldsögu Victors Hugo. Verkið er
eins konar söngleikur sem sumir
vilja þó frekar flokka sem óperu
þar sem ekkert talað mál er í því.
Samt sem áður er heldur ekki hægt
að tala um hreina óperu þar sem
tónlistin er mun rokkaðri en geng-
ur og gerist í þess konar uppfærsl-
um.
Söngleikurinn Vesalingamir
kom fyrst fram í París árið 1980.
Hann hefur síðan verið sýndur víða
rnn heim og notið mikilla vinsælda.
í London og New York eru Vesal-
ingamir að slá öll sýningarmet og
er þeirra því beðið með mikilli eft-
irvæntingu hér á landi. Þegar hafa
selst um 8000 miðar.
Höfundar Vesalinganna em
Alain Boubill og Claude-Michel
Scönberg sem samdi tónhstina en
auk þeirra: Jean Marc Natel, Her-
bert Kretzmer og James Fenton.
Böðvar Guðmundsson gerði ís-
lensku þýðinguna en Benedikt
Ámason er leikstjóri. Hljómsveit-
arstjóri sýningarinnar er Sæbjöm
Jónsson og danshöfundur Ingi-
björg Bjömsdóttir. Karl Aspelund
sér um leikmynd og búninga en
Páll Ragnarsson um lýsingu.
Um þijátíu leikarar koma fram í
sýningunni og fer hver og einn með
fleiri en eitt hlutverk. Aðalhlut-
verkin em í höndum Egils Ólafs-
sonar sem leikur Jean Valjean og
Eddu Heiðrúnar Backman sem
leikur Cosette dóttur hans. Aðrir
aðaUeikarar eru Jóhann Sigurðar-
son, Sigurður Sigurjónsson, Sverr-
ir Guðjónsson, Aðalsteinn Bergdal,
Sigrún Waage, Ragnheiður Stein-
dórsdóttir og Lilja Þórisdóttir.
Sundlaugin og gufubaðið
á Loftleiðum
er opið almenningi alla jóladagana, nán-
ari upplýsingar í síma 22322.
Leðurpyngjan, ný verslun
í byrjun desember var opnuð ný verslun
að Hverfisgötu 52, 2. hæð. Verslunin
hlaut nafnið Leðurpyngjan enda verður
verslað þar með ýmsar leðurvörur, svo
sem seðlaveski, pyngjur, buddur, töskur,
skrifborðsmöppur og margt fleira. Eig-
endur Leðurpyngjunnar eru aðaleigend-
ur Leðuriðjunnar hf., Margrét S.
Bjamadóttir og Nanna MjöU Atladóttir,
og starfar verslunin í tengslum við verk-
smiðjuna sem einnig er tíl húsa að
Hverfisgötu 52. Verslunin verður einkum
með hinar viðurkenndu Atson-leðurvör-
mr frá Leðuriðjunni hf., en eiirnig verður
þar hægt að fá vörur frá öðrum framleið-
endum, innlendum sem erlendum. í
Jólasöngvar og
upplestur í
Hallgrímskirkju
Módettukór Hallgrímskirkju
heldur tónleika í kirkjunni sunnu-
daginn 27. desember kl. 17. Ein-
söngvarar og lesarar úr kómum
flytja þekkt jólalög og lesa jólatexta
ritningarinnar.
Konur fá frítt
í Þórscafé
annan í jólum
Þórscafé býður konum ókeypis á
dansleik annan í jólum. Auk þess
bíöur þeirra óvæntur jólaglaöning-
ur þegar inn er komið. Hljómsveit
Stefáns P. leikur fyriy dansi en auk
þess er diskótek og jólalögin aö
sjálfsögðu á sínum stað.
Jólaóratorían
í Langholtskirkju
Jólaóratoría J.S. Bachs verður
flutt þriðjudaginn 29. desember og
miðvikudaginn 30. desember í
Langholtskirkju kl. 20.30. Flytjend-
ur eru Ólöf K. Harðardóttir,
sópran, Sigríður Ella Magnúsdótt-
ir, alt, Kristinn Sigmundsson,
bassi, og hinn stórkostlegi enski
tenór, Michael Goldthorpe, ásamt
kammersveit og kór Langholts-
kirkju. Stjómandi er Jón Stefáns-
son.
Súlnasalur airnan í jólum:
Hljómsveit
Örvars Kristjáns-
sonar kveður
Hátíðardansleikur verður á ann-
an í jólum í Súlnasal Hótel Sögu.
Örvar Kristjánsson og félagar
kveðja nú gesti í Súlnasal en þeir
félagar hafa spilað á Sögu í allan
vetur. Auk þeirra koma Eyjólfur
Kristjánsson og Jóhanna Linnet
fram og syngja saman jólalög.
Dansleikurinn stendur frá kl. 21-3.
Mímisbar verður opnaður kl. 19 og
að venju leikur Tríó Áma Sche-
ving.
Leðurpyngjunni er hægt að fá nafhgyll-
ingar á veski og aðra leðurmuni verslun-
arinnar á meðan beðið er.
Nýir ritstjórar hjá
Frjálsu Framtaki
í byrjun næsta árs verða ritstjómar-
skipti á tímaritinu Mannlífi. Ámi Þórar-
insson, sem verið hefur ritstjóri blaðsins
frá ársbyrjun 1986, lætur af störfum, en
við ritstjórnarstarfmu tekur Svanhildur
Konráösdóttir en hún hefur starfað sem
ritstjómarfúUtrúi hjá tímaritinu Mann-
lffi frá því í sept. 1986. Þá hefur verið
ráðin nýr ritstjómarfúlltrúi til tímarits-
ins Mannlífs, Kristin Ólafsdóttir, sem um
árabil hefur starfaö sem blaðamaður hjá
Þjóðvfijanum. Þá hafa orðið ritstjómar-
skipti á tímaritinu Gestgjafanum. Hilmar
B. jónsson og Elin Káradóttir, sem verið
hafa ritstjórar blaösins frá upphafi, láta
af störfúm en við tekur Iris Erlingsdóttir.
Hún er kunn áhugakona um matgeröar-
list og hafði skrifað þættí í Gestgjafann
um skeið.
Eins og skepnan deyr á mynd-
bandi
Um þessar mundir er bandaríska stórfyr-
irtækið RCA/Columbia Pictures að gefa
út kvikmynd Hihnars Oddssonar, Eins
og skepnan deyr, á myndbandi í sam-
vinnu við Skífúna hf. ísland er fyrsta
landiö sem myndin er geftn út í en RCA/
Columbia hefur keypt aiheimsrétt á
dreyfingu myndbandsins. Eins og skepn-
an deyr er fyrsta íslenska myndin sem
er gefin út á myndbandi af erlendu fyrir-
-tæki. Framleiðandi myndarinnar er Jón
Ólafsson en leikstjóri og höfundur hand-1
rits er Hilmar Oddsson. Aöalhlutverk eru
í höndum Eddu Heiðrúnar Backman,
Þrastar Leós Gunnarssonar og Jóhannsl
Sigurðarsonar.
Snorri Sveinn Friðriksson með viðhafnarútgáfu bókarinnar Sagan af brauðinu dýra
eftir Halldór Laxness.
Snorri Sveinn Friðriksson:
Málverkasýning
úr bókinni Sagan
af brauðinu dýra
Sýning á málverkum eftir Snorra Svein Friðriksson Ustmálara hefur verið opnuð í
nýjum sýningarsal, í tengslum við forlagsverslun Vöku-Helgafells, að Síðumúla 29 í
Reykjavík.
Á sýningunni eru margar stórar vatnslitamyndir Snorra Sveins sem hann gerði fyr-
ir viðhafnarútgáfu bókarinnar Sagan af brauðinu dýra eftir Halldór Laxness. Bókin
er gefin út í tilefni 85 ára afmælis nóbelsskáldsins á þessu ári. Nýlega kom bókin út á
ensku í þýðingu Magnúsar Magnússonar, rithöfundar og sjónvarpsmanns, undir titlin-
um The Bread of Life.
Snorri Sveinn Friðriksson fæddist á Sauðárkróki 1934. Hann stundaði nám við Mynd-
listarskólann í Reykjavík, Myndiista- og handíðaskóla íslands og framhaldsnám við
Konstfactskólann í Stokkhólmi. Snorri Sveinn veitir nú leikmyndadeild sjónvarpsins
forstöðu en hann hefur starfað sem leikmyndateiknari við sjónvarpið síðan 1969.
Sýningin er opin alla virka daga frá kl. 9-18 fram að áramótum.
Lögreglublaðið er komið út
í 22. sinn. það hefur verið stefna ritstjórn-
ar síðustu ár að kynna reynsluheim
lögreglumanna í gegnum efnistök blaðs-
ins þannig aö almenningur geti dregiö
lærdóm og þekkingu af hinurn fjölbreyttu
störfum lögreglunnar. Lögreglumenn
munu dreifa blaði þessu í gegnum póst-
kerfið til allra lögreglumanna, ríkisstofn-
ana og stjómsýslustofnana sveitarfélaga
og aUra þeirra er tengjast réttargæslu.
Ennfremur munu lögreglumenn dreifa
blaöinu til almennings á fjölfömum stöö-
um fyrir jólin. Blaðið er 126 síður að
stærö, prentað í fjórlit á vandaðan glans-
pappír.
Jólamyndir kvik-
myndahúsaima
Stjömubíó sýnir um jóhn gaman-
myndina Ishtar meö stórleikurun-
um Dustin Hoffman og Warren
Beatty í aðalhlutverkum. Þá félaga
dreymir um að verða frægir söngv-
arar og lagasmiðir en báða vantar
gjörsamlega alla hæfileika í þá átt.
Þeim tekst þó meö aðstoð vafasams
umboðsmanns að fá vinnu í araba-
ríki nokkru og færist þá heldur
betur fjör í leikinn.
Bíóborgin sýnir gamanmyndina
Á vaktinni eöa Stakeout. Segir þar
frá tveimur leynilögreglumönnum
í Seattle sem leiknir eru af Richard
Dreyfus og Emilio Estevez. Þeim
er fahð það verkefni að fylgjast með
húsi unnustu þekkts glæpamanns
en margt fer öðruvísi en þeir gera
ráð fyrir í fyrstu.
Regnboginn sýnir jólamyndina
The Last Emperor en hún segir
sögu síðasta keisarans í Kína, Pu
Yi. ítalski leikstjórinn Bemardo
Bertolucci hefur lengi verið með
myndina í smíðum en tökur hófust
í Kína 1986.
Háskólabíó hefur The Couch Trip
sem jólamynd í ár. í stuttu máli
segir myndin frá sálarflækjum sál-
fræðings í Beverly Hills sem verður
aö fá annan sálfræðing til að leysa
sig frá störfum um tíma. Staögeng-
illinn er ekki mjög traustvekjandi
og vekur brátt athygh fyrir nýstár-
legar lækningaaðferðir.
Bíóhöllin sýnir nýjustu mynd
snillingsins Stevens Spielberg, Inn-
erspace. Býöur Spielberg þar í
sérkennilegt ferðalag um hkama
óheppins afgreiðslumanns sem fær
óvart sprautu í rassinn sem annars
átti að fara í tilraunakanínu.
Laugarásbíó sýnir tvær jóla-
myndir í ár. Sú fyrri er bandaríska
fj ölskylduteiknimyndin An Amer-
ican Tail eða Draumalandið.
Steven Spielberg á mestan heiður-
inn af myndinni og segir þar frá
músafjölskyldu sem býr í hinni
harðbýlu Síberíu en ákveður að
fara til fyrirheitna landsins, Amer-
íku, og hefja nýtt og betra líf. Seinni
myndin heitir Stórfótur eða Big
Foot. Segir þar frá Hendersonfjöl-
skyldunni sem er svo óheppin að
keyra á apa og taka hann með sér
heim. Upp frá því lendir fjölskyldan
í ýmsum vandræöum.
Borgarbíó á Akureyri sýnir um
jóhn sakamálamyndina The Beli-
evers og er þar um að ræða
frumsýningu á íslandi.
Bridgefélag Hafnarfjarðar
Hið árlega jólamót BH og Sparisjóðs
Hafnarfjarðar verður haldið sunnudag-
inn 27. desember og hefst spilamennskan
kl. 13. Spilað verður í Flensborgarskóla,
tvimenningur með Michell-fyrirkomu-
lagi með tölvuútreikningi. Mótiö er opið
öllum spilurum og er skráð í mótíð alveg
þar tíl spilin eru tekin úr bökkunum.
Vissara er þó aö tilkynna þátttöku til
Ingvars s. 50189, Einars s. 52941 eða
Kristjáns s. 50275.
Taflfélag Kópavogs
Hið árlega jólahraðskákmót Taflfélags
Kópavogs verður haldið sunnudaginn 27.
desember kl. 14 í Kópavogsskóla, vestur-
álmu.
Marinó Þorsteinsson í hlutverki Bárðar á Búrfelli og Guðmundur Jóns-
son í hlutverki Jóns.
Leikfélag Akureyrar:
Piltur og stúíka
- ffumsýnt airnan í jólum
Leikfélag Akureyrar frumsýnir á
annan í jólum hið þekkta íslenska
leikrit, Pilt og stúlku eftir Jón
Thoroddsen. Leikritið er í leikgerð
Emils Thoroddsen en hann samdi
einnig tónlistina.
Piitur og stúlka er tahn fyrsta
íslenska skáldsagan eftir söguöld.
Hún kom fyrst út árið 1850 og hefur
lifað með þjóðinni síðan. Margar
persónumar eru þjóðkunnar og
má því til stuðnings nefna Gróu á
Leiti sem allir þekkja.
Fjölmargir leikarar koma fram í
sýningunni. Amheiður Ingimund-
ardóttir, sem er nýkomin heim frá
námi erlendis, leikur Sigríði ásamt
Ambjörgu Valsdóttur. Guðmund-
ur Jónsson ópemsöngvari leikrn-
Jón. í öörum aðalhlutverkum eru
Sunna Borg sem leikur Ingveldi í
Tungu, Kristjana N. Jónsdóttir sem
leikur Ingibjörgu á Hóli, Pétur Eg-
gerts og Páil Finnsson leika sem
Indriöa, Þórey Aðalsteinsdóttir
sem leikur Gróu á Leiti, Marinó
Þorsteinsson sem leikur Bárð á
Búrfelii og Skúli Gautason sem
leikur Guðmund á Búrfelli.
Leikstjóri er Borgar Garðarsson.
Leikmynd og búnigar era í umsjá
Amar Inga, tónlistarstjóri er Jón
Hlöðver Áskelsson og lýsingu ann-
ast Ingvar Bjömsson.
Japanskur kvintett í Bústaðakirkju
Japanskur kvintett, The En-
samble Forum, leikur á tónleikum
sem Kammermúsíkklúbburinn
heldur í Bústaðakirkju þriðjudag-
inn 29. desember kl. 20.30. í þessari
sömu tónleikaferð mun kvintettinn
leika í Helsinki í Finnlandi en ferð-
in er farin að framkvæði utanríkis-
ráðuneytis Japan.
Tónhstarmennimir stvmduðu
tónhstamám í heimalandi sínu,
Japan, en tveir þeirra hafa einnig
stundað framhaldsnám á Vestur-
löndum og leikið þar í strengja-
kvartettum og á sinfóníuhljómleik-
um. Kvintettinn hefur starfað um
nokkurra ára skeið við flutning á
kammertónlist. Á tónleikimum í
Bústaðakirkju leikur kvintettinn
verk eftir Mozart, Haydn og
Schumann.
Niðjar
Halldórs Þorsteinssonar
og Krjstjönu Kristjánsdóttur
halda jólafagnaö í golfskálanum í Leiru
laugardaginn 2. janúar kl. 14. Mætum öll
í hátíðarskapi.
„Lady“ Mosfellsbæ
Kvenfataverslunin Lady hefur nú bæst í
verslunarkjamann í Mosfellsbæ og flutt
í nýtt og glæsilegt húsnæði aö Þverholti
5. Verslunin hefur nú þegar, eftir aðeins
eins árs starfsemi, getiö sér góðan orðstír
fyrir vandaöan og fallegaii fatnaö á mjög
góðu verði þar sem hann er allur fluttur
beint inn frá framleiðendum án allra
milliliða. Innréttingar í nýju verslunina
voru smíðaðar af Guðjóni Inga Sigurðs-
syni. Við afgreiðslu eru Lára Kristins-
dóttír og Vigdís Aðalsteinsdóttir, ásamt
eigenda verslunarinnar, Bjameyju Ein-
arsdóttur. Afgreiðslutímar em frá kl.
9-18 alla virka daga en frá kl. 10 laugar-
daga.
Rauði krossinn sendir fatnað
til flóttamanna í Uganda
Nú í vikvmni bámst 7 tonn af notuðum
fatnaöi til flóttamannabúða í Uganda. Föt
þessi em gjöf frá Rauða krossi íslands
og hefur félagiö þá samtals sent rúm 42
tonn af notuðum fatnaði á þessu ári til
bágstaddra í Mósambik, írak, Eþíópíu og
Uganda.
Frá því haustið 1985 hefur Rauði kross
íslands tekið á móti notuðum fatnaði allt
árið. Fötin em send héðan í gámum til
Rauða krossins í Danmörku þar sem þau
em flokkuð og þeim pakkaö. Þegar beiðnl
berst em fötin síðan send áfram til við-
íökustaðar frá lager danska Rauða
krossins á Jótlandi.
Undanfarin tvö ár hafa fatasendingar
verið drjúgur þáttur í hjálparstarfi RKÍ
á erlendum vettvangi og hafa alls verið
send rúm 90 tonn af fatnaði til Afríku,
Asíu og Mið-Ameríku á þessum tíma.
Stjóm Rauða kross íslands þakkar öllum
þeim fiölmörgu, sem tekið hafa þátt í fata-
söfnun félagsins á undanfómum árum,
bæði gefendum og sjálfboðaliðum um
iand allt.
Jólaumferðin verður meiri i
ár en nokkru sinni fyrr!
Nú í svartasta skammdeginu er nauðsyn-
legt að allir vegfarendur sýni sérstaka
aðgát og tillitssemi í umferöinni.
Jólaumferðin þyngist dag öá degi og
ættu ailir að stefna að slysalausri og far-
sælli þátttöku í henni.
Gangandi vegfarendur geta aukið öryggi
* sitt verulega með því að bera endurskins-
merki og nota þau á réttan hátt. Þörf fyrir
þau er nú enn brýnni en endranær þar
sem óviöa slær birtu frá snævi þakinni
jörð. í hálku ættu þeir sem ganga mikið
skilyrðislaust aö heimsækja næsta skó-
smið og fá sér búnaö til hálkuvama svo
sem mannbrodda eöa neglda sóla.
í þessari miklu umferð er nauðsynlegt
að fólk akandi og gangandi ætli sér meiri
tíma en endranær. I því sambandi má
hafa í huga mikla fjölgun bíla í ár sem
eðlilega leiðir til þyngri umferðar og því
miöur einnig til þess að margir ökumenn
Bílar og fólk
Út er komið þriðja tölublað timaritsins
Bílar og fólk, en þaö hóf göngu sína á
miðju ári. Meðal efnis em viðtöl og grein-
ar um fombíla, jeppa, vélsleða, aksturs-
íþróttir og fleira svo sem reynsluakstur
nýrra bíla og íjallaö er um nýjungar í
heimi bílaframleiðenda. Birt er verð á
öllum tegundum og geröum nýrra vél-
sleða sem seldir eru hér og sagt frá
ævintýraferð ungra íslendinga um Evr-
ópu í sumar þar sem þeir tóku þátt í
heimsmeistarakeppninni í motocross.
ER ÞAÐ
ÞETTA
SEM VIÐ
ViUUM?
verði þungir á brún við stýrið. Það hæfir
jólaumferðinni illa.
Ljósabúnaður þarf að vera í góðu lagi og
ættu ökumenn að nota ökuljósin allan
sólarhringinn. Vert er að huga að hjól-
börðum, oft duga grófinynstruð dekk en
víða em skilyrði þannig að þau þurfa auk
þess að vera negld.
Þessa dagana er víða veitt ,jólaglögg“.
Ökumenn ættu að minnast þess að oftast
er í henni áfengi - stundum sterkt. Gildir
sama um .jólglögg" sem neyslu airnars
áfengis að akstri og áfengi má alls ekki
blanda saman. Benda má á að góða , jól-
glögg“ má blanda án áfengra efna og em
til prýðisgóðar uppskriftir aö slíkum
ökumannadrykkjum.
Umferðarráð væntir þess aö allir lands-
menn veröi jákvæðir og tillitssamir í
jólaumferöinni þannig aö sem flestir
megi eiga slysalaus og gleöileg jól.
Það er komin ný Vera
Nútímakona situr uppi með úreltan karl
segir í nýútkominni Vem. Meðal efnis í
þessari Vem er umfjöllun um bók eftir
Share Hite sem nýlega kom út í Banda-
ríkjunum og fjallar um hug kvenna í
garö eiginmanna sinna. í þessu sambandi
er jafnframt rætt við Katrínu Theodórs-
dóttur um viðhorf íslenskra kvenna og
segir hún karla hafa dagað uppi eins og
nátttröll. í blaðinu hefst nýr greinaflokk-
ur um kvennasögu eftir Helgu Siguijóns-
dóttur og nefhist fyrsta greinin
Mæðrasamfélög. Fjallað er um friðar-
fræðslu, viðtal er viö Soffiu Auði Birgis-
dóttur, en hún annast útgáfú bókarinnar
Sögur íslenskra kvenna, erlend málefiú
og margt fleira er tekið fyrir. Borgar- og
þingmál eiga sitt sæti í Vem að vepju og
fiallaö er um bókmenntir. Tímaritið Vera
,er gefið út af Kvennaframboðinu í
Reykjavík og samtökum um Kvennalista.
Heimilisfang Vem er Kvennahúsiö, Vall-
arstræti 3,101 Reykiavík. Áskriftarsímar
em 22188 og 13725.
Þorláksmessublysför Friðar-
samtakanna
Friðarganga verður farin á Þorláks-
messu. Lagt verður af stað frá fflemmi
kl. 18 og gengið Laugaveginn niður á torg.
Kórar syngja á leiðinni og flutt verður
ávarp á Lækjartorgi. Að göngunni standa
Friðarhópur fóstra, friðarhreyfing ís-
lenskra kvenna, Friðarsamtök lista-
manna, Menningar- og friðarsamtök
íslenskra kvenna, Samtök íslenskra eðl-
isfræðinga gegn kjamorkuvá, Samtök
lækna gegn kjamorkuvá, Samtök um
Kjamorkuvopnalaust ísland og Samtök
herstöðvaandstæöinga.