Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.1988, Qupperneq 8

Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.1988, Qupperneq 8
30 FÖSTUDAGUR 22. JANÚAR 1988. Það er ákveðin kyrrð yfir listanum en þó eru greinileg átök framundan þvi að margar „pottþéttar" leigu- myndir eru á leiðinni og líklegar til átaka. Ættu því myndbanda- gláparar að geta hugsað sér gott til glóðarinnar á næstunni. Óvenjumargar myndir fengu at- kvæði á listanum nú en fyrsta sætið var óumræðilega tekið frá fyrir stríðsmyndina Hérdeildina (Platoon). Þá verður heldur ekki deilt um djöflamyndina Angel He- art í 2. sæti. Banvæna vopnið með kyntákninu Mel Gibson fer hrað- byri upp listann og er sú mynd líkleg tíl afreka. DV-LISTINN 1. (1) Platoon 2. (2) Angel Heart 3. (-) Lethal Weapon 4. (7) 52 Pick Up 5. (6) Amazing Storie 6. (3) Tres Amigos 7. (8) Let’s Get Harry 8. (5) Half Moon Street 9. (-) Color of Money 10. (4) Morgan Stewart’s Coming Home ★★y2 Að selja sál sína ANGEL HEART. Útgelandi: JB myndbönd. Leikstjóri og handritshöfundur: Alan Parker. Byggt á sögu William Hjorts- berg. Myndataka: Michael Seresin. Aðalhlutverk: Mickey Rourke, Robert De Niro og Lisa Bonet. Bandarísk 1987.120 mín. Bönnuð yngri en 16 ára. Parker hefur sýnt það í fyrri myndum sínum að hann er leik- stjóri sem er óhræddur við að takast á við nýja hluti. Myndir hans, Midnight Express, The Wall og Bugsy Malone sýna að hann vill ekki negla sig niður á ákveðinn bás. Hér ræðst hann í að gera nokk- urs konar hrollvekju um mann sem selur djöflinum sál sína og er greinilegt að Parker hefur ein- hvem tímann lesið Fást. Myndin segir frá spæjaranum Harry Angel sem er fenginn til þess, af dularfullum náunga, að leita uppi horfmn mann. Fljótlega kemur í ljós að ekki er allt sem sýnist og Harry sekkur sífellt dýpra ★ V2 í hræðilega hluti þar til upp fyrir honum rennur skelfilegur sann- leikur. Ekki er þetta sérlega geðfelld mynd hjá Parker og tekst honum varla aö hefja sig upp yfir þær hef- bundnu djöflamyndir sem viðgeng- ist hafa. Erfitt er að átta sig á því hvað hann er að fara, söguþráður- inn verður of mikil flækja og blóðbaðið fuUsukksamt. Það skal játast að viss óhugnaður er yfir myndinni og einhvers staðar á bak við allt er einhver skelfilegur sann- leikur hvort sem það er nú ímyndun eða ekki. Þá er rekkjuat- riði þeirra Bonet og Rourke eitt það ferlegasta sem sést hefur og má áhorfandinn hamast við að hneykslast ekki. Ég er hálfhræddur um að skotið sé yfir markið ef átt hefur að gera mynd um baráttu góðs og ills - myndin ristir einfaldlega of grunnt til að standa undir því. Hins vegar er ekki hægt að komast hjá því að verða nokkuð gagntekinn af því sjónarspili sem hér er boðið upp á. Þá er De Niro einstaklega djöful- legur í hlutverki sínu. ★y2 Oskemmtilegur arfur BATES MOTEL. Útgefandi: Laugarásbió. Leikstjóri: Richard Rothstein. Aðalhlutverk: Bud Cort, Lori Petty og Moses Gunn. Bandarísk, 1987-Sýningartimi 90 mín. Norman Bates er nafn sem allir kvikmyndaáhugamenn kannast við. Alfred Hitchcock gerði þessa persónu ódauðlega í Psycho og eftir langt hlé fylgdu tvær myndir í kjöl- farið og voru báöar sjálfstætt framhald fyrstu myndarinnar. Bates Motel er nýjasta afurðin þar sem Norman Bates kemur viö sögu. Við fylgjumst með því þegar hann er dæmdur á geðveikrahæli. Þar er fyrir ungur drengur sem Bates tekur að sér. Bates deyr og erfir Alex West, en svo nefnist drengurinn, hið illræmda Bates Motel. Þegar Alex sleppur af geðveikra- hæhnu fullfrískur er stefnan tekin á mótelið sem er í niðumíðslu. Hann er samt ákveðinn í að endur- reisa það eins og það var, aðeins gera það nútímalegra. Ekki eru alfir jafnhrifnir af þess- ari hugmynd og þegar Alex fer að sjá sýnir úr fortíðinni liggur við að hann gefist upp, en hann hefur eignast vini og með þeirra hjálp tekst honum að yfirstíga erfiðleik- ana. Bates Motel er skrýtin samsuða. í fyrstu er eins og hér sé komin satíra, þar 'sem eingöngu grunn- hugmynd fyrirrennara er notuð, en svo er ekki, því myndin snar- breytist þegar heilt draugagengi gerir vart við sig (aö vísu góðir draugar) og peningamenn, sem sjá hér tækifæri til að græða, reyna með öllum brögðum að flæma Alex í burtu. Bates Motel er því sundurlaus og það er ekki fyrr en í lokin sem at- hygli áhorfandans er almennilega náð. Þá gerast hlutimir hratt. Bat- es Motel er ekki góð kvikmynd og má segja að hugmyndaleysi ein- kenni hana. Reynt er að halda í söguþráð fyrri mynda en nú eiga persónurnar að vera fyndnar. Þaö bregst algjörlega og aðalpersónan, Alex West, er Bud Cort leikur, er ekki beint til þess fallin að halda heilli kvikmynd uppi. HK. Madoima stenst ekki prófið WHO’S THAT GIRL. Útgefandi: Steinar hf. Leikstjóri: James Foley. Aðalhlutverk: Madonna, Griffin Dunne og John McMartin. Bandarfsk, 1987-Sýningartími 90 min. Um það leyti sem Madonna var að hljóta heimsfrægð sem söng- kona lék hun í Desperately Seeking Susan og sýndi þar að hún gat leik- ið ekki síður en sungið. En eftir hina mislukkuðu Shanghai Sur- prise, sem aðeins varð fræg af endemum, voru menn í vafa um framtíð Madonnu sem leikkonu og það em menn enn því Who’s That Girl gerir lítið til að hjálpa henni á leiklistarbrautinni. Það efast enginn um að Madonna hefur mikinn sjarma og hún mynd- ast ágætlega en hún var heppin með handrit og leikstjóra í Desper- ately Seeking Susan og það er greinilegt að það þarf að stjórna henni til að hún nái árangri. í Who’s That Girl fær hún að því er virðist að ráða ferðinni sjálf og þá er stutt í söngkonuna og skemmtikraftinn Madonnu. Hún leikur unga stúlku sem nýsloppin er úr fangelsi og þvælist um alla New York borg. Hún er kæruleysið uppmálað með glæpamenn á hæl- unum í leit að þeim er átti sök á því að hún sat inni. Inn í þessa leit hennar flækist lögfræðingur einn sem er oröinn svo flæktur í einkamál hennar áð- ur en hann veit af að hann er gjörsamlega búinn að eyðileggja framtíð sína sem virðulegur lög- fræðingur. Who’s That Girl er hröö og stund- um skemmtileg en því miður vantar í handritið einhveija stefnumörkun. Söguþráðurinn er ekki svo galinn en úrvinslan er oft á tíðum hræðileg og þótt gaman sé að horfa á Madonnu í hófi fær maður fljótt leið á hvítmáluðu and- Uti hennar og tilsvörum sem eru ekki í neinu samræmi við persón- una sem hún leikur. HK. ★★ Vi Til hjálpar sögunrú TIMESTALKERS. Útgefandi: Myndform. Leikstjóri: Michael Schultz. Aöalhlut- verk: William Devane, Lauren Hutton, John Ratzenberger, Forrest Tucker og Klaus Kinskt. Bandarisk 1987. 90 min. Bönnuð yngri en 12 ára. Hér segir frá tímaflakki á nokkuð hefbundnum nótum. Úr fjarlægri framtíð birtast tvær manneskjur fyrir tilstilli tímavélar. Önnur (Kinski) vill breyta söguþróuninni til að tryggja sig í valdabaráttu sem gerist eftir 600 ár. Til þess þarf hann að gerast byssubófi árið 1885. Lauren Hutton hefur hins vegar það hlutverk að stöðva hann. Við það fær hún aðstoð söguprófessors (Devane) og saman reyna þau að bjarga sögunni. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem sagt er frá tímaferðalöngum sem ferðast til bjargar sögunpi (og áreiðanlega ekki það síöasta). Vissulega stenst ekki þessi sögu- þráður nákvæma yfirlegu frekar en í Back To The Future og öðrum álíka myndum. Ef grannt er skoðað ★ >/2 Sl Seinheppnir spæjarar DETECTIVE SCHOOL DROPS OUT Útgefandi: Háskólabíó. Leikstjóri: Phillp Ottonl. Aöalhlutverk: David Lansberg og Lorin Dreyfuss. Ítölsk-bandarísk, 1986. Sýningartíml: 87 min. Detective School Drops Out fjall-’ ar um tvo klaufalega náunga. Annar, Paul Miller, rekur einka- lögguþjónustu en hefur svo lítíö að gera að hann rekur einþalöggu- skóla í hjáverkum. Eini nemand- inn, þegar við komum til leiks, er Donald Wilson sem mistekst yfir- leitt allt sem hann tekur sér fyrir hendur. Óvænt og algjörlega óviljandi verða þeir innlyksa í valdabaráttu mafíuflokka og áður en þeir vita af eru þeir komnir til Rómar og eru hundeltir af mafíunni. Á óskiljan- legan máta sleppa þeir þó alltaf og þegar betri vitund þeirra nær yfir- höndinni ákveða þeir að hjálpa lánlausu pari sem mafian vill stía í sundur... Eins og í flestum gamanmyndum í meðallagi eru sum atriði sem má hafa gaman áf en í heildina er Detective School Drops Out ósköp lítilflörleg. Allt sitt traust hafa Cannon bræður, Golan og Globus, sett á aðalleikarana, David Lans- berg og Lorin Dreyfuss. Auk þess aö leika skrifa þeir handritið. Þeir eru sjálfsagt ágætir gamanleikar- ara í stuttum atriðum en valda ekki heilli kvikmynd, aUa vega ekki hér. HK þá eru á ferðinni rökvillur sem menn hljóta að hnjóta um. En það er í sjálfu sér ekki aðalat- riðið heldur hitt að hér tekst að gera bærilega spennandi mynd á þokkalegan hátt enda Schultz oft gert ágætis afþreyingar. Tíma- flakkið er stöðugt allan tímann og á milli tímaskeiöa er klippt á grófan hátt svo að aldrei leynir sér hvað um er að vera. Klipping á milli tímaskeiöa er flókinn hlutur og ég minnist þess ekki að það hafi veriö leyst á jafnsmekklegan hátt og í Hálendingnum. Þessi mynd er hvorki frumleg né efnismikil en hún veitir þó ágætis- afþreyingu og það skiptir þón- okkru.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.