Dagblaðið Vísir - DV - 10.02.1988, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 10.02.1988, Blaðsíða 10
10 MIÐVIKUDAGUR 10. FEBRÚAR 1988. Nauðungaruppboð annað og síðara sem auglýst var í 82., 84. og 88. tbl. Lögbirtingablaðsins 1987 á fasteigninni Bröttugötu 2, Borgarnesi, þingl. eign Jóns S. Pétursson- ar, fer fram að kröfu Sigurðar I. Halldórssonar hdl. á skrifstofu embættisins þriðjudaginn 16. feþr. nk. kl. 10.00. Sýslumaður Mýra- og Borgarfjarðarsýslu Aðalfundur Hestamannafélagsins Fáks verður haldinn í félags- heimilinu fimmtudaginn 18. febr. kl. 20.00, venjuleg aðalfundarstörf. Stjórnin LITANIR, SKOL OG STRÍPUR FYRIR ALLA VERIÐ VELKOMIN VALHÖLLÍ ÓÐIHSGÖTU 2, REYKJAm mSIMI:22138m ST. JÓSEFSSPÍTALI, LANDAKOTI Skóladagheimilið Brekkukoti Viltu vinna í notalegu umhverfi á góðum stað í bæn- um. Okkur vantar aðstoðarmann á skóladagheimilið Brekkukot. Upplýsingar gefur forstöðumaður í síma 19600-260 virka daga. Reykjavík, 9. jan. 1988 ALTERNATORAR STARTARAR NÝIR 0G VERKSMIÐJUENDURBYGGÐIR í Chevrolet Nova, Blaser, Malibu, Oldsmobile dísil, Ford Bronco, Fairmont, Maveric, Dodge Dart, Aspen, Ramcharger, Wagooner, Cherokee, Hornet, AMC,Toyota, Datsun, Mazda, Mitsub- ishi, Lada, Fiat, Land Rover, M. Benz o.fl. o.fl. Einnig tilheyrandi varahlutir. ___Mjög hagstætt verð. Póstsendum. BÍLARAF HF. Borgartúni 19. Siml 24700. ^RARIK RAFMAGNSVEITUR RÍKISINS ÚTBOÐ Rafmagnsveitur ríkisins óska eftir tilboðum í eftirfarandi: RARIK-88001: Nýbygging verkstæðis- og geymslu- húss í Ólafsvík. Opnunardagur: Miðvikduagur 24. febrúar 1988, kl. 14.00. Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu Rafmagns- veitna ríkisins við Sandholt 34, Ólafsvík, og Lauga- veg 118, Reykjavík, frá og með miðvikudeginum 10. febrúar 1988 gegn 5.000 kr. skilatryggingu. Tilboðum skal skila á skrifstofu Rafmagnsveitna ríkis- ins, Ólafsvík, fyrir opnunartíma og verða þau opnuð á sama stað að viðstöddum þeim bjóðendum er þess óska. Tilboðin séu í lokuðu umslagi, merktu „RARIK- 88001 Húsnæði í Ólafsvík". Reykjavík, 5.2. 1988 Rafmagnsveitur ríkisins Utlönd Stjóm Austur- ríkís í vanda Forseti Austurríkis, Kurt Waldheim, gegnir embættisskyldum sínum eins og ekkert hafi í skorist og í gær hitti hann blómaskreytingafólk i Vín. Simamynd Reuter Gizur Helgason, DV, Liibedc í Austurríki hefur skýrslan um Kurt Waldheim sett ríkisstjórnina í alvarlegan vanda. Skýrsla sagnfræðinganefndarinn- ar var birt opinberlega í gær og er óneitanlega til hnjóðs fyrir forset- ann. Nú segir einn af ríkisstjórnarflokk- unum að sagnfræðingarnir hafi farið út fyrir verksvið sitt meö því meðal annars að skrásetja í skýrsluna þá vitneskju um stríðsglæpi nasista er hún taldi Waldheim óhjákvæmilega hafa haft. Skýrslan nefnir hvergi að Wald- heim hafi sjálfur átt beinan þátt í stríðsglæpunum en í samantekt nið- urstaöna þessarar tvö hundruð blaðsíðna skýrslu segir meðal ann- ars. „Það er ljóst að Waldheim hefur staðið mjög nálægt ýmiss konar starfsemi sem stríðsdómstóll myndi dæma sem glæpsamlegt athæfi. Út frá því efni, sem nefndin hefur haft aögang að, er ekki hægt að finna að Waldheim hafi framkvæmt neitt hegningarvert í styrjöldinni." Hans Rudolf Kurz, formaður sagnfræð- inganefndarinnar, sagði í sjónvarps- viðtali í gærkvöldi að Waldheim hefði vitað mikið. „Vel upplýstur maður í ábyrgðarmikilli stöðu hlýtur einnig að hafa velt því fyrir sér hvað var að gerast.“ Þegar afhending skýrslunnar til austurrísku ríkisstjómarinnar fór fram í fyrrakvöld kom í ljós í fyrstu umferð að skýrslan var enn ekki til- búin. Hundmð fréttamanna voru viðstödd athöfnina og ástandiö var hálfvandræðalegt í nokkrar mínút- ur. Síðan kom skýrslan og um leið skýringin á töfinni. Það vora tveir af ríkisstjómarflokkunum, íhalds- menn og sósíalistar, sem voru mjög svo ósammála um síöustu athuga- semdir nefndarinnar sem fjölluðu um siðferðislega sekt Waldheims og vitneskju hans um hvað gerðist. Leiðtogi íhaldsmanna taldi nefnd- ina hafa farið langt út fyrir verksvið sitt því aö hennar hlutverk hefði ve- rið að kanna hvort Waldheim hefði persónulega tekið þátt í stríðsglæp- unum eður ei. Kanslari Austurríkis, Franz Vranitzky, var á öðru máli og taldi nefndina hafa staöiö rétt að málum. Waldheim sjálfur sagðist í sjónvarpsviðtali ekki finna fyrir neinni siðferöislegri sekt og taldi skýrsluna hafa sannað að hann væri saklaus og að honum væri ekki í huga að segja af sér. í fyrrakvöld sagði Brano Kreisky, fyrrum kansl- ari Austurríkis, að Waldheim ætti að segja af sér. Kreisky líkti Wald- heim-máhnu við Nixon-málið í Bandaríkjunum en forsetinn neyd- dist til að segja af sér vegna Water- gate-hneykslisins. Sagnfræðinganefndin tók fram á einum stað að Waldheim hefði gert tilraunir til þess að draga úr gjörðum sínum í styrjöldinni eða sýna fram á að valdsvið hans hefði verið sáralít- iö. Minnisleysi hans var svo kerfis- bundið aö nemdin gat ekki stuðst við neinar skýringar frá honum sjálfum. Shimon Peres, utanríkisráðherra Ísraels, sagði í gærkvöldi að sendi- herra ísraels í Austurríki myndi ekki snúa aftur til Vínarborgar svo lengi sem Waldheim situr í forsetastóli. Ráðamenn í Sovétríkjunum sögðu aftur á móti í gær niðurstöður sagn- fræðinganefndarinnar ekki breyta neinu hvað varðar virðingu Sovét- manna fyrir Waldheim. Símskeytið talið falsað Ásgeir Eggertsson, DV, Munchen: Yfirvöld í Hamborg hafa nú hafið rannsókn á svonefndu Waldheims- símskeyti sem birtist í tímaritinu Der Spiegel í síðustu viku. Samkvæmt því sem fram kemur í skeytinu á Waldheim að hafa skipað fyrir um brottflutning fólks í fangabúðir nas- ista. Nú er verið að athuga hvort lagalega sé um að ræða svik, fólsun og móögun í garð forseta erlends rík- is. Yfirvöld segiast styðjast við skýrslu sérfræðings sem telur skey- tiö vera falsað. Tímaritið Stem mun á morgun greina frá þessari skýrslu. í henni kemur fram að ritvélin, sem notuð var til að skrifa skeytið, var ekki framleidd fyrr en 1949. Þar að auki bentu ýmis málfræðileg atriði til fólsunar. Vitað er að símskeyti með svipuöu orðalagi er til en á það vantar nafn Waldheims. Fölsuðu frétt Sviixm Jan Stening væru lausir úr prísundinni í Líbanon þar sem þeir hafa verið í haldi síðan á föstudags- morgun. Fréttin var röng og menn- irnir tveir voru enn í höndum mannræningja. Blaöamaður og ljósmyndari VG fóru um nóttina heim til fjölskyldu Jörgensens og sögðu henni að heim- ilisfaðirinn væri fijáls maður. Með eftirgangsmunum tókst blaðamönn- unum aö ná allri fjölskyldunni á fætur, þar á meðal ungbarni, til að fá af henni ljósmynd. Þegar það kom á daginn að frétt VG var uppspuni brást fjölskyldan illa viö og taldi sig notaöa sem sölu- vöru af hálfu blaðsins. Frétt VG er almennt fordæmd í Noregi og sagt er að blaðiö hafi farið langt yfir öll velsæmismörk. Páll VUhjáimsson, DV, Osló: Heilsíðufrétt á forsíðu norska síö- degisblaðsins VG í gær varö að hneyksli. í fréttinni var sagt að Norð- maðurinn William Jörgensen og Sendiherra Svíþjóðar í Líbanon og ræðismaður Noregs í Damaskus á tali við leiðtoga sunníta á heimili hans í Sidon í gær. Hingað til hafa allar tilraun- ir til aö fá Skandinavana tvo, sem eru starfsmenn Sameinuðu þjóðanna, látna lausa verið árangurslausar. Norska blaðið VG falsaði hins vegar frétt um frelsun þeirra í gær. Símamynd Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.