Dagblaðið Vísir - DV - 10.02.1988, Síða 11
MIÐVIKUDAGUR 10. FEBRÚAR 1988.
11
Utlönd
Norðmönnum
Páll Vilhjálmsson, DV, Osló:
Bandaríkjamenn hafa í hyggju að
refsa Norðmönnum ef þeir hætta
ekki hvalveiðum sínum í samræmi
við samþykktir Alþjóða hvalveiði-
ráðsins. Þetta sagði fiskimálafulltrúi
bandaríska sendiráðsins í Noregi á
fundi með hvalveiðimönnum um
helgina.
Norsku hvalveiðimennirnir von-
uðust til aö bandarísk yfirvöld
myndu láta það óátalið þótt Norð-
menn veiddu hvali í trássi við bann
refisað fyrir hvalveiðar
Alþjóða hvalveiðiráðsins. En orð
bandaríska fiskimálafulltrúans taka
af öll tvímæli um að bandarísk
stjórnvöld munu fylgja að fullu eftir
bandarískri þingsamþykkt sem gerð
var á árinu 1986.
Samþykkt þessi skuldbindur
bandarísk stjórnvöld til að refsa
þeim þjóðum sem bijóta gegn reglu-
gerð Alþjóða hvalveiðiráðsins.
Norskir hvalveiðjmenn leggja nú
hart að stjómvöldum að hefja hval-
veiðirannsóknir, sem gefi þeim
heimildir til að veiða hvah. Hvala-
rannsóknir íslendinga eru sú fyrir-
mynd sem norsku hvalveiðimenn-
imir benda á í þessu sambandi.
Hingað til hafa norsk yfirvöld ekki
viljað fallast á neinar kröfur um
umfangsmiklar rannsóknir á hvöl-
um.
Grænlendingar
undirbúa átak
gégn eyðni
Haukur L. Hauksson, DV, Kaupmannahö&i:
Á Grænlandi er verið að undirbúa
átak til að verja landið gegn eyðni.
Margir læknar segja að tími sé til
kominn að það sé gert ef það er þá
ekki orðið of seint. Hafa læknar lengi
bent á eyðni sem banvæna ógnun
fyrir Grænlendinga og tekur land-
læknir Grænlands, Jens Misfeldt,
undir þau orð: Hann segir að fijáls-
lyndi Grænlendinga í kynferðismál-
um geri eyðni að mun meiri ógnvaldi
en til dæmis í Danmörku.
Hann vísar þó þeim röddum á bug
er tala um allsherjar sjálfsmorð
Grænlendinga. „Síðasthðin ár höfum
við gert átak í að hindra útbreiðslu
kynsjúkdóma og er árangur þess nú
að koma í ljós. A síðasta ári fækkaði
lekandatilfellum um 30 prósent.
Gagnrýnendur hafa réttilega bent á
næstum þrefóldun sýfihstilfeha. Sú
fjölgun á'þó rætur að rekja th rann-
sókna í ystu byggðum sem leiddi th
skráningar fjölda sýfilisthfeha sem
mörg voru í raun gömul.“
Þrátt fyrir það þykja 659 sýfhisth-
felli á Grænlandi ógnvekjandi en
eyðni smitast að mestu leyti á sama
hátt. Er vonast th að ný staða yfir-
læknis í kynsjúkdómum snúi
þróuninni í aðra átt. Enn eru engir
eyðnisjúklingar á Grænlandi en sjö
smitaðir af HlV-veirunni sem orsak-
ar eyðni. Af þeim hafa fimm flutt
veiruna th Grænlands erlendis frá.
Sú staðreynd að HTV-veiran er í raun
komin til Grænlands þykir undir-
strika nauðsyn aðgerða og ekki síst
á breytt kynlífi í átt að auknu öryggi.
Svisslending-
ar hækka fjall
Gizur Helgason, DV, Liibedc
Svissneska fjallið Fletschhorn
verður nú hækkað um þijá metra. Á
gömlum landakortum er fjallið sagt
vera 4001 metri á hæð en nýjustu
mælingar sýna að þaö nær aðeins
3998 metrum. Þar með hefur það
misst aðdráttarafl sitt í augum
margra íjahgöngumanna sem líta
ekki við tindum undir 4000 metrum.
Það er fylkið Saasgrund sem ætlar
að standa straum af kostnaðinum við
að stafla stórgrýti við núverandi tind
þannig að það mæhst að lokum 4001
metri. Þá vonast menn einnig th að
aukinn ferðamannastraumur standi
undir kostnaðinum. r
44 prósent styðja
norsku stjómina
Páll Vflhjálmsson, DV, Osló:
Nýleg skoðanakönnun í Noregi
segir að 44 prósent landsmanna
styðji minnihlutastjórn Verka-
mannaflokksins. 36 prósent að-
spurðra sögðust vilja ríkisstjórn
Hægri flokksins, Kristilega þjóðar-
flokksins og Miðflokksins.
Önnur skoðanakönnun segir að 39
prósent Norðmanna finnist Gro
Harlem Brundtland standa sig sem
forsætisráðherra en 45 prósent að-
spurðra sögðu frammistöðu hennar
vera í meðallagi.
meirí háttar
TllkOf)
stendur tíl 12. febrúar
á ca. 450 g stykkjum af brauðostinum góða.
Verð áður:
kr. |>03/kílóið
iilboðsverð:
kr.39
1 -'I ^ • X
OSm-
0^1 II^c.
kílóið
Rúmlega 20% lækkun!