Dagblaðið Vísir - DV - 10.02.1988, Side 12
12
MIÐVIKUDAGUR 10. FEBRÚAR 1988.
MIKIÐ ÚRVAL AF
LOFTVERKFÆRUM
Hormes aliplbönd fyrlr málm
oq tré I f}ölbreyttu úrvall.
SÉRVERSLUN MEÐ SLÍPIVÖRUR
0GL0FTVERKFÆR1
ÍS3R0T
BlLDSHÖFÐA 18, SÍMI 672240
Síðumúla 33
símar 681722 og 38125
Husqvama
á
gamla
verðinu
Eigum fyrirliggjandi takmarkað magn
af Husqvarna saumavélum á
„gamlaverðinu".
Nú er rétti tíminn til að gera góð kaup.
Naesta sending hækkarum 17%
vegna tollabreytingarinnar.
© HUSQVARNA BORGAR SIG
Gunnar Ásgeirsson hf.
UÚönd
Á meðan önnur flugfélög búa við góða afkomu og taka þátt í samkeppni á fargjaldamarkaöi einoka Flugleiðir þvi sem næst utanlandsferðir íslend-
inga og bjóöa upp á fargjöld, sem engan veginn standast samanburð, i krafti þeirrar einokunar.
Lægri fargjöld og bætt
afkoma flugfélaga
Gizur Helgason, DV, Liibedc
í byijun nýs árs setjast margir
niður til þess að gera áætlanir um
hvert ferðast skuli í sumar- og vetr-
arleyfum, það er að segja ef menn
á annað borð telja sig hafa efni á
að leggja land undir fót.
Ég og fjölskylda mín erum þar
engin undantekning en í þetta sinn
þarf greinarhöfundur að gera sínar
áætlanir frá erlendri grund.
Ýmsir möguleikar
Ýmsar hugmyndir vakna. Skal
halda á sólarstrendur eða til ein-
hverrar stórborgar meginlandsins
og drekka í sig þá menningar-
strauma sem þar er aö fmna í formi
hinna ýmsu listgreina? Svo er hægt
að halda í norðvestur og heilsa upp
á ættingja og vini á Fróni eða jafn-
vel að sameina slíka ferð annarri
enn lengri, það er að ’segja „step
off and stop over“ og bregða sér tíl
Vesturheims með stoppi á íslandi.
Við hjónin ákváðum nú að kanna
hvernig við gætum sameinað ílug
til íslands frá Kaupmannahöfn og
haldið að loknu þriggja til fjögurra
daga stoppi vestur um haf og stopp-
að síðan þrjá til fjóra daga á íslandi
í leiðinni til baka til Kaupmanna-
hafnar.
Takmarkanir
Það er ekki um auðugan garð að
gresja hvaö varðar slíkar ferðir.
Einokunarfyrirkomulagið ér enn
við lýði og því ekki um annað að
ræða en að kanna verðlag hjá Flug-
leiðum í Kaupmannahöfn. Þá kom
í ljós að með flugi frá Kaupmanna-
höfn til New York og til baka var
eingöngu hægt að stoppa í annarri
leiðinni, það er aö segja ef notast
skyldi viö ódýrasta farmiöann sem
kostar 4660 danskar krónur.
Hóflegt verð?
Verð Flugleiöamanna er að mínu
mati mjög svo í hófi þótt ég hafi
alla tíð haft megnustu óbeit á allri
einokun. Aftur á móti flaug mér í
hug að kanna nú um helgina hvaða
ferð ferðaskrifstofur í Kaupmanna-
höfn bjóða í auglýsingum sínum í
sunnudagsblöðunum og hvað blöð-
in skrifa almennt um flugmál.
Eftirfarandi upplýsingar komu að
megninu til frá sunnudagsútgáfu
Berlingske Tidende.
Tjæreborg ferðir bjóða fimmtán
daga ferð, hótel innifalið, Kaup-
mannahöfn - New York - Kaup-
mannahöfn, þann 19. febrúar fyrir
3798 danskar krónur. Önnur ferð,
þann 26. febrúar, einnig fimmtán
dagar með hóteh á 2398 danskar
krónur. Lords Travel bjóða upp á
ferð til New York á 4010 krónur.
Dane-Tours bjóða upp á ferð til
New York fyrir 3990 danskar krón-
ur og til Flórída fyrir 4950 en það
er átta daga ferð með hóteli og ferð
til Disney World.
Dragast aftur úr
Að lokinni þessari örlitlu könnun
sýndist mér í fljótu bragði að flugfé-
lagið okkar sé aö dragast heldur
betur aftur úr sé miðað við fargjöld
Flugleiðamanna og annarra flugfé-
laga fyrir nokkrum árum.
Það fór illa fyrir flugfélaginu
hans Lakers í Englandi en hann
bauð upp á fargjöld til Bandaríkj-
anna á lægra verði en áður hafði
þekkst. Laker fór á hausinn en
hugmyndin ekki. Síðastliðið sumar
buðu nokkur flugfélög og ferða-
skrifstofur í Kaupmannahöfn upp
á ferðir á milh Kaupmannahafnar
og New York og til baka fyrir 2100
danskar krónur. Hér var um
skammtímaheimild að ræða en
samgöngumálaráðherra Dana hef-
ur lofaö því aö taka þessi mál til
alvarlegrar athugunar á ný því að
hans mati hljóti það að vera öllum
til góös ef hægt er að ferðast enn
ódýrara en nú.
Markaðslögmálin
SAS-menn hafa ekki verið ýkja
hrifnir af þessum yfirlýsingum
enda 'voru það erlend flugfélög er
lækkuðu verðiö. í Vestur-Þýska-
landi, en það er það land sem
undirritaður þekkir hvað best til
utan Danmerkur, er sama sagan.
Lægri fargjöld og auknar heimildir
til handa fleiri flugfélögum til þess
að hefja áætlunarflug til hinna
ýmsa borga. Hér gildir sem sagt
lögmáhð aukin samkeppni, aukin
þjónusta, lægra verð.
Afkoman góð
Með það í huga hvemig rekstrar.-
afkoma Flugleiðamanna er lék mér
forvitni á að vita hvað sagt væri í
dagblöðunum dönsku um rekstrar-
afkomu hinna ýmsu flugfélaga. Ég
tók mig því til og blaðaði í gegnum
vikuskammt af Berhngske Tidende
og hafði lítið upp úr krafsinu. Þó
var þetta aö finna í fimmtudagsút-
gáfunni.
Finnska flugfélagið Finn Air jók
farþegafjölda sinn um 20 prósent
árið 1987 og setti nýtt met með 4,5
milljónir farþega. Arangurinn er í
algjörri þversögn við árið 1986 er
flugfélagið var vegna verkfaha með
svo htinn farþegafjölda að slíkt
hafði ekki gerst í manna minnum.
Árið 1987 varð mesta aukningin á
sviði milhlandaflugs eða 21,4 pró-
sent aukning sem þýðir 1,3 mihjón-
ir ferðamanna. Leiguflug jókst um
20,7 prósent eða um 1,3 mihjónir
farþega. Innanlandsflug jókst um
19.2 prósent eða upp í 1,9 mihjónir
farþega.
Ameríska flugfélaginu Trans
World Airhnes, sem er stjómaö af
stóriðjuhöldinum Carl Icahn, hefur
tekist að snúa milljónatapi frá ár-
inu 1986 upp í tekjuafgang upp á
106.2 mihjónir dollara 1987. Rekstr-
arafgangur félagsins varð 210,3
milljónir dohara á síðasthðnu ári á
móti tapi upp á 75,3 milljónir doh-
ara 1986.
Breska flugfélagið British Air-
ways hefur nú undirritað samning
upp á tvo mhljarða dollara við
bandarisku flugvélaverksmiðjuna
Boeing um afgreiðslu á ehefu
tveggja hreyfla vélum, svonefndum
Boeing 767 þotum. British Airways
er nú að þreifa fyrir sér um samn-
ing um fimmtán í viðbót. Afkoman
er mjög góð.
Samvinna
Enda þótt SAS flugfélagið hafl
oröið að láta í minni pokann fyrir
British Airways varðandi kaup í
British Caledonian þá er það ennþá
að leita fyrir sér um samvinnu við
stór flugfélög erlendis. Nú er það
American Airhnes sem SAS stend-
ur í samningum við og er Carlzon,
forstjóri SAS, staddur í Bandaríkj-
unum í þeim erindagjörðum. Hann
vhl ekkert láta hafa eftir sér í því
sambandi. Ennfremur má geta þess
að SAS-menn eiga enn í samningá-
viðræðum við belgíska flugfélagið
Sabena um samvinnu.
Flugleiðamenn eru ugglaust með
ýmsar ráðagerðir á prjónunum th
þess að bæta afkomu félagsins. Á
hei'msmælikvarða er félagið litið
en á okkar mælikvarða stórt og viö
höfum verið stoltir af félaginu okk-
ar sem þykir með afbrigðum gott.
Þegar maður nú les um thraunir
SAS-manna th samvinnu við önnur
flugfélög líkrar stærðar vegna þess
að þeir telja það einu lífsvon sína
í harðnandi samkeppni þá er því
ekki að leyna aö maður óttast um
lífslíkur Flugleiða. Það hlýtur að
vera vonlaust dæmi að berjast ein-
ir sér við þá risa sem auka nú ferðir
sínar ^yfir Atlantshafið og bjóöa
lægra verð en Flúgleiðir ráða við.
Flutningar á 250 þúsund íslending-
um fram og th baka yfir Atlantshaf
geta varla nægt Flugleiðamönnum.