Dagblaðið Vísir - DV - 10.02.1988, Síða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 10.02.1988, Síða 14
14 MIÐVIKUDAGUR 10. FEBRÚAR 1988. Érjálst.óháÖ dagBlað Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Framkvaemdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELlAS SNÆLAND JÓNSSON Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON Auglýsingastjórar: PALL STEFANSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift, ÞVERHOLTI 11, SlMI 27022 Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: PRENTSMIÐJA FRjALSRAR FJÖLMIÐLUNAR HF„ ÞVERHOLTI 11 Prentun: ÁRVAKUR HF. - Áskriftarverð á mánuði 600 kr. Verð í lausasölu virka daga 60 kr. - Helgarblað 75 kr. Úreltar kjaraviðræður? Þessa dagana mænir þjóðin á aðila vinnumarkaðarins og bíður milli vonar og ótta hvort samningar náist. Rík- isstjórnin heldur að sér höndum á meðan og útflutnings- atvinnuvegirnir fljóta í tómarúmi meðan beðið er eftir samningum og efnahagsráðstöfunum. Þjóðfélagið allt er í biðstöðu og allt eins má búast við að verkföll skefli á ef ekki gengur eða rekur. Eftir því sem fregnir herma er deflt um launahækkanir sem kunna að nema á bilinu 10 tfl 20% sem dreifðust yfir árið. Á sama tíma og allt virðist sigla í strand af þessum sökum birtir kjararannsóknarnefnd tölur um kaup- máttaraukningu ýmissa stétta launþega. Frá þriðja ársijórðungi 1986 til þriðja ársfjórðungs 1987 jókst kaup- máttur launa um 18% að meðalatali. Mest var hækkunin hjá iðnaðarmönnum eða rúmlega 60% en laun ófag- lærðra verkamanna hækkuðu að kaupmættti um 36%. Vitaskuld má finna dæmi um minni kaupmáttaraukn- ingu og áberandi er að laun kvenna hækkuðu minna en karla og launaskriðið hefur heldur ekki verið jafn- hratt í dreifbýlinu eins og á Reykjavíkursvæðinu. Niðurstaðan er samt sú, þegar á hefldina er fltið, að almenn kaupmáttaraukning hefur verið 18% á um- ræddu tímabili og langt umfram það sem kjarasamning- ar kváðu á um. Það er að vísu löngu viðurkennd staðreynd að sumir launþegahópar njóta launaskriðs umfram aðra. Ein- staka starfsstéttir sitja fastar í umsömdum launaflokk- um og hafa misst af því góðæri sem birtist okkur í tölum kjararannsóknarnefndar. En þegar allt er talið saman má fullyrða að kjarasamningar flalla fyrst og fremst um lágmarkslaun og eru að langmestu leyti ómerk plögg og úrelt um leið og undir þá er skrifað. Þess vegna vaknar sú spurning hvort allt þrefið um kjarasamninga og deilur um nokkur prósent tfl eða frá sé ekki meira og minna til einskis. Er það ekki tíma- skekkja að setja þjóðfélagið á annan endann, efna til verkfalla og heimta hefldarkjarasamninga þegar til þess er fltið að fæstir fara eftir þeim? Launamál á íslandi þróast greinilega með allt öðrum hætti og taka lítt sem ekki mið af kjarasamningum. Það er markaðurinn sem ræður, eftirspumin eftir vinnuaflinu, geta eintakflng- anna, afköstin og arðsemin sem stjórnar því hvort atvinnureksturinn greiðir hærri eða lægri laun. Atvinnurekandi, sem sækist eftir góðum starfskrafti, einblínir ekki lengur á taxtann þegar hann semur um launin. Lanþeginn, sem eitthvað hefur til brunns að bera, lætur sér ekki detta í hug að ráða sig samkvæmt úreltum kjarasamningi. Hann er falur fyrir þau laun sem markaðurinn færir honum og velur úr því sem best er boðið. Meðan þensla er mikil í þjóðfélaginu, eftir- spurnin eftir vinnukraftinum er meiri en framboðið, þá er launaskrið óhjákvæmilegt. Það er arðurinn sem skiptir máli en ekki kjarasamningurinn. Þess vegna hefur kaup iðnðaðarmanna hækkað um 60% á meðan kjarasamningar segja að kaupið hafi ekki átt að hækka nema um 10%. í raun og veru ráðast kjör launþega að afar takmörk- uðu leyti við samningaborð heildarsamtakanna. Kjörin ráðast af þenslunni í þjóðfélaginu, skattapólitík og verð- lagi. Þar ræður ríkisvsddið og ríkisstjómin mestu. Deilur um nokkur prósent til eða frá skipta ekki mestu máli heldur hitt hver þróun efnahagsmála verður. Kaup- mátturinn ræðst ekki í Garðastrætinu. Hann ákvarðast 1 stjómarráðinu. Ellert B. Schram Langbylgjukerli Ríkisútvarpsins er löngu úrelt og úr sér gengiö", segir m.a. í greininni. Stjómarliðið og Ríkisútvarpið Við afgreiðslu lánsfjárlaga fyrir árið 1988 gerðist það að Ríkisút- varpið var annað árið í röð svipt lögboðnum tekjustofni sem eru innílutningsgjöld af sjónvarps- og hljóðvarpstækjum. Tillaga um þetta var borin fram af Jóni Bald- vini fjármálaráðherra, formanni Alþýðuflokksins. í Útvarpsráði á sæti formaður þingflokks Alþýðu- flokksins, Eiöur Guðnason. Hann gagnrýndi í fyrra harðlega hliö- stæða skerðingu sem þáverandi ríkisstjóm Steingríms Hermanns- sonar beitti sér fyrir. Nú er hann eins og umskiptingur og reyndi aö verja á þingi ósómann með því að líklega væri best að gera Ríkisút- varpið að sjálfseignarstofnun! Hallarekstur og tekjusvipting Árið 1985 voru samþykkt ný út- varpslög á Alþingi. Með þeim var veitt heimild til starfrækslu „svæð- isbundinna" einkastöðva. Meiri- hluti á Alþingi, Framsóknarflokk- ur, Sjálfstæðisflokkur, Alþýðuflokkur og Bandalag jafnað- armanna, tók um það ákvörðun að heimila einkastöðvunum að afla sér tekna með auglýsingum. Síðan hefur samkeppni farið síharðandi á auglýsingamarkaði og Ríkisút- varpið misst af miklum tekjum af þeim sökum. í eitt og hálft ár, þ.e. frá ársbyrjun 1986 til 1. júlí 1987, var stofnuninni bannað að hækka afnotagjöld sem fóm hríðlækkandi vegna verðbólgu. Við þetta bættist síðan að ríkissjóður hirti öll inn- flutningsgjöld sem útvarpslögin nýju kváöu á um að renna skyldu í Framkvæmdasjóð Ríkisútvarps- ins. Á árinu 1987 hefði þessi tekju- stofn gefið 300-400 milljónir króna og ef til vill um 150 milljónir á ár- inu 1988 eftir lækkun tolla af viðtækjum. Reyndin varð sú að á árunum 1986 og 1987 var Ríkisútvarpið rek- ið með bullandi halla. Þrátt fyrir mikla hækkun afnotagjalda á síð- ari hluta árs 1987 verður greiðslu- staða þess áfram mjög erfið vegna skuldasöfnunar á undanfömum árum og samkeppnisstaðan lakari gagnvart einkastöðvunum. Ætla veröur að hér sé með markvissum hætti verið að þrengja aö þessum sameiginlega fjölmiðli landsmanna á sama tíma og fjölmargar einka- stöðvar em aö hasla sér völl, einkum suövestanlands. Uppbyggingu langbylgju- kerfisins seinkar Útvarpslögin kveða á um að í KjaHaiinn Hjörleifur Guttormsson alþingismaður fyrir Alþýðubandalagið Framkvæmdasjóð Ríkisútvarpsins skuli leggja 10% af brúttótekjum stofnunarinnar. „Aðflutningsgjöld af hljóðvarps- og sjónvarpstækjum og hlutum í þau renni óskipt í sjóð- inn. Fé Framkvæmdasjóðs skal verja til að tryggja viðunandi hús- næði, tækjakost og dreifikerfi fyrir starfsemi Ríkisútvarpsins." (23. grein). Það er einmitt þessi sjóður sem nú hefur verið sviptur tekjum annað árið í röð. Af þeim sökum hafa framkvæmdir við Útvarps- húsið í þágu sjónvarpsins verið stöðvaðar og seinkað endurbygg- ingu langbylgjukerfisins. Langbylgjukerfi Ríkisútvarpsins er löngu úrelt og úr sér gengið. Áætlað er að endurbygging þess kosti um 500 milljónir króna. Gott langbylgjukerfi er nauðsynlegt, m.a. ef truflanir verða á FM- útsendingum. Þaö þjónar einnig sjómönnum á hafi úti og ferða- mönnum á leið um landið. Upp- bygging þess er öryggisatriði fyrir þessa aðila og landið allt. Breytingartillögur felldar Stjómarandstaðan á Alþingi snerist til vamar Ríkisútvarpinu, fyrst í neðri deild og síðan í efri deild, en allt kom fyrir ekki. Breyt- ingartillaga um að fella skeröing- arákvæðin niður var felld og einnig tillaga um að láta þó ekki væri nema eitt hundrað milljónir af inn- flutningsgjöldum renna í Fram- kvæmdasjóðinn. Þessi afstaða ráðherra og stuðn- ingsliðs ríkisstjórnarinnar á Alþingi er í hróplegu ósamræmi við þær kröfur sem eðlilegt er að gera til Ríkisútvarpsins, m.a. í menningarlegu og málfarslegu til- liti. Á sama tíma er hlaupið undir bagga með einkastöðvum, eins og með því að undanþiggja afmglara fyrir Stöð 2 söluskatti. Menntamálaráðherrann, Birgir ísleifur Gunnarsson, svaraði á Al- þingi gagnrýni minni vegna meðferðarinnar á Ríkisútvarpinu með því að bera forráöamönnum þess á brýn sólund og eyðslusemi, án þess þó að færa fram nokkur rök eða dæmi máli sínu til stuðnings. Bitnar á landsbyggðinni Málefni Ríkisútvarpsins snerta alla landsmenn. Svæðisbundnar aíþreyingarstöðvar koma ekki í staðinn fyrir sameiginlegan fjöl- miðil sem flestar þjóðir leggja metnað í aö hlúa að. Hirðuleysi og vanmat á gildi Ríkisútvarpsins er hættulegt fyrir íslenska menningu. Margt má að Ríkisútvarpinu finna en úr því verður ekki bætt með því að halda stofnuninni í spennitreyju fjárhagslega. Landsbyggðin á hér enn meira undir en höfuðborgar- svæðið. Þar er minna framboð á menningarlegu efni og víða tfifinn- anleg vöntun á góðri útsendingu og öruggu dreifikerfi. Aðfórin að Ríkisútvarpinu bætist við margt annað misrétti stjórn- valda í garð strjálbýlisins. Það mun ýmsum þykja einkennilegt að sjá Framsóknarflokkinn nú styðja slíkar aðgerðir. Hvað skyldi Vil- hjálmur á Brekku, sem tók skóflu- stunguna fyrir Útvarpshúsinu, hugsa um slíka niðurrifsstarfsemi? Mál er að linni. Hjörleifur Guttormsson. „í eitt og hálft ár, þ.e. frá ársbyrjun 1986 til 1. júlí 1987, var stofnuninni bannað að hækka afnotagjöld sem fóru hríðlækkandi vegna verðbólgu.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.