Dagblaðið Vísir - DV - 10.02.1988, Síða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 10.02.1988, Síða 16
16 MIÐVIKUDAGUR 10. FEBRÚAR 1988. Spumingin Hefur þú komið til Ameríku? Brynfríður Halldórsdóttir: Nei, en það má vel vera að mann langi þang- aö til að skoða sig um. Frosti Jónsson: Nei, ég held nú ekki. Ég hef aldrei farið utan. Anna Jónsdóttir: Hef komið þangaö sem ferðamaður en vildi gjaman fara á ný til að skoða mig betur um. Sigrurður Ólafsson: Hef ekki komiði þangað en það gæti komið að því að. ég vildi fara þangað. Hörður Valsson: Langar mikið að fara þangað. Þetta er „topp“þjóð sem gaman væii að heimsækja. Ásdis Kalmann: Hef ekki þangað en langar að fara. komið Lesendur Skautaíþróttin er sivinsæl - ef svellið er til staðar. Skautasvæði við Rauðavatn: Fullkomin aðstaða allt árið Jón Mar hringdi: Ég er fyrrverandi og núverandi unnandi skautaíþróttarinnar. Mig langar til að koma á framfæri þeirri hugmynd minni að við Rauðavatn verði komið upp fullkominni að- stöðu til skautaíþróttar allt árið. Þarna verði byggt stálgrindar- hús, þar sem verði vélfryst svell innandyra og jafnvel utandyra einnig, t.d. þannig að hægt sé að lyfta þakinu eða renna til þegar gott er veður yfir sumarmánuðina. 011 aðstaða verði líkust því sem best gerist erlendis í skautahöllum, þ.m.t. veitingasalur og aðstaða til að skipta um skó og annan nauð- synlegan fatnað. Þama getur auöveldlega verið aðstaða til skemmtilegrar fjöl- skylduíþróttar og mun vinsælli og ijölsóttari en t.d. hægt er að bjóða skíðaáhugafólki nú, þar sem hér eru yflrleitt engar aðstæður til skíðaiðkunar sunnanlands. Við Rauðavatn er líka nóg land- rými (eins og er, a.m.k.) til að útbúa bílastæði og gera svæðið í kring aölaðandi fyrir sem ílesta. Þetta mætti svo auglýsa og bjóða erlend- um ferðamönnum aðgang að eins og öðmm og myndu þeir áreiðan- lega kunna að meta að geta farið á skauta hér aö sumrinu. Þessi framkvæmd ætti ekki að þurfa að verða dýr því það er til- tölulega lítill kostnaður við aðstöð- una sjálfa og mun minni en við margt annað sem verið er að fram- kvæma. Þetta gæti orðið stór liður í því að koma til móts við unglinga sem hafa fáa staði að sækja og leysa þar með, að hluta a.m.k., svokallað unglingavandamál og færa stóran hóp unglinga frá miðbæjarrölti að kvöldi til heilbrigðrar skemmtun- ar. Ég er þess fullviss að þessi fram- kvæmd gæti oröið mikil skraut- flöður fyrir Davíö borgarstjóra ef hann hefði frumkvæði að þessu átaki, sem stór hluti borgarbúa hefur saknað og hefur áhuga á að fá, kannski í staö annarra bygg- inga, sem deilur hafa staðið um. - Fleiri mættu nú láta í sér heyra um hugsanalega skautahöll við Rauða- vatn. Fyrirtæki á vegum SÍS: Ahyggjulaust á hausinn? Hólmfríður skrifar: Það virðist sem flest fyrirtæki á vegum SÍS, sama hvort um er að ræða saumastofur, frystihús, kaup- félög eða prjónastofur geti áhyggju- laust farið á hausinn. Það er á framsóknarmáli kallað „tekjuvönt- un“! Síðan eigum við, skattborgar- arnir, aö rétta þessi fyrirtæki við. Hvaö skyldi frystihúsið á Patreks- firði t.d. hafa skuldaö Sambandinu mikið? - Eigum við ekki rétt á að þessi fyrirtæki séu látin leggja spilin á borðið og skipt verði algjörlega um stjórn í þeim? Það er einkennilegt að SÍS virðist ekki koma þessi taprekstur neitt við heldur geta þeir sífellt keypt upp eignir hér í Reykjavík. Hvað skyldi verða gert ef um einkafyrirtæki væri að ræða? Gatnamót Hölðabakka oo Veaturlandavegar. - M|ög hœttuleg gatnamót, aö mati brélrllara. Umferöarljós viö Vesturiandsveg: Hættuleg gatnamot Inpbjörg Óskarsdóttir skrifar: vinstri beyfiju. upp Höföabakkann. þama, heldur bföur maöur þarna a Vegna kjallaragrcinar, sem birtist En slmm voru þau .....■iriu ii Bréfritari gerir aö umtalsefni umferðarljós við Höfðbakka og Vesturlandsveg, sem og fleiri hafa gert hér í DV. Óhopp vegna umferðaiijósa: Höfðabakki - Vesturlandsvegur Þorsteinn Krístinsson skrifar: Mig langar til að segja nokkur orð um þessi umferðarljós á mótum Höfðabakka og Vesturlandsvegar sem virðast hafa orðið þess valdandi aö íslendingar mega kallast „vitlaus- ir“ í umferðinni (sbr. frétt í DV hinn 21. jan. sl. þar sem rætt var við Þórar- in Hjaltason, framkvæmdastjóra umferðamefndar Reykjavíkur). „Vitleysan" á kannski rætur sínar að rekja til þeirrar stofnunar sem Þórarinn Hjaltason er framkvæmda- stjóri fyrir. Ég vil byija á að skýra hvers vegna ég rita þessar línur. Fyrst og fremst er það vegna þess að ég vil ekki telj- ast „vitlaus íslendingur" og efast um að Þórarinn vilji það heldur og í öðru lagi var ég því miður einn af þeim óheppnu á umræddum gatnamótum. Þeir sem leið eiga um þessar kross- götur gera sér hugmynd um hvernig þessi umferðarljós ættu að virka, miðað við það sem þeim var kennt fyrir ökupróf. Minar aðstæöur vom þannig: Ég kem vestur Vesturlandsveginn, ætla út á gatnamótin á grænu ljósi og bíö vegna umferðar á móti. Síðan kemur gult og rautt ljós. Ég fer eftir regl- unni - að rýma gatnamótin. Ég vitna síðan í lögregluskýrslu: „Árekstur varð með bifreiðunum A, sem ekið var vestur Vesturlandsveg og beygt í áttina suður Höfðabakka, og B, sem ekið var austur Vestur- landsveg. Umferðarljós eru viö gatnamótin. Ljósin virka þannig að þegar rautt ljós er fyrir umferð á akstursleið A logar samt grænt ljós í skammastund fyrir umferð austur Vesturlandsveg og fyrir umferð noröur Höfðabakka, frá Vestur- landsvegi í austur, á akstursleið B.“ Tilvitnun lýkur. Er réttlátt að fólk, sem lendir í óhappi við þessar aöstæður, sitji uppi með tjónið (ekki bara ég heldur allir hinir iíka sem lent hafa í þessu) - þegar þetta má rekja til gildruleið- andi umferðarljósa sem bæði lögregl- an og vegfarendur geta vitnaö um? Ég vil taka undir með Aðalsteini Ambjömssyni í kjallaragrein hans í DV hinn 26. f.m., svo og ábendingu Ingibjargar Óskarsdóttur í lesenda- bréfi í DV 2. þ.m. Síðan vil ég skora á tryggingafélög og aðra sem hlut eiga aö máli aö kanna bótaskyldu sína og rétt vegna óhappa sem hafa hlotist af þessum margnefndu götuljósum. Ég ætla að ljúka þessu með þeirri ósk að Þórarinn Hjaitason kenni ekki 1 framtíðinni saklausum vegfar- endum um afglöp sem átt hafa sér stað við skipulagningu þessara gatnamóta og kalli þá „vitlausa ís- lendinga" fyrir vikið. - Megi lausn á þessum málum finnast fljótt og far- sællega til öryggis í umferðinni.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.